Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2015

Herferð lítilsigldra andlegra afturúrkreistinga

pol1Bragð er af þá Bjössi finnur. Þegar Björn fann óbragðið af kræsingunum sem Ásmundur þingmaður byrlaði þjóðinni, tók hann sveistaulann umsvifalaust á kné sér og kaghýddi hann af margrómuðum íhaldsofsa, því til viðbótar vék hann að gáfnafari Ásmundar og gaf því grængolandi falleinkun. Svona eiga sýslumenn að starfa. Með snöfurmannlegum viðbrögðum sínum gegn vitleysisganginum í Ásmundi þingmann sýndi Björn að honum er ekki alls varnað.

En hvernig ætli því sannarlega góða fólki, múslimum á Íslandi, líði undir óþverradylgjum þeirra manna og kvenna, sem látið hafa sínar lægri hvatir hlaupa með sig í gönur með fáviskulegum og ruddalegum aðdróttunum í garð múslima á Íslandi, sem sumir hverjir hafa búið hér í fjölmörg ár? Ætli geti verið að þessu fólki finnist að það sé verið að ofsækja að ósekju? Að það fái sterkt á tilfinninguna, að í gangi sé herferð lítilsigldra andlegra anfturúrkreistinga af íslenskum uppruna sem vilji magna upp galdrafár gegn þeim svo það fái á tilfinninguna að því sé ofaukið í samfélagi með hinum ofuraríska, konungborna og tandurhreina kynstofni sem hér hokrar?

Og fyrst Björn okkar Bjarnason hefir gengið fram með góðu fordæmi og hirt samflokksmann sinn af gefnu tilefni fyrir kjaftæði og vitleysu, þá ættu skynsamir menn, hvar í flokki sem þeir standa, að taka á öðrum rasismabullurum með tveimur hrútshornum og sýni þeim fram á að skítkast þeirra og skætingur verði ekki liðinn. Eða hvaða foreldrar vilja að börn þeirra ausi nágrannann svívirðingum og rakalausum aðdróttunum?


mbl.is Sakar Ásmund um fávisku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tveir ritsnillingar og skáld ráða sig á DV

skrattaskrifÞað er nú líkast til, að Eggert og Kolbrún séu að fá tvo blaðamenn á DV. Og ekki eru umræddir tveir blaðamenn af verri endanum. Báðir eru vel kynntir fyrir ritstörf og vinsældir þeirra dregur enginn í efa. Fyrri blaðamaðurinn er hinn dáði snillingur Máría Borgargagn sem ort hefur pássíusálma um dauða og pínu Hermanns Görings ríkismarskálks. Hinn blaðamaðurinn sem Ekkert og Kolbrún réðu til sín er Vigfús Jónsson frá Leirulæk, góður framsóknarmaður og dyggur, en hann hefir samið eitt fegursta ljóð sem sett hefir verið saman á íslenskri tungu og hefst á þessa leið:

Faðir og móðir furðu hvinn,
frændur og vinir bófar.
Ömmur báðar og afi þinn,
allt voru það þjófar.

Vera má að afköst Vigfúsar Jónssonar blaðamanns og skálds verði nokkuð í skötulíki á DV vegna þess að hann hefir legið í gröf sinni um hríð. En eflaust hleypur skáldmennið og frömuðurinn Kolbrún ritstjóri undir bagga með gamla manninum þegar í nauðir rekur og skrifar trúverðuga frétt í hans nafni um fegurð framsóknarkratisma með sterku auðvaldsbragði.


mbl.is Fá tvo nýja blaðamenn í vikunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt skoðun er jafn mikilvæg og ruglandi, en hvert tveggja eru ær og kýr hins frumstæðari manns

xv2.jpgHerra B. Njelson ætti manna best að vita hvað rétt skoðun er mikilvæg. Hvað ætli það séu margir einstaklingar sem hafa gengið í Flokkinn hans til að til að tryggja sig gegn óáran og hælkrókum af hálfu Flokksins og eða greiða fyrir fyrirgreiðslum af einhverju tagi? Það er nefnilega svo, að Flokkurinn refsar þeim sem hafa óæskilega skoðun. Það er víst öll lýðræðisástin og allur kristilegi náungakærleikurinn sem blessaði heiðarlegi Sjálfstæðisflokkurinn getur státað af.

Hitt er síðan aftur annað mál, að múgsefjunin vegna djöfulgangsins í París ríður ekki við einteyming hvað varðar rugl og skoðannamyndandi vitleysu - já og illa meinta rétttrúnaðarorgíu. En það er auðvitað ekki við góðu að búast hér á landi, þegar haft er í huga hvaða endemi og ,,stórgáfaðir" menningarvitar stýra opinberri umræðu.

Í frægri ritgerð félaga Þórbergs Þórðarsonar, ,,Einum kennt - öðrum bent" segir meðal annars í kaflanum um ruglandi: ,,Ruglandi, framin af ráðnum hug, má heita dagleg iðkun margra þeirra, er um stjórnmál rita hérá landi." Enn fremur segir í sama kafla: ,,Þessir forheimskendur þjóðfélagsins geta þó verið skynsemisgreindir, snuddgáfaðir. Þeir geta verið séðir, kænir, sniðugir, gæddir góðu klíkuviti. En þetta er aðall hins frumstæðari manns og nátengdur sjálfsbjargarbaráttunni."


mbl.is Spyr hvort tjáningafrelsið sé bara fyrir réttar skoðanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingja blessuð konan

femma1Svo Lilja Rafney er farin að skrifa bréf. Það held ég sé aldeilis barn í brók. Og óskar eftir fundi ,,þingmönnum" Norðvesturkjördæmis ásamt fulltrúm Ísafjarðarbæjar, Verkalýðsfélags Vestfjarða - og Byggðastofnunar! Og tilefnið er afleiðingar kvótakerfisins, sem Lilja Rafney, Steingrímur Joð, Gutti Akranes og flokkar þeirra svikust um að breyta eða afnema á síðasta kjörtímabili. Aumingja blessuð konan.

Merkilegt að hún hafi ekki beðið um að fyrrnefndur Steingrímur Joð væri boðaður á fyrirhugaðan fund og óskað eftir því við hann að hann taki vin sinn, Þorstein Má Samherja, með sér á fundinn. Þó er mjög líklegt að Lilja Rafney hafi óskað eftir nærveru fyrrnefnra tveggja heiðursmanna á fundinn, þó svo það komi ekki fram í fréttinni um bréfaskriftir þingmannsins.


mbl.is Vill ræða „grafalvarlega stöðu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til að maður þekkist boð þarf fyrst að bjóða honum

auðvaldssvín 3Til að þekkjast boð þarf manni að hafa verið boðið. Fransósi Holland frakkaforseta datt ekki í hug að bjóða Sigmundi Davíð í samgönguna, þar eð hann hafði í höndum upplýsingar frá trúnaðarmönnum sínum, að téður Sigmundur Davíð væri fjarri því að vera í húsum hæfur og því síður æskilegur í samstöðugöngu með almennilegu fólki. Einn trúnaðarmanna frakkaforseta sagði honum meðal annars, að forsætisráðherra Íslands væri til heimilis í torfkofa á afdalakoti sem hann hefði þó aldrei séð eða gist; að hann væri vikapiltur alræmds kaupfélagsstjóra, einnig mr. Ásgrímssonar og mr. F. Ingólfssonar, Ólafs bónda að Miðhrauni I. og mr. S. Einarssonar grósséra af Kaupþingi; að ríkisstjórn hans á Íslandi samanstæði af eintómum strengjabrúðum óyndislegra hagsmunasamtaka og burgeisa; að allir hundar fái óstöðvandi hnerra í hvert skifti sem þeir þefa af fótleggjum hans.

Og á meðan höfðingjar þjóðanna gengu saman, ásamt milljónum manna í borgum Frakklands, sat forsætisráðherra Íslands á hljóðskrafi við gömlu Framsóknarmaddömuna elliæra og trénaða, Halldór Ásgrímsson, kaupfélagsstjórann að norðan og Kolbein Kolbeinsson í rökkvaðri og saggafullri herbergiskytru í innsta afkima Framsóknarfjóssins. Þar víst ekki töluð vitleysan, áhyggjur voru fram bornar og krufðar til mergjar og haft í heitingum útaf ýmiskonar skuggalegum málum og persónum og að lokum teknar ákvarðanir um plott, fléttur, gildrur og brögð, sem gæfu vel í aðra hönd. Á eftir lagði gamla Framsóknarmaddaman þessa hennar velþóknanlegu húskarla sína á brjóst, lét þá ropa á efir og svæfði þá síðan.

Þegar Kolbeinn kom heim til sín, gaður endurnærður eftir vel heppnaða heimsókn til Maddömunnar, hjólaði hann í frú Ingveldi og hugðist taka hana á eldhúsgólfinu eins og ærður lóðahundur. En frú Ingveldur lét ástleitni bónda síns ekki á sig fá og sparkaði honum útí horn og skipaði honum að liggja þar þangað til að hún færi með hann út til að viðra hann.


mbl.is Þekktist ekki boð Frakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú hljóp á dauðafærið

gu6Nú hljóp heldur betur á dauðafærið hjá þeim þarna fyrir norðan land að fá loksins Borgarstjóra með stóru bé-i til að taka til í ruslakistunum þeirra. Gunnar I. varð frægur fyrir að draga Kópavog uppúr ólýsanlegri eymd og volæði og skila honum af sér sem stórborg með Goldfinger, Krossinum og Smáralind. Gjöri aðrir betur. Og nú er komið að því að koma vonlausa útnáranum ,,Fjallabyggð" á heimskortið svo eftir verður tekið.

Það er mikill munur á Gunnari I. Borgarstjóra og vankaða dauðyflinu, Degi B. Eggertsyni, borgarstjóra í Reykjavík, svo mikið er víst. Sá munur er eins og á haukfránum haferni og vængbrotnum sílamáfi. ,,Bröltir oft um í snörunni fuglinn í fjörunni." Að maður minnist nú ekki á hryggðarmyndina sem þeir hafa fyrir sveitarstjóra í Kópavogi nú til dags. Já.

Nú bíða norðanmenn í ofvæni að nýráðni Borgarstjórinn birtist og fari um Fjallabyggð eins og óður fellibylur.


mbl.is Gunnar Birgisson bæjarstjóri í Fjallabyggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítill piltur lagði í stríð

gun1Fyrst rússneskir sæúlfar hafa verið að bera vélbyssur af heimsfrægri tegund í öfgafulla glæpakújóna á Íslandi, er ekkert sem heitir ljótt að það verður að kaupa lögreglunni okkar almennileg vígtól til að heyja orrustur við þá öfgafullu. Lögreglan verður að fá skriðdreka, fallbyssur, klasasprengjur, tundurskeyti og tíuþúsund vélbyssur með næstu ferð frá útlöndum, svo borgararnir í landinu geti sofið rólegir.

Ég sé sergent Bjartmars og offísér Geirjón fyrir mér stjórna þungvopnaðri varnarárás á rotturholur öfgafullra samfylkingarpésa og sprengja þá vægðarlaust aftur á steinöld. Og ekki væri lakara að verðia vitni að því þegar Gorgur sjóliðsforingi og menn hans lenda í sjóorustu við Tyrki útaf Dyrhólaey og tekst að lokum með af fádæma útsjónarsemi og harðfylgi að forða Vestmannaeyingum og Íslendingum frá öðru tyrkjaráni.

Lítill piltur lagði í stríð
og lenti þar í kúlnahríð,
ekki er að efa það!
Nú unir hann við englasöng
með orðu á brjósti dægrin löng.
Það er nú svo með það!
(Höf. vísu: JH)


mbl.is Óskráðir árásarrifflar hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er skylda foreldra við svona uppákomu?

ingv5.jpgSko þá stuttu, hún samdi þennan forláta ópus á taðhúsinu og laumaði honum án þess að foreldrarnir vissu í ,,Söngvakeppnina." Það er eitt fyrir sig, að jóðla saman lagstúfi sitjandi á náðhúsinu en annað að fara á bak við foreldra sína. Hið síðartalda er höfuðgælpur, sem gerir foreldrunum skylt að taka fram vöndinn og refsa tónskáldinu fyrir baktjaldamakkið og laumuspilið. Auk þess fimbulfambar stelpuhnátan um ,,augnablikið sem maður verður ástfangin" eins og hún viti hvað hún er að tala um í því sambandi. Það eru mikil firn að verða vitni að því, að 16 ára barn skuli slá um sig með slíkum dónamunnsöfnuði.

Þegar frú Ingveldur var gelgjuskjáta samdi hún oftar en ekki lög og texta þegar hún sat á klósettskálinni, en hún hafði þó vit á að sturta þeim listaverkum niður með því sem hún kreisti úr sér ofaní skálina. Síðan hefir frú Ingveldur verið þeirrar skoðunnar, að öll listaverk eigi hvergi annars staðar heima en í holræsunum.

Og ekki batnaði ástandið þegar blessað barnið kom bísperrt fram í sjónvarpsfréttum við hliðina á úrbrædda kumrararnum Birni Jörundi. Þá var víst ekki frítt við að sómakærar húsmæður gripu fyrir hjartað og bæðu Guð í auðmýkt bjarga telpustráinu frá öllu illu.


mbl.is Samdi lagið á hótelherbergi á Ítalíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frú Ingveldur tekur heilshugar undir orð Vilhjálms læknis

kol50.jpgÍ kvöld flutti frú Ingveldur fyrirlestur að heimili sínu að viðstöddu fjölmenni. Umfjöllunarefni fyrirlestrar frú Ingveldar voru hinar rómuðu ,,líkamshengingar" sem nú um stundir njóta mikillar og almennrar hylli.

Í máli frú Ingveldar kom fram, að samkvæmt rannsókn sem hún hefir sjálf gert á fyrirbrigðinu, þá séu endemin sem hengja sig uppí loft á húðinni eintómir fáráðlingar, flestir með sódónískar kenndir, sem ætti tafarlaust að leggja inn á vitfirringahæli. Hinsvegar gæti hún ekki neitað því, að sumir einstaklingar, einkum karlkyns einstaklingar, ættu skilið að vera hengdir upp á hreðjunum, enda hefðu þau kvikindi til þess unnið. Um leið og frú Ingveldur lét þessi orð falla horfði hún fast á eiginmann sinn Kolbein Kolbeinsson, Brynjar Vondulykt, Indriða Handreð, Óla Apakött, Trugga Fokk og Haffa Frænku.

Enfremur bætti frú Ingveldur því við, að til væru kvensniptir, sem með framferði sínu, óguðlegu og siðferðilega spilltu, veitti ekki af að fá að hanga í lausu lofti á bölvuðu kviðskegginu. Það væru kerlingarskjáturnar, sem legðust með karlmönnum, sem þeim koma ekkert við, undir bifreiðum, á bekkjum almenningsgarða að kvöldlagi og í fjósflórum á milli mjalta.

Að fyrirlestri loknum fóru fyrrnefndir sexmenningar bak við hús til að ráða ráðum sínum. Þeim þókti nefnilega frú Ingveldur sneiða á svívirðilegan hátt að þeim í fyrirlestrinum; þetta væri semsé af hennar hálfu pungspark af síðustu sort. Er ljóst, að innanflokksátök munu á næstu vikum setja mark sitt á samkvæmi og heimilishald frú Ingveldar og eiginmanns hennar.


mbl.is Líkamshenging „algjör della“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Henni veitir ekki af að hvíla sig fyrir páskabyltinguna

x2qfapo.jpgÆjá, ég held henni Hönnu Birnu okkar veiti ekki af að hvíla sig dulítið eftir allt atið sem hún hefir þurft að standa í, að ekki sé nú minnst á hina ruddalegu beinasna sem lögðu hana í einelti mánuðum saman eins glorhugruð úlfhundahjörð. Það er auðsjáanlegt, að Hönnu Birnu nægir ekki að liggja undir sæng á dívani með lattebolla í hönd og tærnar uppí loft fram í mars, hún þarfnast mikið lengri hvíldar. Þyrnirós róaði útjaskaðar taugar sínar með því að blunda í eina öld - Hanna Birna þarf nauðsynlega, heilsu sinnar vegna, á jafnlagri hvíld að halda.

En meðan okkar elskulega Hanna Birna er þreytt, svo undur þreytt að hún fylgir vart fötum, valsar Bjarni Ben um eins og styggur lambhrútur og lætur sér ekki muna um að vera í slagtogi með öðrum eins erkiskelmi og litla húskarli Framsóknarmaddömunnar, Sigmundi Davíð, og hans voðalega púkastóði. Já, þeir geta leyft sér það sem eru á mála hjá Engeyingum og gifturíka kaupfélagsstjórnanum á Sauðárkróki fyrir norðan land.

Nú ku vera í uppsiglingu hrikaleg mótmæli gegn ríkisstjórninni og er stefnt að því að steypa henni af stóli um páskaleytið. Skulu þá margir, sem ekki eiga sér neina upprisuvon, verða krossfestir, borðum víxlara ausið um koll og auðmönnum skipað að skríða gegnum nálarauga annars skuli þeir fá að vita hvar Davíð keypti ölið; en auðmenn eiga það allir sameiginlegt, að þeir vilja síst af öllu vita hvar Davíð keypti ölið, þeir vilja bara fá það ókeypis og selja það aftur á okurprísum. Standa vonir til, að Hanna Birna verði orðin það hress þegar nær dregur páskum, að hún geti tekið þátt í með byltingarfólki að velta andskotum sínum, þeim Bjarna Ben og Sigmundi Davíð, úr sessi og hrekja þá útúr helgidómi stjórnarráðsins.


mbl.is Hanna Birna áfram í fríi frá þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband