Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2017

Það er einhver ískyggilegur andskoti í kortunum núna ...

Stjórnmálamenn í dag eru mikið samtölum, þeir eru hættir að funda eða vinna sameiginlega að málum, þeir leggja stund á samtöl og innan tíðar verður eflaust aflagt að hafa fundi á Alþingi, í þeirra stað koma samtöl á Alþingi. Satt að segja er er þetta samtalakjaftæði dálítið hvimleitt, tilgerðarlegt og ber vott um takmarkaða íslenska málkennd. Þó má eflaust segja að þegar Bjarni og frú Andersen vóru að leggja á ráðin með pukurmálið atarna, sem varð stjórn Bjarna að falli, hafi það verið samtal tveggja einstaklinga. En þegar frú Bjarkey Ólsen, sem nefnir samtöl í að minnsta kosti annarri hvorri setningu, sest niður með hópi fólks í sérstökum tilgangi, þá er það frekar fundur, samkvæmt mínum skilningi, en samtal.

chik1.jpgEn hvað samtölum og orðræðum líður í hausnum á stjórnmálafólki, þá hafa stórnarmyndunarviðræðururnar sinn gang. Til að mynda er eins og einhver óknyttaoemur hafi stungið á vinbelginn Loga, því úr honum er allt loft sem stendur og hann minnist ekki einu orði á ESB, vondan gjaldmiðil eða enn verri rolluskjátur. Næsta ótrúlegt er þó, að krataeðlið hafi fokið allt sisona úr kallhjassanum. En það er samt eitthvað ískyggilegt í andskotans kortunum núna. Það má merkja á skapferli frú Ingveldar, en það er þungt sem blý og hún er viðskotaill og notar óheflað orðbragð venju fremur. Og það er vitað að depurð frú Ingveldar á rót að rekja til þess hræðilega gruns, að Sjálfstæðisflokkurinn á verulega á hættu að lenda í stjórnarandstöðu, og Miðflokkur panamaprinsins líka.

Enda er það dapurt hlutskipti fyrir óðalsbændur af kalíbéri Bjarna Ben og Sigmundar að verða utangarðs og utangátta og hafa ekkert fram að færa annað en panamaskjöl og aragrúa annarra skandala, sem of langt er upp að telja. Og ekki er hitinn minni undir rössum skrímsladeilda Sjálfstæðsflokksins, en sambærilegar deildir Miðflokksins hafa því miður hvorki vit né þroska til að skynja hættuna af utangarðsvánni sem vofir yfir þeim. Þó má telja líklegt að Sigmundur Dávíð, bóndi og bústólpi að Hrafnabjörgum, muni mæta minnihlutahlutskipti Miðflokks og Íhalds með því að leggja en meir áherslu en áður á að skrópa í vinnuna, sem einhverjir grínarar og roknakjánar kusu hann til. Ef heldur sem horfir með þann mann, mun hann innan skamms tíma hljóta Stórriddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu fyrir að vera langfremsti skrópagemlingur íslandssögunnar, en það ekki svo lítil upphefð af manni af þessu kalíberi.  


mbl.is „Afslappað og ágætt svona“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frú Ingveldur og Borgargagnið á Mímisknæpu í kvöld

ingv44.jpgSvo er að sjá á myndum af samkvæmi efri-millistéttarfémínísta á Mímisbar, að kerlingarkjökrin hafi í staupinu þó það sé einungis mánudagskveld í kvöld. Sennilega mun samkoman leysast upp í drykkjuþrugl, rifrildi og slagsmál þegar líður á og þá verða þjónarnir á Mímisbar að hringja í eignmenn hinna drykkjuóðu og árásargjörnu kvenna og biðja þá náðarsamlegast að sækja kerlingar sínar, annars verði lögreglan beðin um að hirða þær. Þó svo það megi undum sæta, að nokkur einasta manneskja skuli leggjast svo lágt að sinna kalli Sóleyjar Tomm Fílí Romm Bomm Bomm og storma til fundar við hana á alræmdri knæpu vestur á Melum, má til sanns vegar færa, að fáeinar fraukur af Sjálfstæðisflokknum hafi hrokkið fyrir borð í kosningunum á laugardag, allt remmilegar yfir- og efri-millistéttarskonnortur með reist spurð og doríur í eftirdragi. Auðvitað runnu þessar hrakfarir auðvaldssinnaðs kvennpénings frú Tomm svo ákaflega til rifja að hún tók sig upp frá Hollandi í einu hendingskasti til að boða vonsviknum íhaldskvinnum frelsunarguðfræði kvennaframboðs til sveitarstjórna.

Og ekki þekki ég bakhluta sæmdarkvennanna frú Ingveldar og Máríu Borgargagns rétt, ef nefdir bakhlutar sjást ekki á einni myndanna frá staupagleði yfir- og efri-millistéttarfémínísta á Mímisknæpunni. Enda hefi ég sannspurt, að fyrgreindar sæmdarkonur, frú Ingveldur og Máría Borgargagn, lögðu leið sína á Mímisbar í kvöld. Og ef mér bregst ekki því meir, þá munu þær stöllur láta hnúa og hnefa standa fram úr ermum og ekki mun örgrannt um einhverjir liggi í valnum að leikslokum með blóðug trýnin. Öll munum við greinilega eftir þegar frú Ingveldur sló heilan fund skartklæddra sjófstæðiskvenna niður fyrir að vera ósammála henni um tiltekna tegund af ilmvatni. Þær höfðu haft vel í staupinu það kvöld og frú Ingveldur haldið freyðandi hvatnigarávarp, en so lenti allt í uppnámi útaf því hvaða gerð af steinkvatni eiginkona forsætisráðherra notaði.

Þá hefir frú Ingveldi, sem kunnugt er, vegnað vel í hörðum leik við karlkynið. Oftlega hefir hún barist við viðsjárverð ómenni eins og Kolbein eiginmann sinn og Brynjar Vondulykt og ævinlega haft betur; má heita kraftaverk að hún hafi ekki gengið af þeim dauðum og bundið þá á afturlöppunum upp í snúrustaur. Eitt sinn, og það hefir gerst oftar, kom frú Ingveldur að eiginmanni sínum, Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra og framsóknarmanni, í óleyfilegum og ósæmilegum ástarleik við Indriða Handreð, eiginmann Máríu Borgargagns. Skipti aungvum togum, að frú Ingveldur reif þessa andskotans ódáma upp á rassgatinu og slengdi þeim saman svo báðir lágu með buxurnar á hælunum í öngviti, - lengi. Þegar svínin rönkuðu við sér vóru þau ekki alveg af baki dottin, því þau kærðu frú Ingveldi fyrir grófa líkamsárás og morðtilraun til lögreglunnar. - Jæja, sagði Hálfdán varðstjóri og fleygði þeim báðum með fyrirlitlegu lostaglotti á vör inn í sama klefann og fór sjálfur á eftir þeim og læsti að sér. Eftir að Hálfdán hleypti þeim út minntust þeir aldrei harðsnúin fangbrögð og fantaskap frú Ingveldar, né kæru af nokkru tagi. 


mbl.is Hópur kvenna ræðir nýtt framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spámenn svívirtir í sínu föðurlandi

skrattaskrifHelvítis hundspott eru þetta sem kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Þeir mæta í kjörklefann á kjördag og gera sér lítið fyrir og strika yfir nafn fomanns Sjálfstæðisflokksins, eins og hann hefir nú fórnað sér fyrir fólkið í landinu af þessum einstaka dugnaði og fórnfýsi er vart á sinn líka í víðri veröld. En kjósendur eru vanþakklátar bykkjur, illgjarnir, heimskir og fólskir, og sjá sig skjaldan úr færi við að ata sína bestu menn auri og óþrifnaði úr launsátri. Hefir ekki Bjarni formaður ásamt Sigmundi Panamaprinsi tekið við Gamla Íslandi endurreistu út bölvuðum lúkunum á Steingrími og Jóhönnu og græjað upp fyrir okkur nýju góðæri og nýjum niðurskurði til heilsubótarmála? Og þessu svar kjósendur Sjálfstæðisflokksins með því að draga strik yfir nafn hins blessaða Bjarna á kjörseðlinum.

Vanþakklæti heimsins er niðurdrepandi og ósvífið, því að ,,heimsins ásýnd hún er ill og heimsins náttúra" eins og skáldið segir á völdum stað. Örfáum misserum áður áður en en kjósendur birtust með útstikunarblýhanta í kjörklefanum hafði þingflokkur Framsóknarflokksins, og síðar landsþing sama flokks, rekið hinn kraftaverkamanninn, Sigmund Dávíð, af höndum sér og varpað honum í boði gömlu Framsóknarmaddömunnar á haus ofan í dýki Framsóknarfjóshaugsins. Þjóð sem fer svona illilega með sína langbestu menn á fátt gott skilið, eiginlega bara ekki neitt. Það væri réttast að flytja þennan fjandans lýð upp á heiðar í einhverju fjarlægu landi og láta hann gleymast þar um aldur og ævi.


mbl.is Oftast strikað yfir nafn Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og þá stökkur fram Sóley Tomm Fílí Romm Bomm Bomm

x17Ekki voru atvinnupólitíkusar til Alþingis fyrr búnir að ganga hér um bil af þjóðinni dauðri með einstökum leiðindavaðli, yfirboðum og hreinum lygum þegar fram á sjónarsviðið stökkur sú óskemmtilega persóna, Sóley Tomm Fílí Romm Bomm Bomm, og hrellir fólk með hótun um ,,kvennaframboð" til sveitarstjórnarkosninga í vor. Fyrir ekki alls löngu tilkynnti þessi sama Sóley, að hún væri hætt í stjórnmálum og flutt til Hollands. Var mörgum þá létt, því satt að segja hefir manneskjugarmurinn orðið mögum til leiða með yfirborðsheimskutauti sínu og dólgafémínísma. En, nei ónei, fyrr en varði hefir Sóley Tomm Fílí Romm Bomm Bomm skotið upp aftur, dálítið áður en nokkurn óraði fyrir, og það á Hótéli Sögu.

Nú hefði maður ætlað að dólgafémínístanum Sóleyju og hennar slekti og púkafans hefði verið kappnóg að leggja VG undir dólgafémínísma, og ennfremur Samfylkinguna, og eyðileggja þá flokka báða og gera þá nánast að örvita náttúruleysingjum. En ekki alveg, - nú skal gera tilraun til að fullnægja dólgafémínískum og blautum draumum frú Tomm með ,,nýju kvennaframboði", eins og Kvennaframboðið gamla og Kvennalistinn vóru nú sérlega geðug og velheppnuð fyrirtæki; en bæði fyrirbrigðin luku ævi sinni með glæsilegu gjaldþroti.

Þá væri aldeilis nær fyrir Sóley Tomm Fílí Romm Bomm Bomm, að ganga í Sjálfstæðisflokkinn ásamt með dólgafémínístatítunum sínum, og leggja þann óskapnað í rúst með landsfrægum eftimillistéttarleiðindum sínum, öfgum og snobbi. Stéttarlega á frú Tomm hvergi betur heima en í Sjálfstæðisflokknum við humarát og hvítvínsþamb. En best væri náttúrlega að Sóley héldi bara áfram að vera í Hollandi með subbuskap sinn og dólgafémínísma, þó svo að Hollendingar eigi vart skilinn útflutning Íslendinga á Sóley Tomm Fílí Romm Bomm Bomm til þeirra, en í þeim efnum má þó segja að tilgangurinn helgi meðalið og mestu máli hafi skipt að frelsa Íslendinga frá varginum.


mbl.is Ræða mögulegt kvennaframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grátkona og skrópagemlingur saman í glæsijeppa á hlaði Bessastaða

landroverGetur verið að skrópagemlingurinn, sem lítið sem ekkert hefir mætt til vinnu sinnar, sem hann er þó kosinn til af almenningi, í eitt eða fleiri ár, hafi efni á einkabílstjóra til að transporta með sig út og austur? Og er ekki eitthvað bogið við, að fátæka konan sem grét hástöfum yfir örbyrgð sinni og annarra á föstdagskvöldið síðasta framan í gjörvalla þjóðina, sé nú á mánudag sest upp í glæsijeppann hjá forríka skrópagemlingnum, sem kvað vera svo ógn ríkur að hann verður að geyma eitthvað af milljonunum sínu á Tortólu í Panama? Kemur þetta kompaní keyrandi saman suður á Bessastaði til að skemmta fólki, láta hlægja að sér?

ingv32.jpgÞað hefir svo sem leikið grunur á að skrópagemlingurinn og bláfátæka grátkonan væru kær systkyni í útlendingaandúð og rasisma, hitt var eftir vill mönnum hulið að þau væru slíkir sálarmakar að ekki einusinni stjórnarmyndunarviðræður gætu slitið þau sundur. Með þessu uppátæki þeirra skötuhjúanna hafa þau stimplað sig út úr pólitík á Íslandi, einum og hálfum sólarhring eftir að þau stimpluðu sig inn. Geri aðrir betur.

Eflaust eiga einhverjir eftir að gagnrýna Guðna Th. forseta fyrir að hafa hleypt skrópagemlingnum og grátkonunni inn fyrir þröskuld á Bessastöðum í stað þess að setja hundana á þau og reka þau úr túninu eins og hvurja aðra óvelkomna garðára. En Guðni Th. er maður kurteis og eymingjagóður og sparsamur á hunda embættisins, svo að hann hefir boðið þeim inn; að minnsta kosti bauð hann skrópagemlingnum til borðs hjá sé og lét færa honum súpu, sem að uppistöðu er ámóta nærbuxnaseyði og Jón sálugi Hreggviðsson fékk þegar hann bjó í Svartholinu á Bessastöðum. Hinsvegar herma fréttir frá Bessastöðum og grátkonan hafi setið sem fastast í aftur í glæsijeppanum skrópagemlingsins og verið svo ógnvekjandi í framan, að huglausir fréttanápar lögðu á flótta því þeir héldu að þarna sæti sjálf Grýla gamla og væri vís með að hoppa út úr jeppanum og éta þá eins og hvurja aðra óþekka krakkaskratta.


mbl.is Inga Sæland sat í aftursætinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vér erum með þjóðhöfðingja vorum í andanum í dag í hans skelfilegu raunum

xd5_1245691.jpgHugur vor verður óskiptur með blessuðum öðlingnum honu Guðna Th. forseta í dag, því hann á von á gestum og ekki öllum jafngóðum. Fyrsti gestur á Bessastaði nú í morgunsárið hefir að til dæmis með sér að vera vart í húsum hæfur, enda fer sá náungi fyrir samtökum sem eru öldungis óstjórntæk því að þetta er óaldarflokkur. Það hryggir oss meir em tárum taki, að Guðni Th. hafi valið sér þann beisla kaleik, að hefja daginn með því að eiga orðastað við slíkan grallaraspóa, sem því miður er einlægt álitinn vágestur flestum öðrum húsum.

hundsbitVér vonum þó staðfastlega, að fyrsta gesti að Bessastöðum í dag takist ekki að eitra andrúmsloftið, svo á forsetasetrinu, að afgangurinn af deginum ónýtist, forsetin verði sálsjúkur og verði fluttur á heilsubótarhæli fyrir miðnætti og við taki langvinn stjórnarkerppa. Af fyrrgreindum sökum, hafði verið heppilegra að láta náungann frá óaldarsamtökunum mæta afgangi og tala við hann síðastan af öllum. Enn skynsamlegra hefði þó verið fyrir þjóðhöfðingja vorn, að sleppa því alveg að tala við þennan mann; og ef hann hefði samt sem áður látið aka sér suður að Bessastöðum og reynt að troða sér þar óboðinn inn þá væri Guðna Th. í lófa lagið að siga hundum forsetaembættisins á þrjótinn og láta þá reka hann á hlaupum til fjalla.

ingv40_1243782.jpgEn þó að gestgangur verði á Bessastöðum í dag, þá var ekki aldeilis að forsetinn fengi að taka hvíldardaginn heilagan í gær. Frú Ingveldur brá nefnilega undir sig betri fætinum og heimsókti forsetann fyrirvarlaust upp úr hádegi og þjarmaði að honum. Erindi hennar var í sem fæstum orðum á þá leið, að forsetinn boðaði þá Bjarna Ben og Sigmund Dávíð báða á sinn fund undir eins og færði þeim í höndur stjórnarmyndunarumboð, og sjálf mundi hún, þ.e. frú Ingveldur, sjá um að afla þeim þann þingstyrk er nægði þeim til meirihluta á Alþingi. Að vísu fór Guðni Th. undan í flæmingi, en frú Ingveldur króaði hann af úti í horni og setti upp þvílíkan óganarsvip að þjóðhöfðinginn guggnaði og var að gjalti og sór við sjálft Almættið, að hann mundi gera allt hvað hann gæti til að ósk frú Ingveldar yrði að veruleika. Með því sleppti frú Ingveldur takinu á forsetanum og kvaðst treysta því að hann hagaði sér eins og maður, ella ætti hann sig á fæti og það væri aunginn spóafótur.

 


mbl.is Tveir valkostir fyrir forsetann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfðir og arfur

flengSem betur fer er það ekki arfgengt að vera sjálfstæðismaður, þó svo að þannig veila kunni að vera til staðar við fyrstu sýn. Hinsvegar líta ýmsir þannig á, að þeim beri að taka pólitískar skoðannir forfeðra sinna í arf og við þeim arfi megi þeir ekki hrófla við. Það er oft ansi kýmilegt að sjá einstaklinga, sem að upplagi eru mjög félagshyggjulega sinnaðir, jafnvel róttækir sósíalistar, burðast við að halda íhalds- og auðvaldsarfi forfeðrana álofti; þessháttar eintök virka oftar en ekki öfga- og brotakenndir þegar þeir taka til við að verja pólitíska arfinn sinn og því þeir verða oft svo einkennilega æstir og illir, því það ýfir auðvitað burstirnar á hverjum þeim sem reynir að tala fyrir óheppilegum málstað sem þeirra innri maður viðurkennir aldrei.

Hinsvegar eru að sjálfsögðu til eðlislægir ójafnaðarmenn sem hafa nautn af að gefa óþokkaskap sínum lausan taminn með því að predika hugsjónir græðginnar og hrokans og berja í leiðinni á minnihlutahópum og minni máttar. Og það er einmitt þessi tegund óþokka sem tekið hefir kapítalismann í sína þjónustu og gert hann að trúarjátningu sinni og heimtar að aðrir geri það líka. Þessir kónar halda því fram að mannskepnan sé gráðugt og grimmt villdýr, því fái ekkert breytt, þess vegna sé það í hæsta máta eðlilegt að þeir gráðugustu og grimmustu beri mest úr býtum af gæðum jarðarinnar. En allt tal um hugsjónir jafnaðar og fagurs mannlífs, réttlætis og mannúðar, telja þessir sömu kónar rugl og vitleysu heimskra vitfirringa, sem ekki sé mark á takandi.

Þá er ekki síður ankannalegt að sjá svokallaða sjálfstæðismenn berjast við að koma í veg fyrir að börn þeirra myndi sér sjálfstæða skoðun í stjórnmálum ef hún er í blóra við Sjálfstæðisflokkinn. Vitanlega er þessháttar framferði afar hlálegt og um leið sorglegt, en síðast en ekki síst er það ömurlegur vitnisburður andlegrar fátæktar.


mbl.is Ekki arfgengt að vera sjálfstæðismaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjósendur ætla að halda sig við hina óheiðarlegu, spilltu og gráðugu

xd5_1245691.jpgEnn eina ferðina ætla íslenskir kjósendur að gera sig að fíflum við kjörborðið með því að greiða flokkum ójafnaðar, spillingar, lyga og glæpa um það bil helming atkvæða sinna. Hvað þurfa gjörspilltir stjórnmálasnatar, sjónhverfingafífl og gráðugir peningaperrar að gera af sér til að sauðheimskur lýðurinn sjái í gegnum þá og hætti að styðja þá til áframhaldandi skemmdarverka og eyðileggingar á samfélaginu? Ég er farinn að halda að þessum stórbiluðu kjósendum sé yfirleitt alls varnað þegar kosningar eru í boði. Að minnsta kosti er það algjörlega óskiljandi athæfi af hálfu alþýðufólks að kasta atkvæðum sínum í stórum stíl á óheiðarlegan og samviskulausan braskaralýð, sem hefur það að markmiði að skara eld að eigin köku og auka þjóðfélagslegan ójöfnuð.

Ef heldur fram sem horfir, og skoðannakannannir gefa til kynna, munu innviðir samfélagsins halda áfram að drabbast niður. Heilbrigðiskerfinu verður fórnað á altari nýfrjálshyggju og einkavæðingar, sömuleiðs menntakerfinu, að ekki sé minnst á sjálft fjármálakerfið. Finnst fólki virkilega líklegt að paurar á borð við Bjarna Ben og Sigmund Davíð séu líklegir til að skapa samfélag réttlætis og jöfnuðar, eða vill um það bil helmingur kjósenda ekkert með réttlæti og jöfnuð hafa?

Satt að segja var öldungis stórfurðulegt að verða vitni að því, aðeins fjórum árum eftir Hrun, þegar kjósendur létu völdin aftur í hendur flokkanna sem lögðu efnahagskerfið á Íslandi á hliðina með pólitískum tiltektum sínum. Og jafn furðulegt er að verða síðan vitni að því þegar talsmenn þessara sömu flokka, sem reyndar hafa báðir klofnað eftir Hrun, haga orðum sínum á þann hátt, að Hrunið hafi verið VG og Samfylkingunni að kenna! Og ekki vantar að búrtíkur bófaflokkanna og heilaþvegin smámenni taki undir með foringjum sínum í lygaherferðinni um að það sé sagnfræðileg staðreynd, að Hrunið hafi verið VG og Samfylkingunni að kenna. Er nema vona að ýmisr verði næsta orðlausir við að hlusta á slíka heimsku og forherðingu?


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tómur pappakassi, ölvunarakstur Kolbeins og útreið Háfdáns varðstjóra

pappakassi.jpgÞað fátt sem þeim dettur ekki í hug, blessuðum tómu pappakössunum, þegar þeir eru að útbúa skrumauglýingar um sjálfa sig fyrir kosningar. En af því að þingmaður sá er fréttin fjallar um er aðeins kunnur fyrir að hafa óseðjandi áhuga á að koma brennivíni og bjór í matvöruverslanir, þá gæti kosningaauglýsingin, sem hann var að útbúa með lögreglunni fyrir Sjálfstæðisflokkinn, átt að sýna lögreglubíl undir fullum ljósum og sírenublæstri á þeysireið eftir drykkjurafti sem hafði dukkið sig augafullan af matvörubúðarbrennivíni og ekið á brott í mjög annarlegu ástandi, eins og það heitir á lögreglumáli. Ekki hefði heldur skemmt fyrir ef þingmaðurinn hafði fengið lögreglustjórann á Reykjanesi, sjálfan stjörnusýslumanninn Stones, til að leika með sér í auglýsingaskruminu; hr. Stones hefði til dæmis getað tekið hinn ölvaða ökumann með berum höndum og refsað hanum á staðnum að hætti sannra sjálfstæðismanna, - það hefði heillað marga villuráfandi kjósendur.

Á sínum tíma komst Kolbeinn Kolbeinsson í kast við lögregluna þegar hann ók um ölvaður á Benzinum sínum. En Kolbeinn Kolbeinsson lét ekki lögregluprjónana snúa á sig og steig bensínið í botn og hvarf sjónum Háldáns varðstjóra og hans manna á 280 kílómetra hraða. Nokkrum dögum síðar vóð Hálfdán eins og berserkur óforvandis eins og breserkur inn á heimili Kolbeins með það fyrir augum að misþyrma honum og handtaka svo að sá bölvaði níðingur mundi muna eftir því. Því miður gleymdi Hálfdán að reikna með frú Ingveldi og varð sú gleymska honum að falli. Því þegar Hálfdán hafði náð í hnakkadrambið á Kolbeini og bjóst til að slá honum við ofninn í stofunni, birtist frú Ingveldur, vígreifari en nokkru sinni. Enda urðu fljót umskipti á högum Hálfdáns varðstjóra því að í stað þess að Hálfdán keyrði hausinn á Kolbeini í ofninn þá sló frú Ingveldur Hálfdáni við téðan ofn af slíku afli að þessi tröllaukni varðstjóri lá lengi í öngviti á eftir. Og þegar hann rankaði næst við sér lá hann að húsabaki hjá þeim frú Ingveldi og það hafð rignt á hann og honum var jökulkalt og honum þókti sem höfuðið á honum væri að klofna af höfuðkvölum.

Eftir þessa útreið lá Hálfdán varðstjóri lengi, fyrst á sjúkrahúsi en síðan heima hjá sér og hafði allt á hornum sér. En hann lét refsinguna er hann hlaut að frú Ingveldi sér að kenningu verða og hefðir aldrei lagt til atlögu við Kolbein Kolbeinsson síðan. Aftur á móti hefir hann látið vini og velunnara frú Ingveldar og Kolbeins finna fyrir því í hvurt sinn sem hann hefir haft færi á. En kanski fáið þið eitthvað um þær aðfarir að vita síðar. 


mbl.is „Þetta var mjög saklaust“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er fleiri og verri tossar á sveimi en blessuð börnin

kolb16_1275588.jpgMiðað við hátterni íslenskra kjósenda upp á síðkastið er alveg ljóst að það eru fleiri tossar á sveimi en skólabörn í Reykjavík. Þjóð sem greiðir alræmdum fjárgæframönnum, braskaraskríl og ábyrgðarlausum lygamörðum atkvæði í jafn stórum stíl og raun ber vitni hlýtur að vera svo illa á vegi stödd að geta ekki lesið sér til gagns eða skilið mælt mál á íslensku fremur sauðnaut uppi á Grænlandsjökli. Auðvitað hafa þessi hörmulega tossaheilkenni Íslendinga skaðað samfélagið meir en orð og tölur geta lýst. Góður kunningi minn sagði fyrir ekki svo löngu síðan, að hinn dæmigerði Íslandsmaður sínum huga væri grútsktíugur, grálúsugur og rígmontinn apaköttur í smóking og með pípuhatt á kolrugluðum hausnum.

Og fyrst minst hefir verið bæði á sauðnaut og apaketti, er ekki úr vegi að geta þess að Óli Apaköttur, heimilisvinur og heimagangur hjá hjónunum frú Ingveldi og Kolbeini Kolbeinssyni, er á framboðslista hjá einhverjum naftoguðustu glæpasamtökum sem uppi hafa verið á Íslandi frá landnámstíð. Þeim þarna hjá glæfraflokknum þókti afar aðkallandi að hafa snaggaralegan mann á lista, er væri gjörkunnugur viðskiptalífinu á breiðum grundvelli, mennigarlífinu eins og það er og samkvæmislífinu eins og það gerist best með borgarastéttinni, en sérstakleg þótti þeim akkur í að fá mann, sem ekki væri einungis gjörkunnugur viðskiptalífinu, menningarlífinu og samkvæmislífinu, heldur og vel að sér í móðurlífi frú Ingveldar. 

Daginn eftir að Óli Apaköttur var kynntur sem fullgildur frambjóðandi fyrir nafntoguðu samtökinn drógu Kolbeinn og Indriði Handreður hann upp úr göturæsinu fyrir utan Mónakó á Laugarveginum og fluttu hann eins og taðpoka heim til frú Ingveldar og Kolbeins. Vart þarf að taka fram, að Óli Apaköttur er tæplega læs, nema þegar hann er útúrfullur, en þá renna viðstöðulaust upp úr honum heilu bálkarnir úr áróðursritum hinnar hrienlífu íslensku borgarstéttar, sem má ekki vamm sitt vita fyrr en hún er komin að minnsta kosti hálfa leiðina til Tortúlu. 


mbl.is Reykvískum börnum hrakar í lestri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband