Leita í fréttum mbl.is

Hrunstúlkan geðprúða

Sjáum nú til. Eru virkilega svona margir sem vilja hrunstúlkuna geðprúðu, Hönnu Birnu, sem borgarstjóra? Hún ætlar ekki af blessuðu fólkinu að ganga bölvuð vitleysan; sennilega er því ekki við bjargandi. Ósköp er nú gott fyrir Sjálfstæðisflokkinn að eiga fullt af kjósendum sem skilja ekki samhengi hlutanna og þekkja ekki hrunalýð frá öðru fólki. Ef eitthvað er til í að vegir Drottins séu órannsakanlegir, þá eru vegir kjósenda Sjálfstæðisflokksins ekki síður órannsakanlegir og með öllu óskiljanlegir.  
mbl.is Flestir vilja Hönnu Birnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég vil fá rauðhærðan borgarstjóra.  Ég er orðin leið á ljóshærðum og sköllóttum.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 27.5.2010 kl. 15:22

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Áttu við að Hanna Birna sé ljóshærð og sköllótt? Þar held ég þú hafir á réttu að standa. Hún er nefnilega með kollu. Þegar hún vann á hrunakontórnum hjá Kjartani Gunnarssyni í Valhöll, lánaði hún Kjartani stundum kolluna og hann hljóp með hana á hausnum út í bæ; hann vil

Jóhannes Ragnarsson, 27.5.2010 kl. 18:24

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Nei, Ég átti nú við Villa viðutan

Ingibjörg Friðriksdóttir, 27.5.2010 kl. 18:40

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég var nú búinn að gleyma þeim gamla Drottins dýrðar þorpara. Veistu hvort hann er lifandi ennþá, gamli maðurinn, eða er hann máske fallin frá?

Jóhannes Ragnarsson, 27.5.2010 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband