Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2010

Mjög athyglisverð frétt úr DV

finnur2.jpgÍ Kastljósi RÚV íkvöld var frá vægast sagt undarlegum afskriftum banka á skuldum smábáts sem er í eigu í eigu eins stærsta gjafakvótaútgerðarfélags landsins. Af einhverri eða einhverjum ástæðum hefur mbl.is ekki birt þessa frétt, eð það hafa bæði DV og Eyjan gert. Til þess að mbl.is verði ekki algjörlega utangátta varðandi þessa stórfrétt læt ég frétt DV fylgja hér á eftir:

,,Smábátaútgerð í eigu fjölskyldu Halldórs Ásgrímssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, fékk afskrifaða 2,6 milljarða króna á síðasta á ári hjá Landsbankanum samkvæmt ársreikningi félagsins. Ári áður en skuldir útgerðarinnar voru afskrifaðar greiddi móðurfélag útgerðarinnar hluthöfum sex hundruð milljónir króna í arð.

Frá þessu var greint í Kastljósþætti kvöldsins. Þar var greint frá því að Fréttablaðið vakti athygli á miklum skuldum sjávarútvegsfyrirtækisins Nóna ehf. á höfn í Hornafirði. Fyrirtækið skuldaði þá rúma fimm milljarða króna. Skammtímaskuldir fyrirtækisins voru 4,2 milljarðar króna í byrjun síðasta árs og áttu að koma til greiðslu sama ár.

Fyrirtækið tapaði tveimur og hálfum milljörðum króna árið 2008 en fyrirtækið byggir rekstur sinn á tveimur smábátum. Kvótaeign félagsins var metinn á tvo milljarða króna árið 2008.

Stjórnendur Nónu eru þeir sömu og stjórna sjávarútvegsfyrirtækinu, Skinney-Þinganesi á Höfn. Eigendur fyrirtækisins eru meðal annarra afkomendur Ásgríms Halldórssonar, fyrrum Kaupfélagsstjóra á Hornafirði. Ásgrímur var faðir Halldórs Ásgrímssonar fyrrverandi forsætisráðherra. Skinney-Þinganesi var eitt þeirra fyrirtækja sem átti í gegnum eignarhald í öðrum félögum aðkomu að kaupum hins svokallaða S-hóps á Búnaðarbanka Íslands þegar hann var einkavæddur.

Í kringum þá sölu spunnust umræður um hæfi þáverandi ráðherra, Halldórs Ásgrímssonar til að koma að sölunni fyrir hönd ríkisins. Þá átti Halldór rúmlega eitt prósent í fyrirtækinu í Kastljóssþætti kvöldsins kom fram að það hefði ekki upplýsingar hvort að það hafi breyst. Skinney Þingnanes er handhafi 98 prósent hlutafjár í Nónu ehf."


mbl.is Atli tekur sér frí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpasamtök á flótta

heim3Það er engu logið um það, að Sjálfstæðisflokkurinn er magnað fyrirbæri, og dregur meira dám af glæpasamtökum en stjórnmálaflokki í þeim skilningi sem fólk almennt leggur í orðið stjórnmálaflokkur. Djöfullegur tryllingur meðlima þessara óhrjálegu samtaka útaf málshöfðununni á hendur Gjeirs Haaarde er með þeim endemum að fólk er agndofa. Þessir svokölluðu Sjálfstæðismenn víla ekki fyrir sér að ljúga því upp aftur og aftur, að fyrrnefnd málshöfðun sé eingöngu pólitísk aðför að einstaklingnum Gjeir Haaarde, rétt eins og ekkert hrun hafi orðið og halda því meira að segja fram að Gjeir þessi, ásamt ráðherrum sínum, hafi ekkert vitað hvað í vændum var fyrr en svona um það bil viku áður en efnahagskerfið lagðist á hliðina. Ég veit vel að Gjeir og aðrir í innsta hring Sjálfstæðisflokksins vissu mætavel hvað verða vildi árið 2006 og gerðu nákvæmlega ekkert til stöðva þá þróun; það var ekki fyrr en fólkið á götunni rak þetta pípuhattahyski útúr Stjórnarráðinu að það lét af völdum.

Það er hinsvegar gleðilegt að gjörspillt íhaldslið sé tekið uppá því að hlaupa á dyr á virðulegum fundum eins og púkafans undan guðsorði þegar góðir menn eins og Ögmundur Jónasson taka til máls. Það saknar enginn nærveru þess.


mbl.is „Ekki með neina sleggjudóma“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofsinn, kjafturinn og dómgreindarleysið

Einkathotur-rikisstj-geir_1152654354Þetta fólk, Gjeir Haaarde, Ingibjörg Sólrún og fleiri þeim lík, lætur eins og ekkert hafi gerst á Íslandi síðustu 1000 árin. Miðað við ofsann og kjaftinn á þeim í fjölmiðlum í gær og dag er engu líkara en þriðja stærsta gjaldþrot í heiminum, sem var fullkomnað einmitt í ríkisstjórnartíð þessa stórsaklausa heiðursfólks, hafi gjörsamlega farið fram hjá þeim, þau hafi siglt í gegnum það eins í einu alsherjar blakkáti. Að ráðherrum í ríkisstjórn Gjeirs Haaarde þyki glæpsamlegt að einhverjir séu dregir til ábyrgðar á þessu þriðja stærsta gjaldþroti sögunnar, og þvaðri um pólitískar ofsóknir og hefndir, sýnir betur en flest annað á hve háu stigi dómgreind þessa fólks er. Og það skulu hin hrokafullu og auðmýktarlausu yfirstéttar- og hrunráðherrar vita að það eru alltaðrir hlutir sem hafa eitrað stjórnmálalífið í landinu en viðleitni Alþingis að láta nokkra af höfuðpaurum ríkisstjórnar Gjeirs Haaarde (2007-2009) standa fyrir máli sínu frammi fyrir Landsdómi.

Og svo skulum við ekki gleyma að dáindispersónan Gjeir Haaarde og Árni Mathiesen voru sem þingmenn og ráðherrar í fararbroddi frjálshyggjuárásarinnar sem stóð linnulaust frá 1991 fram á haust 2008 og var höfuðorsök hrunsins. Svo heldur Gjeir því fram að hann sé alsaklaus!!!

Ojbara.


mbl.is Mun eitra stjórnmálalífið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfviljug eða neydd - Jóhanna á valið

Ef Jóhanna Sigurðardóttir segir ekki af sér sjálfviljug, eru talsverðar líkur á að hún verði neydd til þess. Hún á fortakslaust að sitja á sama sakabekk og herra Haaade.
mbl.is Ekki rétt að Geir sé einn ákærður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrossakaup, spilling og viðbjóður

Johanna-og-Gudlaugur-Thor_1091123689Alþingi Íslendinga kolféll á prófinu í dag þegar greidd voru atkvæði um hvort ástæða væri til að láta fyrrverandi ríkisstjórn svara til saka fyrir Landsdómi. Það þarf ekki vellæsan mann til að sjá að Samfylkingin gerði hrossakaup við Framsóknarflokkinn til að koma hlutunum þannig fyrir að aðeinn einn ráðerra verður ákærður. Sem sagt: Samtrygging stjórnmálaelítunnar hélt; Samfylkingin og Framsókn ákváðu að fórna Gjeir Haaarde í því skyni að friða almenning en sýkna hin þrjú. Geðslegt? Nei, viðbjóður.

Það var síðan serstakur kapítuli að fylgjast með fyrrverandi og núverandi ráðherrum Samfylkingarinnar greiða atkvæði. Þvílík helvítis skítseyði hafa sjaldan eða aldrei haldið jafn stórbrotna sýningu á sjálfum sér og pólitísku eðli í beinni útsendingu inn á hvert heimili landsmanna. Fyrir það fyrsta er það dæmalaus ósvífini af hrunaráðherrunum Jóhönnu Sig, Össuri, Stjána Möller og Þórunni Sveinbjarnardóttur að greiða atkvæði í þessu alvarlega máli. Þetta fólk hefur brugðist þjóð sinni og kjósendum hvo hroðalega að aldrei verður tekið mark á þeim meir. Og ekki var síður ömurlegt að verða vitni að því að nýju ráðherrarnir Samfylkingarinnar greiddu allir atkvæði gegn tillögunum. Við þetta hyski vil ég segja: Þið voruð ekki kosin til að fara svona að ráði ykkar.

Um spillingarpésa Sjálfstæðisflokksins þarf ekki ræða þar sem fyrirséð var frá upphhafi hvernig þeir myndy bregðast vil.

Ég tek undir með Þór Saari og fleirum: Það verður að boða til alþingiskosninga nú þegar. Óhjákvæmilegu uppgjöri og hreingerningu eftir hrunið og frjálshyggjusubbuskapinn undir þessum kringumstæðum.  


mbl.is Mál höfðað gegn Geir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef alþingismenn vilja uppreisn

Ef Alþingi, vegna innibyggða spillingar og forheimskunnar, guggnar á að draga nokkrar fyrrverandi ráðherraskjátur fyrir Landsdóm fyrir dýrkeypt afglöp þeirra brotavilja, er fátt í spilunum annað en að Alþingi Götunnar knýji ríkisstjórnina til að rjúfa þing og boða til kosninga.

Það er auðvitað í höndum hvers og eins þingmanns hvort hann greiðir atkvæði sitt í þessu máli með fólkinu í landinu og reisn Alþingis eða réttir upp hönd með spillingunni, lygunum og lágkúrunni. Fari svo að meirihluti alþingismanna standi með subbuskapnum og ómennskunni, aukast líkurnar á uppreisn fólksins gegn stjórnmálaelítunni og það þarf enginn maður að velkjast í neinum vafa um hver verður sigurvegari í þeirri uppreisn.


mbl.is Mjög tvísýnt um úrslitin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannréttindalexíur þúfnatyppanna

xd15Sá hefur nú aldeilis lært lexíurnar sínar í háskólanum blessaður litli íhaldsþúfutyttlingurinn hann Víðir Smári Peðersen: Það eru sem sé hvorki meira né minna en mannréttindabrot að draga bersyndugar stjórnmálalufsur fyrir Landsdóm. Ég get með engu móti ímyndað mér að svona ungmenni hafi getu til að ná nokkru alvöruháskólaprófi fyrst lærdómur hans er ekki burðugri en þetta. En annars er víst farið að útskrifa allan andskotann úr háskólum nú til dags; innantómt og ómenntað prófgráðufólk streymir eins og undanrenna útúr hinum ,,æðri" menntastofnunum útá göturnar, þjóðfélaginu til skaða.

Að sjálfsögðu minnist Víðir Peðersen ekkert á mannréttindi þeirra sem nú súpa seyðið af einbeittri, vísvitandi vanrækslu Hrunaliðsins. Því síður nefndi hann mannréttindabrotin sem fá linnulaust að líðast í kvótakerfinu, þrátt fyrir dóm Mannrétindanefnd Sameinuðuþjóðanna þar að lútandi.

Lifi Peder Pavlesen framkvæmdastjóri í Sviðinsvík!


mbl.is Réttlæti og sanngirni leiðarljós í störfum þingmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sósíalísk bylting er svarið

Rauður hnefiÞað hefur heldur enginn búist við því að labbakúturinn Guðmundur Steingrímsson hefði sannfæringu fyrir einu eða neinu, einfaldlega af því að hann hefur, og hefur aldrei haft, sannfæringu fyrir nokkrum sköpuðum hlut, enda alinn upp miðjum fjóshaugnum við sjálft Framsóknarfjósið.

Því miður hefur liði af sama kalíberi og Gvendur Steingríms fjölgað óhugnarlega á Alþingi: heilu og hálfu flokkarnir eru undirlagðir fénaði sem á enga köllun aðra en að þjóna eigin athyglissýki og eigin skítalykt.

Það er varla til mikils mælst, að óska eftir því við vísindasamfélagið (ef það er þá ekki ofsetið Gvendum Steingrímssonum) að fundið verði upp lyf, helst bóluefni, við hinu sannfæringarlausa spillingareðli sem tröllriðið hefur öllum stjórnmálum á Íslandi um hríð.

En best væri samt að gera sósíalíska byltingu því þar með myndi undanrennuliðið, Gvendarnir, Katrínarnar og Tryggvarnir Þór, hverfa sjálkrafa til annarra starfa, það er að segja ef hægt er að nota það til einhverra nýtilegra starfa en að éta cócópuffs..


mbl.is Hefur ekki sannfæringu fyrir ákærum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frú Ingveldur og Kolbeinn á útreiðarmóti.

womHin viðkunnanlegu hjón, frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri, létu sig ekki, fremur en önnur haust, vanta í Laufskálarétt um helgina. Á föstudagskvöldið lenti Kolbeinn í átökum við digra trukkalessu og beið lægri hlut, á meðan frú Ingveldur fór í útreiðartúr með góðglöðum hrossakalli, alræmdum fyrir nærgöngula framkomu við konur. Frú Ingveldur lét samt þennan flagar eiga neitt inni hjá sér því hún hafði hérumbil drekkt honum í skurði þegar góðgjarnir menn skárust í leikinn á elleftu stundu og björguðu kynbróður sínum undan hexinu.

Í gjærkvöldi slógust frú Ingveldur og Kolbeinn innbyrðis útaf kvennmanni. Þeirri viðureign lauk með því að þau féllu bæði, eins og góðum drengjum sæmir. Og í morgun, rétt fyrir hádegi, voru þau enn í glasi og höfðu þá vinahjón þeirra, Indriði handreður og Máría borgargagn bæst í selskapinn og allra verða veðra von, því öll fjögur voru þá þegar orðin verulega klæðlítil.


mbl.is Þúsundir á sveitaballi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ill meðferð á nauðstöddum mönnum.

björgÞeim er sannarlega ekki fisjað saman björgunarsveitarmönnunum á Kirkjubæjarklaustri. Mér er það til dæmis hulin ráðgáta hvernig í fjandanum þeir fóru að því að draga þrjá menn af flæðiskeri með björgunarstóli. Það væri sök sér þó björgunarmennirnir hefðu dregið þá er í nauðum voru staddir Í björgunarstóli til lands, en að draga aumingja mennina með þessháttar verkfæri er vonandi dæmalaust; það hefði áreiðanlega verið mun skárra að draga þá með dráttarvél, eða bara með handafli.  
mbl.is Bjargað af eyri í Núpsvötnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband