Leita í fréttum mbl.is

Hinn samnorræni sænski auðvaldsgráni.

kol_1063155.jpgNújá. Gaman að hinn samnorræni sænski auvaldsgráni, Zachrison blaðamaður, skuli reyna að hefna fyrir ófarir Jónanns Haukssonar á Bessatöðum í gær með því að grenja upp einhvern veraldaþvætting gegn félaga Ólafi Ragnari. Auðvitað svíður mönnum eins og herra Zachrison þegar bróðir hans í blaðamennskunni verður að evrópuathlægi sökum framgöngu sinnar.

En auðvitað er það hið besta mál þegar bjöllusauðir auðvaldssamtryggingarinnar fara að skjálfa í knjáliðunum af hræðslu við að almenningur á Vesturlöndum fari almennt að taka upp þann sið að neita að borga fjármálaglæpi borgarastéttarinnar. Þeir vita sem er, vesalingarnir, að þessháttar framferði getur endað með byltingu sem væri auðvaldinu dálítið í óhag.


mbl.is Sænsk gagnrýni á forsetann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Hermannsson

Félagi Ólafur gjörþekkir auðvaldsþýin, var enda einn af þeim, og lætur þau ekki komast upp með múður.

Baldur Hermannsson, 21.2.2011 kl. 23:10

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Heiðursfélagi Ólafur Ragnar lætur ekki að sér hæða og munar ekkert um að flengja Jóhönnu, Steingrím, Bjarna Ben og Jóhann Hauksson hvert með öðru þegar þau hafa til þess unnið.

Jóhannes Ragnarsson, 24.2.2011 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband