Leita í fréttum mbl.is

Gelgjulegt gaspur, athyglissýki og leikaraskapur

flokkseigendur_786424.jpgPóltískur frami Katrínar Jakobsdóttur á meira skylt við leikaraskap en nokkurn tímann eitthvað sem hægt er að tengja við alvöru. Þegar Steingrímur J. gerði hana að varaformanni VG, duldist engum að hann var að koma sér upp þægilegri skrautfjöður sem gott væri að hampa framan í fólk í lýðskrumstilgangi. Það vita allir sem vilja á annað borð vita, að Katrín Jakobsdóttir er gjörsamlega laus við að vera pólitísk að upplagi, en gelgjulegt gaspur, athyglissýki og leikaraskapur irðist geta fleyt fólki ansi langt við heppilegar aðstæður. Þessi kynduga varaforkona Steingríms J. og Hjörleifs Guttormssonar, er sannarlega mjög í ætt við keisara þann er spókaði sig forðum um á nýju fötunum; sjóndeildarhringur hennar hefur aldrei náð út fyrir lóð Háskóla Íslands og að sjálfsögðu hefur þessi skrautfjöður Steingríms aldrei unnið ærlegt handtak; og á menningarsviðinu hefur hún aldrei komist lengra en uppá þrep innantómra sakamálareyfara eftir Arnald Indriðason og aðra slíka.

En nú er Katrín þessi Jakobsdóttir orðin menntamálaráðherra, sem sýnir svo ekki verður um villst, hverskonar uppskafning er stunduð innan vébanda VG. Og til að kóróna meisteraverkið er Kolbrún Halldórsdóttir líka gerð að ráðherra. Svona vinnubrögð eru langt í frá að vera trúverðug og það mun koma niður á VG í kosningunum í vor. 

Eftir stendur, að raunverulegum vinstrimönnum, sósíalistunum, vantar stjórnmálahreyfingu til að starfa í. Það er hrein og klár sjálfsblekking, að VG þeirra Steingríms, Hjörleifs og Álfheiðar Inga, sé boðlegur vettvangur fyrir heilbrigða, róttæka vinstrimenn.


mbl.is Ógleymanlegur afmælisdagur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eki ber mikið á heilbrigði í þessum skrifum, en töluvert á róttækni. Hjá ykkur báðum.

Elvar Geir Sævarsson (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 16:41

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Núnú, ekki kviknar á perunni hjá Elvari Geir - en það verður víst að hafa það ...

Jóhannes Ragnarsson, 2.2.2009 kl. 16:52

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þó að ,,Guðmundur Ólafsson" láti að því liggja að hann sé framúrskarandi vel að sér í lögboðnum málfræði- og stafsetningarreglum er hann samt sem áður gjörsamlega óskiljanlegur; sennilega er ræflinum fyrirmunað að tala mennskra mál, eins og prófgráðumanna er siður.

En hvað ætli hafi orðið um bloggsíðuna hjá þeim góða ,,Guðmundi Ólafssyni?" Hún virðist hafa horfið eitthvað út í buskann um það bil sem höfundur hennar kommentaði hjá mér.  

Jóhannes Ragnarsson, 2.2.2009 kl. 17:53

4 Smámynd: Þór Jóhannesson

Katrín er ungur og upprennandi stjórnmálamaður sem býr yfir þeim nýju gildum og réttsýni sem þjóðin þarf á að halda. Þessi úrsér gengnu feðraveldisrök þín Jóhannes standast ekki nánari skoðun. Vona að þú kynnir þér hvað hún hefur staðið fyrir og barist fyrir hingað til - þessi afstaða og rangtúlkun þín á þessari mætu konu hlýtur að vera skrifuð í mikilli geðhræringu og að vanhugsuðu máli.

Þór Jóhannesson, 2.2.2009 kl. 18:15

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ónei, Þór, pistilinn skrifaði ég ekki í geðshræringu eða af vanhugsuðu máli. Öðru nær. Ég hef fylgst með Katrínu Jakobsdóttur síðan hún gekk til liðs við VG. Fram að þessu hef ég ekki séð að hún hafi staðið fyrir nokkurn skapaðann hlut sem máli skiptir. Og ópólitísk er hún, jafnvel pólitískt viðrini ef að er gáð. Þessi skoðun mín hefur ekkert með kynjafordóma að gera, enda er ég ekki haldinn slíkum kvilla. 

Jóhannes Ragnarsson, 2.2.2009 kl. 18:39

6 Smámynd: Þór Jóhannesson

Ja hérna, ég er svo aldeilis hissa á þessum sleggjudómum og upphrópunum - Katrín er í mínum huga leitogi framtíðarinnar, einungis 33 ára og fær um að taka hvaða slag sem er.

Þór Jóhannesson, 2.2.2009 kl. 19:25

7 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það má vel vera að Katrín verði einhverntímann leiðtogi einhverra, en leiðtogi sósíalista og verkalýðssinna verður hún aldrei.

Jóhannes Ragnarsson, 2.2.2009 kl. 19:35

8 Smámynd: halkatla

loksins er komin fram einstaklingur sem er verðugur titilsins "sætasta stelpan á ballinu", getum við ekki sæst á að vera þó sammála um það?

halkatla, 2.2.2009 kl. 19:49

9 Smámynd: Þór Jóhannesson

Ótrúlegir fordómar í fólki - að draga útlit inn í dæmið. Jafn forheimst og að draga kynhneigð forsætisráðherra inn í það og margir skutu sig illilega í fótinn með í umræðunni hér fyrir skömmu.

Þór Jóhannesson, 2.2.2009 kl. 19:56

10 Smámynd: Þór Jóhannesson

Hobbita tengingin er augljóslega húmor - en táknræn tengin fyrir marga hluta sakir. Katrín yrði örugglega ekki sár að vera líkt við eins hjarthreina veru og hobbita - og svo þekkir hún auðvitað vel til þessara sagna þar sem bróðir hennar er einn fremsti fræðimaður landsins í þessum fræðum.

Þór Jóhannesson, 2.2.2009 kl. 21:14

11 Smámynd: Þór Jóhannesson

Það sem sumum skortir í greind halda þeir greinilega að þeir geti unnið upp með innihaldslausu bulli. Sem sýnir aftur hvað greind þeirra hlýtur að teljast skert.

Þór Jóhannesson, 3.2.2009 kl. 01:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband