Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2015

Háar hugsjónir og ferskar í fyrirrúmi

xd17.jpgAuðvitað eru péníngapervertar landsins löngu búnir að koma sér saman um hvernig þeir eigi að skjóta sameignum þjóðarinnar undan og ofaní eigin vasa. Þessir þrjótar eru ekki auðvald og arðræningjar fyrir ekki neitt. Það síðasta sem fréttist af þessum sérplægnu óbótamönnum, fyrir utan að efna til einkavæðingarveislu með tvo ríkisbanka, er að nú hafa þeir sem hæstar hafa hugsjónirnar og ferskastar ákveðið að opna markað þar sem ömmur þeirra verða boðnar og seldar hæstbjóðanda; ef báðir aðilar hagnast á viðskiptunum með gömlu konurnar, þá er það af hinu góða, gefur góð tækifæri, eflir heilbrigða samkeppni, segja þeir.

Nokkrir frjálshyggjudrengir, aldir upp við góða og megna auðvaldshyggju og arðrán, mun nú þegar vera farnir að undirbúa ömmur sínar fyrir sölu á opnum markaði. Verulega verðmætar ömmur, munu samt ekki ætlaðar til kaups fyrir pétur og pál, heldur seldar flokksmönnum eftir forval og lokað útboð.

Þar eð amma frú Ingveldar er dauð fyrir mörgum árum síðan, hefir frú Inveldur afráðið, að reyna að selja móður sína. Sá hængur er þó á, að gamla Ingveldur, móðir frú Ingveldar, er viðskotaill ekki síður en dóttir hennar, römm af afli þrátt fyrir að hafa tvo um áttrætt, og herská svo af ber þegar uppá hana er abbast. Það verður því fróðlegt að sjá hvernig þeim mæðgum vegnar í stríði því er framundan er.


mbl.is „Bankinn tilbúinn um nokkurn tíma“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bragð er af þá barnið finnur (í þessu tilfelli viðbjóðslegt óbragð)

rev4Þegar útlendingaeftirlit auðvaldsflokkanna í ríkisstjórninni hefur gengið svo fram af þjóðinni með ruddaskap og mannúðarskorti, að jafnvel börnin sjá sér ekki annað fært en að efna til mótmælagöngu til að andæfa fúlmennskunni, er líklega kominn tími til fyrir auðvaldsstjórnina að pakka saman og snáfa útí hafsauga með rasismann og útlendingaeftirlitið í farteskinu.

Í nótt eignaðist hin forherta ríkisstjórn okkar heilan banka, sem hún ætlar að færa vinum sínum og vandamönnum að gjöf í sömu andrá og sömu vinir og vandamenn fá Landsbankann á gullfati frá ríkisstjórninni til að braska með og blekkja fólk. Það er vonandi að lýðurinn, alþýða Íslands, taki nú uppá því að ranka við sér úr framsóknaríhaldsrotinu og láti til sín taka á eftirminnilegan hátt, áður en strengjabrúður auðvaldsins og arðræningjanna ná að vinna þau spjöll, sem þau eru nú þegar búin að ákveða að hrinda í framkvæmd.

Það er nákvæmlega sama hvert litið er á Íslandi í dag, alstaðar blasir niðurrif og græðgi íhalds- og framsóknarpéníngaperrana við. Það er eins og þessi ömurlegi villilýður fái aldrei nóg í andskotans auðvaldsbelginn á sér. En þegar byltingin birtist eins og frelsandi engill frá Guði, þá er eins gott fyrir þessa þorpara og heybrækur að leggja á flótta, slíka óhemju elds, sem þær hafa safnað kringum höfuð sér.


mbl.is Bjóða flóttafólk velkomið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta áttu labbakútarnir og hengilmænurnar að vita

drayefi.jpgÞeim hefði verið andskotans nær að byrgja sig upp í tíma af sprautum sprautunálum, þá hefðu þeir sloppið við að skríða grenjandi í fjölmiðla útag vekfallinu. Þessir labbakútar og hengilmænur áttu sem best að vita, að verkfall var yfirvofandi, því það féll ekki af himnum ofan í hausinn á þeim eins og óútskýrður loftsteinn. Ég vona að slíkir afglapar, eins og innflytjendur og kaupendur á heilbrigðisvörum fyrir sjúkrahús og heilsugæslu, séu hvurgi til á öðrum sviðum samfélagsins. 

Gottfreð læknir Gottfreðsson, sem orðinn var sprautu og sprautunálalaus strax í gærmorgun, brá á það ráð að róta í hirslum afa síns heitins og fann þar forláta sprautu, stálslegna og glerjaða, og eina margnota nál, sem afinn hafði notað til að sprauta nautgripi og sauðfénað, en hann var á sinni tíð fgildur bóndi í sveit norðan heiða. Með þessu magnaða heilsubótartæki hefir Gottfreð Gottfreðsson sprautað linnulaust síðan á hádegi í gær og hafa sumir hálfdrepist af mögnuðum inngjöfum hins dugmikla læknis. Meðal annars dældi hann veigamiklum skammti af verkja- og bólgueyðandi í ástarleikjabrandinn á Kolbeini Kolbeinssyni svo við lá, að Kolbeinn færi beina leið til greftrunar uppí Gufuneskirkjugarði.

Það því ekki nema von, að lanlæknirinn, sem íhaldið fann á sorphaugi úti í Svíþjóð, hafi verið byjaður að orga eftir lögum á verkfall lægst launaða fólksins hjá ríkinu áður en það hófst. Og fyrirlitningargrettan á forstjóra Landspítalans, vegna ósvífni þeirra lægstlaunuðu, var orðin svo stíf á andlitinu á honum, að þar gekk á með krömpum og alskyns sinadráttum, uns Gottfreð læknir skarst í leikinn sprautaði hann í nefið með búfjásprautunni góðu.


mbl.is Fá ekki sprautur vegna verkfalls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grímulaus hatursáróður og moldrok í logninu

hundsbitUngir jafningsmenn, þetta sérkennilega, yfirnáttúrlega lapþunna undanrennugutl, telja sig þess umkomna að kveða uppúr með hvort Bjöggi Gjé Sig sé hæfur eða óhæfur til þingsetu. Annað eins moldrok í logninu hefur ekki í háa herrans tíð sést á norðurhveli jarðar. Að börn með alvarleg krataeðlisheilkenni stundi grímulausan hatursáróður gegn fullorðnum jafningsmanni eru þvílík firn og býsn, að fágætt er í hinu rotna samfélagi þeirra sem haldnir eru fyrrgreindu krataeðli. Þetta er ekkert skárra en hjá samsvarandi undanrennuungum hjá VG.

Við eru öll sammála um, að Bjöggi Gjé Sig sé fullgóð, ef ekki ofgóð, þingmannsnefna fyrir annan eins afturúrsiglaraflokk og Samfylkingin er; þar er hvurt rassgatið öðru líkt og allir með skitu. En unglingavandamál hinna auðvirðilegu jafningssamtaka er svo yfirgengilegt, að Barnastofa verður líklegast að ganga í málið og koma krakkasvínunum fyrir á sjálfu Höfuðbólinu og gangast þar gegnum uppbyggjandi þvott undir handleiðslu prófessors Hannesar.

Auðvitað sárnar Bjögga litla Bjé Sig, að undanrennuhvolparnir í Samfylkingunni, stríðaldir á cocopuffs og sætabrauði, skuli hafa kosið að næla tönnum sínum í hælana á honum af öllum jafningsmönnum. Þó það nú væri. Hann mun eflaust hugsa þessum kykvendum þegjandi þörfina, launa þeim með rauðum belg fyrir gráan, og draga úr þeim andskotans eiturtönnurnar með naglbíti.


mbl.is Þarf að vinna sér inn traust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjáum nú til ...

rev7Sjáum nú til: Tveir yfirstéttargrísir með silfurskeiðarnar lafandi útúr munnvikjunum að láta ljós sitt skína um verföll og launakjör. Og niðurstaða þeirrar umræðu alveg eftir gömlu góðu auðvaldsbókinni; ef launaskríllinn knýr fram launahækkanir með verkfalli, þá hóta auðvaldstittirnir að keyra upp verðbólgu og efna til efnahagslegs óstöðugleika.

Nú síðast eru Bjarni og hans líkar farnir að tala um einhvern andskotann, sem þeir kalla ,,nýtt vinnustaðamódel", sem að sjálfsögðu er einhver hrossalækning á forsendum auðvalds og arðræningju. Því miður er hætt við að allt of margir verkalýðsforstjórar bíti á agnið, af sínum alkunna sleikjuskap við auðvaldið og lágkúrlegri lítilmennsku sinni.

Það er aleins eitt svar við þessum gráðuga og peníngasjúka leikaraskap auðvaldsins: Að steypa auðvaldinu af stóli og banna glæpasamtök þeirra með lögum með gjörbyltingu. Vel að merkja, sósíalískri byltingu, því annar farvegur er hvorki nothæfur né boðlegur.


mbl.is Þegar búin að fara fram yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja hlálega fígúru en ekki forseta

kol19.jpgSamkvæmt Smartlandi Mörtu Máríu stendur ekki til að kjósa Íslenska Lýðveldinu forseta heldur fígúru, og þá einhverskonar lukkudýr í ætt skrípafyrirbærin, sem fótboltafélögin á Englandi láta hoppa og skoppa um völlinn áður en leikur hefst og í leikhléi. Auðvitað er afstaða sem þessi rökrétt þegar andlegt og líkamlegt menningarástand hluta þjóðarinnar er haft til hliðsjónar.

Líklega er rétt, að upplýsa á þessum stað, að nú stendur yfir undirskiftasöfnun fyrir Kolbein Kolbeinsson vegna næstu forsetakosninga. Eins og flestir vita, þá er Kolbein grjótharður nagli, einlægari en allt sem einlægt er, einkum þegar hann er drukkinn, djúpvitur og heimsfrægur, drepfyndinn og klár, og ekki vantar hann leiftrandi húmor og heiðarleka og embættismannsslepjan bókstaflega lekur af honum. Enda gengur undirskriftarsöfnunin fjarska vel; allir vilja vera á skrá hjá næsta forseta lýðveldisins.

En það vilja fleiri verða forsetar en Kolbeinn Kolbeinsson og trúðsfígúrur Mörtu Máríu smörtu af Smartlandi. Til sögunnar hefir verið nefnd nafna Mörtu Máríu, sjálf Máría Borgargagn, sem og Óli Apaköttur, Vigdís Hauksdóttir og Óli Björn Kárason og Hallgrímur Helgason ekkiskáld.


mbl.is Sjö heitustu forsetaframbjóðendurnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þau hata Chapiln af öllu hjarta

ingv19.jpgÞað vóru fleiri ódámar auðvaldsheimsins en Hitler sálugi, sem þókti Chaplin réttdræpur og liðlega það. Bandaríska auðvaldið hafði sum sé sömu skoðun á litla alþýðumanninum og Adólf karlinn og hans félagar. Enda var Chaplin útlægur gjör af Guðseiginlandi þar vesturfrá og flúði til Sviss, eins og fangavörðurinn, sem Jósef Svejk segir frá í fyrsta kaflanum í bókinni um hann.

Frú Ingveldur og hennar fólk allt hatar Chaplin af öllu hjarta enn þann dag í dag, af því að þeim var kennt strax í frumbernsku að hann væri kommúnisti. Þá hafa þau grun um, að hann hafi, vegna útlits síns, verið múslími, líklega íranskur eða íraskur. Þá hefir frú Ingveldur haldið erindi í bölbænastíl í sjálfstæðisflokkskvennafélaginu Ösp um Chalpin við framúrskarandi undirtektir.

Þegar frú Ingveldur féll í fyrrinótt í aungvit af hroðalegu brennivínsþambi, lagði Brynjar Vondalykt hægri fót sin á brjóstkassa hennar, barði sér á brjóst, og söng: "Ingveldur meri sem dó, hún pissaði upp á vegginn og veggurinn hló. Ingveldur meri sem dó."


mbl.is Chaplin á „dauðalista“ Hitlers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlandsprengjan og morðvargurinn

fat_1244424.jpgVart væri í frásögur færandi hér á landi þótt einhver villuráfandi kvenmannsbelgur, trúlega hlandsprengja, sé orðin bálskotin í morðvargnum Breivik, ef ekki kæmi til sú nöturlega staðreynd, að hið ástfangna kvendi er rammíslenskt. Ekki sakar heldur að geta þess, að Victoría, en það er dulnefni konunnar, er að sögn gróflega pólitísk, hatar komma, krata, anarkista og múslíma. Hvar hún skipar sé í flokk verður ekki tíundað hér, en menn geta auðveldlega getið sér rétt til um það ef þeir kunna að ríma.

Ást Victóríu hlandsprengju á morðingjanum er bæði holdleg og andleg, enda er Breivik myndarlegur og háarískur á velli. Og það sem meira er: Morðvargurinn ku heimsækja hana á hvurri nóttu og sinna henni af alúð og natni, eins og Gvendur sálugi á eyrinni kindunum sínum 18. Þó segist Victóríu svo frá, að draumaprins hennar hafi í einni heimsókn sinni til hennar gert sér lítið fyrir og kukkað á gólfið í einu herbergishorninu. Það sem henni þykir einkennilegast við þann atburð er, að kukkurinn var enn í horninu þegar hún fór á fætur.

Ef heldur fram sem horfir, þá mun Victóríu verða komið fyrir á geðveikrahælinu á næstu vikum, því ófært er að láta þessa afmynduðu hlandsprengju engjast í rúmi sínu allar nætur með alræmt skrímsli milli hnjákollana; skrímsli, sem skirrist ekki við, að skíta í herbergishorn ástmeyjar sinnar!


mbl.is Segir Breivik sinn besta vin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann er glæsilegt dæmi mann sem hefir oft slasast í kröppu kynlífi

kolb19.jpgEitthvert glæsilegasta dæmi um mann sem hefir oftar en einu sinni og oftar en tvisvar komist í hann krappann vegna hættulegra kynlífsstellinga er vinur okkar allra, Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður. Að minnsta kosti ellefu sinnum hefir limur hans brotnað vegna áhættusamlegs framgagnsmáta við kynlífsiðkan og hann mátt af þeim sökum mátt þola þá raun, að ganga með getnaðarbrand sinn í gipsi og fatla, stundum í nokkrar vikur.

Slysfarir Kolbeins af þessu tagi eru hreint ekki allar af völdum eiginkonu hans, frú Ingveldar, heldur hafa hrottamenni á borð við Brynjar Vondulykt, Indriða Handreð og Máríu Borgargagn komið þar við sögu. Frú Ingveldur, sem telur Kolbein sérkennilega ótúttlegan vandræðamann, segir, að leyndarlimur hans sé stökkur eins og hrökkbrauð og frauðkenndur að sama skapi. Ennfremur ber frú Ingveldur, að eftir torkennileg hvílubrögð Kolbeins og Handreðsins hafi stolt Kolbeins verið tvíbrotið og auk þess svo ofboðslega tognað, að hún hafi orðið að aka honum hvert fótmál í hjólastóli um mánaðarskeið, hjálpa honum á salernisskálina, skeina hann og hlýða um leið á sársaukaorg hans með jafnaðargeði.

Eftir verstu tilfellin í limsbrotasögu Kolbeins var hann sendur á Grensásdeildina og Reykjalund til endurhæfingar starfsfólkinu á þeim heilsubótarstöðum til magnþrunginnar skelfingar. Því Kolbeinn er mjög erfiður sjúklingur, óstýrilátur og ófyrirséður. Til að mynda, elti Kolbeinn, með lim sinn í fatla, kvenkyns starfsmann á Grensásdeildinni um allt hús, fram og til baka, og útá götu. Daginn eftir þá æsilegu eftirreið Kolbeins kom frú Ingveldur á deildina og lúbarði bæði eiginmann sinn fyrir ósæmilega hegðun og drósina fyrir að vera Kolbeini ekki eftirlátssöm ...


mbl.is Þetta er hættulegasta kynlífsstellingin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

,,Þú eldgamli útslitni ...

burt.jpg,, Þú eldgamli útslitni kjérlíngarfjandi:
það ætti að reka þig strax úr landi
og skvetta á eftir þér skít og hlandi."

Þannig orkti Gjeirharður Winter skáld og forstjóri útlendingaeftirlitsins til konu sinnar á ögurstund. Hann lét og heldur ekki þar við sitja, að bauna kviðlingum að frú sinni, því honum tókst, með slóttugheitum og harðfylgni málafærslumannsins, að grafa upp fjarska gamlan en skotheldan lagabókstaf, sem gerði honum kleyft, að vísa eiginkonu sinni úr landi. Hann rak hana með litháískuum fragtara til Tallin á Eistlandi, þar sem hún var handtekin.

Þegar Gjeirharður Winter var laus við konu sína og búinn að skvetta á eftir henni öllum þeim skít og hlandi er hann hafði yfir að ráða, þá gaf hann landvistarleyfi á þann óþurftarmann, Brynjar Vondulykt, sem þá hafði verið útlægur gjörr af Íslandi um nokkur misseri. Brynjar launaði útlendingaeftirlitinu og íslenska ríkinu miskunarverkið með því að ganga valdstjórninni á hönd og vinna fyrir hana ýmis aðkallandi óþrifnaðarverk, sem aungvum öðrum kom til hugar að taka að sér.

En þegar Gjeirharður Winter útlendingaeftirlitsforstjóri frétti af því, að Eistar hefðu selt burtrekna og margsvívirta konu hans á hóruhús í Austurríki, hló hann svo ofboðslega, að fölsku tönnurnar hans hrukku oní kok hans, kæfðu hann og svæfðu svefninum langa. Þetta var þá það karma, sem Gjeirharður kallaði yfir sig með gjörðum sínum íllum.


mbl.is Aðstæðurnar slæmar óháð stöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband