Leita í fréttum mbl.is

Það er margt jákvætt að gerast í þjóðlífinu

hvala2Það er afskaplega mikið í það varið, að kvikmyndaleikkonan Hayden Penettiere skuli hrósa Barrakki Ó. Bama fyrir beita sér gegn skrælingjum á Íslandi, sem hafa gerst sekir um að myrða hvali og éta þá í þokkabót í staðinn fyrir að horfa bara á þá og dást að mannviti þeirra og fegurð með kjökrandi tári.

Þaðheldégnú að Glámurogskrámur, Kolbrún Halldórs og fleiri slíkar brekkur fái unaðslegan fiðring innanum sig við að meðtaka boðskap Haydenar og sjái nú hag sínum betur borgið en áður.

Og það er fleira sem fer batnandi í þjóðlífi voru: Nú rétt í þessu var viðtal við Hönnu Birnu í sjónvarpinu, sem sýnir svo ekki verður um villst, að hún er aftur komin í sinn gamla skapvonskugír, andlitssvipurinn þrungin eilífðarfýlu og fasið allt ólundarlegt og pirringslegt.

Og ekki var hin fúllynda Hanna Birna horfin af vettvangi þegar ásjóna hrunböðulsins Einars Kr. Guðfinnssonar birtist á skjánum, bólgin af hræsni og spillingu. Og hver var boðskapur Einars Kr.? Jú, að gæta arðránshagsmuna LÍÚ-klíkunnar gegn fólkinu í landinu.

Já, það er svo sannarlega afskaplega mikið í allt þetta varið.

 


mbl.is Ánægð með aðgerðir gegn Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hayden friðar hvali.

Í skólanum hennar var "friðun" aðalfagið, og hún fékk einkunnina 10 fyrir frammistöðuna.

Obama ræður greinilega engu í Bandaríkjunum, enda við ofurefli að etja, þar sem hluti af leyniklúbbs-félögum heimsins ráða, og slátra þeim sem hentar best í það og það skiptið (fólki).

Hayden lærði líka í skólanum sínum, hvernig ætti að friða almenning í Líbíu fyrir veiðum NATO í atvinnuskyni.

Þetta er stórgreind kona, barmafull af mannúðarhugsjónum? Heimsbyggðinni er borgið! Hún hlýtur að fá friðarverðlaun fljótlega blessunin, annað væri heimshneisa.

Það er nú það! 

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 21.7.2011 kl. 22:52

2 Smámynd: corvus corax

Þessi krakkabjáni, Hayden Panettiere, er dæmigerður fulltrúi bandarísks almennings sem er illa upplýstur og veit ekkert í sinn haus utan þess sem gerist í þeirra nánasta heimahverfi. Bandaríkjamenn veiða sjálfir hvali og töluvert meira af þeim en Íslendingar svo þeim færi best að halda kjafti. Og svo stunda þeir líka fjöldadráp á dýrategund sem Íslendingar gera ekki en það er slátrun á mannfólki. Það er dæmigert fyrir þessa illa upplýstu bjána að finnast allt í lagi að drepa fólk þúsundum saman en á sama tíma að amast út í þjóðir sem stunda sjálfbærar veiðar, t.d. á hvölum. Þetta lið hefur ekki efni á því að setja sig á háan hest gagnvart öðrum þjóðum. Og hana nú!

corvus corax, 21.7.2011 kl. 23:36

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Er það einhver frétt að leikkona sem maður hefur aldrei heyrt nefnda sleppi út úr sér einhverjum hvalafordómum? En ætlar hún þá ekki að byrja á Kyrrahafspollinum hjá sér þarna honum megin? Kaninn drepur miklu fleiri hvali en við, en þessu liði er ekki við bjargandi, rampant stupidity combines well with utter ignorance.

Jón Valur Jensson, 22.7.2011 kl. 01:02

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

HINUM megin!

Jón Valur Jensson, 22.7.2011 kl. 01:03

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég tek fram, að ekki lít ég á Obama sem illa gefinn, þvert á móti, snjallar gáfur hans voru augljósar þegar í byrjun. Ég er að tala um afstöðuna sjálfa sem birtist í einhliða yfirlýsingum fólks eins og þessarar Panettiere, afstaðan er heimsk og skammsýn og einber tilfinningasemi, en kannski tengd ímyndun um yfirburðafgáfur hvala ...

Jón Valur Jensson, 22.7.2011 kl. 11:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband