Leita í fréttum mbl.is

Sögðu nei og sátu hjá, en síðst já við öllu

finnur2.jpgÞað er gaman að sjá hvað húskarlar og griðkonur blessaðrar gömlu Framsóknarmaddömunnar eru borubrött í dag og góð með sig. Eftir að hin göfugu frasóknarkrataíhöld, Steingrímur og Jóhanna, fóru að míga svo um munar utaní liðsmenn Maddömunar og lofa þeim ráðherrastólum, keppast synir og dætur Halldórs Ásgrímssonar og Finns Ingólfssonar við að lýsa því yfir að þau fari nú aldeilis ekki úr buxunum fyrir Steingrím, Jóhönnu og Össur nema að uppfylltum ströngum skilyrðum, eins og þau hafi einhver galdratromp á hendi. Meira að segja lætur ein af griðkonum Framsóknarmadömunnar þau orð falla að meydómur Framsóknar sé ekki falur nema Jóhanna, Össur og Steingrímur stórframsóknarmaður J. hypji sig úr ríkisstjórninni með skottið á milli lappanna.

En auðvitað tekur einginn mark á látalátum íbúanna í Framsóknarfjósinu. Við sem munum þá tíð þegar framsóknarmenn sóru við allt heilagt, þar á meðal lífstykki sjálfrar Framsóknarmaddömunnar, að aldrei kæmi til greina að einkavæða ríkisbankana. Eftir hástemmdar heitingar og upphrópanir, þögnuðu hinir baráttuglöðu Framsóknarmenn og héldu kjafti um skeið eins og einhver hefði troðið striga uppí þá. En einn daginn vöknuðu landsmenn upp við að búið var að einkavæða ríkisbankana. Og það sem meira var um vert: Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn höfðu fært þá þóknanlegum og flokkshollum vildavinum sínum, - að gjöf. Þannig mun eflaust líka fara með huganlega ríkisstjórnarþáttöku Framsóknar með Steingrími og Jóhönnu: Þó að Sigmundur Davíð og Vigdís Hauks tali digurbarkalega í dag og setji mönnum afarkosti munu þau þegja þunnu hljóði á morgu en skríða þar næsta dag inní hlýjuna hjá framsóknarkrataíhöldunum í ríkisstjórninni á forsendum þeirra sem fyrir eru þar í fleti.  


mbl.is Misvísandi skilaboð um samstarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband