Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2015

Flokksleysur sem víla ekki fyrir sér að bjóða uppá endalausa undanrennu

x8gtfzg.jpgEkki er seinna vænna, að sameina hugsjónalausu undanrennskjáturnar, sem fyrir einhver kyndugheit og misskilning hafa skipt sér í Samfylkingu og VG. Það er skemmst frá að segja, að umræddar flokksleysur, sem víla ekki fyrir sér að kalla sig vinstriflokka, eru einungis lélegir hægriflokkar með enn lélegri áhafnir. Og engu myndi muna þótt Össur og Álfheiður Ingadóttir myndu bæta galskap á borð við Pírata, Björtu framtíðina hans Gvöndar og Framsóknaróhræsinu við í púkkið.

x10.jpgÞað er ljóst, að Samfylkingin, og ekki síður VG, hafa skaðað og ruglað sósíalískar hugsjónir meira en villtustu forkólfar auðvaldsins öllum til samans hefir tekist með óhemju fyrirhöfn. Í því ljósi er fullkomlega eðlilegt og nauðsynlegt, að botnskrapið og undanrennuruslið, sem fylla allar vistarverur VG og Samfylkingarinnar, sameinist í einn tækifærissinnaðann hægriflokk. En hvort kjósendur láta glepjast til að kasta atkvæðum sínum á þessháttar pólitískt úrhrak, skal ósagt látið, en betra er að hafa loddarana á einum stað en mörgum.


mbl.is Samfylking og VG í eina sæng?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjartveikir apakettir og stagkálfar eiga að halda kjafti og lepja undanrennuna sína

piss.jpgMikið væri dásamlegt fyrir Birgittu að fá samþykkt viðskiptabann á Kína og draga það svo aftur daginn eftir - alveg eins og fulltrúi Pírata og hin hympigympin í Borgarstjórn Reykjavíkur gerðu í ísraelsmálinu góða. Fólk, sem aukiheldur efir verið kosið af almenningi til Alþingis og sveitarstjórnar, þarf ekki að móðgast né kippa sér upp á annan hátt, þótt það verði kallað íngjaldsfífl, blábjánar eða hreinlega kostulegir vesalingar eftir að hafa unnið afrek á borð við það sem meirihlutinn í Reykjavík vann á dögunum.

Það má búast við að Birgitta vilji ólm bætast í þann hóp hugleysingja, smámenna og undanrennuhænsna sem meirihluti og minnihluti Borgarstjórnar Reykjavíkur tilheyrir, enda hefir hún öll einkennin, sem prýða má þann skringilega flokk. Má af þessum ósköpum draga þá ályktun, að nú þyki það orðið fínt meðal stjórnmálafífla að míga í sig á almannafæri og helst eitthvað meira en það.

Frú Ingveldur lét hafa eftir sér í dag við hægrisinnaðan fjölmiðil (allir fjölmiðlar á Íslandi í dag eru hægrisinnaðir), að hjartveikir apakettir og heilabilaðir stagkálfar með meltingartruflanir ættu að láta ógert að flytja móðgandi tillögur um aðrar þjóðir, ekki síst þjóðir sem berar væru af fólskuverkum og yfirgangi. Hjartveikir apakettir og stagkálfar ættu að halda sig inni í bómullinni og lepja undanrennuna sína, en einkum þó og sérílagi að halda kjafti, því þessháttar fénaður gæti aldrei risið undir stríði við Ísrael, hvað þá Kínverja, svo sem nýleg dæmi sönnuðu svo um munaði.


mbl.is Vill sniðganga vörur frá Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þau þekktu ekki Ungverja

war3Flóttafólkið atarna hefði betur lesið kaflann um bardaga góða dátans Svejks og Vodicka hermanns við Ungverjana, en einkum ummæli hins veraldarvana Vodicka um þá voðalegu þjóð, áður en þeir römbuðu af stað til Ungverjalands eins og hverjir aðrir dauðans ráðleysingjar. En kaflanum líkur með því að þeir félagar eru handteknir og Vodicka segir við Svejk: - Þetta var ég margbúinn að segja þér, að þú þekktir ekki Ungverja.

Og nú þegar borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavík er búinn að afhrópa Ísrael og taka þá aftur uppað hjarta sínu á innan við tveimur sólarhringum, þá ætti minnihlutanum í Ráðhúsi Reykjavíkur að vera ljúft og skylt, að senda förumönnum frá Sýrlandi tóninn, sem og múslímum öllum, en hvetja Ungverja, sem minnihlutinn þekkir manna best, til dáða gegn hinum serkneska óþjóðalýð. Því að minnihlutinn í borgarstjórn er sannkristinn og í ofanálag fram úr hófi trúaður á hið Gamla testamenti. Og minnihlutinn á ekki að láta þar við sitja, heldur á hann að skora á alla sanna og sannkristna Íslendinga, að farga Passíusálmunum hans Hallgríms okkar sáluga Péturssonar, því ef í einhverri ritsmíð er samansúrrað gyðinganíð og hatur þá er það í þeim kvæðabálki (Hallgrímur heitinn kallar gyðinga júða í háðungarskyni). Ég geri ráð fyrir, að minnihlutinn gangi á undan með góðu fordæmi og brenni Passísálmana á báli fyrir framan sjónvarpsvélar og fréttamenn.

Frú Ingveldur, sem gefið hefir borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna mörg góð ráð, er mikill zíonisti og stuðningsmaður guðskristni. Ef að líkum lætur, mun hún ekki liggja á liði sínu við að sjóða saman öfluga tillögu fyrir borgarstjórnarminnihlutann gegn múslímagrýlunni, svo þessum öfgaruddum skiljist, að vér Íslendingar vilju ekkert hafa með bakpokavæddan tötraskríl frá Sýrlandi að gera, nema raka þá til síns heima með gaddavír, vélbyssuskothríð og eldsprengjum.


mbl.is Segir flóttafólkið ógna Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skelkaði haninn, voðaverk borgarstjórnar og móðgaður ,,hlandreður"

kol28.jpgÞað er hvurju orði sannara, að samþykkt tillögu borgarstjórnar Reykjavíkur um að sniðganga ísraelskar vörur hafi valdið miklu fjaðrafoki. Til að mynda laumaði Indriði Handreður öðrum hreyfanum undir hökuna á Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra og framsóknarmanni, þegar þeir rökræddu sniðgöngubókunina, með þeim afleiðingum, að Kolbeinn varð svo gott sem úr heimi hallur í nokkrar mínútur. Tilefni rothöggsins var ekki samþykktin sem slík, heldur varð Kolbeini á að mismæla sig, kallaði Indriða hlandreð í staðinn fyrir Handreð: ,,Heldur þú, Indriði hlandreður" vóru síðustu orðin sem Kolbeinn sagði áður en rökkrið og stjörnufansinn lögðust fyrir vit hans.

Ekki svo að skilja að Kolbeinn og Handreðurinn hafi verið efnislega ósammála um voðaverk borgarstjórnarmeirihlutans, fjarri fer því. Þeir vóru meira að segja hjartanlega sammála um, að Ísraelar ættu ekki að láta við sitja að taka á sig rögg og útrýma andskotans palestínupúkunum, heldur ættu þeir að kóróna listaverkið með því að kasta öflugri sprengju, hreinlega hroðalegri vítisvél, inná fund meirihluta borgarstjórnar og sprengja hann í eitt skipti fyrir öll aftur til Miðausturlanda. En að kalla virðulegan Handreð ,,hlandreð" er meira en ein brennandi eldsál getur þolað.

En nú er stríð Íslands við Ísrael lokið á farsælan hátt: Dagur Bé Eggertsson borgarstjóri lagði á flótta undan gjörðum sínum og Bjarkar eins og skelkaður hani, eftir að hafa lagt eld að ísraelssamþykktinni og brennt hana til ösku. Mun hugleysi Dagsins og lítilmennska verða uppi meðan land byggist.


mbl.is Umdeild tillaga hefur opnað umræðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frá fótskör meistarans til flugumennsku og hugrekkis

svin1.jpgLöngum hefir frú Ingveldur haft mætur á Björk Vilhelmsdóttur, enda nam Björk við fótskör frú Ingveldar og tók snemma að sér vandasöm störf fyrir meistara sinn. Fyrir margt löngu datt frú Ingveldi það snajallræði í hug, að gjöra Björk að flugumanni sínum og lét hana ganga í Alþýðubandalagið til komast að því hvað fólk væri að bralla þar á bæ. Björk fórst þetta vandasama starf svo frámunalega vel úr hendi, að eftir daga Alþýðubandalags var hún send í VG og þaðan fljótt inní Samfylkinguna.

Nú ber þess að geta, að frú Ingveldur er elsk að Ísrael að sama skapi og hún hatar áhangendur Múhámeðs. Þess vegna þókti henni þjóðráð, að senda Björk með tillögu gegn Ísrael inní borgarstjórn Reykjavíkur til að espa gott hægrisinnað fólk og gyðingasinna meir gegn Samfylkingunni og öðrum meirihlútapíslum í borgarstjórninni. Tillaga frú Ingveldar, sem Björk dró út pússi sínu á borgarstjórnarfundi, var svanasöngur hins undirgefna þjóns frú Ingveldar, því Björk sagði af sér um leið og tillagan var samþykkt og færð til bókar.

Á leynifundi hressra sjálfstæðiskvenna, sagði frú Ingveldur, að hún hefði af sinni óbrigðulu skarpsýni verið fljót að sjá, að Björk Vilhelmsdóttir væri njósnari og flugumaður af guðs náð, hugökk með afbrigðum, fylgin sér og passlega geðvond. Síðan vóru Björk þökkuð góð og óeigingjörn störf fyrir sjálfstæðiskonur og málstað þeirra.


mbl.is Eldfjall sem spúir hatri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu þeir myrtu nágranna sína þá er gullöld var

davi_2_1244720.jpgAuðvitað eigum við að taka á móti fjöldanum öllum af flóttamönnum, því fleiri því betra. Gott væri að taka við svo sem 10.000 til 20.000 til að byrja með og bæta síðan við eftir framboði. Ekki þarf að óttast að flóttamennirnir gangi ekki Guði og dágóðir eru þeir flestir aðdáendur Múhámeðs bónda í Mekka. Svona flóttamannastraumur gefur náttúrulega af sér fjölmörg tækifæri til framtíðar, hagvöxt, framleiðni og fleira gott.

En þetta sjá Framsóknarmennirnir ekki fremur en annað. Húskarlar og griðkur gömlu Framsóknarmaddömunnar í Framsóknarfjósinu þrá fátt heitar en að loka Íslandi fyrir flóttamönnum og sparka í rassgatið á Múhámeð. Þessi framkoma Framsóknarmannanna er þess eðlis og náttúru, að tímabært kann að reynast, að smala þeim öllum sem einum uppá hálendið og loka þá þar af í mannheldri girðingu.

Þeir Íslendingar, sem vilja endilega skella á nefið á bræðrum og okkar og systrum frá Sýrlandi, ku hræðast mest af öllu, að verða sjálfir múhámeðstrúarmenn ef flóttamönnum verði hleypt inní landið. Að sjálfsögðu yrðu Framsóknarmenn frábærir múhámeðstrúarmenn ef þannig skyldi verkast. Og kemur þar til, að gamla Framsóknarmaddaman hefir aldrei kristin verið, enda hefir hún megna skömm á boðskap litla sósíalistans frá Nazaret. Í laumi dáist hún af dugnaði araba við sveifla sverðum og vega hverja aðra; það minnir sanna Framsóknarmenn á kappa vora forna, þá er gullöld var, hversu þeir myrtu nágranna sína af einstökum hetjuskap og starfsgleði.


mbl.is Vilja taka á móti Sýrlendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Völundur og kona hans

ingv32.jpgVölundur, bróðir frú Ingveldar, henti það ólán á lífsleiðinni að kvænast grimmri konu og óskammfeilinni, sem auk þess er talsvert eldri en bóndi hennar. Hér fyrr á árum, barðist frú Ingveldur nokkrum sinnum við svarkinn mágkonu sína og þóktu það fremur hrottafengnar aðfarir og ekki til nokkurrar fyrirmyndar. Einhverju sinni sló mágkonan frú Ingveldi útí horn og lá hún þar talsverða stund í aungviti. Frú Ingveldur hefndi þerrara ófara með því að laumast aftan að Völundi bróður sínum og lauma múrsteini í hnakkann á honum. Féll þar Völundur í valinn og var borinn í brott af góðgjörnum mönnum, sem létu gera að sárum hans hjá lækni.

Og til að kvitta endnalega fyrir sig, orkti frú Ingveldur eina snotra vísu, sem hún tileinkaði bróður sínum og mágkonu:

Völundur með visinn púng
veltir sér á bakið.
Konan hans er ekki úng
og átti að fara í lakið.

Hefir verið fátt með þeim frú Ingveldi eftir þessa atburði og ætti svo sem aungann að undra.


mbl.is Benjamín við góða heilsu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvótasetning er hagkvæm og tryggir mestan afrakstur

xd1_1243790.jpgFyrst búið að kvótasetja flóttamennina þá hlýtur þetta allt að vera voðalega gott. Ég geng að því vísu, að kvótarnir séu eignarkvótar og séu framseljanlegir og að veðsetja þá í bönkum. Best er að kvótarnir séu á forræði vissra stjónmálaflokka til að tryggja að hagkvæmnin fái að njóta sín og afraksturinn verði mestur. Það væri ekki amalegt að fá að verða vitni að því, að forsætisráðherrann okkar, utanríkisráðherra og Vigdísi Hauks, með fulltingi gifturíka kaupfélagsstjórans, selji til dæmis Úkraínu dálítinn flóttamannakvóta til eignar fyrir gott verð og leigi þar að auki til eins árs 500 kvótasetta flóttamenn til starfsmannaleigu í Portúgal.

Nú hafa sæmdarhjónin, frú Ingveldur og Kolbeinn annarsvegar og Máría Borgargagn og Indriði Handreður hinsvegar, sammælst um að leigja 20 kvótaflóttamenn af ríkisstjórninni og nota þá sem selskapsþjóna í hinum frægu samkvmum, sem að jafnaði fara fram um hverja helgi að heimili frú Ingveldar og Kolbeins.

Eins og hver getur séð, þá felast mörg tækifæri í flóttamannakvótum, ásamt með tilheyrandi hagvaxtarvæntingum og framtíðarmjúsík. Því máttur kvótans í frjálsum markaðsmiðuðum samfélögum er mikill, ekki síður en Allah karls úr Arabíu.


mbl.is „Þetta er ekki nóg“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En um handtöku og fangelsun Lyngdalh-hjónanna ríkir grafarþögn

jarðarförÞað held ég fjandinn sjálfur megi vita hvervegna fimm menn vóru handteknir í heimahúsi í Breiðholti í dag. Sennilega hafa félagarnir gert eitthvað af sér, eða í að minnsta grunaðir um einhvern glæp. En af hverju lögreglupaurarnir þurftu að fara á fjórum bílum í heimsókn til mannanna er mér hulið, tvær bifreiðar hefðu dugað, jafnvel ein; það er vel hægt að koma fimm fót- og handjárnuðum delíkventum í skottið á steisjónsbíl.

Hinsvegar, og það er að sönnu miður, þá hefi ég aungva frétt séð um þann voðalega atburð, er átti sér stað síðastliðið vor, þegar átta rasssíðir og froðufellandi lögregludrjólar með lambhúshettur þurstu að tilefnislausu, og líklega með skambyssur og sprengjur í fórum sínum, inn á heimili Arnfreðs Lyndalh vörubifreiðararstjóra og eiginkonu hans og handtóku þau bæði og höfðu á brott með sér. Síðan hefir ekki neitt til Lyngdalh-hjónanna spurst, annað en það að þau sitji í einangrunarfangelsi. Ekki hafa þeim enn verið bornar á brýn nokkrar sakargiftir, og enginn borgar reikninganna þeirra meðan þau sitja inni, þannig að þau hafa hvorki þurft að játa neinu né neita.

Verulega syrti í álinn fyrir Lyngdalh-hjónunum í ágústmánuði þegar síra Baldvin tók að sér að leysa fangelsisprestinn af vegna sumarleyfis hans. Síra Baldvin hafði strax í fyrstu vitjun leyft sér að kalla þau hjón glæpahyski, úrhrök, mannleysur og pungrottur. Arnfreður og kona hans áttu auðvitað ekkert svar við boðskap síra Baldvins. Og þegar þessi tröllaukni afleysningaprestur fékk aungin svör né önnur viðbrögð, þá barði hann hjónin; hann sem sé leysti onum þau og flengdi þau eins og götustráka, sem framið hafa kirkjurán. Þett var aðeins fyrsta heimsókn síra Baldvins til Arfreðs og konu hans í fangelsið, en þeim fjögaði ört næstu daganna þar á eftir. Hvað um þau verður, er ómögulegt að segja, en eins og staðan er í dag munu þau varla losna úr fangelsinu fyrr en þau verða flutt dauð í líkkistu uppí kirkjugarð.


mbl.is Fimm handteknir í Breiðholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vegna tiltekta sinna á hann ekki neinn áfangastað

kolb16.jpgNú hefir mannauminginn Brynjar Vondalykt komið sér í þá stöðu, að hann getur ekki, sökum einkennilegra og andstyggilegra tiltekta sinna, valið sér áfangastað. Aðfaranótt laugardags var hann burtrækur ger af heimili frú Ingveldar og Kolbeins, og fyrr í vikunni tókst Máríu Borgargagni og Indriða hennar Handreði að koma honum úr húsi hjá sér með harmkvælum og illum átökum.

Ef til vill undrar einhvern, að hægt sé að haga sér svo hörmulega, að hann sé ekki lengur tækur á heimili fyrrnefndra sæmdarhjóna. Því er til að svara, að framferði Brynjars Vondulyktar var með þessháttar endemum, að sklít væri ekki sinusinni liðið að heimili góðkunningja okkar allra, Djöfulsins í Helvíti. Því miður er ekki hægt að skýra frá framferði Vondulyktarinnar á prenti þar eð það var fullkomlega óprenthæft.

Þó má svosem segja frá því, að Brynjar Vondalykt er, meðal annarra áverka, titlingsbrotinn eftir hrakfarirnar og gegur hann því með leyndarlim sinn í gipsi þessa daganna. Það þykir frú Ingveldi vel sloppið hjá þessum óþrifnaðarrafti, sem hún svo kallar, því hann megi þakka forsjóninni fyrir, að hafa ekki verið tekinn af lífi í bæði skiptin sem honum var varpað á dyr. Ennfremur áréttar frú Ingveldur, að glæpir Vondulyktarinnar séu einfaldlega þess eðlis, að jafnvel húðfláning, sem framkvæmd er á rólegan og yfirvegaðan hátt, sé of væg refsing fyrir þennan illþefjandi ónáttúrublesa.


mbl.is Geta ekki valið áfangastað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband