Leita í fréttum mbl.is

Heimilisófriður útaf atkvæðagreiðslunni um Icesave-samninginn

femmaÍ kvöld brutust út slagsmál á heimili sæmdarhjónanna Kolbeins Kolbeinssonar og frú Ingveldar, í annað sinn á örfáum dögum, svo kalla var út lögreglusveit til að koma í veg fyrir ótímabæran dauðdaga hjónanna, annars eða beggja því barist var með stólum, borðum kertastjökum og 50 tommu flatskjársjónvarpi. Um málatvik er ekki að fullu vitað að öðru leyti en að hjónunum varð heiftarlega sundurorða fyrir framan sjónvarpið þegar Þegar Vigdís Hauksdóttir alþingismaður var að gera grein fyrir atkvæði sínu á Alþingi, en þá mun hafa hrokkið útúr Kolbeini: -Þessi kerling er alveg eins og þú, Ingveldur mín. Og með það sama fór allt í bál og brand.

Það var fólk í nærliggjandi húsum, sem lét lögreglu vita af ófriðnum, því það skelfdist orrustugnýinn og taldi jafnvel sjálft sig í hættu. Að sögn sjónarvotta var stofa, eldhús og svefnherbergi Kolbeins og frú Ingveldar tilsýndar eins og rofabarð eitt eftir þau höfðu verið fjarlægð af heimili sínu eftir atganginn. Og allt var þetta útaf Vigdísi Hauksdóttur alþingismanni, sem verður nú að borga kostnaðinn af viðgerð á húsinu.


mbl.is Alþingi samþykkti Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brattur

Já... vissulega var hún Vigdís Hauksdóttir skelfileg og skil vel að Ingveldur skildi brjálast þegar henni var líkt við hana...

Brattur, 31.12.2009 kl. 00:46

2 Smámynd: Magnús Jónsson

Jóhannes: lol alveg frábær færsla hjá þér, meira svona ég er alveg í keng hérna hahaha, sá þetta líka sko.

Magnús Jónsson, 31.12.2009 kl. 01:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband