Leita í fréttum mbl.is

Af erindi frú Ingveldar um virði meydómsins

jomfru2.jpgÁ síðasta aðalfundi Sjálfstæðismannafélags Garðabæjar flutti frú Ingveldur erindi sem hún kallaði ,,Hvers virði er meydómurinn." Í þessu frábæra erindi sínu gerði frú Ingveldur nauðsyn á varðveislu meydómsins að þungamiðju máls síns annarsvegar, en hinsvegar ríka áherslu á gildi þess að verða ekki hórnum að bráð. Þá vék hún máli sínu að sérstöku sálarástandi, sem á það til að grípa fólk, ,,hinni ótímabæru kynvillu" en það ku verka á þá er fyrir verða eins og þeir hafi étið gangstéttarhellu.

Í lokakafla erindis síns vék frú Ingveldur að hlálegum meydómsmissi Máríu borgargagns, sem varð þess valdandi að Máría hefur mátt sæta þeim örlögum að verða náttúrulegur brókarsóttargemlingur, kjaftatífa og trunta. En frú Ingveldur hafði kvöldið áður en hún flutti Sjálfstæðismönnum í Garðabæ erindi sitt, komið að Kolbeini, eiginmanni sínum, í óforskömmuðum ástarlífsmökum með Máríu borgargagni um kvöldmatarleytið undir borði í bílskúr frú Ingveldar og Kolbeins.

Niðurstaða erindis frú Ingveldar var því sem sé, að meydómurinn væri í raun einskis virði í nútíma þjóðfélagi og það væri fremur heimskulegt að reyna að halda í hann til þess eins að halda árunni hreinni. Hinsvegar bæri kallmönnum að sniðganga hórinn eins og hverja aðra drepsóttarplágu og leggja sig ávallt í líma við að halda krumlum sínum og öðrum líkamsöngum frá nærbuxum kvenna til að fá ekki það orð á sig að vera nærbuxnafémínístar.


mbl.is Reyndi að selja meydóm dóttur sinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ömurlegt ky - kvendi hún frú Ingveldur.

Árni Gunnarsson, 24.10.2011 kl. 21:08

2 Smámynd: Vendetta

Já, það er auðvitað ótækt að verða gömul jómfrú. Það væri eins og að kasta lífinu á glæ.

Annars kann ég góða vísu um meydóm. En ég ætla ekki að hafa hann eftir hér fyrr en allar teprur eru komnar í bólið.

Vendetta, 24.10.2011 kl. 22:27

3 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Vendetta getur þú ekki haft hann eftir í gestabókinni ?

Kveðja, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 26.10.2011 kl. 11:26

4 Smámynd: Vendetta

Nú er ég buinn að skrifa hana í gestabókina. En það kom ekki rétt út, því að greinarskil eru ekki sýnd í gestabókinni og ég vissi það ekki.

Við frekari umhugsun, þá var vísan víst ekkert svo voðaleg. Frekar rómantísk/erótísk.

Vendetta, 26.10.2011 kl. 11:45

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Takk fyrir stökuna, Vendetta, hún gefur mjög góða og hrífandi innsýn í vandamálið, sem þar er til umfjöllunar.

Jóhannes Ragnarsson, 26.10.2011 kl. 17:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband