Leita í fréttum mbl.is

Þegar ein báran rís, er önnur, þriðja, fjórða og fimmta vís

ingv9.jpgEkki er það efnilegt hjá blessaðri manneskjunni henni Ónordal. Það er eins og ólánið ætli ekki af henni að ganga. En sumir virðast ekki geta stigið hænufet öðruvísi en að flækja sig í buxunum og velta útaf eins og karöflupoki. Fyrst lendir Ónordal í því að vera kosin til Alþingis fyrir einhver hræðilegustu samtök þjóðarinnar, þar næst gera þeir hana að varaformanni samtakanna og loks hverfur Tómás hennar úr landi eins og hver önnur súrálssletta. Verra getur það ekki orðið fyrir eina saklausa konukind. Og hefur nú sannast grátlega á frú Ónordal, að þegar ein báran rís er önnnur, þriðja, fjórða og fimmta vís.

Einusinni þaut Kolbeinn Kolbeinsson úr landi ásamt Indriða handreði og settust þeir að í Hamborg í Þýskalandi. Þar kváðust þeir hafa vellaunuð verk að vinna og báði konur sínar að hafa sig afsakaða um stundarsakir og brýndu fyrir þeim, áður en þeir fóru af landi brott, að haga sér skikkanlega og passa sérstaklega vel á karlkyninu, sem væri til alls líklegt eins og venjulega.

Segir ekki af okkar mönnum meir fyrr en þeir birtast mánuði síðar á Keflavíkurflugvelli, rauðþrútnir í framan og illa til reika, og með pappíra í fórum sínum, sem hljóðuðu uppá 5 milljón króna skuld við fyrirtæki eitt við Herbertsstrasse í Hamborg. Og svo varð ríkisstofnunuin, sem Kolbeinn er skrifstofustjóri hjá, að borga reikninginn ásamt því að biðja frúna, sem veitir fyrirtækinu í Herbertsstrasse, fyrirgefningar á framkomu þeirra félaga og óskilvísi. 


mbl.is Býr áfram á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jóhannes. Gleðilega ljósa og friðarhátíð.

Það er svo full þörf á að bæta náungakærleika við þessa hátíð, ef eitthvert gagn á að vera að þessu tilstandi öllu saman.

Það blæs ekki byrlega fyrir réttlætinu, frekar en fyrri daginn á landinu bláa. Það dugar ekkert minna en samstöðu þjóðarinnar, til að bjarga því sem bjargað verður á þessari embættismanna-heimsmafíu-hvítflibba-spilltu eyju í norðri.

Blessuð konan, hún Ólöf Nordal er búin að láta flækja sig í neti gervi-Sjálfstæðisflokksins á Íslandi. Ég bið alla góða vætti að hjálpa blessaðri konunni og okkur öllum, blekktum og breyskum sakleysingjum þessa lands og annarra landa.

Svo bendi ég fólki á að horfa á mynd sem heitir: Draumalandið.

Oft var þörf, en nú er nauðsyn að horfast í augu við raunveruleikann sem er að gerast á Íslandi í dag! Og reyndar um allan þennan hnött, sem við lifum á, og af.  Við verðum að sá og rækta rétt, til að uppskera raunhæft og réttmætt.

Við eigum bara eina móður jörð, heimsbúarnir allir.

Við verðum að ná sátt um að nýta hana rétt, ef við ætlum að halda jörðinni.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 27.12.2011 kl. 20:05

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Takk fyrir Anna Sigríður. Og gleðilega ljósa og friðarhátíð.

Þessi stutti pistill þinn er frábær og hvert einasta orð í honum satt og rétt.

Jóhannes Ragnarsson, 27.12.2011 kl. 20:14

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jóhannes.  Takk fyrir. Hvenær mun fólk hlusta á sannleikann?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 27.12.2011 kl. 20:49

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ætli konan sú hafi ekki haft bæði augun opin þegar hún tókst á hendur að giftast þessum Má ekki seðlabankastjóra.  En fyrst hún vorkennist ekki að sjálfsdáðum ætla ég mér ekki heldur að gera það.  En mér þætti það ekkert leiðinlegt ef hún elti bónda sinn til útlanda, þetta er hvort sem er ekkert meiri flutningar en í meðal ári að sögn forsætisráðherrans, og það verða þá einhverjir sem komast í allavega tvö vellaunuð störf hér fyrir þeirra hönd.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.12.2011 kl. 20:50

5 Smámynd: Birgir Örn Guðjónsson

Þið eruð eitthvað veik.

Birgir Örn Guðjónsson, 28.12.2011 kl. 09:58

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Birgir. Ertu með sjúkdómsgreininguna handa okkur, svo við getum leitað okkar lækninga við veikindunum? Verðum við ekki að hugsa í lausnum, og lifa í réttum raunveruleikanum, og taka málefnanlegum leiðbeiningum?

Ert þú búinn að horfa á myndina Draumalandið? Það er heimildarmynd um það hvernig verið er að blekkja og leiða íslendinga beint í græðgisnetið tortímandi.

Sannleikanum er haldið leyndum fyrir almenningi á Íslandi, til að hægt sé að mergsjúga allt af stritandi almúganum, og hann látinn hada að vitleysan sé hagkvæm, þegar upp er staðið.

Sumum hugnast ekki að horfast í augu við staðreyndir og viðurkenna mistök af auðmýkt, til að hægt sé að breyta til hins betra.

Það er eðlilegt að vera mannlegur og gera mistök. Það sleppur enginn við þessa mannlegu galla, því miður.

Það er stórmannlegt að viðurkenna mistök og takast á við afleiðingar sinna mistaka. Þannig er hægt að breyta og bæta. Það er engin skömm fyrir stjórnmálamenn og aðra, að viðurkenna mistök og skipta um skoðun, þegar þeir átta sig mistökunum.

Þeim verður auðveldlega fyrirgefið mistökin, sem þora að stíga slík skref. 

Flokkseigendur/auðmenn/bankar úti í bæ eiga ekki þingmenn og ráðherra, og hafa ekkert leyfi til að ráðskast með þá að eigin geðþótta eins og virðist vera venjan.

Og verðlauna þingmenn og ráðherra svo með einhverjum feitum embættum fyrir hlýðnina við spillt auðvald úti í bæ. Flest feit embætti innanlands og út fyrir landssteinana eru skipuð fólki sem hefur verið leiðitamt og hlýðið við auðvaldið utan þingsins.

Er það svona sem við viljum hafa stjórnsýsluna á Íslandi? Er það heilbrigt?

Þetta er ólíðandi hegðunar-mynstur í gjörspilltri embættismanna-pólitíkinni á Íslandi!

Almættið hjálpi þeim sem finnst þetta eðlileg og lýðræðisleg stjórnsýsla.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.12.2011 kl. 11:22

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það getur vel verið að við séum veik, en við erum samt með augun opin og eyru sem heyra, munn til að tala með og putta sem hamra líðan okkar inn í tölvu.  Meðan svo er, er einhver von um  betra Ísland.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.12.2011 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband