Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2015

Glæsileg dæmi um húsbóndahollar búrtíkur

hundsbitÞetta með hundinn og hænsnin minnir óneitanlega á þá skemmtilegu þokkaiðju stjónmálaforingja okkar að sleppa búrtíkum sínum lausum við og við til að glefsa í óvini sína með tilheyrandi urri og gelti. Glæsileg dæmi um foringjahollar búrtíkur eru seppar á borð við Björn Val Gíslason, Hannes Hólmstein Gissurarson og Vigdísi Hauksdóttur. Ár og síð eru þessar tíkarvellur boðnar og búnar í að hanga í hælum þeirra, sem foringinn býður þeim, eða gera stykkin sín á tröppur þeirra frekar en ekki neitt.

Og búrtíkur foringjanna þurfa ekkert að óttast, lög um eyðingu dýrbíta og meindýra ná ekki yfir þær og ekki eru þær réttdræpar eins og vargfuglar á borð við sílamáf og veiðibjöllu. Búrtíkurnar eru nefnilega forréttindaskepnur, sem fá lof og aðra umbun húsbænda sinna fyrir að bíta, gelta og spangóla og eru í hávegum hafðar af meisturum sínum heimskum og illgjörnum.

dog3_1268418.jpgTil að mynda hefir Kolbeinn Kolbeinsson, eiginmaður frú Ingveldar, það embætti af Framsóknarflokknum, að klappa búrtíkum gömlu Framsóknarmaddömunnar á trýnið í hver sinn sem þær spangóla heimsku sinni og ruddaskap yfir land og lýð. Ennfremur hefir Kolbeinn þann starfa, að leiða búrtíkur, sem ekki hafa staðið sig sem skildi í ránsferðum og ófrægingarátökum gömlu Maddömunnar, á bak við Framsóknarfjósið og lóga þeim þar og fleygja síðan hræjunum í fjóshauginn.


mbl.is Hundur réðist á hænur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftir að stjörnusýslumaðurinn Stones yfirgaf Árnessýslu

StonesEtir að stjörnusýslumaðurinn Stones yfirgaf Árnessýslu hefir siðferði fólks þar um slóðir hrakað svo, að nú hikar það ekki lengur við að myrða vinsæla heimilisketti með eitri, fyrir nú utan alla aðra glæpi, sem þetta óráðvanda fólk er farið að leggja stund á eftir að herra Stones hvarf á braut.

En á Suðurnesjum hefir rostinn aftur á móti heldur betur lækkað í heimamönnum eftir að stjörnusýslumaðurinn tók þar um tauma. Má heita, að allir glæpir, stórir og smáir, séu úr sögunni þar suður með sjó, en það er eingöngu stjörnusýslumanninum Stones að þakka. Færi betur, að vér hefðum fleiri yfirvöld í landinu af þeirri stjörnugráðu.

Látum nú vera, ef Árnesingar létu við sitja, að aflífa ketti með eitri. En því miður er ástandið ekki svo gott. Þar um sveitir vaða um þessar mundir heilu herfylkin af óbótamönnum, sem láta sér ekki muna um að ræna, myrða og kokkála allt er fyrir verður. Mætti ætla að Sigðurður Gottvinsson væri uppsinn og afturgenginn í hundraðþúsundasta veldi í Árnessýslu, með öllu því kvalræði sem þessháttar draugagangi fylgir. Ekki mun Árnessýsla þola óáran af fyrirliggjandi stærðargráðu til lengdar og mun hún fljótlega heyra sögunni til, nema í líki eyðimerkur af sama tagi og þekkjast í norðurhluta Afríku.


mbl.is Kattaeitrun í Hveragerði staðfest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í veisluglaumi ,,viðeigandi stofnanna" munu góðu áformin týnast

mafia1_892301.jpgNú liggur Sigmundi Davíð lífið á ganga í augun á gömlu elliæru Framsóknarmaddömunni. Hann hefir sem sé heyrt utanað sér síðustu daga, að sú gamla sé orðin honum fráhverf vegana dugleysi hans, sleifarlagi og óáheyrilegu muldri, sem hljómi oftar en ekki eins og ráðvillukvak eða útburðarvæl. Í gær hvæsti Sigmundur á aukvisana og óráðsíukálfana í meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur og í dag lofar hann að kalla saman allt tiltækt silkihúfulið ráðuneyta og ,,viðeigandi stofnanna" til að bjarga Siglfirðingum og Ólafsfirðingum frá saurskriðum, hlandforum og rigningu.

En hvaða ,,viðeigandi stofnanir" eru það sem Sigmundur á við? Það er trúlega Framsóknarflokkurinn, sem er þessi ,,viðeigandi stofnun" sem forsætisráðherrann hefir í huga; Kolbeinn Kolbeinsson kemur frá skuggaráðuneyti Framsóknar, Þórólfur fyrir Skagafjörð, Finnur Ingólfs fyrir hönd fjáraflamanna og Ólafur bóndi á Miðhrauni I. og Sigurður Einarsson fyrir hönd Fangelsismálastofunnar. Með slíkan afburða liðsafla í farteskinu verður Sigmundur fljótur að þurrka bæði Siglufjörð og Ólafsfjörð upp í einni og sömu andránni.

Líklegt má þó telja, að brösulega kunni að ganga, að ræsa Kolbein Kolbeinsson skuggaráðuneytisstjóra út, þar eð helgin er gengin í garð með gestmóttöku og veisluhöldum að heimili Kolbeins og frú Ingveldar. Og trúlega munu björgunaraðgerðir forsætisráherra enda þar í samkvæmisglaumnum án þess að hafa nokkru sinni farið af stað. Því að í þeirri generaljörvagleði, sem fram fer jafnan um helgar á heimili Frú Ingveldar og Kolbeins, gerast ævinlega hlutir, sem eru svo svartir og öfugsnúnir, að aunginn nefna þá á nafn, hvað þá meira. Og þar týnast góðu áformin eins og jörðin hafi gleypt þau, því að samkvæmi Frú Ingveldar og Kolbeins eru ekki jólatrésskemmtanir fyrir börn.


mbl.is Kallar saman viðbragðshóp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannauðserindreki sagði frá væminni refsingu og sló í gegn

kob16.jpg,,Væmnin er mín sterkasta hlið" sagði frú Ingveldur í erindi sínu á mannauðsráðstefnu Sjálfstæðiskvenfélagsins Armbandsins. ,,Ég stjórna eignmanni mínum, Kolbeini Kolbeinssyni, eins og hundi inni á mínu heimíli með væmninni einni saman. Og hann veit sem er, að hann má eiga mig á fæti ef hann gerir ekki það sem ég býð honum hverju sinni" sagði frú Ingveldur ennfremur og var gerður góður rómur að máli hennar.

Ekki minnkaði hrifning sjálfstæðiskvenna þegar frú Ingveldur sagði þeim beint úr ræðustóli frá því hvernig hún refsaði Kolbeini fyrir afglöp hans smá og stór. ,,Til dæmis, til dæmis, þegar ég stóð hann og Máríu vinkonu mína Borgargagn að hórdómi undir jeppanum okkar útí bílskúr" hrein frú Ingveldur eins og geggjaður sigurvegari í 100 metra hlaupi, ,,greip ég hann hreðjataki og leiddi hann inní stofu með buxurnar á hælunum og lét alla viðstadda hlægja að kallsvíninu á meðan ég snöri því hring eftir hring á gólfinu."

Eftir mannauðsráðstefnuna vóru sjálfstæðiskonurnar í áttunda og níunda hymmni, mest vegna erindis frú Ingveldar, og staðráðnar í að innleiða mannauðsstefnu á heimílum sínum. Og þær gerðust væmnar og vemmilegar á leiðinni heim.


mbl.is Ef væmni er það sem þarf...
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar 3 X 15 ára karlmaður týndist í viku og ekki uppi á eldfjalli

gap_1268360.jpgBrynjar Vondalykt var þrisvar sinnum fimmtán ára og síður en svo staddur uppi á heimsfrægu eldfjalli, alræmdu heimkynni púka, djöfla og andskota, þegar hann rammviltist svo hrottalega, að allt útlit var fyrir að hann fyndist blessunarlega aldrei meir. Ónei, Brynjar Vondalykt var staddur um hánótt í myrkviðum Reykjavíkur þá hann villtist. Björgunarsveitirnar svipuðust líka um eftir Brynjari með hangandi hendi, því að þeim þókti síður en svo nauðsynlegt að hann kæmi nokkrun tímann í leitirnar, hann væri þannig maður.

Brynjar var týndur í viku. Það vissi aunginn hvar hann ól manninn, allrasíst hann sjálfur. Hinsvegar komust á kreik undarlegar kviksögur af þessu svartholi í lífi Brynjars. Ein sagan segir, að hann hafi, dauðadrukkinn og útúrdópaður, orðið kynvillunni að bráð þessa daga. Því til sönnunar var á það bennt, að karlálkan hefði varla getað staðið eða legið og alls ekki setið á rassinum í hálfan mánuð eftir að hann kom fram. Önnur saga hermir, að Brynjar hafi fallið í höndur fjögurra gamalla og grimmra kérlínga, sem hafi yfirspilað hann með lostafullu harðræði þessa eftirminnilegu viku.

hogg.jpgAð lokum kom uppúr dúrnum, að Vondalyktin hafði ekki verið jafntýnd og margir töldu. Hann hafði víst bara fallið fyrir fagurgala sambýlingana Máríu Borgargagns og Indriða Handreðs og gjörst þræll þeirra og rúmgagn í heila viku, frá föstudegi til föstudags. Ennfremur man þessi helvískur skelmir betur eftir umræddri viku en hann vill vera láta. Það er náttúrulega skítt og bölavað, að svona forhertur þorpari og eilífðargerpi skuli komast átölulaust frá því að láta sig hverfa fyrirvaralaust útúr mannlífinu í vikutíma, vitandi það að lögregla og björgunarsveitir eru dag og nótt að leita að honum, og stunda á sama tíma óguðlegt og ófyrirgefanlegt saurlifnaðarlíferni og hórdóm með öðrum eins skepnum og Máríu Borgargagni og Indriða Handreði. Satt að segja ættu að vera til lög frá Alþingi, sem heimiluðu dómstólunum að höggva þvílík óhræsi, eða að minnsta kosti að geyma þau í gapastokki fyrir kirkjudyrum í ótiltekinn tíma.


mbl.is 15 ára, rammvilltur og hræddur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slysfarir Máríu á blábrún Esjufjallgarðs

ingv3.jpgÞað muna víst flestir, sem á annað borð hafa minni, eftir því þegar Máría Borgargagn var borin ofan af Esju og færð inní sjúkrabíl, sem henni var ekið í uppað Landspítalanum við Hringbraut. Var sjúkraflutningamönnunum tilkynnt, að Máría væri hvort tveggja í senn, afar veik og stórslösuð.

Þegar komið var að Landspítalanum, sté Borgargagnið alheilt uppaf sjúkrabörunum og hljóp beint inná næstu knæpu og fékk sér vel útilátna hressingu, sem bæði kom heilsu hennar og hægðum í fullkomið jafnvægi. En sjúkraflutningamennirnir sátu eftir með sárt ennið og bölvuðu hinum brotthlaupna sjúklingi í sand og ösku og sóru við skeggrót Gjeirs Hoordý og Ingbjargar Sólrúnar, að hjúkra aldrei aftur kérlíngum af Esjutindum.

Sannleikurinn var sá, að Máría Borgargagn hafði árla morguns gengið á Esju með vel völdum vinum sínum. Þegar uppá fjallið var komið gerðist Máría svo ölmóð, að hún féll í trans. Hringdu á vinir hennar, sem áttu allir það sameiginlega að vera afar lítið læknisfróðir, á sjúkrabíl og tilkynntu um fárveika og stórslasaða konu á blábrún Esjufjallgarðsins og væri úr vöndu að ráða, ef hún ætti lífi að halda. Staðsetningin var ekki allnákvæm og máttu sjúkraflutningamenn leita býsna lengi að hinni dauðvona konu, sem var ekki veikari og meiddari en svo, þegar til kastanna kom, en að hún var næstum alheil orðin þegar dyrum sjúkrabifreiðarinnar var hrundið upp við spítalann og hljóp beinustu leið í næsta afrétting.  


mbl.is Báru slasaða konu niður af Esju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamli Pétur Þríhross og nútíma sósíalismi innblásinn af dekodeísku fjármálaviti

aunoktl.jpgPétur Pálsson Þríhross, framkvæmdastjóri í Sviðinsvík, kvaðst líka vera sósíalisti. Þeir sem lesið hafa Heimsljós gera sér væntanlega grein fyrir hverskonar sósíalisti Pétur Þríhross var. Þrátt fyrir að nokkuð sé liðið frá því Heimsljós kom út, lifir Þríhrossið góðu lífi enn þann dag í dag - allt of góðu lífi mundi margur segja - í vítt og breitt um svokallað atvinnulíf.
 
Eitt af þessum þríhrossum er Kári nokkur Stefánsson, sem ekki fyrir allmörgum árum gerði opinberlega gys af föður sínum, sem var alvörusósíalisti, fyrir að hafa stundað heimskulega pólitík í litlum skítaflokki. Gamli Pétur Þríhross í Heimsljósi starfrækti,ásamt með öðru, Sálvísindafélagið á Sviðinsvík, sem gerði út á annað líf og hymmnaríkisvist með aðstoð miðils, en þríhrossið Kári gerir út á annað líf með erfðagreiningarsjónhverfingum með aðstoð annarra þríhrossa og decodeísku fjármálaviti.

Þegar auðvaldspjakkar með þríhrossheilkenni taka til við að auglýsa takmarkalausa góðmennsku, manngæsku og sósíalisma í áróðurssneplum auðvaldsins, er tímabært að staldra við og fara að öllu með gát, einfaldlega vegna þess, að vont er þeirra ranglæti en verra er samt þeirra réttlæti.


mbl.is „Sósíalisti“ útþynnt hugtak í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í kvöld gerðu afglæpavæðingarandstæðingar aðsúg að heimili friðsamra borgara

ingv36.jpgFrú Ingveldur sagði í kvöld, á fundi í Félagi frjálslyndra vestrænna kvenna á Íslandi, að nú væri einmitt rétti tíminn til afglæpavæða allt sem tengist svokallaðri próstitútsjón, sem Íslendingar, af sinni alkunnu afdalaforræðishyggju, kalla vændi eða hórmang. Frú Ingveldur sagðist nefnilega vera orðin langþreytt á að borga sektir fyrir Kolbein einginmann sinn vegna heimsókna hans á hóruhús. ,,Þessir andskotar verða aldrei fullsaddir af að gera þjóðhagslega arðbæra karla á miðjum aldri ærulausa glæpamenn fyrir það eitt, að sinna kalli náttúrunnar á heilbrigðan og hagvaxtarjákvæðan hátt með því að kaupa dýra þjónustu á þartilgerðum heimilum," sagði frú Ingveldur og bætti við, að góð ferð eiginmanna á ,,bordel" væri sönn ávísun á margelfda hamingju í hjónabandinu, það gæti hún sjálf vitnað um af eigin reynslu.

Þá gaf frú Ingveldur minna en skít í afstöðu ófullnægðra háskólamera gegn afglæpavæðingarkonsert Amnesty International, og að þessar kynlegu frussur væru, margar hverjar, í sömu setningunni á móti afglæpavæðingu hórdóms en með afglæpavæðingu á sölu og neyslu LSD, heróíns og hassis. -Þetta er skömm og hneysa og það ætti að taka þessar hlussukérlíngar úr umferð ásamt meykörlunum sem hanga eins og hundar á roði í skottinu á þeim, sagði frú Ingveldur, -enda berjum við Kolbeinn og okkar vinir ævinlega svona fólk þegar það verður á vegi okkar! 

Þegar frú Ingveldur kom heim til sín, eftir að hafa flutt frjálslyndum vestrænum konum fyrlestur sinn, gerðu afglæpavæðingarandstæðingar aðsúg að henni og heimili hennar. Það kom hinsvegar andskotum frú Ingveldar í opna skjöldu, þegar hún, eiginmaður hennar og vildarvinir, þurstu fyrirvaralaust útá stétt og beindu byssukjöftum að þeim. Og án þess að svo mikið sem einu skoti væri hleypt af, flúðu afglæpavæðingarandstæðingar af hómi sem einar huglausar heybrækur og munu aðsúgsaðgerir þeirra úr sögunni.


mbl.is Vændi nær þrælahaldi en starfsgrein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að myrða selaunga getur dregið hræðilegan dilk á eftir sér.

hundsbitÞá eru þeir búnir að deyða selkópinn í Húsdýragarðinum, þennan dásamlega selkóp sem varð eftirlæti svo til allra landsmanna á fáeinum klukkustundum. Hvað það er í mannssálinni, sem gerir það að verkum að menn drepa og eyðileggja þjóðargersemar, er oss ókunnugt um, en ljótt er það og satanískt og skammarlegt. Já. Og hin illu öfl í mannssálinni sáu um, að litli, sæti og duglegi selunginn, sem þjóðin elskaði, var myrtur af yfirlögðu ráði. Þessu kaldrifjaða og miskunarlausa morði mun þjóðin ekki gleyma, svo morðinginn má fara að gá að sér.

Þá er ekki óhugsandi, að selaunginn gangi aftur og ofsæki morðingja sinn í svefni og vöku. Margir óhugnalegir morðingar af sama tagi og sá er drap litla kópinn í Húsdýragarðinum hafa sætt þeirri óhamingju í kjölfar morða sinna, að fórnarlömbin hafa gengið aftur og gengið frá morðingja sínum. Skotmaður nokkur í sláturhúsi á Suðurlandi vaknaði upp um miðja nótt, skömmu eftir að sláturtíð lauk, við að heil hjörð fórnarlamba hans var komin inní íbúð hans, jarmandi, hneggjandi og baulandi. Um morguninn var þessi sláturhússböðul færður í böndum inná sjúkrahúsið að Kleppi og þar verður hann geymdur í hundabúri uns yfir lýkur.

Svo var það maðurinn sem myrti úlfhund nágranna síns með einu dauðaskoti af löngu færi með hreindýrariffli, sá hélt nú að hann væri laus allra mála þá hefndin var í höfn. Úlfhundurinn hafði, af sínu dýrlega óþverraeðli, sér til sakar unnið að bíta konu morðingjans í innanvert og ofanvert hægra læri hennar, snúið uppá og rífið útúr. En nóttina eftir að hundurinn fékk hreindýrskúluna í kollinn, heimsókti hann morðingja sinn, grimmari og hroðalegri en hann hafði nokkru sinni verið í lifanda lífi. Og á hverri nóttu í heila viku ruddist vargurinn afturgenginn inní svefnskála morðingjans með stigvaxandi urri og glefsi. Morðinginn sá af hyggjuviti sínu, að ásóknum þessum myndi ekki ljúka nema á einn veg: Að draughundurinn myndi rífa hann í tætlur og drepa. Þessvegna hugkvæmdist honum, að verða á undan hundinum og því hengdi hann sig í kyndingarkompunni í dagrenningu. Hló morðingjanum hugur í brjósti er hann smeygði snörunni um hálsinn á sér, því hann vissi að það yrðu hundskrímslinu mikil vonbrigði er hann kæmi í heimsókn næstu nótt og gripi í tómt.


mbl.is Selkópnum lógað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérsveitin hljóp illilega á sig. Dómsmálaráðherra verður að rannsaka mistökin

polis3.jpgHvernig í fjandanum getur staðið á því, að sérsveit lögreglunnar skuli rjúka upp til handa og fóta og ráðast á káta krakka, sem voru að æfa sig í skotfimi við Þingvallavatn, af því að kófdrukknir fylliraftar, sem klöguðu krakkana, þóttust vera að veiða þar á stöng? Sem betur fer er svona æðibunugangur fáheyrður, en eitthvað hljóta stangveiðidólgarnir eiga innangengt í herbúðum lögreglunnar fyrst tekið er mark á ölæðisþruglinu í þeim. Þessar aðfarir eru í sannleika sagt hreint og beint hneyksli!

Ekki var sérsveitin send á vettvang þegar Kolbeinn Kolbeinsson skaut átta skotum í hefndarskyni af haglabyssu á eftir Brynjari Vondulykt í vetur, af því að Kolbeinn hélt að Vondalyktin hefði verið að atast í frú Ingveldi á óviðurkvæmilegan hátt. Ónei, þá sat sérsveitin sem fastast heima hjá sér, þrátt fyrir að allir nágrannar Kolbeins hringdu skelfingu lostnir í belg og biðu í höfuðstöðvar lögreglunnar útaf skothríðinni. Raunar var Kolbeinn í svo annarlegu ástandi, rétt eins og fylliraftarnir á bökkum Þingvallavatns, að honum tókst ekki að koma nema einu hagli á Vondulyktina, öll hin misstu marks. Að vísu skemmdust bílar og rúður brotnuðu í nærliggjandi húsum þegar höglin buldu á þeim, en aðeins eitt þeirra hæfði Brynjar Vondulykt, að vísu á óheppilegan stað, en þetta eina hagl rataði þó í mannhelvítið.

En úr því að sérsveit lögreglunnar þursti af stað, þá átti hún auðvitað að taka brennivínsveiðimennina með stengurnar úr umferð en láta krakkagreyin eiga sig. En það er ekki sama Jón og séra Jón og því fór sem fór. Ef dómsmálaráðherra væri með eitthvað sem líktist beini í nefinu, myndi hann leysa sérsveitina upp núna strax fyrir hádegi og láta handtaka yfirmennina, sem augljóslega bera ábyrgðina á þessum alvarlegu mistökum.


mbl.is Sérsveitin handtók ungmenni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband