Leita í fréttum mbl.is

Hafi félagi Ólafur Ragna heila þökk fyrir skjót viðbrögð

davi_6_897641.jpgAuðvitað staðfesti félagi herra Ólafur Ragnar Grímsson lögin um ríkisábygð vegna Icsave-samningana. Það var heldur ekkert annað í spilunum. Við skulum athuga að Icesave-samkomulagið er komið til vegna þess að hópur Íslendinga framdi stórglæp á erlendri grund, sem öll þjóðin verður að neyðast til að taka ábyrgð á. Nú, þó svo að einhverjir klepraðir snatar úr Stjálfstæðisflokknum og Framsókn hafi tekist að ljúga út undirskriftir nokkurra saklausra einfeldninga á plagg, þar sem skorað var á félaga Ólaf Ragnar að staðfesta ekki lögin um ríkisábyrgðina, datt forseta lýðveldisins aldrei til hugar að ansa þvílíku endemis rugli, hvar undir lá illgirni og sjúkt hugarfar áðurnefndra kleprarakka úr frjálshyggju-hrunaflokkunum.

Hafi félagi herra Ólafur Ragnar heila þökk fyrir að bregðast fljótt við og staðfesta lögin um ríkisábyrgð vegna Icesavesamningana. Við megum heldur aldrei gleyma, að Icesave-glæpurinn er skilgetið afkvæmi Sjálfstæðisflokksins. 


mbl.is Forsetinn staðfestir Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Eins og talað úr mínum túlla.

hilmar jónsson, 2.9.2009 kl. 21:01

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

ÞVÍLÍKT RUGL: "Við skulum athuga að Icesave-samkomulagið er komið til vegna þess að hópur Íslendinga framdi stórglæp á erlendri grund, sem öll þjóðin verður að neyðast til að taka ábyrgð á." – Verður íslenzka þjóðin að taka ábyrgð á öllum glæpum íslenzkra borgara? (reyndar er Björgvin Þór ekki skattborgari hér). Hvernig er sú ábyrgð til komin? Er nóg, að einhver ljúgi þeirri ábyrgð upp á okkur, til dæmis þvert á móti tilskipun Evrópubandalagsins um bankainnistæður og tryggingarsjóði? Eða er þér nóg að geta tengt einn tiltekinn flokk við einhvern banka til þess að sjá rautt? – en ekki sannleikann í málinu, sem er sá, að íslenzka ríkið og þjóðin sjálf voru SAKLAUS af þessari ábyrgð. Ódæðisverkið var framið, þvert gegn 77. grein stjórarskrárinnar og nefndri tilskipun, föstudaginn svarta 28. ágúst og staðfest í dag.

Jón Valur Jensson, 2.9.2009 kl. 21:09

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jóhannes! Takk fyrir. Er svo innilega sammála. Velti því hins vegar fyrir mér hvað þeim gangi til sem ekki eru sammála! Hef ekkert endilega verið sammála öllu sem Ólafur Ragnar hefur sagt og gert í gegnum tíðina en nú er ég sammála honum.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 2.9.2009 kl. 21:11

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jón Valur! Það er verið að vinna að rannsókn mála og eftir það kemur leiðrétting. Það er heila málið sem svo margir virðast vera hræddir við. Sökudólgarnir verða að taka afleiðingum gjörða sinna. Frímúrarasamtök svikara sjálfstæðisflokks og framsóknar verða að taka afleiðingum gjörða sinna eins og allir aðrir afbrotamenn. Verdin er farin!

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 2.9.2009 kl. 21:16

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Nújá, Jón Valur, hver var að ljúga þessari ábyrgð uppá okkur? Og til hvers? Ert þú máske einn þeirra sem hefur tekið upp þann sið að gjalda keisaranum ekki það sem keisarans er og Guði það sem Guðs er?

Jóhannes Ragnarsson, 2.9.2009 kl. 21:17

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú ert í meira lagi vegvillt í þessu máli, Anna Sigríður. Þvílíkt!

Þeir, sem lugu þessu upp á okkur, voru Gordon Brown og hans illþýði, og ámóta lið í Hollandi, Jóhannes, vissirðu það ekki? Við eigum ekki að gjalda neinum erlendum yfirvöldum skatt, það áttirðu einnig að vita. Nema þetta sé allt eitt allsherjar spaug hjá þér. Svo nutu þessir aðilar meðvirkra kjána hér á íslandi, menn sem létu ekki einu sinni sérfróða menn í enskum lögum skoða þennan samningstexta sem svavar hafði ekkert vit á og gafst upp við á nóinu.

Jón Valur Jensson, 2.9.2009 kl. 22:04

7 Smámynd: Byltingarforinginn

Þetta er snilld að lesa. Þvílíkt meistaraverk í afneitun. Það vita það allir að Svavar Gestsson var dreginn forugur upp úr kokteilmarineringu sendiráðslífsins í Danmörku til að sinna þessu verki... og sá sem landaði þeim rafti var okkar ágætlega óhæfi fjármálaráðherra, sá sami og er kallaður ómerkingur orða sinna af samflokksmönnum sínum og dregur ESB-vagninn alla leið til Brussel.

Það var Svavar sjálfur sem fann upp á þessum snilldar samningum... hann var orðinn leiður á að hafa þetta hangandi yfir sér, að eigin sögn, svo hann datt í það með Indriða G og þeir suðu saman þetta módel. Hann var lengi að koma vantrúa bretum og hollendingum í skilning um að við ætluðum að splæsa þessu öllu á þá.

Bretar hafa verið mest hissa á að þurfa að stilla upp tveggja milljarða lögfræðingum, en svo var það formaður íslensku samninganefndarinnar sem skaut þeim ref fyrir rass og reddaði málinu fyrir þá.

Ég er hræddur um að Steingrímur Júdas geti ekki þvegið þessa ábyrgð af sér, þó hann komist upp með það í öllum orðaflaumnum, að gleypa stefnuskrá Vg og lauma að ykkur greyjunum stefnuskrá Samfyllerísins í staðinn. Njótið vel. Nýji formaðurinn ykkar, hún Jóhanna, er víst að dúlla sér í bústaðnum á Þingvöllum með frúnni.

Byltingarforinginn, 2.9.2009 kl. 22:13

8 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jóhannes. þarna komstu inn á ansi góðann punkt.

Jón Valur. Ég er ekki vegvillt því ég nota mína skoðun í þessu máli. Hins vegar vorkenni ég þeim sem eru svo vegvilltir að þeir gera það ekki.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 2.9.2009 kl. 22:19

9 Smámynd: Byltingarforinginn

Anna: Víst geturðu verið vegvillt, þó þú notir eigin skoðun. Er hún semsagt "rétt", hvað sem raular og tautar? Endemis heimska er þetta. Fólk notar leiðsögumenn ítrekað og hefur ekki verið kallað vegvillt fyrir! Ég held að þú ættir að gera hið sama!

Byltingarforinginn, 2.9.2009 kl. 22:27

10 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Nú held ég að Byltingarforinginn ætti að fara að sofa í andskotann á sér, áður en hann steypir sjálfann sig í kaf ...

Jóhannes Ragnarsson, 2.9.2009 kl. 22:33

11 identicon

Jæja, þetta er afsakaplegur uppgjafartónn í raunverulega byltingarforingjanum, Jóhannesi Ragnarssyni.

Ríkissjóður sem er þjóðin ef þannig er litið á, á ekki að taka á sig skuldbindingar eða ábyrgðir nokkurra, hvort sem það eru smáskattsvindlarar eða útrásarvíkingar. Þjóðinni ber ekki lögum samkvæmt sem og siðferðislega séð að borga eyri annarra manneskja.

Ég er algjörlega sammála þér að upphaflega þá kölluðu spillingaflokkarnir og viðbjóðslegu kapítalistarnir þetta yfir okkur, í upphafi gróðærisins fyrir 15-20 árum. Það er ekki það sem skiptir máli nú akkúrat á þessari stundu, á þessari stundu ber okkur að berjast fyrir því að við förum ekki þessa leið. Seinna, þá eigum við og allir kjósendur að refsa spillingarflokkunum illa með því að kjósa ekki þetta skítapakk.

Ég verð að hryggja þig með því faðir minn góður, að málflutningur þinn hér líkist gríðarlega málflutning Álfheiðar Ingadóttur og Árna Þórs Sigurðssonar. Þau tala alltaf um ábyrgð Sjálfstæðisflokksins, sem er rétt, þau tala um að við verðum því miður að borga þetta allt saman og svo frvs... Þau gleyma því hinsvegar að nú er það þeirra að staðfesta ríkisábyrgð á einkavæddu bönkunum sem þau þóttust berjast á móti 2001.

Ég bið þig að endurskoða þessa færslu þína.

Ágúst Valves Jóhannesson (IP-tala skráð) 3.9.2009 kl. 01:19

12 Smámynd: Jón Valur Jensson

En það var nú bara engin ríkisábyrgð á þessum einkabönkum.

Það er staðreynd málsins, og ákvæði tilskipunar Evrópubandalagsins voru með okkur í því efni, en reyndust svo "vannýtt auðlind" hjá þeim í Stjórnarráðinu og Alþingi.

Jón Valur Jensson, 3.9.2009 kl. 10:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband