Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2011

Með óþverrann í buxunum

flokkseigendur_786424.jpgMikill maður Steingrímur J. Sigfússon og heiðarlegur með afbrigðum. Það sést best á vinnubrögðum hans gegn Jóni Bjarnasyni.

Í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag, sagði hinn heiðarlegi Steingrímur, vinnubrögð sjávarútvegsráðherra væru ámælisverð, án þess að skýra nánar í hverju þau væru ámælisverð. Með þessum orðum er Steingrímur að sjálfsögðu að lýsa yfir vantrausti á Jóni. 

Það sem Jóni er gefið að sök, er að hann hafi farið á bak við ríkisstjórnina varðandi vinnu við breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Það þarf enginn að segja mér það, að Steingrími hafi ekki verið kunnugt um á vinnu. Haldi hann því fram, að hann hafi ekkert vitað, þá er það ófyrirleitin lýgi af hans hálfu. Og hálf er það nú auðvirðilegt af manni, sem ætlaðist til að þingflokkur VG samykkti Icesavesaminginn hans Svavars óséðan, að koma á þennan hátt fram við Jón Bjarnason.

Þá ku flokkseigandadraslið í VG vera með óþverrann í buxunum út að því að Jón skipaði Atla Gíslason í nefnd ásamt þremur öðrum til að vinna að fiskveiðistjórnunarfrumvarpinu. En eftir að flokkeigendadraslinu tóks að hrekja Atla úr VG, er hann réttdræpur af þeirra hálfu. Og búrtíkurnar eru látnar gelta og spangóla sem aldrei fyrr.

Og hvað finnst fólki í raun og veru um formann stjórnmálaflokks, sem tekur þátt í, ásamt viðhlægendum sínum, að leggja þingmenn eigin flokks í einelti, í stað þess að stöðva eineltið? Þrír eru þegar farnir úr þingflokknum útaf einelti og fleiri jafnvel á leiðinni út af sömu sökum.

Ef Steingrími tekst að hrekja Jón Bjarnason úr ráðherraembætti, tel ég einsýnt að hann, ásamt Ögmundi Jónassyni og Guðfríði Lilju, segi skilið við VG. Geri þau það ekki, undir slíkum kringumstæðum, er þeim ekki viðbjargandi af vesaldómssökum. 

 


mbl.is Hefði mátt fara öðruvísi að
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er best að asninn fylgi eyrunum

Johanna-og-Gudlaugur-Thor_1091123689Það er ekki rétt hjá Ólínu Þorvarðardóttur, að Jón Bjarnason hafi sagt ríkisstjórnarflokkunum stríð á hendur. Það vill nefnilega svo skemmtilega til, að í báðum ríkisstjórnarflokkunum eru þingmenn sem vilja litlar sem engar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu; meint stríð beinist þá eingöngu gegn þeim sem vilja gagngerar breytingar á kvótakerfinu.

Hinu er ekki að neita, að nefndin hans Jóns hefur fært stefnuna talsvert nær kvótasinnunum og LÍÚ. Enda er nefndin þannig skipuð, að óhugsandi er að hún hefði burði, vilja eða getu til annars en að nálgast útgerðaraðalinn verulega.

Nú, ef Jón Bjarnason verður að segja af sér, væri farsælast að asninn fylgdi eyrunum og hrunráðherrarnir Jóhanna og Össur segðu af sér líka. Því þó staða Jóns sé ekki beinlínis góð í augnablikinu, þá er staða hrunráðherranna enn verri því ráðherradómur þeirra er þjóðinni til skammar og hrein ögrun við alþýðu manna.

 


mbl.is Hlýtur að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minnti á Indriða handreð

jol2Þegar ég sá Gunnar Helga Kristinsson, sem ber þann spaugilega titil ,,sjórnmálafræðingur", datt mér strax í hug sá merki samfylkingarmaður, Indriði handreður. Indriði handreður er nefnilega rauður í framan og leitast gjarnan við að tala eins og hann sé stórgáfaður, einkum þegar hann er drukkinn. Hinsvegar má handreðurinn eiga það, að hann talar lítið um stjórnmál, en þeim mun meir um drykkjuskap og kynsvall, enda er hann á heimavelli í þeim málaflokkum.

Þegar Indriði handreður átti á sínum tíma ólögleg mök við Sigurveigu dræsu var það mál manna, að þar hefði hann farið nokkuð illa yfir strikið. Sjálfur orðaði hann þá uppákomu á þá leið, að í öllu venjulegu samhengi hefðu mök hans og Sigurveigar dræsu sýnt svo mikið vantraust á Máríu borgargagn að hún hefði átt að segja af sér, en þess í stað hefði Máría hysjað uppum sig pilsið og boðið honum að gjöra eins við sig og Sigurveigu.


mbl.is Verið að sýna Jóni vantraust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húsbóndinn sendir sérlega búrtík sína á vettvang

dog5_870748.jpgEnn einn ganginn sendir Steingrímur J. Sigfússon sérlega búrtík sína, Björn Val, vin Smaherja, Brims og LÍÚ, á vettvang til að hafa uppi urr og gelt gegn þeim sem hugsanlega gætu spillt fallegum vinskap hans við LÍÚ og fleiri þesskonar auðvaldsklíkur. Þá má vera, að Samfylkingin hafi sett Steingrími úrslitakosti varðandi Jón Bjarnason: ef hann sópi ekki Jóni úr ráðherrastóli nú þegar missi hann sjálfur ráðherrastólinn undan rassgatinu á sér. Við eigum kanske eftir að upplifa það á allra næstu dögum, að Björn Valur verði dubbaður upp til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Það yrði góð jólagjöf ríkisstjórnarinnar til Landssambands íslenskra útvegmanna.

Annars væri líka þarft fyrir landsmenn, að Björn Valur gelti því uppúr sér hvernig á því stóð, að hann sveik fiskveiðistjórnunarstefnu flokksins, sem hann var kosinn á þing fyrir, við fyrstu huganlega hentugleika í samráðnefdinni alræmdu. En samráðsnefnd þessi er mestu mistök Jón Bjarnasonar sem ráðherra. Þar voru dregnir saman að borði heilmikill samtíningur af kvótasinnum og kvótaböðlum og niðurstaða þessara skaðræðisgripa síðan kölluð ,,sátt."

Nú má ljóst vera, að ekki verður undan vikist lengur hjá Steingrími J. Sigfússyni að fara með búrtíkur sínar í hundahreinsun. Um búrtíkur gilda landslög um meðferð heimilisdýra og dekurdýra, en þar er kveðið skýrt á um fyrirkomuleg hundahreinsanna. Ef Steigrímur lætur ekki segjast, hvað þetta varðar, verða til þess bær yfirvöld að skerast í leikinn og beita þeim úrræðum sem þau hafa gagnvart óhreinsuðum búrtíkum.   

 


mbl.is Ráðherrastóllinn ruggar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðfræðideild Andskotans

skrattaskrifHver fjandinn ætli þetta ,,verkalýðsmálaráð Sjálfstæðisflokksins" sé? Mér dettur í hug áhugamannafélag um þrælahald, því sjálfstæðismenn líta þannig á að verkafólk séu þrælar, sem Guð hafi gefið þeim til að græða á. Í það minnsta hljómar orðaleppurinn ,,verkalýðsmálaráð Sjálfstæðisflokkins" svipað í eyrum og ,,Guðfræðideild Andskotans."

Það hlýtur að vera mikil upphefð fyrir klerkinn, síra Halldór Gunnarsson, að hafa skorað hátt í kjaftaaskakeppni svo óhuggulegs fyrirbæris, sem ,,verkalýðsmálaráð Sjálfstæðisflokksins" er. En sumir læra víst aldrei að sjá sóma sinn, jafnvel þótt þeir séu vígðir til sálusorgunar í nafni sósíalistans Jésú Krists.

Þegar höfðingjar sjálfstæðisflokksins koma saman finnst þeim skemmtilegast að segja hverjum öðrum gamansögur af verkafólki og öðru almúgafólki, sem þeim finnst alltsaman óstjórnlega heimskt og illa upplýst, og grenja af hlátri yfir því hve létt sé að leika á þessa einfeldninga, ljúga að þeim og hórast með kerlingunum þeirra. Þeir halda meira að segja, að ef þeir einbeiti sér að því að ljúga því nógu lengi að launaþrælunum, að Sjálfstæðisflokkurinn beri enga ábyrgð á Hruninu Mikla, fari þeir að trúa því og allt falli þi ljúfa löð.

 

 


mbl.is Völdu Davíð ræðumann landsfundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með tannaför á nefinu

nef.jpgJæja, þá er Hanna Birna búin að vera, orðin safngripur, bráðum öllum gleymd. Bættur sé skaðinn. En Bjarni Ben heldur á djúpið með slitna brynju, sundrað sverð og syndagjöld, og frú Snordal í lestinni. Og bráðum ferst klækjaknörr Sjálfstæðisflokksins í hinum pólitíska brimgarði. Það er fagnaðarefni.

Frú Ingveldur og Máría borgargagn, sem báðar sátu allan landsfund Sjálfstæðisflokksins, réðu sér ekki fyrir gleðitryllingi, þegar ljóst varð að Bjarni hefði banað Hönnu Birnu, og klipu í brjóstin á hvorri annarri og knúskysstust fyrir framan 1600 manns. Svo datt Máría borgargagn um koll í öllum látunum og skreið undir borð. Undir borðinu tókst henni að grípa um hreðjar karlmanns nokkurs, sem sat við borðið, og draga hann nauðugan undir til sín. Karlinn kom svo aftur undan borðinu með buxurnar á hælunum og tannaför eftir borgargagnið á nefinu á sér, alsæll og glaður.

Á þessari stundu er Hanna Birna komin heim til sín og farin að huga að pottum sínum og ryksugu, svo sem einum veleðla kvennmanni ber að gera á sunnudagseftirmiðdegi. En Bjarni Ben er sennilega lentur í klónum á frú Ingveldi og Máríu borgargagni, en þær eru sem kunnugt er afar hrifnar af ,,mönnum" sem líta út eins og tóm jakkaföt með bindi. 


mbl.is Mín pólitíska framtíð óráðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verslunarvaran Jésús Kristur

jes.jpgSjáum nú til: Íslenskir útrásarforkar að markaðssetja Jésú litla í spænskumælandi löndum! Ekki spyr maður nú að. Ætli sá stutti verði seldur í bútum, eða á fjölfalda hann og pranga honum út í neytendavænum umbúðum? Menn hafa svo sem reynt með ýmsum ráðum að selja Guð Almáttugan og slá lán útá hann, en með ósköp lítilfjörlegum árangri. Afturámóti hefur þeim tekist að gera Jésú litla að ágætri verslunarvöru, margselt hann og keypt, veðsett og svikið hann undan skatti. 

Já mikið hefur litli sósíalistinn frá Nazaret mátt þola síðan hann rak kapítalistana og prangarahyskið útúr musterinu forðum daga.

 


mbl.is Jesús litli fær góðar viðtökur á Spáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og slátrið hangandi niðrúr

pol1_1122375.jpgUmmæli Bills Hudsons um fyrrum eiginkonu sína minna óneitanlega á keimlíkar fullyrðingar í lögregluskýrslu, sem hafðar eru eftir Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra. En svo var mál með vexti, að Kolbeinn Kolbeinsson tók sig til fyrir nokkrum árum og kærði eiginkonu sína fyrir eitt og annað sem sneri að þeirra hjónabandslegu samskiptum. Í nefndri lögreglu skýrslu er meðal annars haft orðrétt eftir Kolbeini: ,,Hún (frú Ingveldur) er gjörsamlega kynlífssjúk; hún veður um allt ríðandi röftum og segir mér að halda kjafti og fara til andskotans og hótar mér líkamsmeiðingum og öðru ofbeldi þegar ég finn að háttalagi hennar. Auk þess hefur hún borið uppá mig að ég sé hommi." Á öðrum stað segir í skýrslunni: ,,Þetta helvítis kvæ kom nærbuxnalaus heim um miðjan dag í miðri viku eftir að hafa verið í heimsókn hjá Máríu borgargagni og Indriða handreði, en þau eru bæði druslur, stórbrenglaðir kynvillingar og óráðvendishundar." Skýsrslunni lýkur svo með þessum orðum: ,,Að skýrslutöku lokinni var K.K. færður í járn og lokaður inni í fangaklefa." Undir skýrluna ritar, Hálfdán Ögmundsson varðstjóri.

Sama dag bankaði Hálfdán varðstjóri uppá hjá frú Ingveldi, furðu andstuttur og með eftirvæntinarglampa í augum og var boðið til stofu. 

Þegar Kolbeini var sleppt úr prísundinni, skreið hann beint heim til sín og hugðist sleikja sár sín eins og barin hundur. Hann var ekki kominn nema inní forstofu þegar frú Ingveldur kom albrjáluð á móti honum og sagði að kynóður lögregluvarðstjóri hefði komið í heimsókn og ætlað að nauðga sér. - En honum varð nú ekki kápan úr því klæðinu, öskraði frú Ingveldur framan í mann sinn, - því ég kom klofskærum á hausinn á honum og var ræstum búin að kæfa hann. Þegar ég sleppti, skreið hann út á hjánum með skyrtuna uppúr og opna buxnaklauf og slátrið hangandi niðrúr."


mbl.is Kallar Hawn sjálfhverfa og kynlífssjúka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Demí er lánsöm að vera aðeins tvíkynhneigð

kol1Það er mesta mildi ef rétt er, að Demí Moore sé aðeins tvíkynhneigð. Ástandið væri mun verra ef hún væri þrí- eða fjórkynhneigð, eða þaðanaf meira. Þá ku það vera mikið böl að vera aðeins einkynhneiðgur, leiðigjarnt með afbrigðum, litlaust og fúlt.

Í mastersritgerð frú Ingveldar við Háskóla Íslands, heldur hún því fram með óyggjandi rökum, að einkynhneigð sé stórt þjófélagslegt vandamál því að það leiði af sér heimilisófrið, einelti og drykkjskap. Þá lendi einkynheigðir iðulega í sálfræðilegri blindgötu, sjái ekki handa sinna skil né kunni fótum sínum forráð og verði jafnvel að lokum kynvillunni að bráð. Þá sé nú betur heima setið en af stað farið. Þá mælir frú Ingveldur í ritgerð sinni eindregið með sjálfskynhneigð fyrir alþýðufólk, því hún sé einföldust og útlátaminnst og skilji alþýðumanninn ekki eftir ráðvilltan og öfugsnúinn með taugaflækju og margvísleg ör á sálinni.

Þannig að Demí Moore er býsna vel sett, miðað við aðstæður, með sína geðfelldu tvíkynhneigð. Þó held ég að allir velþenkjandi fræðimenn séu sammála um að hún ætti að huga að klausturlífi áður en lengra er haldið.  


mbl.is Demi Moore er tvíkynhneigð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og Frelsarinn situr blóðrauður í framan

kross1Það er meir en við hæfi að einn vesæll pokaprestur verði varaformaður Sjálfstæðisflokksins, enda eru þessi sóðasamtök græðginnar og ómennskunnar slíkt fúafen svo pokaprestsleg að lengra verður ekki komist á þeirri braut. Hinsvegar held ég að blessaður Frelsarinn sitji blóðrauður í framan af skömm við hægri hönd Drottins yfir þessum kynalega þjóni sínum.

Það er og mál manna, að landsfundur Sjálfstæðisflokksins sé nú þegar kominn langt fram úr væntingu bjartsýnustu manna hvað varðar veruleikafirringu, afneitun, hræsni, heimsku, iðrunarleysi og velgjandi viðbjóð. Sem sýnir okkur að þessi ruddalegi selskapur á sér ekki tilverurétt fremur en óperusöngur og krabbamein.


mbl.is Halldór í framboð til varaformanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband