Leita í fréttum mbl.is

Dugnaðurinn launaður með mannorðsmissi

monni3.jpgMikið á Sjálfstæðisflokkurinn gott að eiga mann eins og Gvöðlaug Þór Þórðarson í sínum röðum. Þeim manni munar ekki um ræsa út sérdeilis gríðarlega dugnaðarfanta þegar mikið liggur við og tómahljóð komið í péníngakassann í Valhöll. Vikapiltarnir Steinþór og Þorsteinn eru aungvir þúfutittlingar þegar safna þarf saman nokkrum tugum milljóna á svipstundu; þar fara svo sannarlega menn sem ganga hreint til verks og kunna sitt fag. Og nú er öll íhaldshjörðin í öngum sínum, já og sumir hverjir í losti, útaf fyrirhyggju Gvöðlaugs Þórs og dugnaði Steinþórs og Þorsteins. Það ríður ekki við einteyming vanþakklætið í Valhallarkoti; þeir andskotar sem þar búverka eiga ekki skilið að fá eina einustu krónu í kassann hjá sér meir, fyrst atorkusömustu peningasöfnurunum er launaður dugnaðurinn með mannorðsmissi og öðrum álíka kræsingum.
mbl.is Söfnuðu fé fyrir flokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Að ógleymdu því að Guðlaugur leitaði ekki langt yfir skammt þegar hann talaði við stjórnarmann í FL annars vegar og Landsbanka hins vegar

Björgvin R. Leifsson, 12.4.2009 kl. 12:32

2 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Spurning hvort ég hef lyst á páskaegginu mínu......  Mér er búið að vera óglatt alla vikuna

Ingibjörg Friðriksdóttir, 12.4.2009 kl. 13:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband