Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Bjóða uppá að vera nauðgað

Það mega bandarísk stjórnvöld eiga, að þau geta stundum verið þægilega gamansöm. Ekki vil ég þó segja, að vellíðunarbylgja hellist eins og volg vantsbuna yfir mann við að heyra, ,,að auðvitað sé það bölvuðum palestínugaurunum sjálfum að kenna að þeir séu skotnir í klessu; þeir hafi boðið uppá slíka afgreiðslu." Blíðleg röksemdafærsla af slíku tagi minnir á nauðgara sem ber fyrir sig að konan sem lenti í klónum á honum hafi boðið upp á að vera nauðgað af að hún hafi verið í svo þunnum kjól eða berfætt í sandölunum.
mbl.is Segja Hamas ábyrg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Salernispappír í viðhafnarútgáfu

Satt að segja þykir mér bankamönnunum gert fullhátt undir höfði með því að skjóta þeim til himins eins og hvítþvegnum englum. Nær væri að þrykkja andlitsmyndum bankaræningjanna á salernispappír svo fólk geti sturtað þeim niður eftir að hafa brúkað pappírinn á þann hátt sem hann er framleiddur til.
mbl.is Bankamenn sprengdir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í dag ríkir sorg á heimilum stjórnmálamanna

Í dag ríkir sorg á heimilum stjórnmálamanna sem lögðu allt í sölunar til að græðgisvæða Ísland. Þó held ég að það sé huggun harmi gegn hjá hinum hrjáðu stjórnmálamannafjölskyldum að laun fyrirvinnu heimilisins skuli ekki hafa verið árangurstengd, samkvæmt bónus- eða akkorðskerfi því þá er hætt við að blessað fólkið hefði tapað lífsviðurværi sínu í refsibónus og sennilega orðið að borga með sér háar fúlgur fjár.

Þó verð ég að viðurkenna að laun uppá 855 - 935 þúsund krónur eru gífurlega háar upphæðir og bruðl þegar í hlut eiga vinnumenn á borð við Gjeir Haaarde og I. Sól Gísladóttur, að maður minnist nú ekki á Össur, Árna Matthíasson og aðra slíka. Ef haldnar væru almennar, lýðræðislegar kosningar um hve há laun nefndar heiðurspersónur ættu að hafa fyrir vinnuframlag sitt í þágu þjóðarinnar er ég fulviss um að niðurstaðan yrði 0 krónur og ekki eyrir umfram það. 


mbl.is Laun ráðamanna lækkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dauðir og hálfdauðir eftir heimsumból á hebresku

Það var aldrei að júðarnir sendu ekki kunningjum sínum á Gaza jólakveðju. Og nú liggur palestínufólkið bæði dautt og hálfdautt útum allar þorpagrundir eftir að hafa meðtekið heimsumból nágranna sinna á hebresku. 

Mikið megum vér Íslendingar vera þakklátir fyrir, að Ameríkönum og Bretum skuli ekki hafa dottið í hug að stofna ríki fyrir einhverja heilaga utanveltubesefa á Íslandi. Hugsið ykkur ef vinum okkar í NATO hefði hugkvæmst að efna til ríkis í Gullbringu- og Kjósarsýslu fyrir gjörvallann sígaunaættbálkinn, og látið þá hafa gnægð vopna til að skjóta og sprengja innfædda í loft upp ef þeir færu eitthvað að derra sig. 


mbl.is Röð loftárása á Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upplituð diskóafturganga af Skugga-Sveini

Það var mikið um dýrðir á stóra sviði Þjóðleikhússins í kveld þegar þar var leikið leikritið ,,Sumarljós." Nokkuð á sjötta tug gesta voru viðstaddir sýninguna og mátti af viðbrögðum þeirra ráða, að þeir vissu ekki hvað á þá stóð veðrið. Í hléinu fóru frumsýningargestirnir á barinn og skilaði ekki nema þriðjungur þeirra sér aftur til baka að horfa á síðari hálfleik.

Um leikritið sjálft er það að segja, að sjaldan hefur önnur eins þarmastappa sést á fjölum þjóðleikhússins í hart nær 60 ár. Þó verður að segja, að verkið ,,Sumarljós" kemur þægilega á óvart sem einhverskonar fölnuð og upplituð diskóafturganga af Skugga-Sveini og ,,Manninum sem hljóp fyrir björg," eftir Arthur Fonter. Eina bitastæða atvikið í verkinu var þegar einn sviðsmaðurinn missteig sig rak upp vein þegar hann var að drösla einhverjum leikmunum til á milli atriða.

Allir leikararnir léku vel að vanda, nema Eiríkur Helgi Gíslason, sem var svo utan við sig, að fullvíst má telja að hann hafi ekki verið alsgáður. Ingólfur Flóki Hrafnsson vann þó umtalsverðann leiksigur að þessu sinni því hann var eini leikarinn sem mundi allar setningarnar sem hann átti að segja, en þær voru því miður sorglega fáar. 

Að öllu samanlögðu er leikvirkið ,,Sumarljós" hin besta skemmtun fyrir manneskjur sem hvorki eru skemmtanavandar eða vandar virðingu sinni og var það hin hlálegasta sjón, að sjá eina 12 eða 13 sýningargesti klappa fyrir leikurunum að sýningu lokinni.


mbl.is Sumarljósið frumsýnt
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Jólagaurinn sem giljar húsmæður og lausakonur

Þeir geta leyft sér það, jólasveinarnir, að skjóta á saklaust fólk þegar þeim býður svo við að horfa. Ég hef alltaf verið afar hræddur við jólasveina, ekki síst þessa 13 íslensku ódáma því þeir eru haldnir óvenjulega einbeittri glæpahneigð, að ekki sé minnst á sauruga kynórana sem þessir þrjótar eru haldnir. Tökum t.d. hann Giljagaur sem dæmi: Hann heitir Giljagaur af því að hann er ,,gaur" sem ,,giljar" konur hvenær sem hann hefur tök á. Þessi lúmski hrossabrestur á sök á fleiri hjónaskilnuðum en nokkurn getur grunað. Hver þekkir ekki kvæðið þar sem sagt er frá litlu telpunni sem horfir uppá móður sína kyssa jólasvein við jólatréð í stofunni í gær? Þar var helvítis þrællinn hann Giljagaur á ferð og lét sér ekki muna um að gilja húsmóðurina á heimilinu á stofugólfinu við hliðina á jólatrénu, meðan eiginmaður og börn konunnar voru í fastasvefni.

Og Gluggagægir, ekki er hann skárri. Sá piltur er sóðalegur öfuguggi og pervert, eins og nafnið bendir til. Þetta kvikindi liggur á gluggum húsa í þeirri von að honum auðnist að sjá fólk, sem hann þekkir ekkert, í hvílubrögðum. Þvílíkt óeðli í einum jólasveisræfli!!! Ojbara!

Og svona má áfram rekja afrekaskrá allra jólasveinana 13. Þetta eru úrhrök og illmenni og merkilegt að ekki skuli vera búið að sljóta þá alla sem einn fyrir löngu.


mbl.is Átta látnir eftir „jólasveinaárás“
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Viðbjóðslegt athæfi

Fátt er viðbjóðslegra en auðvaldsfígúra að auglýsa ,,manngæsku" sína í garð fátæklinga og öreiga. Þegar hyski á borð við forsetakerlinguna á Frakklandi fer að viðra sig uppvið snauða eða örvasa, gerist það ævinlega í viðurvist fjölda blaðaljómyndara, sem síðan sjá um að koma sálarfátækt viðkomandi auðvaldsperra á framfæri við heimsbyggðina.   
mbl.is Hélt upp á afmælið í fátækrahverfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skynsemishalli dómsmálaráðherra alvarlegt vandamál

Það er ansi kalhæðnisleg ósvífni, að kalla vanáætluð fjárframlög þeirra sem stjórna landinu til embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum ,,rekstrarhalla." Það er gjarnan svo, að þegar talað er um ,,halla" varðandi einstaka þætti hins opinbera, er verið að gefa í skyn að forstöðumenn umræddra þátta séu óráðsíukvikindi og bruðlarar af einhverju tagi, ef ekki eitthvað þaðan af verra.

Jóhann R. Benediktsson var fórnarlamb kolruglaðra yfirboðara; honum var legið á hálsi af valdamiklum andskotum sínum, að fara illa með opinbert fé, gerður grunsamlegur og loks hrakinn úr starfi þrátt fyrir að hafa staðið sig frábærlega sem lögreglustjóri. Hafi svokallaður ,,rekstrarhalli" embættis lögreglustjórans á Suðurnesum verið vandamál, hvað má þá segja um skynsemishalla ráðherra dómsmála í þessu tiltekna máli?  


mbl.is 200 milljóna halli afskrifaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það á að sparka atvinnurekendunum út - strax

Það er löngu tímabært að atvinnurekendur hverfi, eða verði sparkað ef ekki vill betur, útúr stjórnum lífeyrisjóða launþega, þar eiga þeir ekkert erindi.

Það væri gleðilegt ef samtök launafólks um allt land sýndu þann manndóm, að taka undir ályktun aðalfundar Sjómannadeildar Framsýnar hvað þetta varðar.

Þá ættu stjórnmálaflokkarnir að lýsa yfir vilja til að breyta lögum um lífeyrissjóði í þá veru að einungis fullgildir félagar í sjóðunum eigi rétt á að sitja í stjórn þeirra.


mbl.is Vilja atvinnurekendur úr stjórnum lífeyrissjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byltingarráð Íslenskrar Alþýðu tekur við

Það er næsta víst að fréttastofan Blómsturberg í Amríku hafi rétt fyrir sér þegar hún spáir að uppúr sjóði á Íslandi á næstunni.

Fljótlega eftir áramót verða ráðherrarnir bornir útúr Stjórnarráðinu og Raðherrabústaðnum.

Villikettirnir í Seðlabankanum verða fjarlægðir.

Fjármálaeftirlitið verður rýmt.

Allrahanda stjórar verða reknir á fjöll.

Við tekur byltingarráð Íslenskrar Alþýðu.


mbl.is Óttast að uppúr sjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband