Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2015

Leit að ræningja getur verið hættuleg, því fengu Hálfdán varðstjóri og fleiri að kynnast

pol1Það er ekki amalegt fyrir lögregluna að fá að leita að ræningja svona uppúr þurru í miðri lágdeyðunni. Raunar getur lögreglan gengið að nokkrum ræningjum vísum á Kvíabryggju og það eru aungvir sjoppuþjófar heldur alvöru bankaræningjar, slóttugri en Höggormurinn í Paradís og auðgunargjarnari en Fagín sálugi.

En leit að ræningja getur verið hættuleg. Hálfdán varðstjóri handtók eitt drukkna húsmóður í misgripum fyrir ræningja. Þessi húsmáðir var af kattarkyninu því hún klóraði Háfdán allan í framan og á hálsinum þegar hann ætlaði að koma fram vilja sínum á henni í fangaklefanum og var svo harðskeytt, að Hálfdán hætti við áform sitt og lagði á flótta, því hann varð dauðhræddur við að helvítis óhemjan mundi klóra úr honum augum og blinda hann til frambúðar. Daginn eftir kærði Hálfdán varðstjóri húsmóðurina fyrir brot gegn valdstjórninni.

Þegar presturinn á Ísafirði lét á sínum tíma elta manngarm, sem presturinn vildi meina að hefði framið kirkjurán, tókst svo óheppilega til, að lögreglan og sýslumaðurinn handsömuðu grænlenskan skipstjóra og færðu prestinum. Og þar sem hinn handtekni var hundheiðinn skrælingi, að mati prestsins, þá ákvað hann að skipa lögregluþjónunum og sýslumanninum að drekkja svíninu í baðkarinu á prestssetrinu. Útaf þessum atburði spratt leiðindamál, sem leiddi til þess, að byskubbinn gerði sér ferð vestur til að svipta hempunni af prestinum og reka hann í verbúð úti í Bolungavík. Í sömu ferð var líka dómsmálaráðherrann og lögreglustjórinn í Reykjavík og gerðu þeir sýslumanni og hans undirsátum svipuð skil og byskubbin prestinum.


mbl.is Lögreglan leitar ræningja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á fjórtánda degi tókst honum að komast undan á ævintýralegum flótta.

drngjfh.jpgHnuhhh ... Sigríður framkvæmdakjúkrunarstjóri Gunnarsdóttir getur ekki séð fyrir sér hvernig eigi að flytja hjúrunarfræðinga frá útlöndum til Íslands! Mér er spurn: Hvernig í ósköpunum stendur á því einhver frauka getur orðið framkvæmdakjúkrunarforstjóri án þess þó að hafa ímyndunarafl og sálarþroska til að sjá fyrir sér hvernig hjúkrunarfræðingar eru fluttir inn. Framkvæmdakjúkrunnarkvinnunni til hjálpar í fordæmalausri fáfræði hennar, þá er trúlega réttlætanlegt að benda henni á, að áðuráminnst hjúkrunarfólk er flutt inn í gámum eins og hver önnur vara, sem ætluð er til brúks. Skipafélögin Eimskip eða Samskip Ólafs útvegsbónda að Miðhrauni I., nú með adressu á Kvíabryggju, geta hæglega flutt gámana með hjúkrunargóssinu til landsins, hvaðan sem það kann að vera upprunnið.

Slordónanum Gesti Svanssyni tókst með fádæma harðfylgi og slægð að flýja af ríkisspítalanum eftir að hafa legið þar í gífurlegu lyfjarúsi í hálfan mánuð án þess að neina lækningu meina sinna. Gestur segir, að um leið og hann hafi lagst í sjúkrarúmið hafi hjúkrunarfræðingur sprautað einhverju helvítis eitubruggi í upphandlegginn á honum, smjörsýru eða ópíumbasa telur Gestur, og eftir það hafi grimmdarlegt hjúkrunarkvendi komið að rúmi hans á þriggja tíma fresti til að sprauta í hann meiri ólyfjan eða troða öflugum svefn- og róandi pillum með valdi ofaní kokið á honum. Á fjórtánda degi hafi honum svo auðnast að kasta sér útum klósettgluggann á sjúkrahúsinu. Gestur kom niður á greinarnar jargansmiklu grentré í spítalagarðinum og varð það honum til lífs.

Gestur segir ennfremur, að ástandið á ríkisspítalanum sé langt umfram það sem kalla megi hræðilegt eða hroðalegt. Læknar og hjúkrunarfræðingar vaði eins og skítugir hrægammar milli rúm og segi sjúklingu, að nú verði allt einkavætt í heilbrigðiskerfinu með góðu eða illu þótt það kunni að kosta það að sjúklingarnir rotni upptil agna í bælunum. Telur Gestur, að hugarfar heilsubótarfólks á vegum ríkisstjórnarinnar sé gjörmengað að ofsapéníngagræðgi, það sé blátt áfram heilaþvegið eins og morgunblaðslærðir krakkaaumingjar í Heimdalli. 


mbl.is Fólk verður að geta talað íslensku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Saklaust föndur sem breyttist í stórfellda vá og hrylling

ingv14.jpgLjótt er ef satt er, að helvískir ferðamennirnir glotti við tönn, flissi eða hlægi jafnvel upphátt framaní hina undurgráðugu Íslendinga, rétt á meðan þeir ganga örna sinna hvar sem er annars staðar en á salernum hinna undurgráðugu, sem heimta pééénííínga af þeim fyrir að fá að skíta og míga. Kveður svo rammt að hlátrasköllum og glotti ferðalanganna, meðan þeir sitja á hækjum sínum, að þeir gráðugu ferðaþjóðnustubændur eru farnir að ræða sín í milli, í fullri alvöru, hvort ekki sé hægt að troða tappa í rassinn á túristunum við komu þeirra til landsins og binda fyrir pípulögnina í þeim. Og víst er vá af þessu skítlega framferði ferðamannana því gamlar konur og smábörn gætu sem hæglegast runnið í túristaskitu út á víðavangi og stórslasað sig. Þar að auki er haft fyrir satt, að hin glottandi og flissandi túristahjörð sitji um að stela skeinisblöðum hvar sem þeir koma, meðal annars á sjoppum, veitingastöðum og gistiskýlum. Blöðin skilja þeir svo eftir, hræðilega útverkuð, í námunda við stykkin sín, fáum til sjónræns yndisauka nema ef til vill fáeinum geðbiluðum pervertistum.

Fyrr í sumar kom frú Ingveldur auga á erlend þokkahjú sem voru að pukrast við að gera þarfir sínar illþefjandi inni á lóð hjá henni. Nánar tiltekið voru þessir gjaldeyrisskapandi gullfiskar og túristar að skíta í blómabeð frú Ingveldar. Og þar eð frú Ingveldur er snör í snúningum og fljót að taka afgerandi ákvaranir, þá þaut hún í hendingskasti útá vígvöllinn og greip þokkahjúin glóðvolg við óhreina iðju sína og néri þeim vel og vandlega uppúr hroðanum sem þau hugðust skilja eftir í blómaveðinu. Henni tókst líka að slíta bæði tvö úr buxunum áður en hún stökkti þeim á flótta. Og vegfarendur sem sáu til flótta þokkahjúana undruðust sjá tvær persónur á harðaspretti úti á götu, naktar neðan mittis og með hægðir í hárinu og í andlitinu.

Það er aungvum böum um að fletta, að ferðamannaiðnaðurinn á Íslandi hefur breyst á fáum árum úr tiltölulega saklausu föndri í hreinræktaða vá, plágu, sem ómögulegt er að líkja við nokkuð sem Íslendingar hafa áður kynnst. Á landnámsöld börðust hreinlátir landnámsmenn og vandir að virðingu sinni við ódáma er hugðust skíta á tún þeirra. Ekki er því seinna vænna en að allar sveitarstjórnir á Íslandi verði skikkaðar til að stofna hersveitir til að berja á rækilega ferðalingadólgum, sem staðnir eru að andstyggilegu skítverki þar sem slíkt framferði sómir sér ekki, svo sem í fjörum, á holtum, melum, túnum, lóðum, skúmaskotum, á fjöllum og uppi í firnindum. Og ábyrgð þeirra er ginna þennan skítafénað til landsins er nokkur og veitti þeim ekki af duglegri ráðningu í anda frú Ingveldar.


mbl.is „Míga og skíta“ glottandi við Gullfoss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilkynning um þátttöku í Druslugöngunni 2015

kolb14.jpgNú í morgun sendu frú Ingveldur og Máría Borgargagn út tilkynningu þess efnis, að þær hefðu ákveðið að taka þátt í Druslugöngunni 2015 íklæddar einu dömubindi hvor um sig, en fataleppalausar að öðru leyti. Enfremur munu þær leiða Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra á fjórum fótum á eftir sér í leðuról í göngunni til að sýna þingheimi hverskonar ódráttur og gerpi sá mannstauli er. Hinsvegar er Indriði Handreður, nýbakaður eiginmaður Máríu Borgargagns, helsti ósamstafsfús varðandi þetta verkefni og ber fyrir sig, að það að vera dreginn á fjórum fótum í bandi um stræti höfuðborgarinnar kunni að bitna á mannorði hans.

Þá segir ennfremur í tilkynningunni, að þær stallsystur séu ekki einungis druslur, heldur og líka dræsur af sverustu sort og eigi perralingarnir ekki von á góðu, ef þeir reyna fyrir sér með því að hlaupa úr launsátri á harðaspretti, beint inní Druslugönguna, í þeim tilgangi að nauðga öllu þar sem hönd á festir. Segjast þær frú Ingveldur og Borgargagnið ekki telja efir sér, að ganga milli bols og höfuðs á slíkum deleröntum ef til kæmi.

Það verður eflaust stórbrotin sjón, að sjá þverskurð þjóðarinnar, þau Dag bé Egkertsson, Blöndal saungkonu, Öldu Villuljós, Uglu fræðslustýri, ásamt með þeim frú Ingveldi og Borgargagninu í bömubindi einu fata og með Kolbein og kanske Handreðinn á fjórum fótum á eftir sér, geysast eins og óvinnandi herfylki um götur Reykjavíkur, þeirra erinda að bjóða nauðgurum og öfuguggum þessa lands byrginn á leiftrandi hátt. Hinsvegar hefir Kolbeinn Kolbeinsson áhyggjur af því að verða aumur og blóðugur á knjánum við að skríða eftir malbikinu, en það er önnur saga, en hann mun í staðinn fá að hafa hvítan matardisk límdan á rassinn til að verjast óviðkunnanlegu áreyti siðblindra óþokka.


mbl.is Druslur hanga í strætóskýlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taktlaus smámenni leggja steina í götu kraftaverkaborgarstjóra

gu6Það teljast mikil firn, að Gunnar I. Birgisson lýsi sig skák og mát í viðureign við einhverja ónefnda vegagerðarkurfa, ofanflóðamenni og veðurfræðinga. Gunnar I. hefir, sem kunnugt er, verið borgarstjóri að atvinnu í tugi ára og gert fleiri kraftaverk en tölu verði á komið; meira að segja Jesús Kristur, sem frægur var af kraftaverkum sínum, stenst aungvann samanburð við Borgarstjórann mikla, sem stýrt hefir bæði Kópavogi og Fjallabyggðarborg af áður ókunnum röggskap og naglfestu.

Trúlega eru fantarnir í vegagerðinni, ofanflóðasjóðnum og veðustofunni rakin smámenni, sem skirrast ekki við að leggja, af tómri illkvittni, eins marga steina og þeir geta í götu kraftaverkasinnaðra heiðursmanna. Megi skömm þeira vera uppi og lýðum ljós meðan nokkur hræða finnst á Íslandi. Sem betur fer lætur heljarmenni eins og Gunnar Borgarstjóri ekki einhverja illa gerða bögubósa máta sig. Í næstu skák mun hann beita þeim drottningargambíti sem dugar á þessa dela. Hann mun ekki láta sér nægja að máta þá heimaskít, því að auki mun hann lemja þá og kremja þá og fletja þá út og hakka þá í kássu. Það hefir nefnilega aldrei þókt góðri lukku að stýra, egna ofurmenni, sem í ofanáleg er kraftaverkamaður.

Enn eru þeir á dögum, sem sáu Borgarstjórann mikla boxa dusilmennið Brynjar Vondulykt, heima hjá frú Ingveldi og Kolbeini, svo hann skondraðist inní opinn pottakáp. Þegar þar var komið sögu, lögðu allir viðstaddir á flótta og stukku útum dyr og glugga, nema Máría Borgargagn og húsmóðirin á staðnum, frú Ingveldur. En Vondalyktin lét fyrirberast í aungviti í pottaaskápnum þar til hann vaknaði að afliðnu hádegi daginn eftir. 


mbl.is „Við erum eiginlega skák og mát“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband