Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2011

Ónáttúra og náttúra á Íslandi

ÚtigangsmaðurÞað má með sanni segja að íslensk náttúra sé alveg einstök. Fagurt dæmi um það er náttúra sæmdahjónanna, Kolbeins Kolbeinssonar og frú Ingveldar. Og þá er íslensk ónáttúra ekki síðri, það getur hver maður séð á stjórnmálamönnum, kvótakerfinu, NATO aðildinni, Hruninu og ESB-ónáttúru Samfylkingarinnar, svo eitthvað sé nefnt sem liggur í augum uppi.

Þá kölluðu hið væna par, Máría borgargagn og Indriði handreður, það bölvaða helvítis ónáttúru þegar þau féllu drukkin í náttmyrkri ofan í opna rotþró sem full var af því efni sem í rotþróum á að vera. Þau skötuhjúin ætluðu í framhaldinu að veita eiganda skítaholunar ráðningu en fóru húsavillt, römbuðu eins og þau voru á sig komin inn til konu á áttræðisaldri, börðu hana og frussuðu yfir hana öllum þeim ókvæðisorðum sem andagiftin leyfði þeim þá stundina.

Það er sem sé mörg ónáttúran og náttúran á Íslandi ef grannt er skoðað. Hvað kalla menn til dæmis þann djöfullega sið Íslendinga að ganga einlægt í alltof litlum nærbuxum? Eða rífa upp milljarðasnobbhús á hafnarbakkanum í Reykjavík í Hruninu miðju meðan alþýða manna verður að láta sér nægja að snapa gams og éta uppúr sorptunnum arðræningjanna? Að ekki sé nú minnst á þá áráttu að mega ekki vatni halda þegar einhver útlenskur labbakútur, annaðhvort gegnsósa af áfengisþambi eða geggjaður á annan þátt, minnist á Ísland á opinberum vettvangi án þess að gera gys að landi og þjóð á áberandi hátt eða hreyta í okkur skít svo teljandi sé.

 

 


mbl.is Ísland er að öllu leyti einstakt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að eta flugnahægðir er viðbjóðslegt athæfi

hundsbitMér hefur lengi legið forvitni á að vita hvað það er sem hvetur fólk til að leggja hægðir úr flugum sér til munns. Þegar ég heyri minnst á neyslu á þessum viðbjóði fer ævinlega undarlegur velgjuhrollur um kviðarholið á mér þannig að ég kasta upp á staðnum.

Mér er því miður alltaf í fersku minni þegar sælkerinn Arnfreður Lyngdalh tíndi á þriðja þúsund fiskiflugur og lokaði þær inni í jargans miklum járnkassa í skyni að safna hunangi. Þegar flugurnar höfðu lokið sínu starfi bauð Arnfreður vinum sínum og ættingjum til veislu. Nágranni Arnferð, sem hefur sömu afstöðu til flugnaskíts og ég, blöskraði svo þetta ógeðuga athæfi að hann leysti samkvæmið upp með því að siga rökkum sínum á það og stökkva því á flótta.


mbl.is Íslenskt hunang á boðstólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búrtíkur og dekurdýr í fantastuði kringum Steingrím og Álfheiði

flokkseigendur_786424.jpgNúnú, það er að sjá að Steingrímur okkar hérna J. hefur verið í fantastuði þegar hann skrifaði ræðuna sem Katrín ,,varaformaður" var látin tafsa uppúr sér yfir flokkseigendafélag VG, búrtíkur þess og dekurdýr, því aðrir voru ekki séðir á flokksráðsfundi VG í dag. Það er nefnilega svoleiðis að nú heimtar foringinn að horft sé til framtíðar og ekkert nema framtíðar, af því að foringjanum geðjast ekkert að þeim andskota að fólk sé að glota í hans myrku afrek síðustu tveggja ára. 

Og þegar horfa skal til framtíðar er ekki ónýtt að hafa kynjaða hagstjórn uppí erminni til að slengja á borðið þegar lítið liggur við að blekkja trúgjörn og gagnrýnissnauð eyru. Þá er ekki minna virði að hafa í framtíðarplönunum ljúflegan blekkingarvaðal um niðurstöðu í fiskveiðistjórnarmálið. En í þeirri niðurstöðu ber að fara á snyrtilegan hátt að sameiginlegum vilja Samherja, Síldarvinnslunnar í Neskaupsstað, Brims og Steingríms J. Sigfússonar. Ekki lítilfjörlegt framtíðarprógramm það.

Þess ber að geta að þegar hinn mikli flokksráðsfundur hófst voru einungis meðlimir flokkseigendafélagsins mættir ásamt með einhverju hrafli af búrtíkum þeirra og dekurdýrum. En yfir öllu samkvæminu sveif dauðvona andi svika og tilgangsleysi. 


mbl.is VG lítur til framtíðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beljubúgí

kú4Það held ég verði nú samkoman þessi flokksráðsfundur VG. Þarna mun Steigrímur J. eflaust halda langa ræðu þar sem hann mun hæla sjáfum sér eftir öllum kúnstarinnar reglum en innhald ræðunnar verður að öðru leyti harðla rýrt eins og venjulega hjá þessum slóttuga ræðumanni.

Eflaust verður mæting fulltrúa einna merkilegust við þennan fund: hverjir koma til með að mæta og hverjir mæta ekki. En útfrá mannvali á fundinum verður auðvelt að reikna hver staða klofningsins í VG er þessa stundina. Ég á nefnilega von á að vinstrimennirnir skrópi á þennan fund; þeir telji tíma sínum betur varið í eitthvað annað en sitja undir blekkingarmalinu í formanninum og hans hirð.

Svo mun Steingrímur dansa við Álfheiði og Álfeiður við Svavar og Svavar dansa beljubúgí við Árna Þór.


mbl.is VG með flokksráðsfund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar ég heyri góðra ungmenna getið

_slenski_faninn.jpgAlltaf gleðst ég innilega þegar ég heyri góðra ungmenna getið, enda lyftist á mér brúnin þegar ég las um unga, efnilega fólkið sem gerði aðsúg að lögreglunni í gærkvöld. Þarna var, sýnist mér, hinn sanni baráttuandi í fyrirrúmi og mikið má vera ef þarna er ekki sá andspyrnuneisti á ferðinni sem með tímanum gæti orðið að byltingarbáli. Þessi kraftmiklu ungmenni, sem buðu lögregluvaldi auðvaldsins byrginn af mikilli reisn fyrir utan prangarabúlluna 10-11, eru nú eitthvað annað en undarennufúkkanördin sem eyða kröftum sínum í að sleikja sér uppvið kennara eins og blauðir kettlingar og ganga prúðbúin í ungliðadeildir stjórnmálaflokkanna og verða að þessum óviðkunnanlegu landeyðum og væskilmennum sem við þekkjum svo allof vel af illu einu.

Nú, þá er ekkert annað en að hvetja hina byltingarsinnuðu krakka til frekari dáða í framtíðinni og óska þeim allra heilla. 


mbl.is Gerðu aðsúg að lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona atburðir eru blessunarlega algengir.

perr3.jpgÞað er sem betur fer ekki einsdæmi að eiginmaður komi að eiginkonu sinni í loflegum ástarkrækjum við annan mann; slíkir atburðir eru blessunarlega algengir og alltaf jafn áhugaverðir og lyftandi fyrir andann.

Það eru heldur ekki nema fáeinir mánuðir síðan Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri kom að eiginkonu sinni, frú Ingveldi, í svæsnum leik við flagarann Stefán kossageit, sem margar misófrýnilegar sögur eru af. En þar sem Kolbeinn Kolbeinsson er frjálslyndur maður að öllu leyti og skemmtilegur að ýmsu leyti, þá tók hann þessu framtaki konu sinnar með því að fljúga aftan á Stefán kossageit og kenna honum stafróf ástarinnar á tyrknesku líkt því þegar hundur kennir tíkur á víðavangi. Stefán kossageit brást hinsvegar ókvæða við einbeittum vilja Kolbeins og hjóp allsnakin á dyr og var handtekinn af lögreglunni neðar í götunni fyrir ósiðlegheit á almannafæri. Þegar Stefán, gleðipinni frú Ingveldar, var horfinn úr húsi brugðu þau Kolbeinn og frú Ingveldur á það ráð að kynda uppí hjónabandsglæðunum og farnaðist vel.


mbl.is Kom að eiginkonunni í bólinu með öðrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekkert grín að lenda í sjálfheldu

BerrassiEins og einhverjir ef til vill vita, þá er ekkert spaug að lenda í sjálfheldu; það segir sig nefnilega sjálft, að ef ekki er hægt að bjarga þeim er í sjálfheldunni lendir er maðurinn með ljáinn vís. Eitthvað er til af frásögnum er greina frá því hvernig fórnarlömb sjálfheldu visnuðu upp á nokkrum dögum eða vikum og deyðu fyrir allra augum. Það var að sögn hryllileg upplifun fyrir alla er á horfðu.

Fyrir þremur árum lenti Kolbeinn okkar Kolbeinsson í sjálfheldu í klæðaskáp í svefnherbergi heima hjá frú nokkurri í uppsveitum Kópavogs. Þetta vildi þannig til að Kolbeinn fylgdi frú þessari heim til hennar af vertshúsi í miðbæ Reykjavíkur. Þegar heim til frúarinnar kom, barst leikurinn beint inní svefnherbergi og þar uppí hjónarúm. Varð þá þegar glatt á hjalla og fóru frúin og Kolbeinn á kostum í vinarhótum hvort við annað. En því miður kom eignmaður frúarinnar óforvandis heim eins og skrattinn úr sauðarleggnum, en hann er sjóvíkingur mikill, risavaxinn og rammur að afli, stórskorinn og ljótur í andliti og með svo langa handleggi að helst minnir á skipsbómur. Þegar hjúin í hjónarúminu urðu vör mannaferða í húsinu stökk Kolbeinn eins og byssubrendur uppí fataskáp með fataleppana sína í fanginu og lokaði hurðinni á eftir sér. Og inní þessum skáp mátti Kolbeinn svo hýrast í fjóra langa og myrka sólarhringa, því sjóvíkingurinn vék ekki úr herberginu allan þann tíma, drakk bara bara linnulaust brennivín og var því alsgáðari sem hann drakk meira og hnoðaði kerlingu sína af fítónskrafti og ósviknum losta á tveggja tíma fresti. Það var ekki fyrr enn sjóvíkingrinn var kallaður til skips að Kolbeinn losnaði úr prísundinni neær bugaður af hungri og skelfingu. Mátti og heldur ekki tæpara standa að hann andaðist ekki þar í skápnum því að eigin sögn hefði hann ekki lifað af fimmta sólarhringinn í sjálfheldunni.


mbl.is Í sjálfheldu við Bíldudal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blauður ljósmyndari og hugprúður Ísmaður

beljaÞað að Ragnar Axelsson sé einlægt með óðan ísbjörn á hælunum bendir til að karlgreyið sé svo blóðhræddur við þessi dýr að hann leggi umsvifalaust á flótta ef hann sér þessháttar kvikindi.

Þá er nú eitthvað annað með Ísmanninn Ógurlega, Sigurð Pétursson fyrrum trollarakaptein. Sigurður Ísmaður leggur aldrei á flótta undan bjarndýri, heldur veður hann undantekingarlaust á móti skepnunni og vegur hana vafningalaust. Þá hefur Sigurður unnið það afrek að synda á eftir blóðþyrstum hákarli og snúið hann úr hálsliðnum með berum höndunum.

Mér er sem ég sjá RAX myndasmið bjóða fullvöxnum og banhungruðum ísbirni byrginn, hvað þá mannætu hákarli. Ég er svo viss um að ef RAX hjólaði í ísbjörn myndi björninn afgreiða hann á augabragði eins og pylsu með öllu og sennilega éta myndavélina hans líka.


mbl.is Með óðan ísbjörn á hælunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirlagður af allskyns plágum

ös1Það kvað vera í mörg horn að líta hjá blessuðum utanríkisráðherranum okkar, honum Össuri Skarphéðinssyni, um þessar mundir. En Össur er sem, alþjóð veit, kræfur karl og hraustur og snýst í hringi út og austur og hefur var undan að berja á allrahanda plágum.

Ekki er nóg með að Össur karl krefjist þess að Assad sýrlandforseti taki pokann sinn, heldur krefst hann þess líka að Jón Bjarnason ráðherra víki, en sem kunnugt er leggur samfylkingarfólk Jón Bjaranason að jöfnu við Assad þennan og hans líka.

Ofan á þjáningar Össurar útaf Jóni og Assad bætist nú með fullum þunga við hin hræðilega skelfing að hann og Samfylkingin eru orðin gjörsamlega einangruð í ESB-þráhyggjunni. Í glímunni við að klessa Íslandi inní ESB á minn herra ekki lengur nokkurn vin nema Þorstein nokkurn Pálsson.

Af þessu má sjá að Össur utanríkisráðherra er kominn á endastöð í því pólitíska öngstræti og á ekki afturkvæmt þaðan. Það væri því affarasælast fyrir vesalings kallinn að segja af sér ráðherraembætti og hætta öllum pólitískum umsvifum. Það er nefnilega fyrir margt löngu komið nóg af vitleysunni hjá honum Össuri og með öllu óskiljanlegt að hann skuli ekki hafa hætt sínum pólitíska leikaraskap þegar hann náði þeim eftirsóknarverða árangi að hlotnast nafnbótina hrunráðherra á haustdögum 2008.


mbl.is Krefst þess að Assad víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann fer í fangelsi fyrir tiltækið

jail1

Helvíti var af honum Páli Baldvini að tala svona hræðilega illa um akranessögu Gulla Haralds, enda situr hann núna í þeirri súpu sem ekki séts til botns í. Ég fæ ekki betur séð, eftir að hreppsnefndin á Skaga, Gulli og KK útgefandi vígvæddust til höfuðs Páli Baldvin, en að karlanganum verði stungið í svartholið, því auðvitað biður hann ekki þessa fjandmenn sína afsökunar og velur ekki auðvirðilegan frið þegar ófriður við skagadrjóla er í boði. Ef svo fer að bókmenntagagnrýnandinn verði dæmdur til langvarandi fangelsisvistar upp á vatn og brauð fyrir hin hraksmánarlegu skrif um Sögu Akraness má geta sér til að þá þyki Skagamönnum að þá verði Jóns Hreggviðssonar loks að fullu hefnt fyrir hústrýkingar þær og innilokun í svarholinu sem hann mátti þola á sínum tíma að undirlagi illmenna að sunnan, sýslumanna og gagnrýnenda.

Ef allt fer á versta veg, verður Páll Baldvin dæmdur til, auk margra ára fangavistar, að skrifa nýja sögu þeirra Skagamanna og hafa í heiðri við þær skriftir fagurt umtal, hetjudáðir höfðingja á Akranesi svo sem eins og baráttu Guðbjarts Hannessonar fyrir afnámi veggjalda í Hvalfjarðargöngin og annað það sem gæti orðið íbúum Akraness til vegsauka í augum landa þeirra.  


mbl.is Krefja Pál Baldvin um afsökunarbeiðni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband