Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2013

Guðlastaði á jóladag - afhenti 15,3 milljonir í dag

pre1Það var snyrtilegt hjá byskubbsnefnunni okkar, að nota sjálfan jóladag til að hvæsa því eins og grimmur köttur yfir landsbyggðina, að mammonspúkarnir Sigmundur Dávíð og Bjarni Ben séu áhangendur litla kommúnistans Jesú Krists frá Nasaret. Ekki er ólíklegt, að nefndir mammónspúkar séu í meira lagi óhressir með að vera bendlaðir við náunga sem fyrir 2000 árum hélt úti massívum áróðri gegn auðsöfnurum, bröskurum og öðrum hægriaftaníossum. Að öllu samanlögðu má með góðri samvisku segja, að guðlast byskubbsins á jóladag muni vera eðlis að þau bæmi sig sjálf og guðlastarann sjálfan frá embætti. Já.

Það bar til tíðinda við messulæti byskubbsins, þegar hún guðlastaði og lagði nafn Drottins við hégóma á jóladag, að frú Ingveldur og maður hennar, Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri, voru viðstödd þessa kynlegu guðþjónustu, bæði mjög ölvuð og kókuð, en þau mættu til kirkju beint úr ofsafengnu samkvæmi með Máríu Borgargagni, Indriða Handreði, Brynjari Vondulykt, Haffa Frænku og fleiri hægrisinnuðum jólagleðipinnum, og fóru beint í samkvæmið aftur að messu lokinni. Má vera að byskubbinn hafi uppveðrast svo af nærveru frú Ingveldar og Kolbeins í þessum ham, að hún hafi misst sig, Pokurinn yfirtekið tungu frú byskubbsins og málbein, og því hafi farið sem fór og guðlastið um mammónspiltana í ríkisstjórninni og kommúnistann frá Nasaret orðið að því sem það varð.
mbl.is Kirkjan safnaði 15,3 milljónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

,,Góðmennska og gjafmildi" auðvaldspervertanna er eitthvað sem þarf að vara sig á

auð1,,Þú ert svo vitlaus að það er næstum frágangssök að tala við þig, sagði vinur hans. Þú kemur altíeinu upp með eitthvað sem þú þykist halda fram. og svo þegar farið er að spyrja þig, þá veist ekkert hvað þú átt við eða um hvað þú ert að tala. Þú segir Pétur Þríhross er ekki vondur maður, ég segi gott og vel, hver heldur því fram að hann sé vondur maður. Hér á Sviðinsvík eru til þrjár tegundir af vondum mönnum, það eru hjallþjófar, kjaftforir fylliraftar og kvennamenn sem eiga krakka á kostnað skattþeganna. Enginn þeirra stelur neinu frá fátæklíngum né lýgur að þeim. Saklausari fyrirbrigði eru ekki til í okkar hreppsfélagi en vondir menn. Ef ég ásakaði Pétur Þríhross fyrir að vera vondan mann væri ég fífl. Ég ásaka hann fyrir að vera góðan mann, kærleiksríkan mann, göfugmenni, andlegan frömuð, mentavin, trúarhetju og hjálparhellu fátækra skálda."

,,Hún hnipraði sig bara í kuðúng undir druslunum sínum, með hnén uppað höku, og þannig lá hún í myrkrinu og kuldanum í tvö ár og gleymdist þángað til hann Jón gamli morðingi drapst. Þegar beituskúrinn var rifinn að honum dauðum, drógu menn þetta krepta dýr frammúr búrinu og ýmsir sem sáu hana skoruðu á yfirvöldin að koma henni fyrir á geðveikrahæli. En þegar læknirinn og hreppsnefndin höfðu skoðað og sannfærst m að það væri ekki hægt að rétta úr henni framar, þá skömmuðust þeir sín svo fyrir hana að þeir horðu ekki að senda hana burt af eiginni. Þeir höfðu svo fínar tilfinningar að þeir komu sér ekki að því að láta aðra sjá hvað góðir menn sem stjórna hreppsfélagi geta gert úr einni manneskju, aðeins ef þeir eru nógu góðir, nógu kærleiksríkir og göfugir, nógu miklir andans frömuðir og mentavinir, nógu miklar trúarhetjur og hjálparhellur fátækra skálda. Svo þeir létu sér nægja að slá upp bás handa henni í baðstofuendanum í Skálholti."

(Höf: Halldór Laxness - Heimsljós)

xd7_1224197.jpgMunið að vara ykkur á ,,góðmennsku og gjafmildi" auðvaldsperverta sem ráða yfir örlögum heilla byggðarlaga. Reynið heldur að losa ykkur við slík góðmenni og menningarvini. Uppúr sauðargærunni sem þeir sveipa sig, teygja úlfseyru villidýrsins sig sem ættu ekki að villa á sér heimildir í augum alþýðunnar.
mbl.is Samherji veitir 80 milljónir í styrki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkafólk á að fella þennan smánarsamning og fylgja því eftir með að taka til í verkalýðshreyfingunni

xb1_1224196.jpgFramsóknarmaðurinn Björn Snæbjörnsson, sem hin kolsvarta gamansemi örlaganna gerði að foringja landssambands verkafólks, er að sjálfsögðu ,,nokkuð ánægður" með kjarasamnigana sem hann var að undirrita með öðrum stéttarsvikurum fyrir hönd mjög illa launaðra verkamanna. ,,Nokkuð ánægður" í þessu samhengi, þýðir auðvitað, að þessi sjálfumglaði húskarl Framsóknarmaddömunnar er hæst ánægður með samningana og væntir þess af einlægni, að húsbændur hans klappi honum vinsamlega á kollinn fyrir vikið. Svona er nú baráttuandinn í forystusveit landssambands verkafólks og hefur lengi verið. alltof lengi. Næsta skref Björns framsóknarmanns og hinna þrjótanna, sem fara með umboð verkafólks í kjarasamningum, verður svo að hræða blásnauðan verkalýðinn til að samþykkja fyrirliggjandi samninga með lygum og þvættingi um að Verðbólgugrýla og Stöðugleikaleppalúði komi og éti þau öll upp til agna ef þau samþykki ekki þá smánarsamninga sem að þeim eru réttir.

Já, Birni Snæbjörnssyni innvígðum húskarli í söfnuði Framsóknarmaddömunnar munar lítið um að vinna skítverkin fyrir óaldarhjörð Framsóknarflokksins, sem óð um landið þvert og endilangt á árunum 1995 til 2007 með allrahanda ránskap og gripdeildum uns efnahagslíf þjóðarinnar lagðist á hliðina um skeið. Honum finnst greinilega ekki nóg, að mjög illa launað verkafólk hafi orðið fyrir búsifjum vegna óhæfuverka glæpasamtakanna Framsóknar og Sjálfstæðisflokks, heldur vinnur hann öllum árum að því að verkafólkið borgi að fullu skaðann, sem téð glæpasamtök ollu.

Nú stendur verkafólk frammi fyrir tveimur kostum, annarsvegar að samþykkja framsóknaríhaldssamning Björn Snæbörnssonar og félaga, eða hrinda árás verkalýðsforstjóranna með því að fella samninginn. Það ætti að vera auðvelt val.

Verkafólk á skilyrðislaust að fella þennan samning og fylgja þeirri ákvörðun eftir með því að reka ódrætti á borð við Björn framsóknarmann, Kristján í Keflavík, Sigurð Bessason í Eflingu og Gylfa Arnbörnsson og þeirra taglhnýtinga af höndum sér í eitt skifti fyrir öll. Það þarf að binda endi á það undarlega óeðli, að fátækt verkafólk hafi svikula stéttarsvikara og andlegar eyðimerkur á framfæri sínu til að gera kjarasamning eftir kjarasamning í þágu svartasta afturhaldsins meðal atvinnuekenda og pólitískra glæpasamtaka yfirstéttarinnar. En það eru einmitt hið fátæka verkafólk, sem borgar að sínum launum Birni og félögum þau háu laun, sem þeir hafa komist upp með að skammta sér.
mbl.is Uppskrift að öðrum samningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kraftaverkasjakalinn faðmar Erkiauðvaldið eins og kirtlaveikur brúðgumi

hug1_1224145.jpgSkrifstofusjakalanum, verkalýðsforstjóranum og kraftaverkajaxlinum Gylfa g. Þríhrossi munar ekki um að faðma sjálft Erkiauðvaldið það sér eins og kirtlabilaður brúðgumi brúði sína, svo sem sjá má á háðungarmyndinni sem prýðir þessa grein um að kjarasamningar hafi verið undirritaðir.

Já, Gylfa Þríhrossi er ekki fisjað saman.

hug.jpgOg ekki er kátínan minni hjá litlu þríhrosstryppunum, sem fylgja kraftaverkasjakalanum eftir eins og skugginn, og aðstoða hann við að gera niðurlægingu verkafólks sem mesta. Einhver hefði í einhvern tíma sagt, að sjakalaherinn þríhrossana væri auðvirðilegur drulluselskapur, sem bæri að sprengja í loft upp eins og hverja aðra keytutunnu, en það er auðvitað fjarska ósanngjarnt að segja slíkt og þessháttar um hina fórnfúsu verkalýðsforstjóra, vini auðvaldsins. En allt um það, þá er verkalýðsforstjórunum fjandans sama þótt af þeirra völdum fari gjörvöll verkalýðsstéttin í Jólaköttinn, tvær til þrjár hræður muni mæta á fundi félaganna og samþykkja háðungarsamningana.

Maddaman var þeirra móðir
og gaf þeim framsóknaríhaldsmjólk,
en faðirinn Nasi frá Hriflu,
það var leiðindafólk.
mbl.is Kjarasamningar undirritaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flatneskjufömuðurnir á tómlistardeildinni

arni_1224142.jpgÞað má segja, að íslensk tómlistarmenning virðist síst  vera í rénun, því miður. Hver flatneskjan ofaná aðrar flatneskjur ráða ríkjum á þessu sjálfumglaða tómlistarheimíli eins og hvimleiður óþefur, sem minnir mann á eiturbrækjuna sem lagði frá fiskimjölsverksmiðjunni í gamla daga þegar verið var að bræða og sjóða úldin bein og innyfli úr fiskum. Og þessum andskota hæla menningarfígúrurnar hver um aðra þvera og reyna að láta líta út fyrir að um einhver heimsmet sé að ræða. Það ætti að stinga þeim gorkúlusmiðum öllum sem einum í sorpgám og sökkva þeim á botnlaust dýpi langt fyrir utan íslensku fiskveiðilögsöguna.

Það góða við tómlistariðnaðinn er, að plötuútgáfa er heldur minni en í fyrra, en að öðru leyti situr allt við það sama: Glamúkrydduð flatneskjutómlistin mallar í allri sinni úrkynjun og lágkúru eins og eiturgroms í ryguðum skaftpotti frá nítjándu öld, öllum til ama nema þeim heilaþvegnu, heilalausu, heilasprungnu.

Þó var gaman að sjá Megas karlinn gnæfa eins og kilimanjarotind uppúr flatneskjuprumpulýðnum í sjónvarpinu í gærkvöldi, kyrjandi ,,Vælir úti í veðri og vindum vetrarnætur langt, á með ljótir karlar liggja hana mömmu og pabbi í druslum dauður í kompu, hlandbrunnið braggabarn í barnavagni." Og svo mikið er víst, að flatneskjufrömuðurnir á tómlistardeildinni munu aldei ná aumasta og hlandbrunnasta braggabarninu nema rétt í ökkla hvað menningu og list áhrærir.
mbl.is Upplifa sterka tónlistarmenningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gráskeggur jólasveinn er ekki neinn smákalli og íslandsmann

kol29.jpgHann er sko ekki neinn smákalli og íslandsmann hann Gylfi gráskeggur (áður rauðbrúnskeggur) fremur en Pétur Þríhross forfaðir hans. Gylfi hefur erft frá Pétri afa sínum í ríkum mæli, að vera nútímavæddur í hugsun, aðhyllast skynsemiskristindóm af þeirri tegun sem kallast sosialist á erlendum málum auk þess að vera einstaklega hyggin, aðgætin og á mála hjá auðvaldinu.

Og nú hefur Gylfu g. Þríhross og hans skynsemiskristnu sósíalistar gert enn einn tímamótasamninginn fyrir ,,hina lægst launuðu", ,,þá sem minnst mega sín", ,,þá sem verst eru settir." Og víst er um það, að hinir lægst launuðu, sem minnst mega sín og verst eru settir, munu fitna samkvæmt venju eftir tímamótasamninga eins og púkafjandar á fjósbitanum í Framsóknarfjósinu.

Það er nú hreint meira meira hvað honum Gylfa tekst alltaf að töfra fram mikið af péníngum í vasa hyskisins sem minnst má sín og verst er sett. Fyrir það skulum við þakka af öllum lífs og sálar kröftum.

En Gylfi gráskeggur Þríhross og litlu þríhrossin sem dingla í halanum á honum, þeir Björn á Akureyri, Kristján í Keflavík og Sigurður í Eflingu, auk hóps annarra rindilmenna og veslínga, eru líka miklir sjakalar, skrifstofusjakalar, með flugbeittar tönnur og tilbúnir að rífa almennt verkafólk á hol ef það er vanþakklátt og rífur kjaft. Það er nefnilega til leiðindafólk, sem hefur enga náttúru fyrir kjarasamningakraftaverkum Gylfa og félaga, en það er auðvitað lið, sem ekkert á annað skilið en að éta það sem úti frýs, en það er sem kunnugt er bæði maðkar og mýs og auk þess mannaskítur og færilýs, en það er alltsaman fullgóður kostur í kjaftinn á grindhoruðum vanmetaskepnum

En við, við sem heyrum til stéttar betri borgara íslenska lýðveldisins hrópum margfalt húrra fyrir Gylfa gráskegg og segjum sem svo, að það sem hann gefur verkalýðnum í skóinn fyrir þessi jól er meir en nóg og gott betur fyrir þennan skrílkynjaða verkalýð. Við betri bogararnir og Gylfi verkalýðsforstjóri viljum nefnilega ekki verðbólgu fremur en skoðannabræður okkar í hinum vestræna heimi (ESB og USA) sem aðhyllast skynsemiskristinn sósíalism á sama hátt og við.
mbl.is Stefnt að undirritun í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þau eiga eftir að túttna út af öfund

gvagg1.jpgAhh, ég held honum veiti ekki af 12 mánaða uppsagnarfresti, aumingjanum svorna, þetta er svoddans Drottins krossberi. Einusinni var svona maður á útileguskipi vestur á fjörðum og þegar öll beitan var búin, þá tóku þeir vininn og notuðu í beitu, brytjuðu hann niður og kræktu bitunum á aunglana. Þegar þeir drógu línuna, sem kauðinn var í bita-bitum á krókunum, var blágóma á hverju járni, og þetta var á fiskimiði þar sem aldrei hafði veiðst blágóma. Með þessu er ég ekki að segja að eigi að brúka Pál, greyskarnið, í beitu, fjarri fer því. Nóg hefur verið á hann lagt, svo ekki verði hann í þokkabót leiddur eins og stagkálfur niður í beituskúr.

En auðvitað eiga illkvittin og illa innrætt roðhænsni eftir að túttna út af öfund út í Pál vegna þessara 12 mánaða. En slík roðhænsni dæma sig sjálf á bálið og verða álitin úrhrök í augum þjóðarinnar.

Þjóðin mun afturámóti fara að elska Pál Magnússon og virða, taka ofan fyrir honum á götu og bera fyrir hann innkaupapokana útúr Bónus og koma þeim vel fyrir í bifreiðinni hans, biðja honum guðsblessunar í bráð og lengd og biðja að heilsa konunni hans.
mbl.is Páll með 12 mánaða uppsagnarfrest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En mest er þó um vert, gvagg-gvagg ...

gvagg.jpg- Jæja snuddan mín, þá erum við loksins saman á sviði gvagg-gvagg.

- Ææjijáh, þá erum við saman á sviði, gvagg-gvagg.

- Mannstu þegar við slógumst útaf feita stráknum þegar við vórum í gaggó?, gvagg-gvagg.

- Auðvitað man ég eftir því, tíkin þín, gvagg-gvagg-gvagg-gvagg. Þú vart alltaf svo létt á bárunni, gvagg.

- Var ég hvern andskotann?, gvagg-gvagg?

- Þú varst og ert bara svo djöfull lauslát og lúmskari en andskotinn, gvagg-gvagg-gvagg- gvagg.

- Góða þegiðu, allragagnið þitt, gvagg- go-óó. En nú er feiti strákurinn kominn á Hraunið fyrir bankasvindl o gkonan hans fór beint í ræsið og selur nú blíðu sína fyrir 1000 kall hoppið, gvagg-gorogg-gvæ.

-En það er fyrir öllu að við erum loksins saman á sviði, groggs-funk-gvagg. Og svo máttu fá kallinn minn lánaðann þegar þú ert alveg að drepast úr despredheitum, gvagg-gvagg.
 
-Gwöð hvað þú ert alltaf góð og myndarleg vinkona, gvagg-gvagg. Ég fæ kallinn þinn lánaðan þegar ég verð voða despred næst, gwagg-gwagg-gúúúú ... En mest er þó um vert, að við erum loksins saman á sviði, gvagg-gvagg.
mbl.is Loksins saman á sviði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarmenn eru sólgnir í fleira en hamborgarahrygg

xbbufuz.jpgÞað væri hátíð ef Framsóknarmenn væru ekki sólgnir í fleira en hamborgarahryggseitur, en því er ekki að heilsa og er það miður. Framsóknarmenn eru nefnilega sólgnir í fleira, þar á meðal eigur annarra, spillingu og maka annarra ef því er skipta. Það er til dæmis skelfilegt fyrir vammlausan eiginmann að berjast við að vernda konu sína á meðan ljóngraður framsóknarúlfur er snuðrandi kringum húsið, en það hefir gerst oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Þá eru Framsóknarmenn svo gráðugir í allt, sem telst til sameigna landsmanna, og sýna með því einkennilega sérstæða samvinnuhugsjón Framsóknarflokksins í verki.

En það er gott, að helvískir frammararnir eru svo sólgnir í hamborgarahryggi og raun ber vitni, því slík fantafæða veldur bráðapest margfalt meir en annað sem fólk leggur sér til munns. Af þeim sökum fækkar Framsóknarmönnum einlægt meira en þeim fjölgar, og verði þeir jafn duglegir og gráðugir sem hingað til við hamborgarhryggsátið, má gera ráð fyrir að þeir verði aldauða innan eins og hálfs áratugar.

Að lokum er rétt að vitna í part úr setningu, sem viss framsóknarhöfðingi var vanur að hafa á hraðbergi: ,,Svo var hann vanur að reka löngutöng á kaf í" ...
mbl.is Framsóknarmenn sólgnir í hamborgarhrygg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væntanlegum kyndilbera ísafjarðarauðvaldsins vottuð samúð

xd8.jpgÞeim vesaling mönnum. sem kjósa af fúsum og frjálsum vilja, að gerast kyndilberar auðvaldsins, hvar sem það kann að vera, að sannarlega vorkun. Að gerst kyndilberi auðvaldsins er nefnilega nákvæmlega það sama og fara í hundana. Þess vegna komast allir sæmilegir menn við þegar þeir frétta af æskufólki, sem í einhverju sérkennilegu stjórnleysi, fer allt í einu að sækjast eftir vegtyllum hjá Sjálfstæðisflokknum eða Framsóknarmaddömunni. Ég votta Daníel Jakobssyni mína dýpstu samúð vegna ákvörðunar hans um að sækjast eftir að verða kyndilberi ísafjarðarauðvaldsins.

Nú væri ef til vill tilefni til að hefja upp raust sína í sorgarmolluðum sálmasöng og krefjast þess af Drottni Alsherjar, að hann taki ráðin af Daníel Jakobssyni og beini honum inná blessunarlegri brautir en Sjálfstæðisflokkurinn getur boðið uppá. En ekki er víst að Drottinn tæki slíkri beiðni vinsamlega, hann gæti orðið styggur og svarað með þjósti, að bölvað íhaldið eigi þá skilið sem vilja skríða undir verndarvæng þess.

Æjijá, Drottni er víst ekki sérlega vel við Sjálfstæðisflokkinn, enda hefur þessi illskeytti Flokkur gert sér mjög far um að telja fólki trú að að hann sé sjálfur Drottinn og þar með sjálfsagður til að drottna yfir mannfólkinu.
mbl.is Daníel í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband