Leita í fréttum mbl.is

Þeim mun hefnast fyrir háðungina

skrattinnHelvítis náhundar eru þessir bölvaðir danir alltaf í garð okkar íslendinga. Er virkilega ekki nóg fyrir þá að horfa uppá íslensku þjóðina liggja spriklandi í forarsvaðinu, eftir frjálshyggjuleg bolabrögð Sjálfstæðisflokksins, svo þeir þeir fari nú ekki að bæta um betur og núa salti í sárin með því að veðlauna decodekónginn Kára Stefánssons fyrir eitthvað sem þeir af kalhæðni sinni kalla ,,framúrskarandi árangur!" Þessi makalausu verðlaun ku vera kennd við löngudauðan auðvaldsbelg, Anders Jahre að nafni, sem græddist fé á skefjalausu arðráni af vinnu fátækra verkamanna. Ja, geðslegt atarna, eða hitt þá heldur! 

Þetta axarskaft danskra spaugara verður geymt en ekki gleymt. Sá dagur kemur að þessum þorpurum hefnist fyrir skítaskapinn og það harkarlega. Gömlum nýlendukúgurum ferst ekki að gera grín að fyrrum undirsátum danakonungs með því að veita þeim verðlau í háðungarskyni.


mbl.is Kári fær verðlaun fyrir rannsóknir í læknavísindum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Jónsson

Skemmtileg færsla svo sem, en ég er nokkuð viss um að verið sé að verðlauna Kára fyrir erfðafræðirannsóknir (sem hann er góður í) en ekki fyrir peningabrask (sem hann er sjálfum sér og öðrum verstur í).

Páll Jónsson, 31.10.2009 kl. 01:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband