Leita í fréttum mbl.is

Nú liggur vel á forystuskríl skemmdarverkasamtakanna.

au_vald_1061447.jpgÞað kemur ekki á óvart, að þessari frétt á Mogganum fylgi mynd af Páli Magnússyni ,,Útvarpsstjóra" brosandi útað eyrum, enda hefur honum verið falið að inna af hendi skítverk, sem sumum á Mogganum og hinum öfgafulla og heimska forystuskríl skemmdarverkasamtakanna sem standa að ríkisstjórninni, er afar þóknanlegt.

Það er borðliggjandi, að alþýnan verður að bregast við og stöðva aðför hinna heimsku og öfgafullu að Ríkisútvarpinu, fyrir nú utan að gera gangskör að því að koma umræddum skemmdarverkaskríl frá völdum og banna samtök hans. Það er bara hreinlega útilokað, að láta illkvittna dólga forréttindastéttarinnar fá að skemmta sér við að eyðileggja samfélagið meira en þeim hefur tekist fram að þessu. Almenningur í þessu landi verður að fara að átta sig á, að óþrifnaðarsamtök eins og Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn eru ekki nein góðgerðarsamtök nema fyrir sig og sína, þ.e. broddborgarastéttina og hennar auðvirðilega hyski, en með slíkum félagsskap á venjulegt alþýðufólk enga samleið.
mbl.is Fréttatímum fækkað og þeir styttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: rhansen

Og Rúv sem á helst bara vera fyrir vinstri áróður ??...mál að linni ....þetta hefur ekki verið Rúv allra landsmanna árum saman ,komið mál til að slökkva !!!

rhansen, 27.11.2013 kl. 15:50

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Allt hlutleysi er vinstriáróður í augum öfgalýðsins í Sjálfstæðisflokknum. Þannig er það nú bara. En að láta þessi kykvendi um stjórn landsins er blátt áfram sorgelegur glæpur.

Jóhannes Ragnarsson, 27.11.2013 kl. 17:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband