Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Miskunsami samverjinn með þjófagrímu

Jahérna. Það vantar ekki bölvaða hræsnina og yfirdrepsháttinn í ófétin hjá HB Granda. Og nú á að fegra sig útávið, með aðstoð Vinnumálastofnunnar, og troða snuði uppí Skagamenn með því fremja ,,góðverk" á verkafólkinu á Akranesi sem þetta ófyrirleitna fyrirtæki er að svipta störfum. Halda þessar fígúrur sem stjórna HB Granda að einhver námskeið fyrir þá sem þeir eru að gera atvinnulausa vegi uppá móti kvótanum sem þeir eru að ræna af Akurnesingum? Þvílíkt andskotans pakk og aumingjar! 

Boðskapur hinna góðgjörnu HB-grandverja  hljóma í mínum eyrum  á líkan veg og  biskupinn tæki uppá að kenna, að miskunsami samverjinn, sem frá er sagt í Biblíunni, hafi verið með þjófagrímu fyrir andlitinu og kúbein í rassvasanum þegar hann framdi góðverkið á náunga sínum. 


mbl.is HB Grandi og Vinnumálastofnun í samstarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það saknar þeirra enginn

Fullur jólasveinnGott hjá gömlu skörunum, John Baldwin og Bryndíssi Sckhramm, að láta sig hverfa úr landi og setjast að í Spanía. Svo kemur á daginn, sem aungvann heilvita mann hafði grunað, að sú gamla Bryndíss er svona hroðalega déskoti berdreymin; hana var búið að dreyma nótt eftir nótt, lengi lengi, lítið hús á Miðjarðarhafsströnd með þessu líka ruddaútsýni yfir nytjajarðir og nektarnýlendur. Og nú hefur draumur hennar ræst! Og ekki mun John Baldwin láta sitt eftir liggja í draumförum og mun, ef að líkum lætur, láta sig dreyma dægrin löng um dýrðardagana þegar hann leiddi Davíð Oddsson, frjálshyggjuna og græðgisvæðinguna til öndvegis á Íslandi.

Nú er bara að vona að fleiri krataskjátur hafi rænu á að snáfa úr landi fyrir fullt og allt. Því það er náttúrlega allsendis óboðlegt fyrir heilbrigt fólk burðast með slíkar krónískar íhaldsskækjur og höfuðsóttargemlinga, sem maður veit aldrei hvar maður hefur, með í farangrinum áratug eftir áratug. En sem kunnugt er þá er ruslatunnumatur eins og Samfylkingin að sjálfsögðu best geymd í góðri fjarlægð frá Íslands ströndum. Og það myndi aunginn sakna þeirra þegar til kastanna kæmi.

 


mbl.is Jón Baldvin og Bryndís Schram láta gamlan draum rætast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Saddam Hólmsteinn Ásgrímsson Bush

Að yfir milljón manns hafi látið lífið í Írakstríðinu hlýtur að vera sjálfstæðis- og framsóknarmönnum mikið gleðiefni. Þetta getur maður nú kallað árangur! Stórkostleg afrek hafa verið unnin í stríðinu við terrorismið! Saddam Hólmsteinn Ásgrímsson Bush, hvað.
mbl.is Yfir milljón Íraka hefur látið lífið af völdum stríðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirmyndar viðskiptahættir

450706AÞað held ég Hannes Hómsteinn og hans aftúrúrkreistingar séu aldeilis ánægðir með þýska prófessorinn sem hækkaði einkunnir nemenda sinna á markaðs- og kaupsýslugrundvelli, öllum til heilla. En samkvæmt kenningum frjálsyggjupostula er afar heilbrigt í öllum tilfellum að tveir aðilar kaupi og selji hvor af öðrum ef báðir hagnast nokkuð á viðskiptunum eins og gerðist hjá þýska frjálhyggjuprófessornum og nemendum hans. Hann fékk péninga eða drátt en nemendurnir hærri einkunnir og allir græddu.  

Á meðfylgjandi mynd, sem er í svarthvítu, má sjá hina bláu hönd íhaldsins strjúka varlega um nauðaberan frjálshyggjurass.


mbl.is Hækkaði einkunnir gegn greiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrategundin kaupsýslumenn

UrraÞað ljóta andskotans dýrategundin þessir ,,kaupsýslumenn." Það var ekki nóg fyrir þessa skepnu að drepa strákinn fyrir Iriondofjölskyldunni heldur heimtar heimtar hún bætur af fjölskyldunni fyrir skemmdir skemmdir á lúxusbílnum! En þarna er há-kristilegri græðgishyggju kapítalismans rétt lýst. 

Það er sem ég segi: Kaupsýslumenn á fortakslaust að vista uppi á afrétti innan skepnuheldrar girðingar til að fyrirbyggja að þessir ódámar geti gert nokkuð af sér.


mbl.is Ökumaður krefur fjölskyldu látins reiðhjólamanns um bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öskra og veina: gaman, gaman !

Fyrst að Úrvalsvísitalan góða hækkaði hvorki meira né minna en um 3,17% á nokkrum mínútum í morgun má búast við hækkun upp á nokkur hundruð eða þúsundir prósent þegar dagur verður að kveldi kominn. Og þá held ég að verði nú kátt í höllinni og auðvaldsbraskarar kætist allir saman og öskri og veini: gaman gaman! Já, það getur stundum verið notalegt að vera Bör Börsson við rúllettuborð fjárglæfrana.
mbl.is Hlutabréf hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kóngsins járn og arbeið

Það var nú svosem óþarfi að setja hinn danska ferðalang í járn fyrir að fá sér örlítið neðaníðí í flugvélinni og svala tóbaksfýsn sinni inni á klósetti. Og ekki lái ég honum þó hann hafi, frekar en ekkert, reynt að ná fram hefndum, þó í litlu væri, með því að bregða fæti fyrir lögregluþjón sem ætlaði stinga honum í svartholið. Auðvitað hefur maðurinn orðið reiður þegar honum varð ljóst að hann mætti þola kóngsins járn og arbeið, eins og það var kallað hér áður og fyrr, fyrir ekki meira smáræði en að reykja sér einn vindling inni á klósetti.

Svo getum við líka velt fyrir okkur hvað stjörnusýslumaðurinn Stones á Selfossi myndi taka til bragðs ef einhver þegna hans, sem uppvís yrði af reyktóbaksnotkun inni á veitingastað, setti fyrir hann fótinn þegar hann væri að draga kauða úr húsi. Ekki búum við íslendingar svo vel að eiga nein kóngsins járn og arbeið og þrælakistan á Bessastöðum er löngu fyrir bí, en hýðingar og Stóridómur aflögð. Hvað er þá til ráða fyrir einn djarfan stjörnusýslumann sem þarf að hegna reykspúandi uppivöðslusegg sem brotið hefur landsins lög um bann við reykingum á veitngahúsum? 


mbl.is Reykti í flugvél og slasaði lögregluþjón.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morðin ríma við ...

Mikið óskaplega ríma morðin á sæljónunum á Galapagoseyjunum vel við hugmyndafræði frjálshyggjumanna, en þeir mega, sem kunnugt er, ekkert aumt sjá öðruvísi en að sparka í það.
mbl.is Sæljónum slátrað á Galapagoseyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósvífnar strengjabrúður

Ósköp var nú aumkunarvert að heyra strengjabrúðuna Einar K. Guðfinnson, sjávarútvegsráðherra, berjast um á hæl og hnakka við að gera sem minnst úr aðsteðjandi vanda byggðarlaga sem eiga allt sitt undir fiskveiðum og fiskvinnslu og takast í leiðinni á einhvern yfirnáttúrlegan hátt að sneiða framhjá að ræða höfuðmeinsemdina sjálfa: kvótakerfið alræmda. En auðvitað eru sorglega mörg dæmi um hvað menn hafa getað lagst lágt til að þjónusta húsbændur sína og eigendur. Og málflutningur Einars K. ráðherra minnti líka á þá knýjandi nauðsyn að Sjálfstæðisflokknum verði vikið útí horn íslenskra stjónmála á sem flestum sviðum.

En víkjum nú örlítið að garminum honum Katli:

Í morgun las ég grein á bloggsíðu hins ríkisrekna frjálshyggjufyrirbæris Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, sem að sjálfsögðu var skrifuð til varnar gráðugu auðvaldi, yfirgangshundum auðhyggjunnar, ójöfuði og ómennsku. Í þetta sinn var viðfangsefnið dýrð kvótakerfisins og að gera úrskurð Mannréttindanefndar Sameinuðuþjóðanna um mannréttindabrot íslenskra stjórnvalda í framkvæmd fisveiðistjórnunarlaganna tortryggilegan. Nú má ríkisrekna frjálshyggjufyrirbærið Hannes Hólmsteinn Gissurarson velta sér eins og hann vill uppúr drullu ójafnaðar og óréttlætis eins og honum lystir, en þar kom þó að við lestur greinar hins ríkisrekna, að ég staldraði við. Og er nú best að gefa Hannesi sjálfum orðið:

,,Þá vaknar auðvitað spurning, sem borin var upp við mannréttindanefndina: Hvað um þá, sem ekki höfðu stundað veiðar á upphaflega viðmiðunartímanum, en vilja nú hefja veiðar? Svarið er, að enginn bannar þeim að hefja veiðar. Þeir verða aðeins að kaupa sér aflaheimildir. Til er orðinn verðmætur réttur, einmitt vegna þess að hann er takmarkaður. Hann var áður verðlaus, af því að hann var ótakmarkaður. Það var erfiðara og ósanngjarnara að banna mönnum að halda áfram veiðum, sem þeir höfðu stundað lengi, en að banna öðrum mönnum að hefja veiðar, sem þeir höfðu aldrei stundað. HHG Fréttablaðið 29. janúar 2008." 

Það var einkum síðasta setningin í ofangreindri tilvitnun í Hannes sem mér finnst hvorttveggja í senn: heimskuleg og ósvífin. Og mér varð hugsað til míns gamla vinar og skipsfélaga Arnar Sveinssonar, sem er annar tveggja sem sigruðu íslenska ríkið fyrir Mannréttindanefnd Sameinuðuþjóðanna. Það er nefnilega ekki hægt að skilja orð Hannesar öðruvísi en, að það sé auðvelt að banna Erni Sveinssyni að veiða fisk af því að hann hafi aldrei gert það áður! Nú er það svo að minn gamli skipsfélagi, Örn Sveinsson, var árum saman stýrimaður og skipstjóri á aflaskipum Hrafrystihúss Tálknafjarðar, m.a. á viðmiðunarárunum frægu sem notuð voru þegar aflaheimildinum var upphaflega úthlutað, svo ekki er hægt að bera honum á brýn að hann hafi ,,aldrei veitt fisk áður."

Ég get alveg lofað Hannesi Hólmsteini því, að honum hefði verið ósegjanlega holt að vera með okkur Erni, og fleiri góðum mönnum, í eins og mánaðartíma um borð í Tálknfirðingi hér á árum áður. Þar hefði hefði þessi ríkisrekni spjátrungur örugglega fengið þannig meðhöndlun og kennslu að hann hefði aldrei þorað, hvorki fyrr nér síðar, að opna á sér þverrifuna til varnar kvótakerfinu og kvótabröskurunum. En því miður varð það hlutskipti Hannesar að verða svo óheppinn að verða af nauðsynlegri kennslu um lífið og tilveruna um borð í Tálknfirðingi BA 325, sem hefði komið honum til góða það sem eftir var ævinnar. Þess í stað lennti Hannes í þeirri ógæfu að verða hvefsinn rakki við hirð auðvaldsgræðginnar.   


mbl.is Uppsagnir í bolfiskvinnslu ná til 300 starfsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjófar og þýfi - lambhúshettur og Armani jakkaföt

Ekki botna ég nokkurn skapaðan hlut í hvað þessi Þór Sigfússon, sem sagður er forstjóri Sjóvá, er fara í meðfylgjandi viðtali á mbl.is. Skilur manngarmurinn ekki, að starfsemi þeirra manna, sem hann á svo undursmekklegan hátt kallar ,,glæpagengi" skapar þjóð vorri dýrmætan gjaldeyri sem er afar nauðsynlegur á tímum kvótaskerðingar og minni útflutning á fiski. Þá segir Þór þessi að hann hafi hjólað í lögreglu, tollgæslu og meira að segja fjármálaráðuneytið og farið fram á að umræddir aðilar leggi höfuðið í bleyti til að finna upp ráð gegn því að ,,þýfi" sé flutt úr landi.

Það sem er hörmulegast í málflutningi mannsins, sem sagður er forstjóri heilmikils tryggingafélags, að hann skuli falla í þá gryfju að að beina orðum sínum að starfstétt sem sérhæfir sig í að taka eitt og annað sér til handargagns þegar eigendur eru víðsfjarri og koma því í verð á erlendum mörkuðum. Hefði ekki verið hyggilegra fyrir ,,forstjórann" að heimta af yfirvöldum landsins að þau beittu sér fyrir, á breiðum grundvelli, að reyna að koma í veg fyrir alla höndlun þýfis í hvaða mynd sem það kann að vera? Það er nefnilega margur þjófurinn og margt þýfið ef út í þann sálm er farið. Því þegar öllu er á botninn hvolft skiptir litlu máli hvort þjófurinn stundar vinnu sína með lambhúshettu á hausnum eða í dýrum jakkafötum frá Armani.  


mbl.is Þjófagengi í útrás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband