Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Skefingu lostið auðvald

auðvaldssvínEkki er aðnnað að sjá en auðvaldið á Íslandi sé skelfingu lostið þessa dagnana. Og svo sem engin furða. Það er sem sé að koma æ betur í ljós, að ,,hagsældabylgjan mikla" með öllum sínum kárahnjúkavirkjunum, bankaeinkavæðingarsukki og útrásum var fyrst og fremst útblásin skítablaðra sem nú hefur sptungið framan í þjóðina alla. Sjónhverfingum hinna vígreifu fjármálabraskara er lokið, a.m.k. í bili, leiknum lokið, búið spil. Nú er komið að alþýðu manna að borga veisluna.

Og hver ætli beri svo ábyrgina á óhófinu og bruðlinu? Því er fljótsvarað. Það er Sjálfstæðisflokkurinn, með dyggri aðstoð Framsóknar og Samfylkingar, sem staðið hefur að hinni undarlegu, en jafnframt kaldrifjuðu, græðgisvæðingu sem fengið hefur að leika lausum hala hér á landi. Þessi frumstæða gróðahyggjumiðaða pólitík Sjálfstæðisflokksins er, þegar allt kemur til alls, fyrst og fremst tilræði við land og þjóð.

Það er lögnu tímabært að landsmenn fari að gera sér grein fyrir hverskonar óþrifnaðarmaskína Sjálfstæðisflokkurinn er; hvernig þessi lágkúrulegi flokkur græðgi og lyga teygir anga sína eins og krabbamein útum allan þjóðarlíkamann. Enn lágkúrulegara er þó að horfa uppá stjónmálaflokka sem gefa sig út fyrir að þeir byggi sína pólitík á félagshyggju, skuli þegar til kastana kemur ávalt boðnir og búnir að hjálpa Sjálfstæðisflokknum að koma sinni andfélagshyggjupólitík í framkvæmd.    


mbl.is Brýnt að grípa strax til aðgerða vegna bankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þau hætta bráðlega að þekkjast í sundur

Slagsmál 2Auðvitað styður hin skapgóða Hanna Birna allar yfirlýsingar Vilhjálms Þorns Vilhjálmssonar og allt sem hann segir í bráð og lengd - eða datt einhverjum eitthvað annað í hug?

Og auðvitað mun Hanna Birna sækjast eftir borgarstjóraembættinu þangað til Vilhjálmur lýsir því yfir, ,,þegar nær dregur" að hann ætli sjálfur að setjast í borgarstjórastólinn þegar tími Ólafs F. er liðin. Og þá mun Hanna Birna að sjálfsögðu styðja þá ákvörðun Vilhjálms.

Það blandast engum hugur um að mikil og djúp eindrægni og vináttuþel ríkir alltaf og eilíflega í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins. Og svo mikil er eindrægnin og vináttuþelið, að Hanna Birna er alveg við að ná sjálfum Vilhjálmi leiðtoga í trúverðugleika. Ef fram heldur sem horfir, verður ekki með nokkru móti hægt að þekkja Hönnu Birnu og Vilhjálm í sundur, hvorki í sjón eða raun. Og þegar yfir lýkur og eindrægnin ríkir ein, ofar öllu jarðnesku efni, þá munu Hanna Birna og Vilhjálmur ekki lengur þekkja sjálf sig hvort frá öðru.


mbl.is Styður yfirlýsingu Vilhjálms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Féll margoft niðrum ís

Þegar ég var ungur sveinn, innan við fermingu, féll ég margoft niðrum ís án þess að finnast það nokkuð tiltökumál. Ég held ég hafi alltaf bjargað mér einn og sjálfur frá þessum hvimleiðu óþægindum og varð aldrei meint af volkinu. Og aldrei kom nein frétt í fjölmiðlum þess efnis, að Jóhannes Ragnarsson hefði dottið í vök, eða horfið smástund af yfirborði jarðar af því að ísinn á vatninu, sem hann átti leið um, hefði verið svo þunnur að hann hefði brotnað undan litlum þunga Jóhannesar. 
mbl.is Tveir menn féllu niður um ís
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðanakönnun um VG og yfirstéttarfemínisma lokið

imagesHér með kunngeri ég að skoðanakönnuninni sem verið hefur á bloggsíðunni minni síðustu vikur er lokið. Spurt var: Mun yfirstéttarfemínisminn ganga að VG dauðu?

Niðurstaða könnunarinnar var á þá leið, að 79% sögði , en 21% NEI.

Þar með er ljóst að mikill meirihluti þátttakenda er á því að umræddur yfirstéttarfemínismi, eins og hann hefur verið stundaður af VG, sé meira en líklegur til að ganga að þeim flokki dauðum. Er þá aðeis eitt í stöðunni fyrir Steingrim J. og félaga, þ.e. að fleygja öllum yfirstéttarfemínisma fyrir borð í snarhasti, ef ekki á illa að fara fyrir Vinstrihreyfinguni grænu framboði. Reyndar veit ég fyrir víst að umræddur femínismi er nú þegar kominn á ís í VG því mjög hefur dregið úr fyrirferð þeirra sem hæst hafa galað innan flokksins fyrir hinum hvimleiða yfirstéttarfemínisma, sem hvergi á heima annarsstaðar en á hægri væng stjónarinnar.

Ég vil að lokum þakka öllum þeim sem þátt tóku í skoðanakönnuninni.

Góðar stundir.


Kynlífsvandamál á vinnustöðum

sex 2Það er ekki undarlegt að konum gangi treglega að ná kynjajafnrétti á vinnumarkaðum úrþví þær láta sig hafa að nota vinnutímann fyrst og fremst til að hugsa um kynlíf og aftur kynlíf. Ef konum er það raunverulegt kappsmál að ná þessu svokallaða jafnrétti verða þær að gjöra svo vel að hætta að hugsa í vinnunni en láta yfirmanninn, þess í stað, hugsa fyrir sig. Af gefnu tilefni skal tekið fram, svo það valdi engum misskilningi, að karlmenn hugsa aldrei um kynferðismál né önnur mál þegar þeir eru í vinnunni. Þeir hafa fyrir löngu komist uppá að láta yfirmenn sína hugsa fyrir sig enda farnast þeim, svo sem dæmin sanna, mun betur en konum á vinnumarkaðnum.

Auðvitað er þessi kynlífshugsunarháttur kvenna á vinnustað ekkert til að spauga með, heldur er hér um grafalvarlegt mál að ræða. Nú ríður á að konum auðnist að fá öfluga leiðtoga til að veita þeim leiðsögn út úr vandamálinu. Ég sé ekki betur en þarna sé verðugt verkefni fyrir skörungana Kolbrúnu Halldórsdóttur og Sóleyju Tomm að gramsa í. Ég er þess fullviss að þeim tækist með sinni alkunnu röggsemi og á tiltölulega skömmum tíma að blása öllum kynórum, sem og öðrum óþrifnaði, út úr hausnum á konum sem eru virkir þátttakendur í atvinnulífinu . Ef ég væri félagsmálaráðherra myndi ég skipa fyrrnefndar heiðurskonur strax í dag til að vinna að því að breyta ólíðanlegum þankagangi kvenna á vinnustöðum.


mbl.is Blautir draumar í vinnunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hr. Haaarde sparkar í búrtíkina

HundaslagurHvaða ekkesens holtaþoku muldur er nú í forsettesráðherranum G. H. Haaarde? Svona orðbragð er bara nákvæmlega eins og óráðshjal utan úr geimnum: ,,Bankarnir hafa verið djarfir í útrás og fjáfestingum erlendis" segir maðurinn í meðfylgjandi viðtali, eins og ekkert hafi í skorist. Af hverju segir hr. Haaarde ekki eins og er, og ég held að hann vildi sagt hafa, að bankarnir (þ.e. sjórnendur þeirra) hafi hagað sér eins og fífl í þessum endemis útrásum sínum og fjáfestinum útí hinum stóra heimi?

En þegar á líður viðtalið er eins og Gjeir Haaarde ranki við sér og færi sig uppá skaptið því hann lætur sig ekki muna um að gefa búrtíkinni sinni, Samfylkingunni, sitt undir hvern með því að boða tvö álver í snarhasti og stúta þar með hinu Fagra Íslandi Samfylkingarinnar í eitt skipti fyrir öll. Að svo búnu slær hann alla ESB- og Evruóra samfylkingardjáknana útaf borðinu eins og hvern annan óþrifnað og það svo rækilega að óvíst er að nefndir órar hjáleigumanna komist nokkurntímann uppá borið aftur. Þetta var nokkuð vel af sér vikið hjá Gjeir forsettisráðherra og sýnir að karldurgnum er ekki alls varnað, þrátt fyrir allt.


mbl.is Menn hafa verið djarfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáráðlingar með dúxaveiki

FyllikötturÞað var þá helst þörfin að efna til ölmususjóðs fyrir svokallaða ,,afburðanemendur." En eins og alkunna er, þá teljast þeir til ,,afburðanemenda" sem eru af þeirri tegund fáráðlinga sem haldnir eru dúxaveiki. Ennfremur þykir fullsannað á Íslandi, að þeir sem hafa þessa veiki geti aldrei orðið annað en drykkjurútar, blaðamenn eða undirkontóristar.

Það er til nokkurs að styðja fáráðlinga til slíkra starfa - eða hitt þá heldur.  


mbl.is Afrekssjóður fyrir afburðanemendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krataeðlið og Íhaldið

RassakissÞeir eru óneitanlega fjári gamansamir blaðaljósmyndararnir atarna að láta durginn Gjeir Haaarde opna hina árlegu ljósmyndasýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands. Bæði er að Gjeir exitérast svo glimrandi vel á ljósmyndum og einnig hitt að karláftin slagar hátt uppí að vera eins sofandalegur og sjálfur Halldór Ásgrímsson kvótamagister.

Og þó að hr. Haaarde ljómyndist alltaf óstjónlega vel, þá er samt ein mynd af hönum sem slær allar aðrar út, en það er myndin sem tekin var af því þegar hann, af ástúðlegri manngæsku sinni, kyssti frú Ingibörgu Sólrúnu beint á munninn á hlaðinu við Þingvallabæinn. Það var óborganleg myndveisla.

Nú lái ég svo sem Gjeir karlanganum ekki þó hann heilsi góðum gesti og þarflegum að gömlum og góðum sveitasið. Hitt er blátt áfram tilefni til stórhlátra, að forstýriskona Samfylkingarinnar skuli purkunarlaut láta mynda sig í kossaflensi við höfuðpáfa stjórnmálaarms auðvaldsins á Íslandi. En auðvitað var samt ekki við öðru að búast; krataeðlið er samt við sig og kemur ævinlega fram í skefjalausu daðri og flaðri við húsbændurna á Höfubólinu.

Það ætti öllum að vera ljóst, að Samfylkingin var ekki stofnuð til að sameina ,,vinstrifólk" á Íslandi. Sá kjaftavaðall var bara yfirskin og fals, svosem komið hefur í ljós. Samfylkingin var náttúrlega sett á laggirnar til að samfylkja með Sjálfstæðisflokknum. En auðvitað er svona háttalag óheiðarlegt og ruddafengið. Ég vorkenni t.d. raunverulegum vinstrimönnum sem hafa fram að þessu látið glepjast af ,,samfylkingarhugsjóninni" og gengið erinda þessa auðvirðilega stjórnmálaflokks. Þeim hrekklausu og hjartahreinu sálum er hér með ráðlagt að yfirgefa þann frjálshyggjuauðvalsúlf í félagshyggjugæru sem Samfylkingin er.

Það er aldeilis sameiningarflokkur ,,vinstriafla" sem á sér þá hugsjón mesta að kyssa auðvaldið á rassinn hvenær sem færi gefst! Slíkt minnir dálítið á nornirnar og Erkidjöfulinn þegar nornaþing eru haldin, þá heilsa nornirnar hans hátign með því að smella dulitlum kossi á afturenda hans.   


mbl.is Blaðaljósmyndarar sýna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bráðum hittir hann Adólf, Rikka og Franciskó

Maðurinn með ljáinnAndlegi krypplingurinn Jón McCain, sem líklega verður fambjóðandi fyrir óaldarlýðinn í Repúblíkanaflokkinn í næstu forsetakosningum í Bandaríkjunum, lætur vaða á súðum þessa dagna. Af alkunnu kristilegu hugarþeli repúblíkana, lætur þessi ómerkilegi drullusokkur sér sæma að óska stórmenninu félaga Fídel Kastró dauða; kveðst vona að félagi Fídel hitti Karl Marx bráðlega.

Sjálfur er Jón McCain þessi kominn að fótum fram og þarf varla að örvænta um að hann hitti ekki bræður sína í andanum, handan við móðuna miklu, bráðlega. Í þeim góða vinahópi McCains verða áreiðanlega ekki minni menn en Ríkharður Nixon, Francisko Francó og Adólf sálugi Hitler, svo einhverjir séu nefndir. Og ekki er að efa að þeir félagarnir setjist niður og reikni út hve margir hafi dáið drottni sínum af völdum kapítalismans. En það ku vera ansi myndarlega há tala. 


mbl.is McCain vonast til að Kastró fari brátt yfir móðuna miklu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur nær vopnum sínum.

sjóveikiÞó það nú væri að Vilhjálmur Þ. haldi sínu striki - hvað annað? - og gjörist á næsta ári borgarstjóri í annað sinn á þessu kjörtímabili.

Þó að karlfuglinum hafi orðið eitthvað á uppá síðkastið, jafnvel framið axarsköft, þá er engin ástæða fyrir hann að láta undan vandlætingarfullum smásálum og segja af sér öllum embættum og væntanlegum borgarstjórastóli.

 Við lok kjörtímabilsins mun Vilhjálmur, ef að líkum lætur, sigla skipi sínu stoltur til hafnar í Valhöllu, líkur þeim stórkapteini sem nær landi með skipshöfn sína hálfdauða og sturlaða af sjóveiki og sjóhræðslu eftir harða útivist og lífsháska. 

Ég er nú sem óðast að komast á þá skoðun, að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, verðandi borgarstjóri Reykjavíkurborgar, muni þegar fram líða stundir verða talinn í hópi allra hugprúðustu sona Íslands frá landnámsöld.  

 


mbl.is Vilhjálmur ætlar að sitja áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband