Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010

Merkur atburður í endurreisn gamla Íslands

kú4Sá merki atburður gerðist í hádeginu í dag, að fyrrverandi stofupía Kjartans Gunnarssonar í Valhöllu, Hanna Birna Krisjánsdóttir, greiddi atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ekki ætla ég að halda fram, að athæfi Hönnu Birnu sé einsdæmi í veraldarsögunni, fjarri fer því, en það breytir því ekki að þarna framdi stofupían geðgóða alvarlegt axarskaft. Að kjósa í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins er fáránlegur afglapaháttur, en að bjóða sig fram í slíku kjöri ber vott um einbeitta forherðingu og dómgreindarleysi. Að taka þátt í störfum Sjálfstæðisflokksins, sem ætíð hefur unnið eins og glæpavél, gerir hvern þann sem það gerir að þjófsnaut, stuðningsmann efnahagshrunsin og allra þeirra ótrúlegu glæpaverka sem þar voru unnin og er enn verið að vinna. Það er ömurlegt til að vita að saklaust fólk og grandvart, skuli glepjast til að kjósa í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins og gerast með því samsekt þeim glæpum sem urðu þess valdandi að Ísland er bjargarlaust eins og afvelta sauðkind.
mbl.is Borgarstjóri búinn að kjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver sá sem greiðir atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins ...

valholl_877018.jpgÞað er hátíð í Valhöll í dag og það ekki að ástæðulausu; það stendur nefnilega til að kjósa frú Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, sem Láfi F. kallaði ,,lötu Hönnu" í rómuðu ljóði, í efsta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins.

Nú er það eitt útaf fyrir sig, að Sjálfstæðisflokkurinn skuli enn hafa starfsleyfi eftir alla þá glæpi sem þessi illræmdu samtök hafa framið. Það er óskiljanlegur slóðaháttur hjá núverandi ríkisstjórn að hafa ekki bannað Sjálfstæðisflokkinn með lögum frá Alþingi, en en sýnir ef til vill betur er flest annað hið nöturlega samtryggingarkerfi stjórnmálaflokkana á Íslandi. En því miður hefur Sjálfstæðisflokkurinn starfsleyfi og getur því haldið prófkjör eins og honum lystir þar sem sama frjálshyggjuhrunaliðið og venjulega tekst á um efstu sætin. Innan Sjálfstæðisflokksins eru persónur og leikendur forhertar og kunna ekki að iðrast.

En hvað sem prófkjörskandídötum íhaldsins í Reykjavík líður, þá er ljóst, að hver sá sem greiðir atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins er fyrst og fremst af lýsa yfir stuðningi við áframhaldandi spillingu og glæpamennsku í þjóðfélaginu.  


mbl.is Sjálfstæðismenn með prófkjör í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sófaspekingar kvótaauðvaldsins í Eyjum í stríði við þjóðina

robb2_831158.jpgSvo er að sjá að Vilhjálmur Egilsson tali ekki vitleysuna í kvöld útí Vestmannaeyjum. Meðal annars er haft eftir kauða, ,,að áður en kvótakerfið var tekið upp hefðu verið eintóm vandamál í sjávarútveginum og það hafi verið mjög erfitt að stjórna efnahagsmálum á Íslandi á meðan kvótakerfið var handan við hornið og að kvótakerfið sé einn af grundvöllunum fyrir efnahagslegan stöðugleika á Íslandi."

Ja, sér er nú hver grundvöllurinn fyrir efnahagslegum stöðugleika á Íslandi. Hvað ætli kvótakerfið eigi stóran þátt í efnahagshruninu mikla fyrir rúmu ári? Það skyldi þó aldrei vera, að umrætt kvótakerfi hafi einmitt verið grundvöllurinn að efnahagshruninu? Ef sjávarútvegurinn á Íslandi var vandamál fyrir daga kvótakerfisins þá varð hann að illkynjaðri meinsemd eftir að umrætt kerfi var tekið upp.

Og hvernig hefur stöðugleikanum verið varið í sjávarbyggunum hringinn í kringum landið? Þar hefur ríkt stöðug hnignun og sumstaðar er allt nánast ein rjúkandi rúst. Það er því ekki nema eðlilegt að vikapiltur auðvaldsins dásami þetta kerfi arðráns, spillingar og glæpaverka. Og það skal Vilhjálmur Egilsson vita, að hann og vinnuveitendur hans eru þeir einu sönnu sófaspekingar og kaffihúsasérfræðingar, svo notað sé hans eigið tungutak á eyjafundinum, sem notað hafa fiskveiðiauðlindin íslendinga, sem og gjörvalt hagkerfið, sem leikfang og tilraunastofu fyrir hugmyndafræði frjálshyggjukapítalismans og ágrindarinnar sem hann grundvallast á. Nú hefur þetta óskammfeilna lið sagt þjóðinni stríð á hendur í þeirri von að það geti ránsfeng sínum. En sem betur fer mun þjóðin hafa betur gegn auðvaldinu í þessum slag. Eða hvað? ...

 

 


mbl.is Fjölmenni á fundi í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

,,Hagkerfið í Eyjum," Toyota-Mángi og einkennilegur bæjarstjóri

kvoti_953546.jpgÞað er sérlega vel við hæfi og táknrænt hjá mbl.is að birta mynd af útgerðarmanninum Toyota-Magnúsi Kristinssyni með fréttinni af heimskupörum útgerðarmanna í Vestmannaeyjum. Umsvif Magnúsar þessa útgerðarmanns hafa verið  með þeim endemum að eftir hefur verið tekið og í samræmi við það mun þjóðin dæma mótmælasiglinu útgerðarauðvaldsins í Eyjum í af miðunum í höfn. 

Svo lætur bæjastjóranefna Eyjamanna sig hafa að opinbera meðvirka heimsku sína með þvæli um ,,hafgkerfi Vestmannaeyja" eins og hann og hans húsbændur tilheyri ekki íslensku þjóðinni. Og hvað ætli sá góði maður hafi sagt þegar Magnús útgerðarmaður í Eyjum tók sig til og fór með himinháar upphæðir útúr ,,hagkerfinu í Eyjum" til að kaupa Toyotaumboðið og þyrlu, svo eitthvað sé nefnt. 

Ef útgerðaramenn ætla að haga sér með þessum hætti í framtíðinni er ekki um annað að ræða en að fyrna allar aflaheimildirnar með einu pennastriki. Það væri að sjálfsögðu bæði fljótlegast og langbest.


mbl.is Eyjaflotinn kominn í höfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland hefur eignast kraftaskáld sem mikils má vænta af

vik.jpgSvo er að sjá, að með einu huggulegu ljóðmæli hafi Ólafi F. Magnússyni tekist að yrkja Hönnu Birnu langleiðina útaf hinu pólitíska korti. Með tveimur til þremur álíka ljóðum til viðbótar mun Láfa F. takast að kveða þessa ágætu borgarstýru algörlega um koll í eitt skipti fyrir öll. 

Nú má vel vera, að hatursmenn sannrar ljóðlistar, eins og Vilhjámur Þ. Vilhjálmsson og trúlega fleiri Valhallarbúar, séu þeirrar skoðunar að verk Ólafs F. byggist á níði, lygum og klámi og vilji ekkert af þeim vita og því síður heyra. Það er þeirra vandamál og svo sem ekkert við því að segja fremur en öskrum götustráka þegar þeir eru flengdir fyrir ókytti.

Hinsvegar áttuðu gáfaðir menn með glöggt brageyra sig strax á, þegar þeir heyrðu ljóðmæli Ólafs F. á borgarstjórnarfundinum í dag, að Ísland væri búið að eignast kraftaskáld sem stæði traustum fótum á þúsund ára arfi hetjuþjóðarinnar. Gegn slíku kraftaskáldi á ein fyrrverandi þjónustupía af skrifstofu Kjartans Gunnarssonar í Valhöll auðvitað ekkert svar; hún er einfaldlega dæmd til að sökkva til botns og ílengjast þar.

Og eftirleikurinn mun verða Ólafi F. Magnússyni auðveldur. En vandséð er að nokkur maður með hærri greidarvísitölu en meðalbúrtík muni fyrir sitt litla pólitíska líf þora að ýfast við hinu nýalskapaða kraftaskáldi því hver sá er reyndi þessháttar ósvinnu myndi umsvifalaust verða kveðinn öfugur ofaní sína köldu og hráslagalegu pólitísku gröf af ákvæðaskáldinu Ólafi F. Magnússyni.


mbl.is Ólafur víttur á borgarstjórnarfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það þarf að hengja fleiri en karlaumingjann hann Alí

Sennilega verður Alí, karlauminginn, ellidauður áður en dómstólunum tekst að kveða upp síðasta dauðadóminn yfir honum. En þó er mun forvitnilegara að vita hvenær dómstólarnir kveða upp dauðadóma yfir stríðsglæpamönnunum sem fyrirskipuðu árásina á Írak. Fyrst hægt er að dæma Alí Saddamsfrænda margoft til aflífunar ætti að vera auðvelt að dæma glæpaþrjótinn Georg Bush að minnsta kosti einu sinni til samskonar afgreiðslu. Og líklega hefði samfylkingarskítseyðið Toni Blair gott af því að hanga þar til þann væri orðinn eins og sigin grásleppa í framan.  


mbl.is Fjórði dauðadómurinn yfir Efnavopna-Alí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áreiðanlega alveg rétt hjá félaga Steingrími

Það er áreiðanlega alveg rétt hjá félaga Steingrími, að Ísbjargardeilan er allt of, allt of, flókið mál til að fara í atkvæðagreiðslu hjá nautheimskum almúganum. Fyrst drottinn guð almáttugur Steingríms, Svavar Gestsson, botnaði ekki meira í málinu en illa meðalgreindur hlandauli, er engin von til að aðrir geti gert það.

Affarasælast væri að Steingrími væri falið að fara með atkvæði allra landsmanna í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu. Það myndi hvort tveggja í senn, spara ríkinu útgjöld uppá 200-300 milljónir og tryggja skynsamlega niðurstöðu.


mbl.is Of flókið fyrir atkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskur borgari lenti í hinu sama í Reykjavík

kol1Fjarri fer því að menn þurfi að fara alla leið til Tailands til að lenda hremmingum af sama tagi og mannleysan sem taldi sér trú um í hita leiksins að hann væri þriggjakvenna maki. Að minnsta kosti þurfti Kolbeinn vinur okkar Kolbeinsson annað en að bregða sér niður í miðbæ Reykjavíkur til að þefa uppi kvenfólk sem í engu eru eftirbátar þeirra tailensku sem svírtu landa okka þar ytra.

Þannig var mál með vexti, að Kolbeinn vinur okkar hitti fyrir fám mánuðum síðan þrjár íslenskar kérlíngar á alræmdri knæpu í höfuðborg Íslands. Umsvifalaust leiddu þessar vondu konur hann heim til einnar þeirrar þar sem þær véluðu ofaní hann eiturlyf, misbuðu blygðunarkennd hans mjög gróflega og rændu hann síðan öllum eigum hans, að meðtöldum öllum fötunum sem hann hafði verið í. Þegar Kolbeinn vaknaði aftur eftir eitraðan svef voru gálurnar á bak og burt, nánar tiltekið komnar á vertshús, með reiðufé hans og greiðslukort, til að éta og drekka sér til heilsubótar. Því miður fann Kolbeinn ekkert annað en kvenmannsföt í íbúðinni þar sem hann var strandaglópur. En þegar hann hafði drukkið í sig fulla vodkaflösku, sem hann var svo heppinn að finna bak við sófa í stofunni, klæddi hann sig í himinbláa buxnadragt af frúnni sem átti heimilið. Reyndar var dragtin nokkrum númerum of lítil á Kolbein, en honum var fjandans sama um það, þetta voru þó föt, fjandinn hafi það. Og þannig til fara pantaði Kolbeinn sér leigubíl og lét aka sér heim til frú Ingveldar, eiginkonu sinnar, sem tók á móti honum með sínum bráðsvæfandi hnúum og hnefum. 


mbl.is Kvensamur Íslendingur rændur í Taílandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur okkar J. er ekki að klofna

stgrÍ sjónvarpsfréttunum í kvöld var viðtal við þann óklofna svavarsvædda stórkarl Steingrím J. Sigfússon. Að vonum bar bar sá óklofni sig mannalega, enda handhafi ráðherrastóls, og vísaði útí hafsauga öllu hjali um að flokkurinn hans, Vinstri grænir, væri að klofna í tvennt, það væri engin hætta á slíku. Athyglisverðast við þessa afneitun Steingríms er að annað hvort var stórkarlinn að ljúga blygðunarlaust eða hann er ekki lengur með á nótunum, hefur ekki hugmynd um hvað er að gerast í flokknum sem hann á að heita formaður fyrir.

Ef svo illa er komið fyrir formanninum að hann viti ekki handa sinna skil í innanbúðarmálum VG verður ekki umflúið að velviljað fólk upplýsi blessaðan karlinn um að heldur betur sé farið að fjara undan honum og að flokkurinn sem hann stýrir sé nú þegar klofin, hangi einungis saman á fáeinum fúaspottum sem eru meir en líklegir til að gefa sig þá og þegar; ennfremur, að formaðurinn geti sjálfum sér um kennt hvernig komið er. 


mbl.is Flokksráð ítrekar andstöðu VG við inngöngu í Evrópusambandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kveðið eftir heimsókn í Vatíkanið

popeJæja, svo þeir stungu konunni, sem veitti Benedikt páfa XVI jólaráðninguna, inná geðveikrahæli. Minna mátti það ekki kosta. Og svo býður hann þessari geggjuðu konu heim til sín til skrafs og fyrirgefninga! Það vita nú allar hvernig slíkir fundir geta endað. Eða hvað sagði ekki skáldjöfurinn eftir vel heppnaða heimsókn sína í Vatíkanið:

Í rekkju páfa er ró og friður,

rósóttar buxur, nakin kviður.

Þar heilagir fingur fara um kropp

frá iljunum köldum uppá topp.


mbl.is Páfi hitti konu sem réðist á hann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband