Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, desember 2007

Valvan inná Vog fyrir 15. jan. 2008

Ég er ansi hrćddur um ađ Völvu-garmurinn hafi veriđ drukkin ţegar hún var ađ brasa viđ ađ spá fyrir nćsta ár. Ég á ţá ekki viđ ađ hún hafi veriđ svona sćtkennd og samkvćmishćf heldur blindfull - moldţreifandi mígandi dauđadrukkin. Ađ láta sér detta í hug fólk sem kysstist á munninn á Ţingvöllum í vor slíti ástúđlegu sambandi sínu sisvona á nćsta ári nćr nattúrlega ekki nokkurri átt. Ţessháttar órađshjal vellur ekki uppúr nema langdrukknu ógćfufólki. Og ađ Reykjavíkurmeirihlutinn verđi sprengingu ađ bráđ á nćsta ári undirstrikar ömurlegt ástand Völvunnar ţví umrćddur meirihluti sprakk á ţessu ári en ekki ţví nćsta. Ţórarinn Tyrfingsson er ekki öfundsverđur ađ ţurfa ađ afeitra Völvuskjátuna inni á Vogi eftir áramót, en ég spái ađ komiđ verđi međ hrćiđ í morauđum strigapoka og ţví sturtađ inná mitt gólf á Vogi fyrir 15. janúar 2008. 
mbl.is Völvan spáir stjórnarslitum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Skođanir og kannanir á femínistum

Af gefnu tilefni vil ég minna á skođannakönnun um femínistana okkar á http://www.joiragnars.blog.is/blog/joiragnars/ Ţađ er víst óhćtt ađ segja ađ viss tegund fémínístakvenna hafi vakiđ athygli á sér međ framgöngu sem ýmsum finnst vafasöm ađ meira eđa minna leyti. Reyndar hafa árásir hćgrisinna allra handa veriđ mjög áberandi međ óvöldu orđbragđi á umrćdda fémínístategund, sem er einkennilegt ţar sem hugsjón tegundarinnar byggist mjög á einhverskonar afbrigđi af yfirstéttarfémínísma og ćtti ţví ađ falla ójafnađarskarni á hćgri vćngnum vel í geđ.
mbl.is Fegursti femínistinn valinn
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Osama komst yfir tvo gáma

Átti ég ekki á von. Ţarna hefur Osama bin Laden veriđ ađ verki ef ég ţekki hann rétt. Ţađ eru ađeins stórhuga afreksmenn sem stela tveimur gámum af sprengiefni af sama léttleika og ţegar fermingarstrákur hnuplar tyggjópakka í Bónus. Og hvađ ćtli Osma hafi ćtlađ ađ sprengja í loft upp hér í okkar friđelskandi leppríki? Ţađ er ómögulegt ađ segja. Máske höfuđstöđvar Sálarransóknarfélagsins eđa Framsóknarflokksins?
mbl.is Gámar međ sprengiefni fundust
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Al-Qaeda til Íslands á nćstunni

Afskaplega eru ţćr nú athyglisverđar fréttirnar af velheppnuđum ránum í Danaveldi milli hátíđanna. Ţar vantar ekkert uppá nema ađ viđ sé bćtt ađ grunur leiki á ađ Alkćjetasamtökin standi á bak viđ tiltektirnar. Raunar minnir mig ađ einhversstađar hafi ég séđ ţess getiđ ađ vitni hafi heyrt rćningjana tala saman á arabísku og ţarf ţá vart fleiri vitnana viđ. Ekki kćmi mér á óvart, miđađ viđ fréttaflutning undanfarinna missera, ţó íslenskir fréttamenn taki uppá ađ bendla áđurnefnd Alkćjetasamtök viđ eitt og annađ sem aflaga kann ađ fara hér uppi á Íslandi, svo sem eldsvođa, eitulyfjasölu, misyndisverk, svo eithvađ sé nefnt, jafnvel jarđskjálfta og eldgos. Og ţar sem íslenskir fréttamenn eiga til ađ vera andríkir og stórhuga má búast viđ ađ ţeim takist ađ blanda sjálfum Osama bin Laden inn í misgengi mála hérlendis.
mbl.is Vopnađ rán í Danmörku
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ţađ hressir anda klerka vorra og skerpir kenningu ţeirra

Slagsmál prestanna í fćđingarkirkju frelsarans í Betlehem sýnir oss ađ enn eru til karskir klerkar og kappsamir. Ég er ekki frá ţví ađ ţađ vćri hollt fyrir vora ţjóđkirkjulegu sálusorgara ađ útkjá sum ţeirra erfiđu deilumál á grískkaţólska vísu. Ţađ myndi hressa anda klerka vorra og skerpa kenningu ţeirra. Ósköp hefđi til dćmis veriđ affarasćlla í alla stađi ef ţjónar kirkjunnar hefđu komist ađ niđurstöđu í giftingarmáli samkynhneygđra međ handalögmálum í stađ handauppréttinga ţví ţá hefđu ţeir komist hjá ađ eyđa dýrmćtum tíma sínum í útţynnandi málamiđlanir og baktjaldamakk.
mbl.is Slegist í fćđingarkirkju frelsarans
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ţórđargleđi illgjarnra svía.

Ţađ kallar mađur nú ţórđargleđi í lagi, ađ leggja lykkju á leiđ sína til ađ gleđjast yfir óförum annarra, eins og ţessir illgjörnu svíapungar sem paufuđust af ómennsku sinni niđur ađ höfn til ađ flissa ađ Wilsoni Garstoni stönduđum viđ brimvarnargarđinn međ blindfullan stýrimann í brúnni og skipstjórann dauđan aftur í bestikki.
mbl.is Jólagönguferđ til ađ skođa strandađ skip
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ófétin Heiđa Klumb, van Klíf og Arpels

Ćjá, hún hefur alltaf veriđ illa ófróm kerlingarnornin hún Heiđa Klumb - alveg frá barnsaldri. Ég ţekkti ţetta kvikindi ţegar ţađ var krakki en ţá var hún svo ţjófótt ađ til stórrar hörmungar mátti telja. Síđar frétti ég hún hefđi veriđ sett á villibarnaheimili og ţar byrjađi hún víst ađ drekka fyrir alvöru. Ég veit mćta vel ađ Heiđa Klumb, sem sá og sér fyrir sér međ nekt sinni, hefur margt verra á samviskunni en ađ stela einhverjum hégóma frá firmanu, Van Klíf & Arpels. Reyndar eru ţeir félagar, van Klíf og Arpels djöfull, sjálfir bölvuđ aplafyl og rottur og andskotann ekkert skárri en Heiđa garmurinn. Hér áđur og fyrr, ţegar réttlćti var í heiđri haft, hefđi allt ţetta hyski veriđ dćmt til ađ fara ţrjá saltfisktúratúra í beit á gömlu síđutogurunum okkar. En ţađ hefđu ţessi hćnsni vissulega ekki ţolađ og drepist úr uppgerđ, strax í fyrsta túr og máliđ ţar međ blessunarlega úr sögunni. 
mbl.is Heidi lögsótt
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Gatađi dekk frelsaranum til dýrđar

Ţađ hefur löngum veriđ siđur mannfólksins ađ fagna fćđingarhátíđ frelsarans međ ýmsu móti; sumir klćđa sig uppá og sćkja guđsţjónustur, ađrir kalla Bakkus konung sér til fulltingis og láta ófriđlega. Enn ađrir stinga gat á hjóbarđa lögreglubifreiđa, frelsaranum til dýrđar, en ţó ađallega til ađ ná sér niđri á smámunasömum lögregluţjónum sem af hengilmćnuhćtti sínum og fálkaskap láta sér sćma ađ skipta sér af góđglöđum ökumönnum. Ekki leist Almćttinu samt betur á frelsisbođskap hins hefnigjarna útnesjamanns en svo, ađ hann vísađi lögreglumönnunum á hvar dólgurinn faldi sig í heldur svona vafasömu og úfnu jólaskapi. En ţar sem ég er mjög kristilegur til hugans í dag, vona ég ađ dekkjabaninn keflvíski hafi sofiđ vel svefni hinna réttlátu í fangelsisherberginu. 
mbl.is Sprengdi dekk á lögreglubílum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Hagiđ ykkur skikkanlega ...

Óska öllum bloggvinum mínum, semog öđrum bloggurum og blogglesurum gleđilegra jóla. Og hagiđ ykkur nú skikkanlega yfir hátíđarnar, skepnunar mínar. Ég vil ekki hafa ađ nokkur ykkar taki uppá einhverjum ţeim látum sem gćti leitt af sér handtöku og vist í fangelsi eins og eina nótt, ađ ég tali nú ekki um lengur.  

Byltingarsinnađir jólasveinar

Hver fjárinn ćtli hafi hlaupiđ í jólasveinaţrjótana í borginni Kristskirkju á Nýja Sjálandi? Ţeir hafa máske etiđ eitthvađ görótt onísig og fyllst af heilögum byltingaranda. Mikiđ vćri gaman ef ţeir sćju sér fćrt ađ mćta á nćsta landsfund Sjálfstćđisflokksins og hrćđa auđvaldsgrýlurnar og grćđgisleppalúđana sem ţar munu sitja til borđs svo glćsilega ađ Sjálfstćđisflokkurinn yrđi lagđur niđur í eitt skipti fyrir öll.
mbl.is Jólaólćti
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband