Leita í fréttum mbl.is

Sjá roðann í austri

Sjá roðann í austri! - Hann brýtur sér braut!

Fram bræður! - Það dagar nú senn!

Þeir hæða vorn rétt til að rísa frá þraut,

vorn rétt til að lifa eins og menn.

Þeir skammta okkur frelsi; þeir skammta okkur brauð.

- Hvað skóp þeirra drottnandi auð.

 

Lífi byltingin!

Áfram nú félagar!

Upphafið að endalokum drottnaranna er hafið!


mbl.is Enn fjölgar á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Búinn að taka undir með þér kallinn!

Sigurður Sigurðsson, 20.1.2009 kl. 22:27

2 identicon

Þetta er ekki bylting kommúnista, þetta er bylting venjulegs fólks sem er ekki að pæla í pólitík dags daglega. Svo allt tal um ,,félaga" og þar fram eftir götunum er misskilingur.

Valsól (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 23:10

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Á þessari stundu veit enginn hvaða stefnu byltingin tekur, nema hvað hún verður til vinstri. Að minnsta kosti vona ég að þetta verði ekki bylting tækifærissinna, þá væri til lítils unnið. Ég vona líka að þeir sem eru í byltingarhug séu ,,félagar" hvers annars.

Kommúnistar eru líka venjulegt fólk og upp og ofan hvað þeir hugsa mikið eða lítið um pólitík dags daglega.

Jóhannes Ragnarsson, 20.1.2009 kl. 23:23

4 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Hvaða kjaftæði. Lenín okkar sagði að þannig yrði byltingin, að fólkið risi upp og í kjölfarið tæki forystulið alþýðunnar, kommúnistar, völdin í nafni þess. Hvað er það sem þú skilur ekki Valsól? Ertu kannski sósíalfasisti undir niðri?

Sigurður Sigurðsson, 20.1.2009 kl. 23:24

5 Smámynd: Sverrir Einarsson

Þetta kalla ég nú Sósíalisma Andskotans sem Siggi gamli er að þusa, enda orðinn elliær af kerlingarleysi. Trotsky hafði vit á að forða sér, en þeir eltu hann á 8 hófum hreinum og káluðu á gamals aldri....en hvort það var vel meint eða illa veit ég ekki, þekki ekki þennann Sovétisma nægjanlega til að úttala mig um það, en ef dagurinn í dag er fyrirboði þess sem koma skal þá verður Alþingi ekki "næstum sett í Herkví" heldur svelt út ef ekki vill betur til. Það er búið að segja þeim upp og þá á viðkomandi að yfirgefa vinnustaðinn hið snarasta.

ps Siggi "Forysta Alþýðunnar" var manna á meðal kallað spillingarliðið...bara svo þú vitir það.

Góðar stundir, og n.b. Siggi ég held á kaffibollanum með hægri hendi....bara svo þú vitir það og komir því í þinn þvera Framsóknarhaus hehe.

Sverrir Einarsson, 20.1.2009 kl. 23:38

6 Smámynd: Þórbergur Torfason

Af hverju geta mótmælendur ekki verið félagar Valsól? Sérkennilegt sjónarmið sérstaklega í ljósi þess að allir sem einhverntíman hafa verið kunnugir einhverjum Raufarhafnarbúa, verða sjálfkrafa félagar. Það hefur ekkert með pólitík að gera og ég er sannfærður um að Jói, sem er annálaður Framsóknarmaður eins og velflestir á Raufinni, þó hann sé ekki þar er ekkert að blanda pólitík í þetta ljóð. Textinn á bara sannarlega vel við.

Þórbergur Torfason, 20.1.2009 kl. 23:40

7 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Hrafn sagði vel að enginn sé verri
vilji svo til að hann væri perri.
Víst má það vera
ef vilji menn gera,
en ég efast þó um þennan Sverri.

Sigurður Sigurðsson, 20.1.2009 kl. 23:51

8 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Framsóknarforingjar setja á oddinn
að flengríðast saman uppi á hól.
En ferlegt að hafa ekki fengið að ríða
frá því löööööööööööngu fyrir jól.

Sigurður Sigurðsson, 20.1.2009 kl. 23:56

9 Smámynd: Sverrir Einarsson

Spurning hvort þú talar um félaga Stalín eða Stalín félaga.......það fyrrnefnda á við um pólitík, það seinn gæti bent til að þessi Stalín væri frá Ríben jú jú...........og þeir áttu sinn Stalín félaga á Ríben í den sei sei jú, það held ég nú.

Sverrir Einarsson, 21.1.2009 kl. 00:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband