Leita í fréttum mbl.is

Vilhjálmur Gylfi Egilsson framkvæmdaforseti ASSÍA

Óskaplega held ég hann sé hvimleiður maður þessi Vilhjálmur Gylfi Egilsson frakvæmdaforseti ASÍSA. Svona náunga á að geyma í skepnuheldri girðingu, innan um sína líka, eins og aðra nautgripi. Þó tekur út yfir allan þjófabálk þegar Vilhjálmur þessi Gylfi lætur sig hafa að ganga fyrir ráðherra til að leika hirðfífl, enda hlægja ráðherrarnir víst ótæpilega í hvert skipti þegar karlskjóðan er horfin á braut. 

Og hver ætli kæri sig svo sem um heimsókn lítils hrunakarls, jafnvel þó hann þykist vera framkvæmdaforseti ASÍSA eða ASSÍA? Ekki nokkur maður, geri ég ráð fyrir. Það þarf enginn að verða hissa þó að ráðherrarnir kalli á lögregluna næst þegar Vilhjálm Gylfa ber að garði og láti fjarlægja skepnuna; leiðinlegt trúðgerpi verður nefnilega því leiðinlegra sem maður sér það oftar.


mbl.is „Þetta mjakast áfram“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lúðvík Lúðvíksson

Tók þetta án leyfis frá Cillu Ragnarsdóttur , er þetta ekki að segja okkur allt og getur verið að þetta séu síðustu púslin í hrun spilinu að vera með hrunstjórana alstaðar?

 Cilla Ragnarsdóttir: Samspilling hvað?

Athugið hverja ríkisstjórnin hefur valið sér til fulltingis:

Ingvi Örn Kristinsson er aðstoðarmaður Félagsmálaráðherra Árna Páls Árnasonar, en hann var framkvæmdastjóri Verðbréfasviðs Landsbankans. Einnig starfar hann sem ráðgjafi Forsætisráðherra.

Benedikt Stefánsson var í Greiningardeild Landsbankans og er núna aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar Efnahags- og Viðskiptaráðherra.

Björn Rúnar er skrifstofustjóri í Viðskiptaráðuneytinu. Hann var forstöðumaður í Greiningardeild Landsbankans

Edda Rós er núna fulltrúi Íslands í AGS í gegnum Samfylkinguna. Hún var forstöðumaður Greiningardeildar Landsbankans

Arnar Guðmundsson var í Greiningardeild Landsbankans. Hann er núna aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur Iðnaðarráðherra.

Með svo marga bankamenn í farteskinu, og einnig hafandi í huga að fyrir kosningar kom í ljós að Samfó var sá flokkur sem hafði fengið næstmest í gjafafé frá bönkunum og eigendum þeirra; er ekki þá einfaldlega ljóst hverra hagsmuna stjórnendur Samfó, eru að leitast til með að vera?

Áhugavert einnig, að allir þessir aðstoðarmenn, eru fyrrum starfsmenn Björgólfsfeðga.

Gæti þetta hafa eitthvað með málið að gera?:

Meðfylgjandi er yfirlit styrkja til Samfylkingarinnar frá lögaðilum árið 2006 sem voru hærri en 500 þúsund

* Actavis hf. 3.000.000
* Baugur Group hf. 3.000.000
* Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga 1.000.000
* Eimskipafélag Íslands 1.000.000
* Exista ehf. 3.000.000
* Eykt ehf. 1.000.000
* FL-Group hf. 3.000.000
* Glitnir 3.500.000
* Kaupþing 5.000.000
* Ker hf. 3.000.000
* Landsbanki Íslands 4.000.000
* Milestone 1.500.000
* Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis 1.000.000
* Straumur Burðarás fjárfestingabanki 1.500.000
* Teymi ehf. 1.500.000
* Samtals yfir 500.000 36.000.000

Neyðarstjórn óskast strax -!
  
Ég orðlaus yfir hræsninni sem Ríkisstjórn Ísland sýnir þjóð sinni !

Lúðvík Lúðvíksson, 25.10.2009 kl. 21:55

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Því miður er Samfylkingin stórspilltur flokkur og hættulegur eins og Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkurinn. Þetta er allt sama auðvaldsjukkið.

Jóhannes Ragnarsson, 25.10.2009 kl. 22:06

3 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

"Skepnuheldri girðingu" ! ............

Ha ha ha....aumingja Villi litli....

Níels A. Ársælsson., 25.10.2009 kl. 23:52

4 Smámynd: Axel Pétur Axelsson

Jóhannes; þú sleppir alveg Vinstri SnúSnú, þeir eru í ríkisÓstjórn núna er það ekki ?

Axel Pétur Axelsson, 25.10.2009 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband