Leita í fréttum mbl.is

Ef Gvöðlaugur vill heilbrigðisvottorð sem dugar

angel1.jpgEf Gvöðlaugur litli Þór væri ærlegur, og vildi í eitt skipti fyrir öll losa sig við sorann sem flokkssystkyni hans reyna hvað þau geta að klína á hann, þá ætti hann auðvitað að fara þess á leit við efnhagsbrotadeild rannsóknarlögreglunnar að hún rannsakaði prófkjörsumsvif hans útí hörgul og gæfi honum að því loknu heilbrigisvottorð uppá hreina samvisku í hvívetna.

Ég trúi því að Gvöðlaugur sé allra manna heiðvirðastur og hafi aldrei nokkurn tímann gert nokkuð rangt, hvað þá óheiðarlegt eða sem tengja má spillingu af einhverju tagi. Hann er í raun fjórvængjaður engill, innblásinn af hinni ósýnilegu hönd markaðarins. 


mbl.is Óskar úttektar á störfum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

ÍhaLdsFLokknum oft er tamt

aumt að stunda blaður.

Er hann Gulli alltaf samt

engill fjórvængjaður.

Björgvin R. Leifsson, 13.4.2009 kl. 21:57

2 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

ÍhaLdsFLokks í öskustó

oft er stundað blaður.

Innblásinn er alltaf þó

engill fjórvængjaður.

Björgvin R. Leifsson, 13.4.2009 kl. 21:59

3 Smámynd: Kristbjörn Árnason

hin helbláa hönd. sjálft trúartáknið

Kristbjörn Árnason, 13.4.2009 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband