Leita í fréttum mbl.is

Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að bjóða fram í Garðabæ ???

auðvaldÞað er hreint með ólíkindum að Sjálftæðisflokkurinn skuli voga sér bjóða fram lista í hinum og þessum sveitarfélögum í vor; raunar er óskiljanlegt að þessi illræmdu samtök hafi starfsleyfi hér á landi eftir það sem á undan er gengið. Það verður æ áleitnari spurning hvað Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að gera mikið af sér svo að hann verði bannaður með lögum, rétt eins og þjófnaður og nektardans eru bönnuð með lögum.

Hinsvegar er ekki hægt að gera kröfu til svokallaðra ,,sjálfstæðismanna" að þeir hafi nægilegt vit og siðferðisvitund til að draga sig orðalaust í hlé og leggja félagsskap sinn niður. Siðblindir fá ekki sjón nema fyrir kraftaverk og slík kraftaverk eru því miður ekki í boði nú til dags.

Það vekur því vissulega mikla furðu, að ,,sjálfstæðismenn" í Garðabæ skuli vera svo bíræfnir að leggja fram lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Auðvitað eru það sár vonbrigði, að horfa uppá að fólk geti ekki séð að sér. En mannlegri ófullkomnun eru í blindu sinni fá takmörk sett þegar yfirgangur, græðgi og forheimskun eru annarsvegar.

Vel getur verið að það hljómi sakleysilega að stilla 33 ára aðstoðarframkvæmdastjóra og kennara, 48 ára framkvæmdastjóra og 51 árs framkvæmdastjóra upp hlið við hlið á framboðslista. En þegar þess er gætt að umrætt framkvæmdastjóratríó stendur fyrir auðvald, frjálshyggjuóra og ójöfnuð fer gamanið að kárna. Sjálfstæðisflokkurinn er að sönnu þjóðfélagssjúkdómur, illkynja krabbameinsæxli í þjóðarlíkamanum, sem var hérumbil búinn að sálga landi og þjóð fyrir rúmu ári síðan.

Það kýs sér enginn að fá krabbamein, - slíkt hið sama ætti að eiga við um Sjálfstæðisflokkinn, ef allt væri með felldu.  


mbl.is Áslaug Hulda leiðir listann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Victor Ingi Olsen

Líklega það heimskulegasta sem ég hef lesið...

Rosalega er gott hvað andstæðingar Sjálfstæðisflokksins eru oft ómálefnalegir. 

Victor Ingi Olsen, 26.3.2010 kl. 00:36

2 Smámynd: Jón Óskarsson

Þú ert væntanlega að grínast með þessu bloggi.  En ef ekki hvernig dettur þá mönnum í hug að samasemmerki sé á milli þess að einstaklingur sé skráður "framkvæmdastjóri" og að það standi fyrir "auðvald"

Ef þú stofnar einkahlutafélag utan um einhverja smá starfsemi á þínum vegum þá ert þú væntanlega skráður framkvæmdastjóri í því félagi en það hefur ekkert með "auðvald" að gera.

Jón Óskarsson, 26.3.2010 kl. 00:40

3 Smámynd: Hamarinn

Það er alltaf gott þegar Jóhannes fer í taugarnar á sjöllunum eins og þessum tveimur hér á undan. Þegar það gerist, þá segir Jóhannes sannleikann eins og hann er.

En að listinn verði mun betri þó einhver karlskarfur færi sig úr fyrsta sæti niður í það fimmta skil ég ekki, þetta er sama liðið. Það sem karlinn er að hugsa með þessu, er það að eftir kosningar mun sjálfstæðisflokkurinn ekki hafa meirihluta, þannig að þá er hann ekki inni í 5 sætinu. Hann sér þetta þannig fyrir sér, en ef hann hefði verið í fyrsta sætinu, þá hefði hann þurft að vera í minnihluta í bæjarstjórninni, og það kann hann ekki, og hvað er erfiðara en að kenna gömlum hundi að sitja. Jú það er að kenna sjálfstæðismanni aðhlýða skipunum frá þeim sem ræður.

Hamarinn, 26.3.2010 kl. 01:33

4 Smámynd: Jón Óskarsson

Ég hef nú reyndar aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn og sé ekki hvaða tengingu við hann þú sér í minni athugasemd.  En verð að taka undir með Victori þetta er náttúrulega gott dæmi um hvað andstæðingar Sjálfstæðisflokksins eru oft ómálefnalegir og í þann pytt datt Hamarinn.

Tilefni minnar athugasemdar var þetta ótrúlega blogg Jóhannesar sem ég vissi ekki hvort ég ætti að taka sem gríni eða alvöru.

Jón Óskarsson, 26.3.2010 kl. 09:38

5 Smámynd: Hamarinn

Mikið taka sumir hlutina alvarlega hér.Jóhannes er aldrei að grínast!!!!!!!!!!!!!!!!

Hamarinn, 26.3.2010 kl. 12:07

6 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég mun kjósa Besta flokkinn

Ingibjörg Friðriksdóttir, 26.3.2010 kl. 14:49

7 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er rétt hjá Hamrinum að ég grínast aldrei. Og mér er spurn: Að hvaða leyti er bloggið mitt hér að ofan ómálefnalegt?

Ég trúi því nú barasta ekki, að hún Ingibjörg okkar hérna ætli að svíkja Samfylkinguna í vor með því að kjósa Bestaflokkinn.

Jóhannes Ragnarsson, 26.3.2010 kl. 15:11

8 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég er alveg örugg með Oddnýju inn, þannig að ég sný mér bara að Jóni í von um að fá aðstoðarfulltrúastöðuna hjá honum.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 26.3.2010 kl. 15:18

9 Smámynd: Jón Óskarsson

Vonandi verður þú aldrei skráður sem framkvæmdastjóri (hvorki knattspyrnufélags né alvarlegri félagsskapar) Jóhannes minn því þá gætir þú hvorki boðið þig fram hjá Samfylkingu og allra síst Vinstri Grænum :)  Því þar mega hvorki finnast menn sem sjá framtíðarmöguleika í Íslenskum rekstri né vilja skapa aðstæður til þess að hér þróist atvinnulíf án beinna ríkisafskipta :)

Jón Óskarsson, 27.3.2010 kl. 00:27

10 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég myndi heldur aldrei leggjast so lágt að láta skrá mig framkvæmdastjóra. Það fyrir utan held ég að ekki nokkur maður hafi áhuga á að gera mig að framkvæmdastjóra. Ofan í kaupið er engin eftirspurn eftir mér í framboð fyrir einn einasta flokk, ekki einusinni vinstrigrænir hafa áhuga á mér var er ég þó sannarlega í hópi þeirra sem stóðu að því að stofna þann brokkgenga flokk.

Jóhannes Ragnarsson, 27.3.2010 kl. 20:01

11 Smámynd: Hamarinn

Það væri óskandi Jóhannes, að fleiri gerðu sér grein fyrir framboði og eftirspurn á sjálfum sér, eins og þú gerir.

Þú ættir kanski að vera með námskeið í þessu fyrir misvitra stjórnmálamenn.

Hamarinn, 27.3.2010 kl. 22:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband