Leita í fréttum mbl.is

Einfalt ráð gegn íslenskum tannlæknum

tann.jpgÞað þarf ekki neina endurtekna rannsókn um tannheilsu landsmanna. Sú heilsa liggur ljós fyrir í formi brunarústa í munnum landsmanna.

Það sem bera gera í því máli er: 1.) Setja Guðbjart Hannesson af sem ráðherra. Það er nóg að silkihúfum á fóðrum hjá ríkinu og óþarfi að bæta Guðbjarti við þann mannsöfnun. 2.) Tannlækningar verði samfélagsvæddar undir eins. Sem þýðir að tannlæknastofur verða reknar af ríkinu og tannlæknar verða starfsmenn ríkisins. Ef hinir peningagráðugu íslensku tannlæknar neita að gerast stafsmenn á vegum almennings þá skal finna fyrir þá einhver önnur störf, en fá þess í stað tannlækna erlendis frá, sem ekki hafa orðið einkagróðahyggjunni og sérhagsmunasýkinni að bráð.
mbl.is Einn veikasti hlekkurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jóhannes. Tek undir þessi orð þín. 

Svo er mér svo mikið misboðið núna, að ég ætla að klína mínum reiðilestri út í stjórnsýsluna, á bloggið þitt. Þú strokar það bara út ef ég er ekki nógu "siðmenntuð" og réttlát í þessum pistli.

Forgangsröðunin krefst ekki akkúrat bættra tannlækninga, á þessum neyðartímum þeirra rændu og sviknu, þegar fólk hvorki hefur, eða kemst til heimilislæknis, nema ákveða það mörgum dögum eða vikum fyrr hvort það verður veikt!

Svo væri rétt að spyrja út í svívirðileg mannréttinda/lækna/stjórnsýslukerfis-svikin/brotin gegn Ellu Dís, og móður hennar Rögnu Erlendsdóttur, sem sumir fjölmiðlar hafa þorað að fjalla um, fyrir og eftir jól, og fram á þennan dag! Móðirin er ásökuð og ofsótt af barnaverndarnefnd Reykjavíkur, vegna þess að hún er að gera allt til að bjarga lífi barnsins síns! Sem aftökusveit stjórnsýslu-mafíunnar reynir með öllum brögðum að stoppa!

Þetta fyllir svo sannarlega mælirinn! 

Og ríkisfjölmiðlarnir þegja yfir þessum hryllingi, eins og þeir hafi engum skyldum að gegna gagnvart samfélaginu og almenningi! Er það vegna þöggunar-kröfu eigenda ríkisfjölmiðlanna, sem er LYFJAMAFÍAN! 

Hvað verða Barnaverndar-fórnarlömbin og áföllin að verða mörg, til að almenningur í þessu landi, og stjórnsýslan fari að sýna einhverja mannúð, og standa með sálar/líkams-dauða-fórnarlömbum Barnaverndarkerfisins á Íslandi, og víðar í Vestræna "siðmenntaða" heiminum??? 

Það væri að mínu mati forgangsverkefni að bæta þessum mæðgum upp þá svívirðilegu meðferð, sem þær hafa þurft og þurfa enn að þola af "heilbrigðiskerfinu". Og það í "siðræna vestræna heiminum", nánar tiltekið í "velmenntaða og siðaða" samfélagskerfinu á Íslandi! Með "velferðarstjórn" í brúnni! 

Læknamistök á Íslandi skulu endalaust þögguð niður, eða hvað? Og Barnaverndar-yfirvöld notuð til óhæfuverkanna! 

Svo er bráðnauðsynlegum aðgerðum á sjúku fólki frestað, í boði velferðar-ó-stjórnarinnar, þar til fólk verður að leggjast inná bráðamóttöku, með tilheyrandi neyðarúrræðum og ríkiskostnaði. Eða koma sér annars sem snarast yfir móðuna miklu, ef þeir sjúklingar hafa ekki tiltækan pening fyrir farinu á bráðamóttökuna, og læknishjálpinni!

Ég er að tala um þá verst stöddu, sem ekki hafa kaupmátt til að lifa í þessu ASÍ-EES-(AGS-ESB-kúgaða ríki), sem kallað er Ísland.

Það er ókeypis til himnaríkis ennþá! Svo það er hagnaður fyrir ríkiskassann sálarlausa, að losa sig við atvinnulausa, fátæka, sjúka, gamla og svikna!!! Væri ekki heiðarlegra og hreinlegra að skjóta fólkið í opinberlega viðurkenndu stríði, heldur en að nota svona seindrepandi bankastjórnsýslu-valdaránsaðferðir við útrýmingar-kúgunarstríðið og AGS-valdaránið?

Þessari spurningu ætti nýstofnuð upplýsinga-útgerðarstofnun AGS-ESB á Íslandi að geta svarað vel og skilmerkilega! Ekki eru starfsmenn þeirrar stofnunar svo illa settir (skattfrjálsir og vel launaðir), að geta ekki sótt sér læknisþjónustu, þegar þeim dettur í hug að verða veikir, meðan á ESB-trúarfrelsunar-prédikunartímanum á Íslandi stendur!

Og ef saklaust fólk er svo "vitlaust" að hafa látið bankarán og ó-stjórnsýslubatteríið í heild sinni ræna sig atvinnu, heilsu og lífvænlegum kaupmætti, ja, þá getur það fólk víst bara sjálfu sér um kennt, að hafa keypt flatskjá árið 2007!!! Jafnvel þótt það sama fólk hafi ekki einu sinni verið með sjónvarp síðasta áratuginn!

Skilaboð stjórnsýslunnar eru: úr landi með þá sem ekki er hægt að ræna meira, eða einhverra "undarlegra" hluta vegna sætta sig ekki við að láta ræna sig af mafíunni! "Sið-menntuð" stjórnsýslan krefst þess nefnilega að ránin haldi áfram!

Mikið samgleðst ég blessuðum hagyrðingnum og góðmenninu, Gísla heitnum á Uppsölum, að vera sloppinn frá "velmegunar"-"sið"-menntaheimum Íslands! Því lengi getur vont versnað, þegar stjórnlaust og ómannúðlegt rugl er eina kjölfestan á Íslandi!

Hvernig hefði farið fyrir honum Gísla blessuðum núna, þegar verið er að færa almenningi á Íslandi sömu kjör og hann bjó við, blessaður heiðursmaðurinn. Hann sá í gegnum alla spillinguna og ruglið.

Nú er nóg komið af "velferðar-aftöku-landhreinsunar-ó-stjórninni"!!!

Bæði af fyrri stjórnum og núverandi! Þær eru nefnilega sami spillingargrauturinn í sömu skálinni!

Munum að sannleikurinn og sagan mun lifa jafn lengi og sálirnar, sem eru ódauðlegar!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 30.1.2012 kl. 22:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband