Leita í fréttum mbl.is

Græðgissjúkdóm unglækna er auðvelt að uppræta

pípaÍ þeirri alvarlegu deilu sem upp er komin milli lækna á Landspítalanum, einkum unglækna svo kallaðra, og annarra þegna landsins, er brýnt að gripið verði til afgerandi aðgerða sem duga til lausnar vandamálsins.

Besta ráðið í stöðunni er tvímælalaust að smala unglæknunum saman og setja þeim stólpípu svo um munar. Einnig á að gefa þeim inn blöndu af sápulög og glussa til að mýkja upp mótþróakleprana í belgnum á þeim.

Fólk sem alið er upp á cócópuffsi og hamborgarasósu og í þokkabót menntað til læknisstarfa á kostnað stritandi alþýðu, verður að læra hvað til þess friðar heyrir og gera sér grein fyrir að það er haldið alvarlegum græðgissjúkdómi sem verður að lækna, svo það verði ekki heilsulausir aumingjar til frambúðar. 

Það er náttúrulega til háborinnar skammar, að krakkaskrattar, sem varla eru komin á skottulækningastigið, þrátt fyrir nokkurra ára háskóladund í lækningafræði samfara cócópuffsáti og bjórdrykkju, skuli setja upp stertinn framaní sjúklinga og neita að hjúkra þeim nema fyrir bankastjóralaun. Það er varla við því að búast að það geti orðið fólk úr slíkum gerpum fyrr enn búið er herða þau til alvöru lífsins með stólpípum, laxarerolíu og fleiri meðölum, sem hafa um langan aldur sannað að virka vel í baráttunni gegn græðgi og annarri ódöngun, sem nútímabörn hafa áunnið sér á stuttri ævi í umhverfi upplogins góðæris.


mbl.is Þreifingar í gangi í læknadeilu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Þetta er alveg hörku grein hjá þér Jóhannes, rökfestan og orðskrúðið eins og hjá fremstu góðskáldum þjóðarinnar.

Stólpípa og laxerolía virðist vera allra meina bót. Það getur verið að slíkar aðferðir virki á þig, en flestir eru farnir að notast við nýtískulegri og betri aðferðir.

Það virðist hinsvegar gæta svolítils misskilnings hjá þér. Deila unglækna er ekki um laun, heldur lengd vinnutíma. Þeir eru að mótmæla því að á þá skuli sett 60 tíma vinnuskylda á viku. Þetta er lögbrot, bæði gagnvart Íslenskum lögum og ESB lögum.

Það er alveg með ólíkindum að forsvarsmenn stéttafélagana skuli ekki vera búnir að mótmæla þessu. Það er staðreynd að ef tekst að brjóta niður unglækna í þessu máli, þá koma aðrir hópar á eftir. Fyrr en varir erum við komnir með 60 tima vinnuskyldu á viku. Það er 12 tímar á dag fimm daga vikunnar. Er það þetta sem við viljum.

Við getum þá kannski notað helgarnar til að sitja á klósettinu með stólpípuna. 

Gunnar Heiðarsson, 5.4.2010 kl. 15:37

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Forsvarsmenn stéttarfélaganna, vel á minnst. Þeim veitti sannarlega ekki af vel útilátinni stólpípu.

Ég hefi, ef ég segi alveg eins og er, enga trú á þessum nýtískulegu aðferðum við að berja mótþróann úr unglingsskjátum, sem vilja ekki vinna. Með stólpípuna að vopni er hægt að inna hreinustu kraftaverk, eins og Gunnsi okkar í Krossinum getur manna best vitnað um.

Jóhannes Ragnarsson, 5.4.2010 kl. 15:55

3 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Í þegnskylduvinnu með krakkaormanna, sendum þá í þriggja mánaðar saltfisktúr á gamlan síðutogara til W-Grænlands og í framhaldi af því til hálfs árs þrælkunarvinnu í væntanlegri "Hausaþurkun ríkisins ohf", í Öskjuhlíð þar sem áður stóð Pungaprófsháskóli Sjálfstæðisflokksins.

Níels A. Ársælsson., 5.4.2010 kl. 17:11

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já, nú ku vera búið að ákveða á bak við tjöldin að breyta umræddum Pungaprófsháskóla í hausaþurkunarverksmiðju í sumar. Þá loksins kemur eitthvað að viti í Vatnsmýrina fyrir utan flugvöllinn.

Jóhannes Ragnarsson, 5.4.2010 kl. 18:01

5 Smámynd: Þórarinn Baldursson

Það er mykið að maður sér eitthvað af viti í þessu bloggi.:)

Þórarinn Baldursson, 9.4.2010 kl. 21:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband