Leita í fréttum mbl.is

Frú Kondomlessa á leið í íslensku utanríkisþjónustuna

Frábær kona frú Kondomlessa Ræs og veit hvað heiminum er fyrir bestu. Auðvitað hefur hún lög að mæla þegar hún segir að ,,brátt muni fólk þakka Geogi Bush velgjörðir hans í þágu mannkyns." Þó það nú væri. Georgi Bush verður seint fullþakkað framlag hans til morða og sríðsglæpa í fjarlægum löndum, það eru mikil afrek sem síst ber að forsmá. Og í stjórnartíð Georgs hrundi kapítalisminn út um víðan völl og sér ekki enn fyrir endann á þeirri guðsblessun.

En nú líður senn að því, að hin elskulega kona, Kondomlessa Ræs, verði atvinnulaus því ekki ætlar þorparinn Óbama að nýta sér starfskrafta hennar og reynslu. En sem betur fer á Kondomlessa vinkonu sem er jafn frábær og hún sjálf, en þar á ég að sjálfsögðu við jabnaðarjúnkuna I. Sól Gýrszladóttur sem er sannkallaður haukur í horni þegar vinkonur hennar eiga hlut að máli. Það væri allsengin goðgá þó frú I. Sól tæki sig til nú um áramótin og skipaði hina atvinnulausu Kondomlessu sendiherra Íslands í einhverju valikunnu landi. Það yrði mikill vegsauki fyrir Ísland á alþjóðavettvangi og stórbrotið bjargráð í þeim voðalegu þrengingum sem auðvaldsskipulagið hefur kallað yfir þjóð vora.


mbl.is Bush verður þakkað, segir Rice
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband