Leita í fréttum mbl.is

Konur ærast allar saman, öskra og veina: gaman, gaman!

reiðarslagÞað var mikið að þessir andskotar drulluðust til að brugga nothæft víagra fyrir kerlingar. Þessi mikli sigur sigur vísindana í þágu holdsins er afskaplega tímabær, eða eins og gamla skrukkan sagði: oft var þörf en nú er nauðsyn. Og ekki er að efa að víða verður kátt í höllinni þegar bæði húsbóndinn og húsmóðirin verða komin á freyðandi víagratripp og flogin á vængjum fryggðarinnar uppum loft og veggi, inní fataskáp og þaðan útí blómabeð.

Annars vissi ég í gamla daga um vafasaman kallskarf, sem kunni að sjóða saman hörkukrassandi graðmeðal úr einhverjum jurtum og fuglaskít. Þetta líka fína meðal byrlaði karlinn andvaralausum konum útí áfengi. Sem betur fer kom þessi iðja karlsins honum í koll um síðir, því síðasta fórnarlamb hans af kvenkyni reið honum svo gjörsamlega af fullu að hann var borin til hinstu hvílu viku síðar. Og gálan var svo ósvífin að fylgja honum til grafar hágrátandi eins og Drottinn sjálfur hefði farist af slysförum. Það er einhver skrautlegasta útför sem haldin hefur verið á norðurhjara heims.


mbl.is „Viagra fyrir konur“ væntanlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kama Sutra

Það er svo gaman, að vera saman ... í bólinu.  Tralalalala...

Núna er orðið enn meira gaman að vera kelling.

Kama Sutra, 20.11.2009 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband