Leita í fréttum mbl.is

Illa ofin sauðargæra hinna reyndari húskarla

úlfurÓjá, ekki er það til farsældar fallið að reiða sig á hina elliæru og dauðvona Framsóknarmaddömu. Engu breytir þó gamla hræið hafi komið sér upp hálfsofandi yfirhúskarli á þokkalegum aldri. Við banabeð Maddömunnar voka eldri og reyndari húskarlar, sem hafa þann starfa að stjórna þeim syfjaða eins og leiðinlegri strengjabrúðufígúru. Hinir reyndu húskarlar heita nöfnum eins og Finnur Ingólfsson, Ólafur Ólafsson, Alfreð Þorsteinsson og Halldór Ásgrímsson, og eru þekktir fyrir að hafa sitt fram og halda sínum hlut. Að þeirra undirlagi var ofin sauðargæra úr fyrirbærunum Sigmundi Davíð, Birki Jóni og Eygló Harðar til að breiða yfir fráhrindandi og gráðugt ginið á hinum reyndu og slóttugu úlfum.

Þó Sjáfstæðisflokkurinn sé kominn í sorpdallinn er það ekki nóg, Framsóknarflokkurinn verður að hafna þar líka. Ástæðan er augljós: Samtök þjóðníðinga og glæpamanna ber að uppræta og í eldsofnin kasta.


mbl.is Ný ríkisstjórn eftir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband