Leita í fréttum mbl.is

Ætla að reyta kærleiksblómin af húsmæðrum landsins í þágu fallegrar hugsjónar

plokk.jpgÉg er einn af þeim fjölmörgu góðmennum sem eru afar stolir, og um leið djúpt snortnir, af endalausum vilja Íslendinga til að ,,láta gott af sér leiða" eins og það er kallað. Það er hreint dásamlegt hvað fólk getur lagt á sig við að safna aurum til að styrkja góð málefni; hlaupa milli húsa í stórhríð eða beljandi roki og rigningu til að biðja náungann um að láta smáaura af hendi rakna svo KR-ingar geti keypt nýjan leikmann fyrir næsta tímabil; hlaupa á harðaspertti kringum landið til safna áheitum í kosningasjóðsjóð fyrir Sjálfstæðisflokkinn; eða synda í einni striklotu frá Patreksfirði og norður á Halamið til styrktar fjölskyldum fyrrverandi bankamanna sem sitja í fangelsi.

Fyrir ári síðan brugðu karlmenn á það ráð að safna hormottu undir nefið til að vekja athygli á krabbameinum sem leggjast á karlmenn,. Og nú er komið að konum að leggja sinn skerf af mörkum til að beina athygli fólks að andstyggilegum krabbasjúkdómum.

Og vissulega er aðferð kvennanna, sem eru hreinræktaðar nútímakonur, til að vekja almenning til umhugsunar um banvæna sjúkdóma karla býsna eftirtektarverð: Þær ætla sem sé að safna skapahárum ! Mér skilst að þessi vel meinandi og fórnfúsa söfnun nútímakvennanna fari fram á ekki ólíkan hátt og þegar fólk gengur til berja og slítur krækiber af lyngi. Það stendur sem sagt til að álitlegur flokkur áðurnefndra nútímakvenna ætli að ganga á milli kynsystra sinna og reyta af þeim kærleiksblómin og safna þeim saman í myndarlegan haug til að stuðla að því að karlarnir í lífi þeirra fyllist ekki af krabbaóþverra og deyji drottni sínum eins og hverjir aðrir einstæðingrakkar sem öllum er sama um.

En hvernig karlmenn komast hjá því að fá krabbamein við það að konur verði reyttar á vissum líkamshluta, er mér, og eflaust fleirum, hulin ráðgáta. En það er auðvitað algjört aukaatriði hvort mér og öðrum skilningssljóum endemum sé eitthvað hulið varðandi hið frábæra framtak heiðurskvennanna sem á næstunni ætla að ganga á milli húsa þeirra erinda að reyta kærleiksblómin af húsmæðrum landsins.  


mbl.is Íslenskar stelpur safna skapahárum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þær ættu að hafa samband við leigubílastöðina í Reykja vík þar sem kvenbílstjórum var skipað að "kantskera" sig,  þar mætti ef til vill fá reyting af skapahárum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.1.2011 kl. 12:25

2 Smámynd: Vendetta

Það hefði verið ágætt, eins og Jóhannes gefur í skyn í orðaleik sínum, ef Harpa færi um með rakvél eða skæri og fjarlægði kynhárin af öllum konum, sem vildu vera með í þessum Rottumarz og safnaði síðan í stóran poka. Enda ekki prýði neinni konu að vera loðin frá nafla og niður á mið læri. En svo vel er ekki.

Þvert á móti vill hún að íslenzkar konur hætti að raka sig að neðan, eða vaxa sig. Nú þekki ég ekki klofið á íslenzkum konum, en hef séð að fjölmargar konur í útlöndum raka sig eða vaxa, og ekki aðeins bikini-línuna. Svo að það vaknar hjá mér spurningin: Raka íslenzkar konur sig yfirleitt (fyrir utan Hörpu sjálfa, að sjálfsögðu)? Vilja þær ekki bara vera með allt kafloðið, þar eð allt annað er svo mikið taboo, jafnvel argasta klám? Það er amk. skv. öfgafemínistum sem vilja ráða yfir kynfærum annarra kvenna og virðast stunda það að glápa á konur í sturtuklefunum til að þær geti síðar skrifað skýrslu um hvað það sé hneykslanlegt að sumar snyrti sig eða fari jafnvel í lýtaaðgerð.

Ég er ekki að ýkja, það var ein kona, man ekki við hvað hún starfaði, sem hélt því blákalt fram í útvarpsviðtali, að lýtaaðgerð á kynfærum kvenna væri klámvæðing!! Og gaf það þar með í skyn að konur hefðu engan rétt á þvi að ráða yfir sínum eigin kynfærum (án samráðs við Femínistafélagið)

Svo að við víkjum nú aftur að rakstrinum, sem á að leggja á hilluna í einn mánuð (marz), þá er það vitað mál, að ef kynhárin hafa verið rökuð eða vöxuð, þá veldur það kláða þegar þau byrja að vaxa út aftur. Þetta vita þær konur sem ætla að taka þátt. Sem leiðir til þess að flestar munu sennilega bara þykjast, þar eð ég efast stórlega um að neinn sé að fylgjast með.

Að síðustu: Slangur fyrir kynhár kvenna á ensku er bush eða beaver. Þetta síðarnefnda virðist hafa verið þýtt sem rotta á Íslandi. Hvernig ætli konum finnist það að verið sé að kalla píkurnar á þeim rottur? Eru þær sáttar við það?

Vendetta, 29.1.2011 kl. 14:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband