Leita í fréttum mbl.is

Að græða á heilsuleysi

kapÞeir eru ekki af baki dottnir græðgissjúklingarnir. Nú ætla einhverjir andlegir auðnuleysingjar og siðleysingjar sér að hefja byggingu á einkaspítala og heilsuhóteli á Íslandi fyrir ríka útlendinga sem orðnir eru ryðgaðir í knjám og mjöðmum af græðgi og ómennsku. Og ekki stendur á talsmanni þessarar samfélagsfjandsamlegu erkiheimsku að tíunda gjaldeyrisgróðann sem ,,heilsuspekúlasjónin" á að skila þjóðinni.

Nú skilst mér að á bak við íslensku heilsugróðasóttargemlingana standi amrískt ,,heilsufélag" þess albúið að styrkja gróðadæmið og styðja. Hvernig á því stendur að erlent félag vill starta slíku fyrirtæki uppi á Íslandi er mér hulin ráðgáta. Ef þessum endemum dettur í hug að nú sé lag að hreiðra hér um sig í skjóli bágrar stöðu efnahagsmála á Íslandi er aldeilis ekki víst að þeim verði að ósk sinni. Ég geri ráð fyrir að Ögmundur heilbrigðisráðherra slái óviðeigandi græðgisóra PrimaKer og Shiboomi ekki aðeins útaf borðinu heldur alla leið útí hafsauga. Veikindi fólks á ekki að vera náma fyrir veruleikafirrta og ósvífna peningageðsjúklinga. Heilbrigðismál eru samfélagsmál sem ber að nálgast á félagslegum grunni þar sem jöfnuður heilbrigð siðvitund eru höfð að leiðarljósi en ekki ójöfnuður og gróðasjónarmið.   


mbl.is Stefna að byggingu einkaspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Hvernig var það, hét staðurinn ekki Freeport - og var í Ameríku, hvert efnaðri íslendingar fóru á sínum tíma til að reyna að ná tökum á áfengisvandamálum sínum???

Það að reisa hér svona starfsemi þarf kannski ekki að vera alvitlaust og raunar hafa menn verið að gæla við þessa hugmynd í sambandi við ríkisspítalanna. 

Fólkið sem um ræðir er þegar orðið heilsulaust og þarf á þessum aðgerðum að halda. Vilji það koma hingað og njóta þjónustu íslenskra sérfræðinga, sem ella mundu e.t.v. finna sér starfsvettvang erlendis, þá sé ég ekki annað en að skoða megi það mál.

Svo er þessi "græna" hugmyndafræði væntanlega það vörumerki sem helst mun duga okkur á næstunni, fái hún brautargengi.

Haraldur Rafn Ingvason, 31.8.2009 kl. 22:33

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Græna hugmyndafræði, hahahahaha !

En að gera sér veikindi fólks að féþúfu er ekkert til að hlægja að. Þesshátta brall er í eðli sínu ófyrirleitin glæpur.

Jóhannes Ragnarsson, 31.8.2009 kl. 22:38

3 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Gott að græna hugmyndafræðin gat létt þér lund, þú sérð að hún svínvirkar

Þetta með að gera sér veikindi fólks að féþúfu, þá gengur hugmyndin út á að fólk hafi val og það velji að koma hingað til að láta gera þessar aðgerðir.  Væntanlega mundi þetta fólk geta gengist undir þessar aðgerðir í heimalandi sínu - fyrir lægra verð - en það fer þó eftir hvernig heilbrigðistryggingakerfi það býr við - sem og gengi gjaldmiðla hér á landi.

Ég get valið mér tannlækna á ýmsu verðbili, en vel mér einn af þeim dýrari. Ástæðan er góð reynsla af viðkomandi - fagmennska fram í fingurgóma.

Þetta er ekki hugsað sem atlaga að íslenska heilbrigðiskerfinu enda er all góð sátt um það (sérstaklega á þessum síðustu og verstu), þótt sumir heittrúaðir vilji einkavæða a.m.k. hluta þess. 

Haraldur Rafn Ingvason, 31.8.2009 kl. 23:18

4 identicon

Hvaða tal er þetta um auðnuleysingja...... það eru ekki allir að hugsa um að stela og græða.... mér finnst þetta ekki vera auðnuleysingjaháttur ég bjó í því social ríki Svíþjóð í þó nokkur ár og starfaði við heilbrigðisþjónustu ekki var það betra þar finnast auðnuleysingjar sem eru RÍKISSTARFSMENN fram í fingurgóma og lifta ekki litla putta til að gera e-h meira en ríkið segir.  Og þar eru sko afætur á kerfinu örugglega hálf þjóðin sem er í bómul og nennir ekki að sýna neitt framtak....Húrra fyrir svona framtaki og það að segja að þeir séu að notfæra sér veikindi fólks... Ég er viss um að sumir verða hæstánægðir að fá heilsuna fyrr en ella... ég borgaði hátt í 60 % skatt í Svíþjóð en samt var allt að 2 ára bið eftir hné protesum.... það þurfti að borga fyrir auðnuleysingjana þá sem sitja og hugsa, lesa og rífast allan daginn en nenna ekki að gera neitt............Þeir hugsa hvað getur þjóðfélagið gert fyrir mig ?

Reykjavíkurmær (IP-tala skráð) 1.9.2009 kl. 00:33

5 identicon

Já þið veljið ykkur tannlækna  mis-RÁNdýra en þú velur ekki hvort þú fæðist með fullkomnar tennur.

Hvernig stendur á því að tannheilsa er í engu samræmi við aðra heilsuflokka þegar kemur að kostnaði. Það eru greinilega forréttindi að geta stundað reglulegar tannlæknaskoðunarferðir. Stutt skoðunarstopp kotar amk 15þús og hvítuna úr augunum þurfiru að laga eitthvað.

En það er frítt að mæta eins oft í skoðun hjá húð og kyn.

Tryggingasjóður tekur þátt í okrinu þar til maður nær 18 ára aldri og síðan máttu eiga þig.

Fáir þú sýkingu í munnhol kostar það þig margfalt meira en að sýkjast í lífsnauðsinlegu lífæri varðandi mótsframlög tryggingasjóðs.

Mætti halda að tennur og munnhol séu ekki líkamspartur í augum tryggingasjóð ríkisins.

Barn sem svo óheppilega fæðist með skakt bit eða skakkar tennur kostar foreldra þess um 300þús, að minnsta kosti, þó svo að mótramlag ríkis sé 80%. ekki allir hafa efni á að standa í slíkum útgjöldum.

Oft sér maður fólk með svo skakkar tennur að það er áberandi lýti og hugsar hví gerir það ekki neitt í því. en an sjálfsögðu vill einginn bera þann útlitslega galla en það hefur einfaldlega ekki efni á því, Kostnaðurinn við að dæla silikokni í brjóstin á sér mundi virðast smámunir við hlið að auðlast heilbrigðar tennur

Gunnar Þórbergur Harðarson (IP-tala skráð) 1.9.2009 kl. 01:12

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Mér finnst thetta frábaert. Thad thurfa thví midur allir ad fara til laeknis einhvern tímann. Hér er verid ad koma med pening inn í landid, búa til störf fyrir íslendinga og gera íslendkum laeknum taekifaeri til ad vera heim í stad thess ad flyja til útlanda. Og annad thessu fylgir engin mengun eda náttúruspjöll.

Húrra! segi ég nú bara.

Sporðdrekinn, 1.9.2009 kl. 02:37

7 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Frábærar fréttir fyrir Ísland og löngu tímabærar. Mér finnst þú mjög harkalegur og dómharður í máli þínu Jóhannes. Þú getur ekki stöðvað þróun mála enda er þetta bylgja sem er að fara um allt og við erum mjög samkeppnishæf. Ef við gerum þetta ekki sjálf koma erlendir aðilar og gera þetta og við getum ekkert gert enda bundin EES samningnum. Betra er að við gerum þetta á okkar hátt og setjum samfélagslegar reglur sem nota bene eru arfavitlausar eins og málin eru í dag. Það verður að breyta reglum á þann hátt að Íslendingar geti verslað líka í þessum stofnunum í stað þess að aðilar eru núna að fara erlendis í stórum stíl og kaupa þessa þjónustu þar. M.a. í þessum norrænu velferðarríkjum.

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 1.9.2009 kl. 05:48

8 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Svo sem sjá má á athugasemdum hér að ofan er græðgisvæðing hugans fráleitt runnin af öllum þegnum þjóðfélagsins okkar. Gróðabrall og ójöfnuður í kringum heilsu fólks eru talin sniðug og frábær fyrirbæri, fyrir nú utan að veita læknum ,,tækifæri til að vera heima í stað þess að flytja til útlanda!" Já, það er sannarlega sniðugt að mismuna fólki á grundvelli heilsu þess, þau skemmtilegheit höfum við séð hvað skýrast í tannlækningageiranum.

Og hvernig er það með þetta blessað fólk sem hampar prófum í læknisfræði? Lögðu þessir einstaklingar læknisfræðina fyrir sig fyrst og fremst gróðavon að hætti sjálftökustétta en ekki vegna hugsjóna um bætta heilsu samborgara sinna?

Frá mínum bæjardyrum séð er læknastéttin heilbrigðisvandamál út af fyrir sig. Peningasótt lækna virðist lítil takmök sett, þeim er fjandans sama um ójöfnuð og óréttlæti bara ef þeim tekst sjálfum af olngboga sig áfram fúapytti græðginnar. Hjá þessu liði virðist fátítt að finnist ærleg samfélagsleg taug sem tekur hag heildarinnar fram yfir einkagróða sjálfra sín.

Einkasjúkrahús fyrir yfirstéttarhænsi er ekki neitt skemmtiefni, fjarri því, aðeins merki um andlega lágkúru sem samfélag manna getur sem best verið án. 

Jóhannes Ragnarsson, 1.9.2009 kl. 07:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband