Leita í fréttum mbl.is

Tilgangsleysið og tómhyggjan skín úr öllum andlitum

nak1.jpgMerkilegur andskoti þegar innihaldslausir tómhyggjugosar fá allt í einu köllun til að brussast útí pólitík og fylgja tilgangsleysi köllunar sinnar eftir með því að stofna stjórnmálaflokk!

Það er til dæmis kostulegt, að Gnarrhjörðin, sem þekkust er fyrir að vera úti að skíta, og hinn hæfileikalausi pólitíkus, Gvendur Steingríms, rjúka til og búa til stjórnmálasamtök um ekki neitt.

Auðvitað gleyma Gvendur og Gnörrin ekki að geta þess hvað þau og flokkurinn þeirra eru gífurlega frjálslynd, alþjóðleg og lýðræðissinnuð, - en gleyma, af ásettu ráði, að geta þess tilvonandi flokksnefnan þeirra er einungis enn ein auðvaldsskítahrúgan, byggð á úrkynjum kapítalismans og öðru sem við á að éta á því menningarheimili.

Ekki er síður merkilegt, að til stendur að stofna á næstunni fleiri stjórnmálasamtök, sem eiga að byggjast á sama kapítalíska grunninum og fjórflokkurinn, Gvendar&gnarrflokkurinn og Repúblíkanaflokkurinn í Bandaríkjunum. Nú síðast boðaði Lilja Mós eitt svona holtaþokugaul í viðbót! Og ég sem hélt að nóg væri komið af mannskemmandi pólitískum viðbjóði og í þeim efnum væri allt fullreynt.

Fyrir mína parta lýsi ég fullkomnu frati á alla kapítalíska fokka, gamla, nýja og tilvonandi. Þeir hafa ekkert uppá að bjóða, utan úrkynjun, og hafa ekki annan tilgang en að höfða til lægri hvata mannskepnunnar.  


mbl.is Nýtt stjórnmálaafl stofnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er eitthvað svo .... eitthvað allskonar um ekkert.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2012 kl. 22:30

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Dapurt og dautt !!!!

Helga Kristjánsdóttir, 5.2.2012 kl. 05:05

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það er vandræðalega óþægilegt að hlusta á Guðmund Steingrímsson, þegar hann lýsir af mikilli ó-innlifun, "sínum hugsjónum".

"Hugsjónum" sem eru einhverskonar óákveðið grænt frelsi (grænt hljómar vel), til að troða viljalausum þrælum Íslands í ESB-ó-stöðugleika-bankaræningja-bjarta framtíðar-Evrulandið.

Ábyrgðin er kjósenda, að tortíma ekki landsmönnum enn meir, en gamla Framsóknar-Samspillingin Sjálfstæða (einráða), hefur nú þegar gert, með aðstoð allra flokka-stefnu-svikara.

Halldór Ásgrímsson er bara á fullu að safna liði, til að viðhalda píslargöngu almennings, til Bjarta Framtíðar Evrulandsins stjórnlausa og sundrandi. Ég vorkenni Guðmundi Steingrímssyni að vera fæddur inn í þennan spillta Halldórs Ásgríms-flokk Samspillingarinnar Sjálfstæðu.

Það er niðurlægjandi fyrir listamanninn Guðmund, að láta nota sig á þennan hátt, af slíkum Halldórs-spillingaröflum, sem alltaf finna  fórnarlömb, til að vinna skítverkin fyrir sig.

Skyldi sá fýlulegi Framsóknar-Svarti-Pétur: Halldór Ásgrímsson, vera hættur að nota broskróka á falska andlitið sitt?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.2.2012 kl. 10:23

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hefurðu eitthvað handbært um að Halldór Ásgrímsson sé þarna á bak við Guðmund? Það væri nú frétt til næsta bæjar Anna Sigríður.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2012 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband