Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Leiðinlegri en drukkinn heimdellingur með brókarsótt

fullur3Fyrr má nú gagn gera en að falla fram af svölum á níundu hæð og láta lífið. Þetta kom einusinni fyrir fjarskyldan ættingja minn, nema hvað hann húrraði ekki fram af níundu hæð heldur ofan af eldhúskolli sem hann hafði klifrað uppá. Skipti og engum togum, að sá fjarskyldi, sem var leiðinlegri en drukkinn heimdellingur með brókarsótt, rann ófarvandis útaf stólnum, skall með trýnið í gólfið og steinrotaðist. Því miður fór fallið ekki eins illa hjá frænda mínum og fyrirsætunni frá Kazakstan, því að klukkutíma liðnum raknaði afstyrmið úr rotinu og hélt áfram að vera fólki hvimleiður eins og áður en hann féll. Það skal tekið fram, að manntetrið átti ekkert erindi uppá stólinn og gat þar af leiðandi engum um kennt nema sjálfum sér hvernig fór.

Meðfylgjandi mynd var tekin af fjarskylda ættingjanum 5 mínútum eftir að hann raknaði úr rotinu.


mbl.is Féll af níundu hæð og lést
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Aðförin að RÚV er glæpur sem ber að stöðva

auð2Það má svo sem vel vera að nauðsynlegt sé að fækka starfsfólki hjá RÚV. En hvort sem á að segja upp 10, 20 eða 30 manns, þá ætti að vera forgangsverkefni í því sambandi að leggja núverandi útvarpsstjóra niður og snara honum úr húsi.

Auðvitað ætti Páll Magnússon að sjá sóma sinn og ganga á undan með góðu fordæmi og hafa sig á brott af sjálfsdáðum.

En fyrst og síðast þarf að losa blóðugar klær Sjálfstæðisflokksins af Ríkisútvarpinu. Það dylst engum, sem eldri eru en tvævetur, að aðför Sjálfstæðisflokksins að RÚV gengur einungis útá að leggja þessa merku stofnun niður sem sameign þjóðarinnar og koma henni í hendur ,,einkaaðila." Frá mínum bæjardyrum séð, er niðurrifs- og skemmdarverkastarfsemi Sjálfstæðisflokksins á Ríkisútvarpinu lúalegur glæpaverknaður.

Nú þegar er komið í ljós, að einkavæðing Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á viðskiptabönkunum og símanum var gróf aðför að lífskjörum launafólks og réttast væri að þeir sem að stóðu að þeirri sóðavæðingu stóðu, verði látnir sæta ábyrgð verka sinna.

Í eðli sínu er sala stjórnmálamanna á samfélagslegum eignum þjófnaður, sem ætti ekki að eiga sér stað nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.


mbl.is RÚV fækkar stöðugildum um 20
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonarneisti að slökkna; hungurdauði blasir við

Hrædd börnholyDrottinn Guð Almáttugur í Hæstu Hæðum sé oss ræflum og aumingjum náðugur; ég sé ekki betur en síðasti vonarneisti fátækra sé um það bil að slökkna; heilagur Jóhannes í Bónúsi og hans Einkasonur, sérdeilis vinir ölmusumanna og skíthæla, hafa hækkað vörur sínar í Bónúsi um tæp 3% á milli mælinga ASÍ! Þetta kallar maður, að nú sé alveg í öll skjól fokið. Hans Heilagleiki og Einkasonurinn virðast, eftir sólarmerkjum að dæma, ætla að koma sér upp hagkaups- og 10-11 verði í Bónúsnum sínum og hætta þar með að bjarga þurfalingum frá hungurdauða. Í þokkabót ætla þeir Hymmnafeðgar í Bónúsi að rasskellast með einhver af þeirra guðumlíku fyrirtækjum úr landi undan ofríki seðlabankastjóra og annarra vondra manna á hans vegum. En það er allt í lagi, það eru hvort eð er bara skuldir sem þeir munu flytja með sér. Og það er nú aldeilis búhnykkur fyrir þjóðina þegar hennar bestu synir geta gert sér mat úr skuldunum og hannað þær til útflutnings.

Það má með sanni segja, að hinir góðkunnu útrásaraðilar hafa mörg kraftaverkin unnið með tiltektum sínum á undanförnum árum.   


mbl.is Bónus hækkar mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpalýður gegn almenningi


auð1Ekki hefur verið allt sem sýnist í umræðunni um húsnæðismál á undanförnum árum. Engum hefur þó dulist að bankarnir hafa reynt án afláts að grafa undan Íbúðalánasjóði til þess að komast yfir húsnæðismarkaðinn. Í heimilum fólks er nefnilega að finna öruggustu veð landsins. Flest má yfir fólk ganga áður en það afsalar sér heimili sínu. Fyrst fengu bankarnir veðsetningu kvótans og næst á dagskrá eru híbýli landsmanna.
Bankarnir hafa leitað suður til Brussel í baráttu sinni gegn Íbúðalánasjóði.  Þar á bæ sitja sérfræðingar í nefndum og ráðum, jafnvel dómstólum sem hafa það hlutverk að fordæma allt sem truflar gróðastofnanir á markaði; allt sem nokkur grunur getur leikið á að samfélagslegt geti talist skal sett út af sakramenti. Þær litlu leifar sem eftir eru af félagslegu húsnæðiskerfi á Íslandi er að finna í Íbúðalánasjóði  og felast þær í því að bakábyrgð ríkisins er á fjármögnun sjóðsins þótt honum sé þó gert að vera sjálfsbær á lánsfjármarkaði. Hann er því engin byrði á ríkissjóði. Bakábyrgðin gerir það hins vegar að verkum að hann á fyrir vikið kost á lánsfjármagni á hagstæðari kjörum. (Höf. Ögmundur Jónasson)

mbl.is Gengur gegn ríkisstyrkjareglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baneitruð fæða fyrir tækifærissinna

hanezös1Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég las fyrirsögnina að þessari frétt, var hvort Össur Skarphéðinsson hefði gert sér hægt um vik og étið Hanez Holmstone Gissurarson upp til agna í bráðræðiskasti. Auðveldlega má leiða að því líkum, að ef Össur lagt ríkisrekna frjálhyggjuryðskrjóðinn sér til munns, hefði það orðið hans banabiti; því jafn þungmelt fæða og Hanez prófessor er, hefði riðið tækifærissinnuðum innyflum iðnaðarráðherrans að fullu; hann hefði, að máltíð lokinni, baðað út öllum öngum, helblánað í framan, talað tungum frjálshyggjumanna og púka og dottið síðan steindauður niður á sama hátt og merin sem át hnakkinn sinn hér um árið.

En sem betur fer var þarna bara um venjulegan urriða að ræða, sem hafði, af óstjórnlegri (frjálshyggju) græðgi, gleypt venjulegan mink. Og það sem betra er: Hanez Holmstone er enn, að því ég best veit, óétinn og Össur vinur okkar við bestu heilsu, enda hefur það sýnt sig að ríkisstjórnarsetan með Birni Bjarnasyni og Guðlaugi Þór hefur haft ósköp heilnæm áhrif á lungu og hjarta Össurar.  


mbl.is Urriði át mink
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin láti til skarar skríða á áhrifaríkan hátt

útÞað virðist bæði ljóst og fullreynt, miðað við langvarandi pólitíska óstjórn og nú síðast hraðvaxandi verðbólgu, að Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að gera í bólið sitt með þeim hætti, að enginn ætti að velkjast í vafa lengur um að hann er öldungis óstjórntækur. Það skársta sem hægt er að gera í stöðunni nú væri að slá Sjálfstæðisflokkinn af og senda hann í langa útlegð frá ríkisstjórnarþáttöku og við tæki ríkisstjórn Samfylkingar, VG, Framsóknar og Frjálslyndra fram að næstu kosningum. Það er bara ekki hægt fyrir nokkurn mann, að horfa uppá Sjálfstæðisflokkinn dunda sér við að eyðileggja þjóðfélagið óáreyttan með sóðalegum einkavæðingum, umhverfisspjöllum, nítjándu aldar afturhaldi og ójafnaðarstefnu. Nú er lag fyrir Samfylkinguna að koma frjálshyggjustefnu Íhaldsins fyrir kattarnef á skjótan og skilvirkan hátt sýna þar með í verki, að það fari raunverulegur og hugrakkur jafnaðarmannaflokkur. Ég er viss um að virðing Samfylkingarinnar myndi vaxa verulega með þjóðinni ef hún léti til skarar skríða á þessum tímapunkti og refsaði núverandi samstarfsflokki sínum með þeim hætti sem hann hefur til unnið.  
mbl.is Verðbólga mælist 12,7%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjárglæfralýðurinn minnir á langdrukkna fyllibyttu

fullur4auð3Það er meira en broslegt að verða vitni að hve græðgisvæddur prangara- og fjárglæfralýðurinn á Íslandi er skelkaður, að ég ekki segi viti sínu fjær af hræðslu, þessa dagana. Úrræði þessara óþrifagemlinga gegn aðsteðjandi vá eru heldur ekki af verri endanum: Fleiri virkjanir, fleiri álbræðslur og flýjum inní Evrópusambandið! öskra skoffínin í krampakenndum skelfingartryllingi, eins og þar sé fólgin þú patent töfralausn sem geti ein bjargað þeim frá að þurfa að hafa fyrir hlutunum eins og venjulegar og heilbrigðar manneskjur. Þessi endemis ramakvein þeirra græðgisvæddu minna óneitanlega á langdrukkna fyllibyttu sem er að byrja að þynnast upp og heimtar meira brennivín til að geta verið fullur örlítið lengur. En því miður, timburmennirnir verða ekki umflúnir, þó svo fjárglæfralýðurinn haldi að hægt verði að komast hjá þeim með duglegri blöndu af  vikjunum, álverum og ESB.  
mbl.is Verslunarmenn vilja taka upp evru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimskir sígaunar í klóm hr. Stones

jail1Það var heldur betur vanhugsað hjá rúmensku sígaununum að hætta sér inná yfirráðasvæði stjörnusýslumannsins hr. Stones á Selfossi, því hr. Stones er strangt yfirvald með augu á hverjum fingri og hverri tá. Og uppskera sígaunana varð líka eins og til var sáð: Hr. Stones handtók þá umsvifalaust og lokaði bak við lás og slá fyrir að selja vönkuðu fólki glingur. En samkvæmt orðabók sýslumannsemdættis Árnessýslu merkir orðið ,,glingur" alvöru gull og demanta, og öfugt.

 

 


mbl.is Vafasamt glingur selt á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blönduóslögreglan fífluð af þorpurum og þrjótum

fool4Jæja, þá er nú hin fræga lögregla á Blönduósi búin að falla á sama trixinu tvisvar á einum sólarhring. Tvívegis hefir hún hlaupið upp til handa og fóta útaf skrökvi óskemmtanavandra gálgahúmorista, sem hafa gert sér að leik að mynda hvít lök og ljósa hesta og sagt lögreglunni að hin átakanlegu fyrirbæri væru gráðug bjarndýr í leit að mannaketi.

Ef svo heldur sem horfir að Blöndóslögreglan láti gamansama þorpara hafa sig að leiksoppi aftur og aftur með torkennilegum ljósmyndum, mun þessi annálaða lögreglusveit líða undir lok og hverfa útí buskann undir háværum hlátrasköllum og lófaklappi landsmanna. Auðvitað munu trylltir ökuþórar kætast ef lögreglan á Blönduósi gefst upp á rólunum eins og Grýla gamla, því þá verður loksins hægt að keyra Húnavatnsýslunnar í friði á 200 kílómétra hraða eða þaðan af meira, án þess að vera ónáðaður af smámunasömum lögregluþjónum. 


mbl.is Bjarndýrsútkall í Langadal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skáldskapur spaugara um lérefts- eða plastdruslubjörn

fugl1Eitthvað líst mér illa á þessa ísbjarnarhistoríu af Bjarnarfelli á Skaga. Getur ekki hugsast að þarna sé um samantekin ráð spaugara að ræða, sem vilja gera narr að hrekklausu fólki? Eins og málin standa í dag, eru landsmenn, þá ekki síst fjölmiðlaflónin, afar ginnkeyptir fyrir öllum skröksögum um ísbirni. Ég var svo heppinn, að sjá mynd í sjónvarpsfréttunum í kvöld af meintum hvítabirni; og það var nú hvítabjörn í lagi atarna: Hvítu laki eða plastdruslu hafði verið kastað af hendi úti á víðavangi, það síðan myndað úr fjarlægð og þar með var komið blóðþyrst villidýr norðan af hjara veraldar.

Og nú eru trúgjarnir sakleysingjar með alvæpni, að berjast við leita að þessum stórhættulega lérefts- eða heyrúlluplastbirni upp um fjöll og firnindi - en án árangurs að sjálfsögðu. Ég þykist vita að okkar guðsblessaði og góðgjarni umhverismálaráðherra er öll af vilja gerð til að sjá svo um, að hinum alhvíta léreftsplastbangsa verði ná lifandi og honum komið til sinna raunverulegu heimkynna. En þau heimkynni virðast reyndar ekki svo ýkja langt undan, ef tilgátan um að sagan af Bjarnarfellsísbirninum sé í mesta lagi vel heppnaður skáldskapur uppátektarsamra grínista.

Svo getur náttúrlega verið, að þetta hvíta, sem sést á myndinni, sé raunverulegt kvikindi: álft, sauðkind eða hvít varphæna, sem villst hefur frá heimili sínu og ráfað í einstæðingsskap sínum til fjalls.   


mbl.is Leit að bjarndýri stendur yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband