Leita í fréttum mbl.is

Óheiðarlegur kjáni gengur til liðs við glæpaklíku

Annaðhvort er Ásmundur Einar fífl eða hann telur að almenningur sé samansafn fífla. Hvernig dettur þessum drullusokki að bera á borð að Framsókn hafi tekið ,,jákvæðum breytingum" og nefnir í því sambandi Icesave og afstöðuna til málefna skuldara og jafnvel afstöðuna til ESB.

Ég man þá tíð þegar Framsókn var í stjórnarandstöðu á árunum 1991-1995. Þá töluðu framsóknarmenn iðulega eins og harðir vinstrimenn. Árið 1995 komst Framsóknarflokkurinn í rikisstjórn og hófst þegar handa við framkvæma þá frjálshyggjubyltingu sem endaði á eftirminnilegan hátt með efnahagshruni. Og þó að Framsókn tali núna eins og hún heldur að fólk vilji heyra, er nákvæmlega ekkert að marka það orðagjálfur. Framsóknarflokkurinn er sami auðvaldsflokkurinn og hann hefur alltaf verið, falskur og óheiðarlegur.

Það er ljóst að Ásmundur Einar er óheiðarlegur kjáni, sem ber að segja af sér þingmennsku nú þegar. Því er nefnilega þannig varið að þeir sem kusu VG við síðustu kosningar voru ekki að greiða glæpasöfnuðinum, sem kennir sig við framsókn, atkvæði sitt.

Og mér er hulin ráðgáta hvað þessi siðlausi rugludallur vara að gera innan um vinstrisósíalistana í VG um nokkurra mánaða skeið. Það getur varla verið að svona eintak ,,gangi á öllum" eins og stundum er sagt um menn sem bæði eru einkennilegir og óheiðarlegir. En auðvitað er Framsóknarfjósið ágætis ruslatunna fyrir fénað á borð við Ásmund Einar og allskonar þremenninga og flokkseigendur úr hinum og þessum skúmaskotum loddaramennskunnar. 


mbl.is Ásmundur Einar í Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ekki vantar stóryrðin! Ertu að skrifa þetta að gamni þínu?

Jón Valur Jensson, 1.6.2011 kl. 17:15

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Ákaflega málefnalegur pistill hjá þér Jóhannes. Fífl. drullusokkur, kjáni, rugludallur, ruslatunna og loddaramennska eru málefnaleg orð og góð til rrökstuðnings!

Gunnar Heiðarsson, 1.6.2011 kl. 17:22

3 Smámynd: Benedikt V. Warén

Ég sem hélt að það væri "djók" að menn gætu hoppað upp í rassgatið á sér.  Nú sé ég að sumir geta það hægleg og jafnframt skrifað pistla út um þann stað.

Benedikt V. Warén, 1.6.2011 kl. 18:22

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þér er sveimér vorkunn gamli...

Jón Steinar Ragnarsson, 1.6.2011 kl. 19:10

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Nei, Jón Valur, ég skrifaði þennan pistil ekki að gamni mínu, enda tilefnið sorglegt.

Ég kæri mig hinsvegar kollóttan um röflið í Gunnari Heiðarssyni og herra B.V. Warén. Það er nefnilega mun málefnalegra að koma til dyranna eins og maður er klæddur og segja hlutina hreint út en að slá um sig með rósamáli og mærðaþokuvæli. 

Þegar fjallað eru um náunga eins og Ásmund Einar og athæfi hans er nauðsynlegt að nota réttu orðin um dýrið, í réttu hlutfalli við það sem hann hefur til unnið. Það er málefnalegt. 

Jóhannes Ragnarsson, 1.6.2011 kl. 19:25

6 Smámynd: Benedikt V. Warén

Oft slengja menn drullu, úr í skúmaskotum hugans, eins og skít úr fullu haughúsi.   Um stund verður þá til rými fyrir enn meiri ófögnuð.  Það hefur maður séð á þessari síðu.

Benedikt V. Warén, 1.6.2011 kl. 21:18

7 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hvernig er það Benedikt: er það þinn skilningur á framgöngu Ásmundar Einars að hún sé eðlileg og laus við óheiðarleik og siðleysi? Þykir þér máske undarlegt að kjósendum VG svíði ekki dálítið að drengurinn skuli hafa gert sér hægt um vik og fært atkvæði þeirra yfir á Þórólf Gíslason kaupfélagsstjóra, Halldór Ásgrímsson, Finn Ingólfsson, Valgerði Sverrisdóttur og son Gunnlaugs kögunarforstjóra?

Jóhannes Ragnarsson, 1.6.2011 kl. 22:14

8 Smámynd: Benedikt V. Warén

Sæll Jóhannes.  Það gleður mig að það skuli ögn rofa til hjá þér í fúkyrðaflaumnum og nú sértu aðeins farinn að grilla í land. 

Þú ert hins vegar enn rígfastur í viðjum fortíðarinnar og ert að eltast við gamla drauga í pólitíkinni.  Komdu þér inn í nútíðina og horfðu fram.  Mistök voru gerð, ekki bara í Framsóknarflokknum heldur öllum hinum flokkunum einnig.   Þeim reynist það hins vegar mjög erfitt að horfast í augu við misgjörðir sínar og viðurkenna þær.

Framsóknarflokknum hefur hinsvegar hlotnast sá vafasami heiður, að allir hinir flokkarnir hafa vaðið yfir hann á skítugum skónum og vegna smæðar sinnar hefur verið örðugt að bera til baka allar vammir sem á hann hafa verið bornar.  Þar með er ég ekki að segja að hann sé sakaus af öllum ávirðingum, en fyrr má nú aldeilis rota en dauðrota. 

Hvaða flokkur hefur farið í jafn mikið uppgjör við fortíðina og Framsóknarflokkurinn?  Gefum nýju fólki tækifæri.  Dæmum þau svo.

Ásmundur Einar er að standa við sannfæringu sína, þau gildi sem VG var stofnaður til og standa við kosningaloforð flokksins.  Ég trúi því að þorri kjósenda VG meti það, að þeir séu ekki hafðir að fíflum.  Takir þú niður pólitísku ofstækisgleraugun þín, sæir þú það einnig. 

Það var að verða harla fátítt í pólitík, að menn stæðu við sannfæringu sína og loforð. Mér sýnist nú að æ fleiri séu að velja hina hliðina, þ.e. vilja að þeir séu teknir alvarlega.  Þú ættir að virða það.

Benedikt V. Warén, 1.6.2011 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband