Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2011

Þjóðskáld veldur óróa með leynilegum kveðskap

threy.jpgÞað er ekki tekið út með sældinni að vera stjórnmálaskörungurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson og þykjast vera viðurstyggilega móðgaður útaf skitnum hundra þúsund krónum í kjaftinn á einhverjum dómararæflum sem neyðast til, alla virka daga sem Guð gefur, að dæma allrahanda trantaralýð á Hraunið fyrir misljóta glæpi.

En sem kunnugt er, er téður Sigmundur Ernir einhver mestur núlifandi hugsjónabelgur á Íslandi og að sama skapi í hávegum hafður af stórgáfuðu fólki sem hikar ekki við að kalla hann til skiptis séní og andans jöfur. Þá er han mjög dáður fyrir að hafa orkt Rauðvínsrímur hinar nýrri, sem eru álíka aðgengilegar alþýðu manna og leynileg hrossakaup stjórnmálamanna. Þó hefur lekið út að kvæðabálkur sá er Sigmundur Ernir kennir við rauðvín hefjist á þessa leið: ,,Undir borði á Akureyri elliærðist Hunda-Geiri. Hann var öðrum mönnum meiri, mjök hann skapti söng úr leiri. Þeir sem eyru hafa heyri, renni víni rauðu á könnu og rói sig á viti grönnu."

Það var víst útaf þessum gáfum þrungna kveðskap Sigmundar Ernis sem Máría borgargagn brá nærbuxum sínum á loft og hugðist kyrkja Jón aumingja, frænda sinn, með þeim.    


mbl.is Viðurstyggileg móðgun við landsmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og pervertisminn vex, - og vex. Verða kýr áfram mjólkurpeningur eða munu kerlingar leysa þær af hólmi.

belja2Það fullyrða vísir menn að Teboðshreyfingin svokallaða í USA sé systurhreyfing Sjálfstæðisflokksins á Íslandi, sem sjáist á því að Sara Palín og Bjarni Ben, form. Sjálfst.fl. séu svo sláandi lík að halda mætti að þau væru eineggja tvíburar.

Nú berast góðar fréttir af því að Sara Bjarnasystir sé komin í hörkubaráttu gegn áforum frú Óbama að gera konur að mjólkurdýrum og leysa þar með kvennautgripi undan þeirri kvöð að sjá ofhodguðum Bandaríkjamönnum fyrir mjólkurvörum.

Nú má vel taka undir orð Karls Einfers, að það sé mesti viðbjóður og villimennska að fólk drekki í sig mjólk úr öðrum dýrategundum og best færi á að kerlingar myndu sjá mjólkurstöðvum alfarið um hráefni, fyrst mannkynið er svo illa statt að geta ekki lifað án mjólkuráts.

En það verður spennandi að fylgjast með hvort verður ofaná í USA, hefðbundin kúabú, þar sem skjöldóttar kýr leika aðalhlutverkið eða ný tegund þessháttar landbúnaðar þar sem mylkar kerlingar eru leiddar til mjalta kvölds og morgna.


mbl.is Teboðshreyfingin hjólar í brjóstagjafir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar á Hlíðarenda endurborinn.

egill_1061986.jpgHann ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur ungi maðurinn sem bauð lögreglusveit stjörnusýslumannsins Stones byrginn í gærkvöldi. Eins og Gunnar á Hliðarenda endurborinn barðist hann við fjöld lögregluþjóna og var við það að hafa betur þegar sjálfur Stones birtist óforvandis á vettvangi og tókst að koma skessubragði á hetjuna svo hann féll í valinn og var yfirbugaður. Má fullyrða að enginn hefur sýnt af sér annan eins fræknleik á Suðurlandi síðan Gunnar og Skarphéðinn lituðu lokka sveitunga sinna bóði austur þar. Þetta sýnir enn fremur að enn eru til horskir menn á Íslandi sem hika ekki við að berjast gegn ofurefli og falla að lokum með þeirri sæmd sem gerir þá ódauðlega í sögu þjóðarinnar. Í skæru ljósi þeirrar hetjulundar sem hinn ungi maður sýndi af sér í gærkvöldi, má fullyrða að upp sé runnin sú eftirsókarverða gullöld sem vér höfum saknað síðan hetjur riðu um héruð fyrir þúsund árum. 

En mikið afrek hefur hinn ástsæli stjörnusýslumaður Árnesinga í þjálfun varðsveitar sinnar. Honum hefur á undraskömmum tíma tekist að þjálfa lyktnæmi sinna manna með slíkum ágætum, að nú renna þeir eins og skæðustu labradorar á kannabisþef sem á sín upptök í órafjarlægð frá þeim. Á þann hátt hafa þeir afhjúpað hvern kannabisbaróninn af öðrum á Selfossi og nærsveitum, þannig að umræddir barónar vita ekki lengur sitt rjúkandi ráð.

En svona eiga nú einusinni sýslumenn að vera.


mbl.is Lenti í áflogum við lögregluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrapaleg mistök dómnefndar í Ósló og frétt af annarri og mun merkilegri verðlaunaveitingu

femma_1061814.jpgÞarna fóru þeir rangt að vesalings skepnurnar í norrænu dómnefndinni. Þó Jónsi sé vel að verðlaunum kominn, er hann þeirrar gerðar að hann er of stór fyrir svona grín. Ef allrar sanngirni væri gætt, hefðu Norrænu tónlistarverðlaunin farið beint í lúkurnar á skáldrindlinum Sjón, því hann er sérhannaður fyrir norræn verðlaun fyrir ekki neitt.

En fyrst við erum farin að tala um verðlaun, lesendur góðir, er ekki úr vegi að nefna aðra verðlaunafhendingu sem fram fór á dögunum. Það fór nefnilega svo, að hið virta félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, Hvöt, veitti frú Ingveldi æðstu orðu Hvatar fyrir framúrskarandi störf í þágu sjálfstæðisstefnunnar, auk þess að fá verðlaunin ,,Hvatarkona ársins 2010" fyrir, eins og segir í niðurstöðu dómnefndar, óbilandi baráttu sína gegn drykkfelldum framsóknarmönnum og kynvillu á framhaldsskólastigi.

Vart þarf að taka fram, að frú Ingveldur hélt uppá verðlaunin með því að rjúka tafarlaust heim og lúberja Kolbein Kolbeinsson, eiginmann sinn, fyrir andstyggilega framsóknarmennsku og annað yfirþyrmandi óeðli.


mbl.is Jónsi vann í Ósló
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæfileikarýrar stjórnmálakvinnur fremja súrrealískan ræðugjörning í auglýsingarskyni fyrir sjálfar sig

xd18_1061598.jpgMikið andskoti er nú súrrealískt að Jóhanna Sigurðardóttir og Torgerður Kattrín skuli enn sitja, á sínum ónýtu hrunsrössum, á Alþingi Íslendinga. Fyrir það fyrsta er stórfurðulegt að þessar hæfileikarýru konur skuli ekki hafa lagt niður skottið sama dag og Ísland skutlaðist fram af frjálshyggjubjarginu og látið sig hverfa af vettvangi stjórnmálanna. Í annann stað er jafnvel enn furðulegra að nokkur maður skuli hafa lagst svo lágt að styðja fyrrgreindar hrunamaskínur til áframhaldndi setu á Alþingi.

Það er svo í stíl við fortíð Jóhönnu og Torgerðar að þær geri sér að leik að kalla hvora aðra vitleysing út ræðustóli Alþingis, svona til að undirstrika súrrealíska setu þeirra á þjóðþinginu. 

Það er víst til of mikils mælst að biðja þessar einkennilegu konur um að geyma sjálfum sér allan þvætting og hafa sig á brott úr Alþingishúsinu og koma þar aldrei meir inn fyrir dyr. Það er það eina sem þær geta gert þjóð sinni til gagns.

 xd19_1061600.jpg


mbl.is Á ekki að spyrja svona vitleysislegra spurninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og paradísardúfan hló og skríki

femmaHún lætur ekki ganga í verkin sín blessuð dúfan hún Swandeesý þegar kemur að því að greiða atkvæði með því að troða Icesave-glæpnum öfugum ofaní kokið í almenningi í landinu. Og þrátt fyrir mikið og vont heilsuleysi, skeið þessi prinsessa flokkseigenda VG af einskærri þjóðhollustu fram úr bæli sínu, eins og ellihrum framsóknarmaddama, og greiddi sitt atkvæði, hló meira að segja og skríkti eins og fullfrísk væri. Það fór sem sé ekki fyrir Swandeesý Sendiherrans eins og gömlu konunni sem dó, sem pissaði á vegginn og veggurinn hló.

Svona getur nú verið heilnæmt og heilsubætandi fyrir einn stórsósíalist, de la Pétur þríhross, að greiða atkvæði með Isesavesamningi.


mbl.is Ráðherra staðfestir tillögu að aðalskipulagi frá 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undanrennufénaðurinn í UVG og falsspámennirnir Steingrímur og Ögmundur

au_vald_1061447.jpgÞað er svo sem gott og blessað að undanrennufénaðurinn í  stjórn Ungra vinstri grænna (UVG) álykti um dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir níumenningunum svokölluðu. Hitt er aftur lakara að stjórn UVG skuli ekki hafa manndóm í sér að álykta harkalega gegn samþykkt Alþingis á samningnum um Icesave-glæpinn.

En það er auðvitað ekki raunhæft að ætlast til að undanrennuunghænsin hans Steingrím hafi yfirleitt einhverjar pólitískar skoðanir aðrar en að sleikja sig upp við foringjann, Álfheiði Inga og Árna Þór eins og undirgefnir hvolpar með lága greindarvísitölu. Það eru að minnsta kosti undarleg ungmenni sem hafa svo skerta réttlætiskennd og hlandþunnar hugsjónir að þau geti ljáð stuðning sinn þeim auðvirðilegu ómennum og svikurum sem skipa forystusveit VG.

Þessa dagana er æ betur að koma í ljós hverskonar loddarar og smámenni skipa þingflokk og foruystu VG. Það má vel vera að Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson haldi að almennir flokksmenn og kjósendur VG sjái ekki í gegnum leikaraskapinn í kringum atkvæðagreiðslur flokksins um ESB-umsóknina, Icesave I og II, tvískinnunginn varðandi kvótakerfið og endurreisnina miklu sem einungis er endurreisn fjármálaafla Gamla Íslands á kostnað almennings. Hitt er aftur vandséð að þeir kumpánar komist upp með það öllu lengur spila með fólk og hafa það að fíflum. Það getur nefnilega vel verið að fólk eigi í fórum sínum ráð við svona neföpum og muni beita því ráði einn góðan verðurdag innan ekki svo langs tíma.

Vinstrihreyfingin grænt framboð var stofnuð á fölskum forsendum og þar af leiðandi er þátttaka flokksins í ríkisstjórn grundvölluð á fölskum forsendum, svikum og ótrúlegu siðleysi sem er af sömu rót runnin og siðleysi fjármálaperverta og annarra slíkra eiginhagsmunavarga.

Ég sé enga ástæðu lengur til að halda Vinstrihreyfingunni grænu framboði úti stundinni lengur sem stjórnmálaflokki, það er í raun og veru galið og til minnkunar öllum sem þar eiga hlut að máli, bæði forustusveit sem og öðrum flokksmönnum. Ef Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson væru heiðarlegir menn myndu þeir leggja til á næsta landsfundi VG að flokkurinn verði lagður niður og lýsa því jafnframt yfir, fyrir sína parta, vinstripólitík á Íslandi heyri sögunni til og sósíalismi sé nítjándualdar þvættingur sem hafi dáið drottni sínum dama dag og Karl Marx tók hinsta andvarpið.  


mbl.is Harma pólitísk réttarhöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Froðufundur dáðlausra smáborgara.

Folk-med-haus-i-sandi_1408691242Það hefur lítil alvara verið að baki þessum fundi fyrst ekki kom fram tillaga um að banna helstu ofbeldissamtök landsins, Sjálfstæðisflokksins.

Öll fundarhöld um afnám ofbeldis eru hjóm eitt ef menn hafa ekki manndóm í sér til að ráðast að rót vandans og krefjast þess að hinn alræmdi merkisberi kapítalismans og ágirndarinnar, Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi, verði lagður í rúst með einu áhrifaríku áhlaupi, sem geri útaf við þessi öfgasamtök í eitt skipti fyrir öll.

Það er greinilegt á öllu að fundur verslunareigenda og Íbúasamtaka miðbæjarins í kvöld hefur verið ein allsherjar froða um froðu, rétt eins og fjármálagjörningar peningaperverta Sjálfstæðisflokksins sem ollu efnhagshruninu 2008. 

En umræddir verslunareigendur og miðbæjaríhöld mega svo sem mín vegna stinga hausum sínum eins djúpt í sandinn og þau geta, eða míga uppí vindinn eins og þau lystir allt þar til þau drukkna í eigin froðufrussi. Ég syrgi þau ekki, fari þau vel.


mbl.is „Samstarfsverkefni okkar allra“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhrifaríkasta aðgerðin til að afnema ofbeldi liggur í augum uppi.

kick1.jpgÞað eru víst allir sammála um að ofbeldi sé einhver versti viðbjóður sem hugsast getur í mannlegu samfélagi. Þrátt fyrir það hefur andskotann ekkert miðað í þá átt að ósk almennings um ofbeldislausan heim verði að veruleika. Sem kunnugt er hefur fjölskrúðugt ofbeldi verið stundað sleitulaust á Íslandi frá því fyrstu landnámsmönnunum skolaði hér á land og eru Íslendingar síst eftirbátar annarra þjóða í þeim efnumþ

Nú ber svo við að verslunareigendur við Laugaveg og íbúar miðborgar Reykjavíkur vilja ofbeldið burt. Fljótt á litið er helst að skilja að umræddir borgarar vilji reka svokallað ofbeldismenn og konur burt úr sinni landareign eins, og hverja aðra garðára, yfir á tún nágranna sinna og heimta að yfirvöld ríkis og borgar aðstoði þá við reksturinn.

En vilji íbúar þessa lands leggja sitt að mörkum til eflingar heimsfriðar og afnáms ofbeldis verða þeir að gera sér grein fyrir að slíkt er ekki mögulegt nema því aðeins að Sjálfstæðisflokkurinn verði aflagur með lögum og öll starfsemi í hans anda bönnuð á sama hátt og hver önnur illvirki sem óleyfilegt er að stunda. Að hinum ókræsilegu samtökum, sem af mannfjandsamlegri hótfyndni sinni, kenna sig við sjálfstæði skuli leyft að valsa og dandalast óáreitt jafnast á við fátt annað en að stórþjófnaðir og aðrar gripdeildir, ásamt mannáti og pyntingum, verði gerðar leyfilegar með lagasetningu frá Alþingi.

Því er það skylda núverandi stjórnvalda að bregðast við kröfu verslurnareigenda við Laugaveg og íbúa miðborgar Reykjavíkur með því að ráðast að rótum vandans í eitt skipti fyrir öll og banna Sjálfstæðisflokkinn sem og allar aðrar kapítalískar tilfæringar. Ef einhver efast um að slík sjálfsögð aðgerð sé lýðræðisleg, er því til að svara, að mikill meirihluti þjóðarinnar vill afnema ofbeldi og í því ljósi er það lýðræðisleg skylda stjórnvalda að afmá ofbeldissamtök eins og Sjálfstæðisflokkinn algjörlega burt úr þjóðlífi Íslendinga. 

 


mbl.is Ofbeldið burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mörður sigraði öfgaliðið 14-0 í Silfrinu í dag.

ball.jpgÞað er með hálfum huga að ég geri þá játningu að hafa vanið mig á þann lágkúrulega ósið að horfa og hlusta á Silfur Egils á Sunnudögum. Fyrir vikið má með sæmilegum rökum saka mig um lágmennsku og tilfinnanlegan skort á því sem stundum er kallað ,,menningarviðleitni."

En allt um það, þá varð ég vitni að því í Silfrinu í dag þegar Mörður Árnason tók fulltrúa Stjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og þann skrýtna Gunnar Smára Egilsson á kné sér og rassskelti vel og vandlega uppúr vitleysunni sem runnið hafði frá þremenningunum eins og flaumur útum gat á biluðu skólpröri.

Það var satt að segja alveg mögnuð lífsreynsla í því fólgin að heyra Unni Brá, aðal þingmann Sjálfstæðisflokksins nú um stundir, emja eins og upptekktan jólasvein um að Swandeesý Svavars ætti að segja af sér embætti fyrir engar sakir, sérstaklega í ljósi þess að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er gegnsósa af sóðalegri spillingu og hrunsstarfsemi, án þess að þar á bæ hafi nokkur lifandi sála sagt af sér. Þá var fulltrúi Framsóknarflokksins ekki síður athyglisverður hvað varðar forherðingu og öfga í heimskulegri stórvirkjunarafstöðu sinni, sem segir okkur að lítið hafa kroppinbakarnir í Fjósi gömlu Maddömunnar lært af hroðalegum djöfulskap Halldórs, Finns og Valgerðar. Um Gunnar Smára þarf ekki að fjölyrða, en það er samt alltaf dálítið einkennilegt að hlusta á illgjarna spillingarpésa hnoðast við að reyna að vanda um fyrir fólki; tala niður til almennings eins og þeir einir viti allt, en allir aðrir séu fáráðlinga og nautheimskir glæpajúðar, og til að kóróna fáránleikan, botna þeir ekkert í hvernig á því stendur að þeir séu ekki almáttugir eins og Guð. 

Það þótti í frásögur færandi þegar Danir sigruðu Íslendinga 14-2 í fótbolta. Í dag bætti Mörður Árnason um betur og tók Unni Brá, Hall Magnússon og Gunnar Smára 14-0 í Silfri Egils.


mbl.is Segi mútur og skrifa mútur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband