Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2011

Keyrði lið sitt með himinskautum uppí úrvalsdeild.

jagger og óliÍ fyrrasumar beið knattspyrnulið Selfoss afhroð í úrvalsdeild karla, vóru bókstaflega skotnir í kaf af andstæðingum sínum. Að launum fyrir frammistöðuna var liðinu sparkað úr úrvalsdeildinni og niður í þá fyrstu. Að vonum voru Selfyssingar daprir eftir svo háðulega útreið og voru, að sögn kunnugra, komnir á fremsta hlunn með að leggja knattsyrnulið sitt niður.

En þá líða tók á vetur birti verulega til í herbúðum fótboltamanna fyrir austan fjall þegar sjálfur Stjörnusýslumaðurinn Stones knattspyrnustjórn félagsins í sínar hendur. Og eins og hendi væri veifað fóru boltamenn á Selfossi á þvílíkt flug að annað eins hefur eiginlega aldrei sést: Stjörnusýslumaðurinn Stones setti umsvifalaust stefnuna á úrvalsdeildina og keyrði lið sitt með himinskautum beint að settu marki. Og í dag rak hið merka yfirvald smiðshöggið á verk sitt og Selyssingar leika á næsta ári í úrvalsdeild.

Meðfylgjandi mynd er af þjálfaranum Stones og aðstoðarmanni hans eftir að úrvalsdeildarsætið var í höfn í dag.


mbl.is Stutt viðkoma Selfyssinga í 1. deild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bættur sé skaðinn

catMér sýnist á öllu að þarna hafi taglhnýtingar valdakerfisins, sjálfsblekkingarinnar og Gamla Íslands hrokkið fyrir borð hjá Hagsmunasamtökum heimilanna. Bættur sé skaðinn.

Það hlýtur vera mikil og góð hreinsun innan Hagsmunasamtakanna að losna við værðarfullar rolur sem falla á knén í hvert skipti sem andstæðingurinn býður uppá svikasættir. Á þessháttar fénað er ekki hægt að stóla. Það ætti nefnilega að vera hverjum sæmilega þenkjandi og góðgjörnum mönnum að vera ljóst, að hér á landi breytist ekkert nema að undangenginni byltingu, alþýðubyltingu. Þeim, sem ekki geta hugsað sér að taka þátt í þjóðþrifaverki af því tagi, má likja við þann gelta fresskött sem nennir ekki að veiða sér mús og fugla til matar en lætur sér nægja að bryðja í sig þurrmatinn frá Whyskas sem eigansi hans mylgrar að honum af lítilli virðingu. 


mbl.is Herskáar aðferðir og pólitík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Víðfræg gunga og drusla þorir ekki að standa fyrir Icesavemáli sínu

flengJá, svo Steingrímur vill ekki leggja það á þing og þjóð að fara að munnhöggvast við félaga Ólaf Ragnar. Með þessu snjalla útspili viðurkennir Steingrímur að hann sé sú gunga og drusla að hann þori ekki að standa fyrir máli sínu varðandi sitt heittelskaða Svavars- og Icesavemáli gagnvart forseta Íslands.

Hinsvegar var Steingrímur fljótur að siga búrtíkum sínum og dekurdýrum í hælana á félaga Ólafi, svo sem sjá má á vefritinu Smugunni, sem Steingrímur og Áfheiður gera út í samstarfi við Lilju Skaftadóttur sem hvorki er verkakona eða öreigi.

En það er þó ljóst að Steingrími og Álfheiði, svo ekki sé nú minnst á Svavar samningamann, logsvíður öll sem eitt í rassinn eftir tímabæra hirtingu félaga Ólafs Ragnars. En þrátt fyrir það er borin von að áminnstar auðvaldssenditíkur, gungur og druslur komi til með að sýna nokkra iðrun í orði eða verki þrátt fyrir Icesavskandalinn og þá skömm að forseti Íslands hafi neyðst til að leggja þau á kné sér og rassskella.

 


mbl.is Ætlar ekki að munnhöggvast við forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frú Álfheiði langar í pólitíska flengingu

fleng_1051843.jpgÞað yrði býsna lítið úr frú Álfheiði Ingadóttur ef hún myndi mæta félaga Ólafi Ragnari í kappræðu um Icesave-málið í sölum Alþingis. Slík átök myndu um flest minna á það þegar ofdekruð frekjuskjóða á gelgjunni er hýdd á bera þjóhnappana fyrir skemmdarverk og annan dólgshátt heima hjá sér.

Þá er auðvelt að sjá fyrir sér, að þegar félagi Ólafur væri búinn að embætta hina piffandi frekjusjóðu myndi hann snúa sér að Steingrími, Jóhönnu, Össuri og Árna Þór og flengja þau hvert með öðru af þeirri einbeittni að þau myndu spangóla eins og halklipptir hundar og viðurkenna að Icesave-brölt þeirra hefði verið ein alsherjar fíflska frá upphafi til enda.


mbl.is Vill forsetann í framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frelsun verkafólks undan svikulum forysturæflum er verkfni númer 1. 2. og 3.

_gust_a_motmaela.jpgHvað sem deilum nokkurra atvinnuverkalýðsrekenda líður væri lang æskilegast að leggja Starfsgreinasambandið niður sem fyrst og stofna þess í stað Landsamband verkafólks, sem stæði utan við ASÍ.

Þegar Starfsgreinasambandið var stofnað á sínum tíma í stað Verkamannasambands Íslands var engu líkara en skorið væri á flest tengsl milli forystunnar og hins almenna félagsmanns. Bara það að nota orðskrípið ,,Starfsgreinasamband" á samtök verkafólks segir kanske meira en mörg orð um afstöðu foringjanna til stéttarbaráttu og verkalýðshyggju.

Og um alvarlega klofningsiðju framvarðarstveitar verkafólks á Höfuðborgarsvæðinu og í Keflavík, sem stana að svo kölluðu Flóabandalagi þarf ekki að fjölyrða. Þetta hraksmánarlega framtak umræddrar framverðarsveitar er glæpur, úttroðin af spillingu og óheiðarleika.

Það er því fyrir löngu tími til kominn að frelsa verkafólk Íslands undan svikulum og gjörsamlega óhæfum forystuódámum, sem um langan aldur hafa verið algjörlega samdauna auðvaldinu, kerfi þess og ójafnaðarhyggju.

Og verkafólki vantar fleira. Því vantar öflugan pólitískan bakhjarl, róttækan stjórnmálaflokk, sem stendur undir nafni sem höfuðvígi stéttarbaráttu verkafólks.

Að þessu eiga félagi Aðalsteinn og þeir sem honum fylgja að einbeita sér að á næstunni, en láta gagnslaust þras við lítilmenni eins og Björn framsóknarmann á Akureyri, Kristján í Keflavík og herra Bessason í Eflingu lönd og leið. 


mbl.is Kemur til greina að leggja SGS niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlátur stríðsmanna á Sýrlandi og ræða frú Ingveldar á fundi Hvatar

kol_1063155.jpgMikið þó ósköp er kallrassinn hann Össur óhemju virðulega væminn og sleikjulegur á myndinni sem fylgir þessari frétt. Ef fantarnir sem stjórna á Sýrlandi bera gæfu til að sjá myndina atarna mun trúlega setja að þeim óstöðvandi hlátur, því stríðsmönnum fyrir Miðjarðarhafsbotni þykir framúrskarandi fyndið að sjá bílæti af sperrtum evrópskum smáköllum í stórkallaleik. Og eflaust myndu þeir skemmta sér enn meir ef þeir myndu hlýða á og skilja orðræðu hins íslenska útanríkisráðherra. Þeir kunna nefnilega að meta uppskrúfaða og hégómlega sprellikarla og trúða af verðleikum þessir þrjótar.

Í síðustu viku gerði frú Ingveldur Össur Skarphéðinsson að umtalsefni sínu í fémínistadeild Hvatar, sem er eitt vel eðla félag kvenna sem eru flokksbundnar í Sjálfstæðisflokknum. Mæltist frú Ingveldi á þá leið, að henni hefði alltaf þótt merkilegt hve Össur ráðherra væri kvenlegur að öllu leyti; hann væri líklega í röngum líkama. Þá sagðist frú Ingveldur verða að gera þá játningu, að hún hefði í allnokkur misseri borið lesbískan hug til Össurar og yrði öll undarleg innanum sig þegar hún sæi þennan mann á göngu yfir Austurvöll um hábjartan dag.  Að lokum lagði hún til að héðan í frá legðu hvatarkonur verk Össurar undir fémínískan mælikvarða þegar þeim þætti ástæða til að ræða þau sérstaklega.

Tillaga frú Ingveldar var samþykkt samhljóða. 


mbl.is Auka þrýsting á Sýrland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hvaða efni er háls Jóhönnu fullur?

Johanna-og-Gudlaugur-Thor_1091123689Satt að segja er mér fjandans sama hvort Jóhanna Sigurðardóttir stendur í rifrildi við labbakútana í SA lengur erða skemur, eða bara alls ekki, því það er hvort sem er ekkert meira að marka gargið í þessum hænsnum en í pútunum sem verpa eggjum fyrir Stjörnuegg h/f að Vallá á Kjalarnesi.

Það eina sem er umhugsunarvert í þessari grein er fyrirsögn hennar: ,,Svarar SA fullum hálsi." Ef ég skil rétt, þá er það Jóhanna nokkur Sigurðardóttir sem er með fullan háls af einhverju sem ekki er gerð nánari grein fyrir í fréttinni.

En hvað er það í raun og veru sem Jóhanna er með fullan hálsin af? Það væri notalegt að vita það. Er kerlingaranginginn máski svo stífluð af andstyggilegu kvefi, sannkölluðum brjósthroða, að hálsinn á henni er bókstaflega fullur af þessháttar vessum sem ævinlega er fylgifiskur svæsinna kvefsjúkdóma? Eða er verið að gefa í skyn að háls forsætisráðherra sé flóandi fullur af einhverju efni sem hefur þannig orð á sér að velsæmis vegna sé ekki undir neinum kringumstæðum hægt að nefna það á nafn?

Eða hver andskotinn sjálfur er hér eiginlega á ferðinni?

Það er víst nóg sem á Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra er lagt í ræðu og riti af misruddalegum andstæðingun hennar svo ekki sé verið að dylgja með einhvern ófyrirleitinn dónaskap í sömu andrá og sagt er frá vopnaviðskiptum Jóhönnu og SA-safnaðarins.


mbl.is Svarar SA fullum hálsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vígslubyskub? - Hvað er nú það?

Og byskubinn hann birtist

(blessun sé með oss)

í gífurlegu stuði, ríðandi á Guði,

hafandi hann fyrir hross.

prestur13.jpgOg hvað á svo þessi vígslubyskub að vígja? Það liggur að minnsta kosti ekki í augum uppi. Er þessi fígúrugangur máske af sama toga og Þórður gamli skírari, sem aldrei sást skíra nokkurn lifandi mann?

Eða er þessi kyndugi titill ef til vill eitthvað í smbandi við að vígja brýr, félagsheimili og minnismerki?

Eða eins og Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri sagði þegar hann villtist augafullur inní herbergi til vígslubyskubsmaddömunnar: - Fyrst kallinn þinn má ekki vera að því að vígja þig og dívaninn þarna í horninu geri ég það sjálfur.


mbl.is Kristján kjörinn vígslubiskup
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilsu forsetans hrakar á nýjan leik

Einkathotur-rikisstj-geir_1152654354Það má ljóst vera að gamall sjúkdómur, útrásarsóttin illræmda, hefur tekið sig upp af fullum krafti í líkama og sál forseta okkar, félaga Ólafs Ragnars Grímssonar. Og sjúkdómseinkennin eru ótvíræð: Í ger var félagi Ólafur bókstaflega ærður af fögnuði yfir kaupum kínamannsins, Huang Nupo, á kostajörðinni Grímstöðum á Fjöllum; og í dag mærir hann minnismerki Hrunsins Mikla, Hörpuna, af þeim fítonkrafti sem einkennir langt gengna útrásarsjúklinga.l dýrðar

Auðvitað er það mikil raun og áhyggjuefni að sjá okkar ástkæra forseta hraka svona illilega eftir ágætan bata, sem sýndi sig best í hinum alræmdu Icesave-málum sem þjökuðu þjóðina um skeið. Ef fer sem horfir, verður félagi Ó.R. Grímsson kominn með Björgólf Thor uppá arminn í lok næstu viku og Finnur Ingólfsson lagstur fram á lappir sínar á bæjarhellunni á Bessastöðum. Uppúr því mun styttast í lokastig sjúkdómsins.

En þegar öllu er á botninn hvolft er ekki nem von að blessuðum forsetanum okkar hafi skyndilega elnað sóttin þegar horft er til þess að ríkisstjórnarfjandinn, með Steingrím og Jóhönnu sem fremstu brodda broddborgarastéttarinnar, hefur starfað af fádæma krafti við að endurreisa Gamla Ísland úr rústum hrunsins, auðvaldinu til dýrðar. Við slíkar aðstæður er afar hætt við að drepsótt útrásar og auðhyggju blossi upp á nýjan leik og verði að skæðri farsótt sem engu eirir, - ekki einusinni forsetanum okkar.


mbl.is Glerhjúpurinn „meistaraverk“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Því bjóðum vér Huang Nupo velkominn að Grímsöðum á Fjöllum

rev1Afskaplega þykir mér hún góð tilfinningin sem fylgir tilhugsununni sem fylgir því að Huang Nubo sé í þann veginn að verða bóndi á Grímsstöðum á Fjöllum. Það sem gefur þessari notalegu líðan inntak og geðslegt vægi er auðvitað sú uppörfandi staðreynd að með kaupunum á Grímstöðum er kínverski kommúnistaflokkurinn orðinn landeigandi á Íslandi. Með þessu móti eygjum vér kommúnistar á Íslandi loksins raunhæfa leið til að ná markmiðum vorum.

Og ólíkt er betra að kínverski kommúnistaflokkurinn kaupi bújarðir á Íslandi en sá óaldarlýður útrásarbófa, peningageðsjúklinga og arðræningja sem hafa á síðustu 15 árum eða svo sölsað undir sig bújarðir í stórum stíl, jafn vel heilu sveitirnar, svo horfir við landauðn, með illa fengnu fé sem þessir ódrættir hafa komist yfir með svívirðilegum hætti.

Því bjóðum vér Huang Nubo, umboðsmann kínverska kommúnistaflokksins, velkominn að Grímsstöðum á Fjöllum, í þeirri vissu að hingaðkoma hans muni efla framgang kommúnismans á Íslandi. 


mbl.is Í samræmi við stefnu Kínverja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband