Leita í fréttum mbl.is

Siðlaus formaður, eigandi hans og frjálshyggjuglæpamennirnir

xd13_1053333.jpgÆtli sé ekki best að Steingrímur og eigandi hans, Svavar Gestsson, ásamt frjálshyggjuglæpamönnunum, borgi einir og óstuddir Icesave-glæpinn úr eigin vösum. Það er gjörsamlega útí hött að saklaus almenningur þurfi að borga milljarða á milljarða ofan fyrir glæp sem hann á enga aðild að.

Það er stórmerkilegt að maður sem gegnir embætti formanns ,,vinstrihreyfingar" sem hann hefur löngum reynt að telja fólki trú um að sé afskaplega langt til vinstri, berjist með oddi og egg fyrir því að íslensk alþýða fjármagni svæsin glæp samviskulausra kapítalista. Mér finnst það benda til að siðferði slíks formanns sé að einhverju leyti sorglega ábótavant.

Ég verð með hverjum deginum sannfærðari um að það eina sem getur bjargað okkur frá endurreisn Gamla Frjálshyggju-Íslands er bylting.


mbl.is Greiða þarf 26,1 milljarð vegna Icesave í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Heyr, heyr.

Axel Þór Kolbeinsson, 12.1.2011 kl. 19:08

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Hugtakanotkun þín er yndislegur hrærigrautur.

Geir Ágústsson, 12.1.2011 kl. 19:30

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Verst er þó, Geir, að meintur hrærigrautur alltof sannur.

Jóhannes Ragnarsson, 12.1.2011 kl. 19:50

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

sammála þér Jóhannes

Jón Snæbjörnsson, 12.1.2011 kl. 20:08

5 Smámynd: Björn Jónsson

Góður, eins og oftast áður.                               

Einhvernvegin hef ég það á tilfynninguni að Skattgrímur hafi ríkari ástæðu en þú, að fela andlitið með skeggi.

Björn Jónsson, 12.1.2011 kl. 20:21

6 Smámynd: Árni Karl Ellertsson

Sammála

Árni Karl Ellertsson, 12.1.2011 kl. 21:29

7 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Sæll Jóhannes, þrátt fyrir það sem við köllum kreppu þá lifum við í paradís miðað við þær þjóðir þar sem framkvæmd hefur verið bylting.  Það er sauðsháttur og dómgreindarleysi að kynda undir ofbeldi.  Ef þig langar að búa í Norður Kóreu eða Kúbu getur þú flutt þangað.

http://www.youtube.com/watch?v=sb9SFenQopM&feature=related

http://www.youtube.com/watch?v=t2WuEct93Rk&NR=1

http://www.amazon.com/Execution-Hunger-Holocaust-Miron-Dolot/dp/0393304167

http://www.amazon.com/Cannibal-Island-Siberian-Against-Humanity/dp/0691130833/ref=sr_1_1?s=books&ie=UTF8&qid=1294937131&sr=1-1

Þorsteinn Sverrisson, 13.1.2011 kl. 16:53

8 identicon

Komið þið sælir; Jóhannes - og aðrir gestir þínir !

Þorsteinn Sverrisson !

Glámskyggni þín; til réttmætra skrifa Jóhannesar vinar míns - sem og lítt skynsamlegar tilvísanir þínar benda til, að í einhvers konar Bómullarveröld, kunnir þú að lifa, ágæti drengur.

Líkast til; ertu ekki einn þeirra, sem biðraðirnar þurfa að standa, hjá hinum ýmsu hjálparsamtökum, sem hérlendis plagast, í vaxandi mæli.

Fyrir nú utan; þau sálarmorð - sem aðrar afleiðingar, sem stjórnar hættir hér, hafa áskapað, fjölmörgum samlöndum okkar.

Þú ættir; að skammast þín fyrir þessi snautlegu tilskrif þín, og biðja Jóhannes og aðra lesendur - sem skrifara; afsökunar á frumhlaupi þínu.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 17:38

9 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Blessaður Óskar og hafðu þakkir fyrir skrif þín.

Um Þorstein Swerrisson er það að segja, að hann virðist hvort tveggja í senn svo heimskur og illa upplýstur að hann heldur að byltingar geti ekki átt sér stað án ofbeldis. Það er heldur vafasamt að eiga orðastað við kláðagemlinga og rugludalla af slíku tagi.

Jóhannes Ragnarsson, 13.1.2011 kl. 18:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband