Leita í fréttum mbl.is

Skrípalingur hrunsins

ös1Það má merkilegt heita, að helsti skrípalingur hrunstjórnarinnar 2008 sé enn að sem ráðherra, og rífandi kjaft í þokkabót þrátt fyrir að hafa nákvæmlega engin efni á þessháttar munaði. Það er til algjörrar skammar fyrir land og þjóð, að Össuri Skarphéðinssyni og Jóhönnu Sigurðardóttur sé telft fram, ár eftir ár, sem langsamlega valdamestu ráðherrum Samfylkingarinnar. Það sýnir hinsvegar sýnir en nokkuð annað, að aldrei stóð til neitt uppgjör við Hrunið, frjálshyggjuna og hina hægrisinnuðu valdablokk í landinu af hálfu Samfylkingarinnar og VG. Þetta óvandaða drasl, sem situr eins og ekkert sé í stjórnarráðinu, er nefnilega hluti af samtryggingarkerfi borgarastéttarinnar, Fjórflokksins, og ekki punktur né komma umfram það.

Og þegar Ögmundur Jónasson reynir af veikum mætti að standa í lappirnar gagnvart spilltustu ráðherrum ríkisstjórnarinnar með því að gera kröfu um að bundinn verði endi ESB-fíflaganginn fyrir næstu alþingiskosningar, fer skrípalingurinn Össur Skarphéðinsson að þvæla um villiketti. Heldur þetta auma mannkerti að samtímafólk hans sé eitt allsherjar samansafn af blábjánum sem óhætt sé að glenna óæðri endann framaní hvar sem er og hvenær sem er? Til hvers í fjandanum eigum við almenningur að láta bjóða okkur svona giljagaur á ráðherrastóli öllu lengur?

Ég tek undir með Ögmundi Jónassyni, að ESB-dæmið verði lagt í hendur kjósenda áður en gengið verður til næstu alþingiskosninga. Ég geri líka þá kröfu til Ögmundar, að hann fylgi þessu máli eftir af fullri einurð og láti brjóta á því ef ekki vill betur, - já og fleiri málum.

Það yrði Ögmundi og hans baklandi til mikils álitsauka, ef hann tæki ríkisstjórn hinna gjörspilltu ekkivinstrimanna og snéri hana út hálsliðnum eins og gæsastegg. Raunar er það söguleg nauðsyn að svona blekkingastjórn sé slegin af.

Þátttaka VG í ríkisstjórn strax eftir hrun var ófyrirgefanlegt asnspark þegar haft er í huga það hlutverk sem kjósendur flokksins ætluðu honum Enda á þetta asnaspark eftir að verða flokknum dýrt. Eins og staðan er í dag, er fátt sem bendir til annars en að Vinstrihreyfingin grænt framboð sé að líða undir lok. Þessi flokksnefna er ekki fulltrúi eins eða neins, á sér ekkert hlutverk annað en að fóðra fáeina óheiðrarlega flokkseigendur.

Í ljósi óhjákvæmilegra endaloka VG, eiga raunverulegir sósíalistar og verkalýðssinnar ekki annars úrkosta en að setjast niður og hugsa sinn gang. Á hinum sósíalíska væng íslenskra stjórnmála er mikið tómarúm, sem okkur sósíalistum ber að fylla. Og það skulum við gera - eða hvað?

 


mbl.is Villikettir VG komnir á kreik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góður.. gastu ekki fundið nýlega mynd af kappanum  Tek annars undir hvert orð.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2012 kl. 11:58

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Strípalingurinn Össur segist ætla að koma með besta fáanlegan samning heim Ég á þá ósk heitasta að hann komu alls ekki heim,drullist til að vera þarna úti og skipti um ríkisfang. Ögmundur hefur áttað sig á skaðsemi þessa stefnulausa samstarfsflokks,hann lætur ekki þar við sitja, heldur snýst til varnar þjóð sinni.

Helga Kristjánsdóttir, 27.2.2012 kl. 14:24

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þetta er klassísk mynd af Össuri. Ef svo einkennilega mun vilja til að einhver umfjöllun verður um karlinn í námsefni grunnskólabarna eftir 500 ár þá mun þessi mynd fylgja þeirri umfjöllun, önnur ekki.

Það er öngum blöðum um að fletta, að Össur kemur jafnberrassaður heim frá ESB-samningunum og hann er á myndinni atarna.

Jóhannes Ragnarsson, 27.2.2012 kl. 14:40

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég meinti nú að hann er allof grannur á þessari mynd.  Held að það sé meiri svíri og ístra á karli en þetta. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2012 kl. 15:56

5 Smámynd: Hörður B Hjartarson

Mikið lifandis skelfingar ógn og býsn vildi ég geta verið þér ósammála , Jóhannes , en það er lífsins ómögulegt , nema þá helst það að lengi getur vont versnað , og skíthræddur er ég um , að það ætti við , ef þessi merkikerti , sem nú eru við stjórnvölinn , hrökkluðust frá völdum , því það er næsta víst að ekki er Engeyjarbarnið betra , hvað þá annað hyski í FL-fokknum , málið er að það er ekki um auðugan garð að gresja , og sandkassaleikurinn stendur enn .

Hörður B Hjartarson, 1.3.2012 kl. 15:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband