Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2017

Lofsverð prinsippfesta Skagamanna

ingÞað mega Skagamenn eiga, að þeir hafa aldei verið gefnir fyrir opinberan dónaskap og dólgshátt, ekki hvað síst á baðstöðum þeirra. Raunar eru Skagamenn svo siðmenntaðir að þeir eru heldur ekki gefnir fyrir óopinberan dónaskap og dólgshátt og bregðast gjarnan hart við ef þeim þykir eitthvað slíkt í uppsiglingu innan þeirra hreppsmarka. Það var því í fullu samræmi við prinsippfestu Akurnesinga, að vísa kvensniptinni, sem beraði brjóstablygðan sína blygunarlaust á baðstað þeirra á Jaðarsbakka, uppúr lauginni. Og að hin bersynduga kvinna skuli hafi leyft sér að steyta kjaft framaní laugarvörðinn þegar hann skipaði henni að pilla sig í fataleppana og hafa sig á brott af Akranesi.

Einhver mesta frammákona Íslands nú um stundir, fémínísti og sjálfstæðiskona, frú Ingveldur fer ævinlega berbrjósta í sund og enginn þorir segja neitt við hana. Það er siður frú Ingveldar þegar gengur til laugar að leggja leið sína beint í heita pottinn og þar fjarlægir hún neðri umbúðirnar og ,,spærrer ben" eins danskurinn segir, og enginn þorir segja eitt einasta orð nema hvað gamlir lostahrókar eiga það til að humma dálítið og slefa ofaní vatnið.

Svo gerðist það einusinni að laugarvörður, kvenkyns að vísu, bar fram styggðaryrði við frú Ingveldi þar sem hún naut lífsins í heita pottinum, sagði henni að hypja sig í baðföt eða uppúr ella, annars sækti hún lögregluna. Frú Ingveldur stóð hvasst upp í pottinum og seildist til hins kvenkyns laugarvarðar og dróg hana þegar á svartakaf ofaní pottinn og hefði drekkt henni þar eins og nýgotnum hvolpi ef nærstaddir hefðu ekki teikið til sinna ráða og hrifsað hinn dauðvona laugarvörð úr höndum frú Ingveldar. Þennan atburð létu laugarverðir sér að kenningu verða og hafa aldrei síðan vogað sér að blaka við frú Ingveldi allsnakinni í laugunum. 


mbl.is Berbrjósta vísað upp úr sundlaug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fryggðarfundur fáráðlinga

fool3.jpgHvaða eðjóti datt í hug að ljúga því uppá Dónald Trump að hann hyggi á friðarfund, mann sem velur aldrei frið ef ófriður er í boði? Þessi lygafrétt er svo andstyggileg, að jafnvel viltustu fáráðlingar hlægja að henni. Hinsvegar getur vel verið að Trumpur hyggi á fryggðarfund með honum Pútíni, því að þeir eru víst þannig kallar. Og að þeir ætli að hittast í Reykjavík er jafnvel enn fráleitara og heimskulegra en að þessir kónar setjist niður saman með frið í huga. Nei, piltar mínir, það er angandi skítalykt af þessari frétt og ekki ósennilegt að einhver kafni í henni áður en lýkur.

fool4.jpgAf Trump er víst helst að frétta, að það vill nákvæmlega enginn tónlistarmaður með snefil af sjálfsvirðingu og heilbrigðri dómgreind koma og taka lagið í innsetningarveislunni þegar Trumparinn tekur við embætti. Þó tókst að hafa uppá fáeinum undirmálsköllum, lítt frægum af öðru en ofstæki og sálarbilun, sem í ofanálag eru gott sem úr heimi hallir sökum ellihrumleika og öldrunargéðveiki, til að koma fram á innsetningarhátíðinni og öskra fáein samhengislaus ókvæðisorð í garð kommúnista, blámanna og múslima yfir lýðinn við stopulan gítarslátt og munnhörpuvein. Því má að sönnu búast við miklum hátíðarbæ yfir athöfninni þegar Trumpið verður innsett í embætti forseta Bandaríkjanna.

ingv54.jpgMikið hefir hann Trump nú við sig þegar maður fer að hugsa útí það, sagði frú Ingveldur æi morgun um leið og hún saup á fyrsta afréttingnum. Það eru einhverjir dularfullir og hrífandi kyntöfrar við manninn, sem koma manni vel í gang, bætti hún við. Það er alveg rétt, sagði þá Kolbeinn maður hennar sem var að vakna undir eldhúsborðinu. Það er ekki um að tala með þig vesalingur og krypplingur, hvæsti frú Ingveldur á móti, þú ert alltaf sami andskotans öfugugginn og saurleiðarkarlinn. Það væri réttast ég rotaði þig strax þarna undir borðinu svo ég þurfi ekki að heyra bofs í þér fyrr en undir kvöld, pervertinn þinn. Þar með var samtali sæmdarhjónanna, frú Ingveldar og Kolbeins, lokið að sinni.


mbl.is „Fréttin er fantasía“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dómsmálaráðherra sagði af sér og sendiherra rekinn heim

exd-ghrein-tverks_926085711.gifGjeir landsliðsþjálfari var svo reiður í dag, að jafna má við reiði nafna hans Haaardý eftir að frjálshyggjan hrundi lóðbeint í hausinn á honum. Þó tapaði Gjeir þjálfari aðeins með einu marki en Gjeir Haaardý tapaði með margra milljarða króna mun og var dreginn fyrir Landsdóm og síðan sendur í snarhasti til New York og gerður að sendiherra Íslands í Bandaríkjum Norðuramríku. Það var sko réttlæti! Annars hefir það verið lenska með okkur að verlauna lúsera og skaðvalda með sendiherraembættum hist og her um veröldina. Þessvegna þykir Íslendingum sendiherraembætti hláleg staða og skammarleg og sendiherra að sama skapi auðvirðileg trúðsfígúra.

polEinhvern tíma smöluðu Brynjar Vondalykt og Óli Apaköttur tveimur sendiherrum erlendra ríkja heim til frú Ingveldar og Kolbeins. Þegar leikar tóku að æsast og annar sendiherrann steindauður af áfengisnautn undir borði en hinn sendiherrann orðinn brjálaður og búinn að hringja á lögregluna útaf óvirðulegri framkomu húsráðenda og annarra gesta við hann, voru góð ráð dýr. Hinn óði sendiherra var með mikið og vel snyrt yfirvaraskegg, fyrir nú utan að vera vel klæddur. Þegar þau frú Ingveldur höfðu veður af því að lögreglan var á leiðinni tóku þau sendiherrann og snöru hann niður, rökuðu helminginn af yfirvaraskegginu burt og klæddu hann bæði úr utanyfirbuxunum og nærbuxunum. Þegar lögreglusveitin mætti á staðinn benti Kolbeinn Kolbeinsson húsbóndi henni á hinn hálfrakaða og berrassaða mann og tilkynnti þeim, að þessi náungi væri orðinn geggjaður og sýnilega bráðhættulegur öðru fólki. Lögreglan handtók manninn umsvifalaust og færði hann járnaðann til fóta og handa í dýflissuna.

x28Daginn eftir fór allt í bál og brand á lögreglustöðinni: Dómsmalaráðherra birtist þar alltíeinu um hádegisbil og heimtaði sendiherrann lausan þegar í stað, því að milliríkjasamband væri í veði og stórþjóð nokkur væri nú þegar farin að brýna kutana og ræsa út orrustuflugvélar til að ráðast á okkur útaf þessum sendiherra. Vakthafandi lögregluþjónar á stöðinni þekktu því miður ekki dómsmálaráðherrann í sjón og tóku til við að hlægja að honum og hóta honum að loka hann inni ef hann hefði sig ekki á brott af sjálfsdáðum. Allt þetta dró þann dilk á eftir sér að lögreglustjórum var vikið úr embætti, vakthafandi lögregluþjónar reknir og dómsmálaráðherra mátt segja af sér eins og ærulaus hundur. Sendiherrann var afturámóti sendur heim og settur í tugthúsið. Þau einu sem ekki sköðuðust af aðild sinni að þessu grófa máli voru frú Ingveldur og Kolbeinn og þeirra fólk. 


mbl.is Geir brást illur við spurningu mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sögur af skátum

skáti5Ég er vafalaust ekki einn um að hafa gaman af að heyra sögur af skátum. Skátar eru nefnilega ákaflega hægilegilegir og taka sér ýmislegt fyrir hendur sem teljast má vafasamt. Til að mynda var var frú Ingveldur rekin úr skátunum eftir hafa næstum því hengt eina skátastúlkuna í einhverum dularfullum hnútaleik. En áður en til brottrektrarins kom hafði frú Ingveldi líka tekist að tæla einn lítin skátastubb í afsveinun og fékk skátastubburinn heldur betur á baukinn hjá skátaforingjanum fyrir vikið.

Á sínum tíma var gamli Kolbeinn Kolbeinsson, faðir Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og framsóknarmanns, ægilegur skátahöfðingi. Hann fór með litlu skátana uppá heiðar og lét þá veiða lambfé með skátahnífana að vopni og steikja það síðan við varðeld. Af þessum veiðum urðu litlu skátarnir sálarlausir helvítisungar, sem gamli Kolbeinn gat látið gera hvað sem er. Þegar frammí sótti auðgaðsist Kolbeinn eldri mjög mikið á því nota púkastóðið til að draga björg í bú og er yfir lauk var varla til sú búðarhola á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess sem þeir höfðu ekki rænt að næturþeli. Einnig lögðu þeir eld að minnsta kosti 15 heyhlöðum bænda á Suðurlandi og sumstaðar tókst þeim að brenna sveitabæina lika ásamt öllum útihúsum hænsnum og griðungum. Þegar þar var komið sögu hætti gamli Kolbeinn að vera skátahöfðingi og gerist forstjóri og kaupfélagsstjóri og stjórnarformaður í fjölda fyrirtækja og félaga.

skáti2Drykkjuskapur var alræmdur í skátaliðssveit gamla Kolbeins og þar komst Kolbeinn yngri uppá lag með að vera fylliraftur. Gamli Kolbeinn hikaði heldur ekki við að siga skátadrengjunum, draugfullum og óðum, á menn sem honum var í nöp við eða þurfti að jafna reikningana við. Á þessum æsilegu árum fundust að minnsta kosti fjórir menn myrtir úti á víðavangi og voru lík þeirra undarlega illa út leikin, eins og villidýr hefðu þar um vélt. Margir lágu hálfdauðir í rúmum sínum þegar að var komið og konur þeirra líka. Öll voru fórnarlömbin sem komust lífs af út þessum hildarleikjum sammála um púkaskari með barefli, og stundum mannasaur í buðkum, hefði allt í einu verið kominn inní svefnherbergi til þeirra og barið allt í kaldakol. Ennfremur eru öll fónarlömbin aldeilis fullviss um að ófénaður sá er að þeim sókti hafi ekki verið af þessum heimi heldur beint neðan úr lægstu bústöðum Helvítis og væru send af sjálfum Erkidjöflinum til að berja á þeim. Eitt er víst, að allar götur síðan hafa atburðir þessir verið flokkaðir með yfirnáttúrlegum fyrirbærum, enda ólíklegt að nokkur trúi því uppá prúða skátadrengi að þeir ryðjist eins og drýsildjöflar inná vandalaust fólk til misþyrma því á herfilegasta hátt. 


mbl.is Bragi hættir sem skátahöfðingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öryrkjaplágan og lok búsetu á Íslandi

assEinhver versta plága sem þekkt er frá upphafi mannkyns, örykjaplágan, veður nú yfir lög og láð eins og Andskotinn sjálfur þa þeysireið. Auðvitað hafa Samtök atvinnulífsins, sem eru eru beintengd móðurlífinu að sjálfra þeirra sögn, miklar áhyggjur af öryrkjaplágunni og ætla í stíð við hana og ekki unna sér hvíldar fyrr en síðasti öryrkinn liggur hauslaus í valnum. Það er náttúrlega fjallgrimm vissa atvinnurekenda, að allir öryrkjar séu að leika, það sé ekkert að þeim nema skrópasýki; þessi kvikindi vilji ekki vinna og geri sér upp veikindi til að fá að vera á fóðrum hjá ríkinu.

En hjá Samtökum atvinnulífsin eru séðir menn, þó svo þeir hafi ekki séð við skrópagemlingunum, því þeir hafa komið sér upp þjóðskipulagi þar sem helftin af vinnudýrunum þeirra er ánauðugt fólk, bundið á skuldaklafa sem nær langt út fyrir gröf og dauða. Að þessu sinni er sem atvinnurekendum vanti fleiri þræla í þrælabúðir sínar og vilji því reka alla krypplinga útúr örorkuholunum og láta þá vinna þar til hægt er með góðri atvinnurekendasamvisku að henda þeim í ruslið. Og til að setja aðgerðina gegn örorkuskrópagemlingunum í vísindalegan búning eru sett upp línurit og súlurit til að fólk geti séð með eigin augum hvurskonar plága það er sem við er að eiga.

war2_1241493.jpgFyrir stuttu lýsti glæsilegur fulltrúi Samtaka atvinnulífsins því yfir á helgarsamkomu hjá frú Ingveldi og Kolbeini Kolbeinssyni, að vetrarhörkurnar, móðuharðindin, fjárkláðinn og stórabóla væru smámunir, hégómi og hismi, miðað við öryrkjapláguna og hið illa eðli hennar, skrópagemlingana og djöfullegt innræti þeirra. Ef fram héldi sem horfði endaði það með landauðn, því atvinnurekendur mundu gefast upp og flýja til Tortólu og skilja skrópagemlingana eina eftir með örorkuna og þeir væru allir dauðir úr uppgerð og ómennsku innan örfárra vikna og þá væri enginn eftir til að gefa hundunum.  


mbl.is „Þróunin getur ekki haldið svona áfram“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaldrifjuð og úthugsuð

x38Það voru ekki mistök af neinu tagi hjá Bjarna Ben að fela skýrluna um afreksverk íslenskra péníngaperverta á aflandssvæðum heldur kaldrifjuð og úthugsuð ákvörðun. Bjarni vissi sem var, að efni skýrslunnar gæti skaðað helstu auðvaldsflokkanna, Sjálfstæðisflokkinn, Framsóknaflokkinn og Viðreisn og haft af þeim fullt af atkvæðum í síðustu kosningum. Allir sem á annað borð hafa dómgreind í sæmilegu lagi vita að umræddir flokkar eru ekki stjórnmálaflokkar í þeim skilningi sem almenningur leggur í það orð heldur útsmognir og vel skipulagðir bófaflokkar, hverra meðlimir eru nánast þeir einu sem gera út á aflandssvæði, skattaskjól, tortólur og seseleyjar. Í Sjálfstæðisflokknum er það álitið frábært merki um manndóm að braska með peninga, stinga þeim undan skatti, leika á almenning og ríkið, arðræna, stunda lögbrot og yfirgang - þessi listi af óhæfuverkum af þessu tagi, sem liðsmenn ríkisstjórnarflokkana telja til dyggða, er næstum ótæmandi og ríma fullkomlega við orð organistans í Atómstöðinni, að við búum í þjófafélagi en ekki þjóðfélagi.

drunk1Á meðan allir fjölmiðlar hafa í allan dag lagt allt kapp á að sýna nýju ófyrirleitnu arðráns- og auðvaldsstjórnina í rósrauðu upphafningarljósi, sem aðeins hæfir sannhelgum mönnum, hefir mikið verið skálað að heimili frú Ingveldar og Kolbeins þó svo að gamanið þar sé í raun grátt og að í góðmennsku vegi menn þar hvern annan. Loft er sem sé lævi blandið um auðvaldsins víða völlu, þar með talið á fyrrgreindu sæmdarheimili. Einkum hefir húsmóðirin, frú Ingveldur, verið ofsakát og haldi hvurja snilldarræðuna eftir aðra. Best þókti henni takast upp þegar hún mælti fyrir minni frú S. Andersen, sem hún kallaði blessaðan, frjáhygginn sálarljóma, Konkordíu Íslands og skynsemis- og vitmannéskju af hæstu hæðum, svo eitthvað sé nefnt af góðgjörnum einkunnum frú Ingveldar í garð frú S. Andersen. Fljótlega uppúr hádegi slógust svo Kolbeinn húsbóndi Kolbeinsson og Brynjar Vondalykt bæði heiftarlega og hatramlega útaf Máríu Borgargagni, sem þó er eign annars manns, sem sé Indriða Handreðs. Þeir börðust eins og heljarmennum sæmdi og féllu báðir - fyrir krepptum hnefa frú Ingveldar. Skömmu síðar risu þeir upp frá dauðum og föðmuðust lengi og innilega þar til báðum var risið hold.

VargurinnÁ meðan þjóðin horfir agndofa af skelfingu á listann með nöfnum ráðherranna í nýju, tæru og hreinu auðvaldsstjórninni hefir Bjarni Ben ekki áhyggjur af skýrslunni um umsvif og afrek sjálfstæðismanna allra flokka á aflandssvæðum. Áhyggjuleysi hins frækna engeyings helgast af óbrigðulli gleymsku sótsvarts almúgans, sljóleika hans, dómgreindarleysis og heimsku; en þeir sem haldnir eru fyrrgreindum eðliskostum verða aldrei hættulegir gráðugri og svikulli yfirstétt. En ef svo illa vildi til að þjóðin rumskaði úr auðvaldsrotinu og færi að dinglast með mótmælaspjöld niður á Austurvöll gæti hræðileg skriða farið af stað sem mundi kaffæra Bjarna Ben, Sjálfstæðisflokkinn, Viðreisn og Bjarta framtíð - já, og Framsóknarflokkinn líka - svo hressilega að öll sú hersing mundi ekki ranka við sér enn henni hefði skolað á land á einhverri sólríkri aflandseyju og aunginn í þeim flokki ætti afturkvæmt til Íslands. Megi Guð, Drottinn, Múhámeð, Grettir og Glámur blessa og varðveita Bjarna Ben og hans auðvaldsstóð.   


mbl.is Kannski mistök að geyma skýrsluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynjahallinn léttur leikur og lýðurinn mun spila með ...

kol_1063155.jpgHönum Bjarna okkar hérna Ben munar ekki um að skella skella hárkollu á hausinn á Brynjar Níelssyni, Guðlaugi a. Þórðarsyni og honum Ásmundi Friðrikssyni, mála þeim um vörurnar og í framan og færa þá í dragt og hælaskó áður en hann fer með þá suðrá Bessastaði til að láta mynda nýju ríkisstjórnina. Þar með getur Bjarni sagt með eins góðri samvisku og hann hefir yfir að ráða, að rúmur helmingur ráðherra Sjálfstæðisflokksins séu konur. Hann hefir nú kynnst öðrum og meiri sjónhverfingum hann Bjarni. Og landsmönnum mun þykja skemmtilegt að horfa á Brynjar, Gulla og Ása tipla um á hælaskónum og trúa því að þeir séu kvinnur af ekta háborgaralegu glimmerstandi.

Benzi boy from Chicago og Ó. Proppi, sem að vísu teljast karlkyns, geta skrækt eins og gelgjugálur, svo ekki þarf að hafa áhyggjur af kynjahalla í sambandi við þá. Þannig verður ekkert að vanbúnaði fyrir Fémínístafjelag Íslands að lýsa yfir sérstakri velþóknun á verðandi ríkisstjórn. Og Kvennréttindafélag Íslands mun strax lýsa yfir stækri ást sinni á stjórn Bjarna og færa til bókar að stórum áfanga hafi verið náð í réttindabaráttu kvenna. Aðeins afdalafífl og fjallagrasaætur fara í fýlu, en það kemur ekki að sök, því þau endemi eru hvort sem er alltaf afundin og í neikvæniskasti. Og mikið má vera ef gamla góða Framsóknarmaddaman tekur ekki pelann undan koddanum og skálar við sínar fræknustu fjósakonur.

strandMikið gott er í vændum. Heilbrigis- og menntakerfið verða nú látin grotna niður með tvíelleftum hraða unz ekki verður undan því komist að eikavæða allt helvítis klabbið atarna. Fiskurinn í lögsögunni verður formleg einkaeign hinn góðu sægreifa og braskarar og stóreignaburgeisar verða leystir endanlega undan þeirri vondu kvöð að greiða skatta, enda er skattheimta af soleiðis fólki hreinn og klár þjófnaður, ránskapur, dónaskapur og síðast en ekki síst óeðli. Brátt verður mokað yfir Ríkisútvarpið og eignir ríkisins í fjármálastofnunum gefnar frændum og vinum. Niðurstaðan af þessu öllu verður besti heimur allra heima, - í það minnsta réttlátasta skipulag allra skipulaga. 


mbl.is Fer ekki út fyrir þingflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Símon dalaskáld og Guðmundur dúllari tuttugustu og fyrstu aldar

x40Enginn, hvorki fyrr né síðar, hefir áttað sig á ,,stjórnmálamanninum" Ó. Proppa; sama má segja um pólitísku samtökin sem hann hefir ,,starfað" fyrir, þ.e. Besta flokkinn og Björtu framtíðina. Langflestir sem hafa kosið þessi ósköp hafa ekki gert það vegna þess að þeir hafi verið meðvitaðir um fyrir hvað þetta hefir staðið, enda hafa frambjóðendur þessara lásí- og lúseraframboða ekki haft minnstu hugmynd um það sjálfir. Í gegnum alla þokuna og leikaraskapinn hefur þó ætíð glitt í mjög hærisinnað hugarfar, frálhyggju og mérerandskotanssamaisma. Á hinn bóginn hafa ruglaðir kjósendur litið til Besta flokksins og þeirrar Björtu sem einhverskonar vinstri anarkí uppreisnarafla, sem þeir hafa þó aldrei verið, sérstaklega ekki Bjarta framtíðin sem í besta falli er óheiðarlegur félagsskapur hægrislúberta.

paunk1Frú Ingveldur minnist Ó. Proppa sem vankaðs hægrigutta sem erfitt var að botna í. Hann hafi slangrað oftar en einusinni inná heimili hennar og Kolbeins í algjöru tilgangsleysi og verið til leiðinda. Þeim leiðindum hafi ávallt verið bjargað fyrir horn með því fleygja þessum leiðinlega vankasauði út. Brynjar Vondalykt ber, að auðséð hafi verið að Ó. Proppi hafi verið kynlega leiðitamur og auðvelt að láta hann trúa því að hann væri spes og mikilvægur, sem benti til að hægt væri að nota hann til pólitískra blekkinga. Nú hefir sem sé komið í ljós að Ó. Proppa hefir tekist að vafra eins og höfðuðsóttarkálfur um refistigu íslenskra stjórnmála með þeim hlálega árangri að hann er nú við það að leggja rassinn sinn litla við setuna á ráðherrastóli. Geri aðrir betur.

x39Nú, tvíeykið Benzi og Ó. Proppi er af fróðum mönnum talið það einkennilegasta og kyndugasta síðan Símon dalaskáld hafði Guðmund dúllara sér til halds og trausts og gerði hann að skrifara sínum. Þegar þeir Símon og Guðmundur ösluðu um götur Reykjavíkur á sínum tíma þá fór sú athöfn þannig fram, að skáldið gekk á undan en skrifarinn í humátt á eftir, því að Símoni þótti ekki tilhlýðilegt að þjónninn gengi við hlið meistarns á götu. Á sama hátt og Símon dalaskáld og Gvendur dúllari birtust Reykvíkingum á nítjandu öldinni koma Benzi og Proppi fyrir sjónir landsmanna á þeirri tuttugustu og fyrstu; einlægt stormar Benzi á undan með bringuna sperrta en Proppi fylgir í kjölfarið eins og fyrirburður sem veit ekki hvert hann er að fara. Einn er þó munur á: Símon var þó dalaskáld en Benzi er aðeins braskaraskáld, tónlist Guðmundar var listilegt dúll en hljóðmengun Proppa einungis fáránlegt og ámátlegt garg.


mbl.is „Við eigum eftir að ræða málin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samherja-Konni er gróflega öflugur sjóvíkingaforingi

myndir_520.jpgÞá líkaði sjóurum öllu betur við boðskap Samherja-Konna, sem fer núna fyrir Sjómannasambandinu, hann ætlar að semja fyrir sjómenn á morgun og ekkert múður með það. Og ef sjómenn fella enn einu sinni þá semur Samherja-Konni aftur fyrir þá og þannig koll af kolli uns sjóararnir vita ekki lengur sitt rjúkandi ráð og gefast upp og lyppast eins og barin hundsspott útá sjó til að afla gjaldeyris fyrir þjóðina og fylla uppí kvótann fyrir útgerðarslektið. Þá, en fyrr ekki, klappa Samherjarnir á kollinn á Samherja-Konna og klóra honum bak við eyrun svo hann ýlfrar af vellíðan.

Já, það er ekki ónýtt fyrir hetjur hafsins að eiga sona gróflega öflugan foringja, sem stendur einn í stefni og höggur mann og annan, fyrir aftan sig. 

sjoari0.jpgÞað verður líka gaman að sjá þegar Samherjarnir reka sjóarana syngjandi sæla og glaða úta opið haf eftir að Samherja-Konni hefur organísérað þá. Það rifjar upp þá dásemdartíma þegar stórbændur ráku vinnumenn sína í verið um hávetur um þvert og endilangt landið. 


mbl.is Ósáttir við misvísandi málflutning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvur getur sannað að hann sé ekki kvennamaður góður?

bóndiOss skortir ennþá öll gögn sem sanna að Brynjar þessi sé ekki kvennamaður góður. Á meðan svo er, þá er það ekki minna en svívirðilegt að bera honum á brýna að vera á móti konum. Nú er oss heldur ekki enn kunnugt hvort karlinn á sér eiginkonu eða ekki. En ef hann á eiginkonu og máske dætur líka þá má telja næsta víst að hann sé með konum en ekki á móti þeim. En ef farið er yfir kvennforða þingflokks sjálfstæðismanna þá er ekki að undra, að gamli maðurinn verði úfinn og orðljótur þegar hann rennir augum sínum yfir þingheim. Svo er Brynjar öldungis ekki viss um hvors kyns fornmannsfígúra Björtu framtíðarinnar er, enda er Brynjar ekki þjálfaður í kyngreiningum, sem er mikið fag og einungis á færi glöggra og gáfaðra manna.

ingv32.jpgÞað má svo sem vel vera, að einhverjar friðlausar kerlingar hafi fengið augastað á Brynjari til að berja á honum með öllum tiltækum fémínískum lurkum og kvennlægum heykvíslum. En Brynjar er aungin kolbítur heldur karskur karl sem er óhræddur við að finna kérlíngar í fjöru hvað sem þær kunna að vera margar saman. Þá er og vitað að frú Ingveldur hefir miklar mætur á Brynjari og talar stundum um hann sem sinn eingetinn son. Það eru ekki svo lítil meðmæli.

kick3_1045735.jpgEf fer sem horfir, þá er gott útlit fyrir að Bjarni Ben og Benzi frændi hans verði hrópaðir niður innan skamms og þá veður vonapéníngur Sjálfstæðisflokksins formaður flokksins og jafnframt forsætisráðherra og sennilega líka dómkirkjuprestur. Þá verður gaman að lifa - fyrir suma. Og soleiðis formaður splæsir ekki ráðherrastólum undir gelgjugæsir, þvert á móti mun hann rífa slíka stóla undan rassgatinu á þeim og senda þær í helgarsamkvæmi hjá frú Ingveldi og Kolbeini manni hennar.


mbl.is Hefur ekkert á móti konum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband