Leita í fréttum mbl.is

Einlægur flokksþræll með rispuð og mött framsóknargleraugu

,,Þarna kemur öflug baráttukona af Suðurnesjum" segi Guðni Ágústsson um Helgu Sigrúnu Harðardóttur varaþingmann, sem skríður upp í volgt bólið eftir Bjarna.

Við á moggablogginu könnumst ágæta vel við Helgu Sigrúnu. Það er full ástæða til að hvetja alla, sem vettlingi geta valdið, að skoða skrif Helgu Sigrúnar á blogginu því það fer einlægur flokksþræll sem sér alla skapaða hluti í svart/hvítu gegnum rispuð og mött framsóknarflokksgleraugu. 

Ég get lofað því að það er skemmtileg lífreynsla að lesa sannann framsóknarsannleika eftir öfgaframsóknarkonu af Suðurnesjum sem nú er í þann veginn að gerast þingkvendi við hliðina á Valgerði Sverrisdóttur.


mbl.is Guðni: Bjarni axlar ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórbergur Torfason

Úpps hvert í logandi maður, skyldi Guðni hafa lesið pistlana hennar? Þeir eru oft á tíðum eins og teknir upp úr Kóraninum

Þórbergur Torfason, 12.11.2008 kl. 01:39

2 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Sveinnm  Ert þú þessi stóri sannleikur?  Það er með ólíkindum hvernig amast er við Framsóknarmönnum.  Hvernig ætli standi á þessu, það er eins og kreppan sé þeim að kenna. Ég er ekkert undanskilin, ég úthúða þeim í hvert sinn sem ég hef tækifæri til.  Valgerði þoli ég ekki, en ég mun sjá eftir Bjarna, hann er þó allavega skemmtilegur.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 12.11.2008 kl. 21:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband