Leita í fréttum mbl.is

Útilbú Sjálfstæðisflokksins í 101

sira1.jpgÞað er eftir öðru hjá Sjálfstæðisflokknum að setja á laggirnar leikskóla til geta stundað barnapyntingar og má nú segja að þessum hrottasamtökum sé bókstaflega alls varnað og einskis sé framar að vænta úr þeirri átt nema glæpa og svívirðu.

Í gær sendu þessi ógnarstjórnarsamtök útsendara sína uppí útvarpshúsið í Efstaleiti þar sem þeir siguðu blóðgrimmum hundum á starfsfólkið. Eftir þá atlögu lágu 39 útvarpsmenn í valnum, og nokkrir til viðbótar eru komnir með hundaæði svo nú má sjálfur útvarpsstjórinn fara að vara sig.

En í glæsivillu sinni hafast frú Ingveldur og Kalbeinn maður hennar við og semja aðgerðaáætlun fyrir ríkisstjórnina. Það þykir við hæfi að þessi valinkunnu hjón hafi með höndum það vandasama verk að útsetja viðunandi terror gegn almenningi fyrir æðsta ráð kvótavinafélagsins í stjórnarráðinu.
mbl.is Ómálga börn voru beitt harðræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband