Leita í fréttum mbl.is

Stjörnusýslumaðurinn Stones mun sýna hundum og hundaeigendum í tvo heimana

voffÞað reynir virkilega á mann að lesa þessa skelfilegu frétt af hundaskítsmálum í umdæmi sjálfs Stjörnusýslumannsins Stones á Selfossi. Hvernig í ósköpunum má það vera að fólk undir stjórn jafn ágæts yfirvalds og Störnusýslumannsins ástkæra skuli vaða út með hunda sína beinlínis til að láta þá hægja sér um götur og torg?

Það er eitthvað bogið við svona lagaða háttvísi.

Meira að segja stjórnmálaforingjar láta búrtíkur sínar ævinlega nota toilet til að létta á sér.

Ekki kæmi mér því á óvart, í ljósi undangenginna atbuða, að herra Stones Stjörnusýslumaður skeri nú upp herör gegn hundum og hundaeigendum á Selfossi og nærsveitum og linni ekki látum fyrr enn allir hundar á svæðinu hafa verið skotnir og grafnir en hundaeigendur flúnir í fjarlæga staði.

Því má og til gagns geta, að fróðir menn hafa sagt mér að mikill áhugi sé nú uppi meðal kristinna þjóðkirkjumanna að skora á herra Ólaf Helga, Stjörnusýslumann Árnesinga, að taka að sér að verða byskub yfir Íslandi þá byskubsembættið verður laust á sumri komanda. Telja stuðningsmenn að nú sé nóg komið í bili af lurðumennum og óbóta á byskubsstóli og sé því rétt að fá til starfans röggsaman sýslumann sem kann að taka á villráfandi sauðum í klerkastétt á þann hátt að þeir láti sér að kenningu verða.

 


mbl.is Hundaskítur á víð og dreif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Njörður Helgason

En er bæjarstjórnin í Árborgarhrepp ekki með öll völd yfir húsdýrum í samfélaginu? Eyþór Arnalds og félagar hans í hreppsnefndinni ættu að koma upp ljósastaurum víðsvegar um Árborgarhrepp fyrir hundana að létta á sér. Síðan mætti hafa poka undir lortana á staurunum.

Átak í umhverfismálum!

Njörður Helgason, 16.1.2012 kl. 10:38

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sá eðal kappi myndi augljóslega sóma sér vel sem biskup trúi ég. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.1.2012 kl. 12:58

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hann myndi örugglega "poppa" jobbið upp. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.1.2012 kl. 12:58

4 Smámynd: corvus corax

Það er allt í lagi með hundana en það er alltaf sama sagan með þessa andsk.... hundaeigendur.

corvus corax, 16.1.2012 kl. 15:34

5 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Heitir hann ekki Óli þvagleggur,þessi umrædi sýsli.

Vilhjálmur Stefánsson, 16.1.2012 kl. 21:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband