Leita í fréttum mbl.is

Gagnrýnisvert val á ræðumönnum

Þó að ég hvetji alla sem vettlingi geta valdið að mæta á Austurvöll í dag til að mótmæla gjörðum valdastéttar auðvaldsins, sem og auðvaldskerfnu sjálfu sem er hinn eini sanni sökudólgur, verð ég að veita mér þann munað að gagnrýna val á frumælendum mótmælafundarins.

Það kann ekki góðri lukku að stýra, að frumælendur þessara funda séu nær eingöngu af standi menntamanna, blaðamanna og rithöfunda. Það verður að hleypa rödd róttæks verkafólks að, annars er hætt við að fundirnir koðni niður í einsleitt menntamannamuldur í stofukratastíl.

Ég skora því á skipuleggjendur Austurvallar- og Háskólabíósmótmælafunda, að gera bragarbót á vali frummælenda og leita hiklaust smiðju verkafólks þegar þeir velja fólk til að tala á fundunum.


mbl.is Útifundur á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: The Critic

Þetta er mest allt komma skríll sem er þarna samankominn og skipuleggur þetta og þess vegna fá engir aðrir að komast í ræðustólinn

The Critic, 29.11.2008 kl. 11:20

2 identicon

Þegar fólk leggur á sig ómælda vinnu við að koma á mótmælafundum, skipuleggja þá og útvega peninga til þess, skal alltaf einhver rísa upp sem veit miklu betur hvernig á að gera þetta allt saman.

Ég er sammála því að það væri fengur að því að heyra í verkafólki, bílasölum, eldri borgurum o.s.frv. og þegar þú ert búinn að leggja á þig vesenið við að koma á koppinn mótmælafundum þar sem þetta fólk verður í hlutverki ræðumanna, mun ég sannarlega mæta. Það hvarflar hinsvegar ekki að mér að nöldra yfir því hvað þeir sem þegar hafa fórnað tíma, kröftum og peningum í þetta, séu ekki að gera.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 29.11.2008 kl. 11:26

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég geri þá ráð fyrir, herra The Critic, að ef það væri auðvaldsskríllinn sem stæði fyrir fundum á Austurvelli kæmust allir að, meira að segja róttækt fólk úr verkalýðsstétt.

Þetta er vægast sagt leiftrandi upplýsingar maður minn.

Jóhannes Ragnarsson, 29.11.2008 kl. 11:29

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þú segir það Eva. Verkafólk á semsagt ekkert erind uppá dekk á mótmælafundunum á Austurvelli, það á að halda sig annarsstaðar og koma sér upp sínum eigin mótmælafundum ef það vill!

Ég verð að segja, að svona hugsunarháttur nær ekki nokkurru átt, er í hæstamáta heimskulegur og fávís. Ef þessir fundir eru einugis ætlaðir menntamönnum, fjölmiðlafólki og menningarspjátrungum, þá er ég ekki með.

Þú skalt athuga það, Eva, að mér gengur ekki nema gott til þegar ég gagnrýni val á ræðumönnum á Austurvelli. Mér dettur ekki í hug að halda að ég viti öðrum betur hvernig á að standa að svona fundum, en ég lít þannig á að mér beri skilda til benda á augljósa annmarka varðandi þessa fundi, annmarka sem koma til með að deyfa slagkraft þeirra með tímanaum.

Jóhannes Ragnarsson, 29.11.2008 kl. 11:40

5 identicon

Ég sagði ekki að verkafólk ætti ekkert erindi á þessum fundum. Ég er hinsvegar hundleið á fólki sem þykist endalaust geta gagnrýnt aðra fyrir það hvernig þeir mótmæla eða mótmæla ekki, enda þótt þeir leggi ekkert af mörkum sjálfir.

Ég býst fastlega við að þeir sem flytja ræður á Austurvelli hafi óskað eftir því sjálfir að fá að taka til máls og hef litla trú á því að verkafólki yrði neitað öðrum fremur.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 29.11.2008 kl. 11:53

6 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Aðal málið er að gera eitthvað frekar en ekkert. Ekki er að sjá að stjórnvöld ætli að sjá af sér og reka einn eða neinn né skipta út í þeim stöðum sem mesta ábyrgð bera á klúðrinu.

Þá er ekki nema eitt eftir og það er að bera þetta lið út með valdi og fara að virka Mólótov kokteill þar sem við á.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 29.11.2008 kl. 11:58

7 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Það er versti andskotinn að gömlu vinir okkar, fræ-búðingurinn Gunnar Kristjánsson stóri-lúður og stór matsveinninn Eggert Sigurðsson Akranes, skulu vera burtkallaðir til æðri starfa !

Þeir hefðu sko sómt sér vel sem ræðumenn á mótmælafundi sem þessum.

Níels A. Ársælsson., 29.11.2008 kl. 12:39

8 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Samála Jóhannes það mætti blanda þennan hóp betur.

Hallgrímur Guðmundsson, 29.11.2008 kl. 13:09

9 Smámynd: Villi Asgeirsson

Ekki vera svona uppstökk Eva. Þessi færsla var augljóslega vel meint, allavega las ég hana þannig og athugasemdir staðfestu það.

Villi Asgeirsson, 29.11.2008 kl. 13:50

10 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Satt best að segja er ég farinn að efast um þessi friðsömu mótmæli. Hvort sem boðið er upp á faglærða eða ófaglærða í ræðustólinn. Byltingu á þeim nótum þar, sem blóði verður ekki úthellt virðist mér helsta lausnin? Það sjá það allir sem eitthvað vilja sjá, að það verður engu tauti við Geir og félaga komið.

Þorkell Sigurjónsson, 29.11.2008 kl. 15:54

11 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já, Viðar, það er kominn helst til of áberandi efri-millistéttarbragur af þessu. Ég vona bara að aðstandendur mótmælanna átti sig á stöðunni og bregðist við samkvæmt því, ella tefla þeir öllu andófinu í tvísýnu.

Jóhannes Ragnarsson, 29.11.2008 kl. 17:23

12 Smámynd: Rúnar Sveinbjörnsson

Róleg, ég var á fundinum í dag og var í raun sammála öllum ræðumönnum. Voru sem sé allir góðir á sinn hátt. Gleymum ekki að fjöldinn skiptir mestu máli. Kalt mat, fundurinn var velheppnaður. Áhyggju mínar snúast um að alþýðan dofni, verði sama um allt. Stöndum saman, ræðum smáatriði að byltingu lokinni.

Rúnar Sveinbjörnsson, 29.11.2008 kl. 18:07

13 identicon

Heill og sæll; Jóhannes, líka sem aðrir skrifarar og lesendur !

Jóhannes ! Tek; fyllilega, undir þín sjónarmið þín, hér sem víðar. Hygg; að hin valinkunna sæmdarkona, Eva Hauksdóttir sé ekkert fjarri okkar sjónarmiðum, þá grannt sé skoðað.

En Eva; sem fleirra gott fólk athugi, að það eru; að uppistöðu, skriftlærði lýðurinn, úr Háskólum, sem viðlíka stofnunum öðrum, hver ber meginábyrgð á, hversu komið er, okkar standi, sem dæmin sanna, flest.

Verkafólk; sem annað erfiðisvinnufólk, og aðrar undirstöðu stéttir okkar samfélags á, að vera í fararbroddi göngunnar, til hins nauðsynlega niðurrifs frjálshyggjukapítalisma þess, hver er að koma öllu hér, þráðbeint, til andskotans, gott fólk.

Með baráttukveðjum góðum, vestur undir Enni, sem víðar /

Óskar Helgi Helgason  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.11.2008 kl. 21:18

14 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Jóhannes,  það mega allir tala á fundinum.  Þú hringir bara í Hörð Torfason símanúmerið er í símaskránni.  Hann er marg búinn að hvetja fundargesti til að hafa samband.  Ég hef reyndar sent honum tölvupóst í tvígang, en hann hefur ekki tíma til að svara svoleiðis sendingum.

Þeir sem láta sig málið varða, eiga auðvitað að fá að segja sína skoðun, og ég virði það við skipuleggjandann að hann ritskoðar ekki ræður þeirra sem tala, en hann mætti gefa þeim hámarkstíma.  Fjandakornið ég gafst upp síðasta laugardag, eftri að vera búin að standa út í kuldanum og hlusta og hlusta ekki á „vælið“ í Gerði Pálma sem einu sinni var kennd við FLÓNNA.  Hún talaði í 23 mínútur.  Ég vil Aksjón, haldast í hendur, hrópa slagorð, faðmast og jafnvel gráta.  5 mínútna ræður eru hámark og þær eiga að vera hnitmiðaðar og það hafa bæði verið ræðumenn  með og á móti ESB.

Þarna sérðu Jóhannes minn, þú þarft ekki annað en að blístra  og ég er mætt á síðuna þína.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 29.11.2008 kl. 21:39

15 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þakka þér fyrir ábendinguna Ingibjörg. Ég geri ráð fyrir að aðstandendur mótmælanna lesi það sem bloggarar hafa til málanna að leggja um fundina sem þeir skipuleggja og halda. Þar með er mínu takmarki náð.

Jóhannes Ragnarsson, 29.11.2008 kl. 22:10

16 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Það er óðs manns æði að ætla að henda reiður á öllu því sem er bloggað og skrifað um mótmæli þessa dagana. Sá sem hefur ábendingar eða hugmyndir ætti að senda Herði Torfasyni tölvupóst.

Vésteinn Valgarðsson, 29.11.2008 kl. 23:46

17 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Það þýðir ekkert að senda Herði Torfa póst, hann sagði það á rás tvö að honum bærust 70-100 póstar daglega og hann kæmist ekki í að lesa þá. 

Hann hefur allavega ekki svarað mínum tveimur og ég er ansi hrædd um að hann sjái ekki alveg hvað sé að.  Það á bara eftir að fækka á Austurvelli.  Ég nenni ekki að standa þar í kulda og trekki og hlusta á sjálhverfa einstaklinga.  Samt er ég reið, já alveg rosa reið og gæti alveg hugsað mér að segja nokkur orð. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 30.11.2008 kl. 08:33

18 identicon

Skipuleggðu þá endilega þínar eigin aðgerðir Ingibjörg. Ég er ekki að segja þetta til að setja ofan í við þig og ég skal hjálpa til ef þú vilt halda fund eða fara í einhverja aðra aðgerð.

Ég vil líka að sem flestar raddir heyrist en það getur enginn gert svo öllum líki og það þjónar engum tilgangi að gagnrýna mótmæli sem aðrir skipuleggja. Við sem viljum gera eitthvað öðruvísi þurfum að rísa upp og gera það sjálf en ekki bíða eftir að Hörður Torfason, Ómar Rangarsson eða einhver annar geri það fyrir okkur. Stöndum frekar við bakið á þeim en bætum svo við því sem á vantar.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 30.11.2008 kl. 10:18

19 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Ég er sammála því að það sé pláss fyrir fleiri raddir í mótmælaöldunni -- þ.e.a.s. fjölþættara frumkvæði. Hinar ýmsu mótmælaaðgerðir eru góðra gjalda verðar en þær eru ekki of margar. Þær eru ekki einu sinni nógu margar. Ekki fyrr en ríkisstjórnin hrökklast frá með halann á milli lappanna.

Hörður er annars líka í símaskránni. :)

Vésteinn Valgarðsson, 30.11.2008 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband